Tíminn - 13.05.1978, Síða 25
Laugardagur 13. mal 1978.
25
Alfreð Þorsteinsson:
Þess ber
einnig
að geta,
sem vel
er gert
— athugasemd vegna skrifa
Tímans um
umhverfismál
á Keflavíkurflugvelli
í gagnrýni Timans frá 2. aprfl er talaö um ljótar skellóttar og vanmálaöar byggingar á Keflavlkurflug-
velli og efsta myndin hér á siöunni birt til sannindamerkja um þaö. En þessi sama bygging haföi reynd-
ar veriö máluö á árinu 1977 eins og myndin fyrir neöan ber meösér.
A hinum samanburöarmyndunum sem fyrir neöan eru.sjást tvö svæði á Keflavíkurflugvelli fyrir og eft-
ir hreinsun á síöasta ári. Ef myndirnar prentast vel má sjá aö fleiri eru syndaselir á Keflavikurflugvelli
en varnarliðiö.
t byrjun siðasta mánaðar birt-
ust tvær myndaopnur frá Kefla-
vikurflugvelli i Timanum undir
fyrirsögninni „Andlit tslands ekki
nógu fritt”. Sýna þessar myndir
m.a. ýmsar byggingar á Kefla-
vikurflugvelli og umrót vegna
framkvæmda þar. Þarf ekki að
ganga að þvi gruflandi að þessi
myndabirting er runnin undan
rifjum Ferðamálaráðs.
Sizt af öllu vill undirritaður am-
ast við þeirri viðleitni Ferða-
málaráðs að berjast gegn hvers
konar umhverfismengun hvort
sem er á Keflavikurflugvelli eða
annars staðar og munu allir góðir
tslendingar styöja ráöið i þeirri
baráttu. En þá lágmarkskröfu
verður að gera aö Ferðamálaráð
og i þessu tilviki Timinn greini
satt og rétt frá.
Sannleikurinn er sá að þær
myndir sem Timinn birti 2. april
voru orðnar ársgamlar er þær
birtust og gefa alranga hugmynd
um ástand húsa og bygginga sem
sýndar eru. Hér er þvi beinlinis
um falsanir að ræða hvort sem
það stafar af slysni eða ekki.
Lesendum Timans til upp-
lýsingar skal þess getiö aö Einar
Agústsson utanrikisráðherra
hefur lagt mikla áherzlu á að gert
yrði stórátak i hreinsunar- og um-
hverfismálum á Keflavikurflug-
velli. Hafa yfirmenn varnarliðs-
ins i samvinnu viö varnarmála-
deild utanrikisráðuney tisins
brugðið skjótt og vel við þeim
óskum ráöherrans og var unniö
fyrirtugi milljóna króna á s.l. ári
viðhreinsuná Keflavikurflugvelli
auk þess sem hús og byggingar
voru málaðar. Einnig vörðu Sala
varnarliðseigna og Islenzkir að-
alverktakar miklu fjármagni til
hreinsunar umráðasvæða
sinnaog störfuöu vinnuflokkar
allt s.l. sumar að þeim fram-
kvæmdum.
En rétt er aö það komi fram, að
hérerum margra ára vanrækslu-
syndir varnarliðsins að ræöa og
útilokaðaðumbætur á þessu sviði
verði unnar á einu ári. Þvert á
móti er sennilegt að hér sé um
margra ára úrlausnarefni að
ræða. í þvi sambandi má geta að
á þessu ári mun varnarliðiö láta
þekja 5 hektara lands og sá I aðra
5 hektara samkvæmt einum
samningi við Islenzka aðalverk-
taka-en samtals mun varnarliðið
verja um 500 milljón króna til
umhverfisverndar og ýmiss kon-
ar lagfæringa á Keflavikurflug-
velli á þessu ári. Þá má geta þess
að nú hillir undir sorpeyðingar-
stöð( sem reist verður á vegum
sveitarfélaganna á Suðurnesjum I
samvinnu við varnarliðið en
varnarliðið mun nýta stööina um
70%. Með tilkomu sorpeyðingar-
stöðvarinnar mun sorpeyðingar-
vandamáliö á Keflavikurflugvelli
leysast að verulegu leyti. Þá má
loks geta þess, að væntanleg er á
vegum varnarliðsins brotajárns-
pressa sem mun gera alla meö-
ferð brotamálms miklu auöveld-
ari.
Auðvitaö er margt aöfinnslu-
vert á Keflavikurflugvelli bæöi
viðkomandi varnarliðinu og þeim
islenzku aöilum, sem starfsemi
hafa þar. Hins vegar er rikur
skilningur á að viö svo búið má
ekki standa. Þess vegna fóru
fram á siðasta ári umfangsmestu
framkvæmdir i umhverfismálum
frá þvi að varnarliðiö kom. Og
þeim veröur haldið áfram af full-
um krafti á nýbyrjuðu sumri.
Með tilliti til þess sem upplýst
hefur verið hér að framan^verður
aö telja þaö ósanngjarnt að mál-
gagn utanrikisráðherra skuli
gera umhverfismengun á Kefla-
vikurflugvelli að sérstöku um-
talsefni i þeim dúr sem gert var 2.
apríl s.l., en geta i engu um sér-
stakar ráðstafanir ráðherrans til
úrbóta.