Tíminn - 26.05.1978, Qupperneq 3
Föstudagur 26. mal 1978.
3
Kosningahappdrætti
Framsóknarflokksins:
Sumarhús, trésmíða-
vélar, litsjónvarp,
bátur og fleira í boði
Fiskur á Raufarhöfn:
40 tonn flutt á bílum
— borgar sig engan veginn
Kás— í gærdag fengu Raufar-
hafnarbúar fjörutíu tonn af fiski
send landleiðis frá Skagaströnd
með bilum, liklega um 400 kiló-
metra leið, aðallega grálúðu og
annan handflökunarfisk. Vinna
var þvi i fullum gangi i frysti-
húsinu i allan gærdag, en búizt
var við að vinnslu þessara fjöru-
tiu tonna lyki i kvöld.
Aöspurður sagði Olafur
Kjartansson, framkvæmdastjóri
Jökuls á Raufarhöfn, að þessi
vinnsluaðferð borgaði sig engan
veginn. Tilkostnaður væri alltof
mikill. Nefndi hann sem dæmi, að
flutningskostnaður hvers flutts
kólós næmi nálægt 27 krónum.
Þetta hgfði atvikazt fyrir
hreina tilviljun, verið hreinn og
klár greiði. Mikill afli hefði borizt
aö á Skagaströnd, mest grálúða
og annar handflökunarfiskur,
sem alltaf væri geysilega sein-
unninn, þvi hefði hann hlaupiö
undir bagga, þar sem fullt hefði
verið á öllum verðstöðvum i
nágrenninu.
Sagðist Ólafur hafa reiknað út
hvort mögulegt myndi að flytja
fisk frá Akureyri á bilum, en það
er um 300 kilómetra leið, þar sem
nauðsynlegt er að fara um Dals-
mynni vegna þungatakmarkana.
Þetta er vonlaust fyrirtæki.
Raunverulega borgar sig aldrei
að flytja fisk lengra en 100
kilómetra.
Ólafur var að vonum daufur i
dálkinn út af atvinnuhorfum á
Raufarhöfn, þar sem búast mætti
við togaranum i fyrsta lagi i lok
júni. Það virtist vera erfitt að fá
skilning ráðamanna á þessum
mikla vanda. Hann hefði reynt
alltsem honum hefði dottið i hug,
en sæi ekki fram á annaö en
greiðsluþrot, ef ekki rættist úr
neinu.
1 lokin sagöist ólafur hafa
hreina samvizku, vitandi þaö að
hann hefði reynt allt sem hann
gæti. Nú biði hann bara rólegur
þess sem verða vildi.
Hjörtur L. Jónsson
Franskur vísnasöngur í Norræna húsinu
Fösiudaginn 26. mai kl. 20.30
mun franski visnasöngvarinn
Gilbert Sagel syngja i Norræna
húsinu. Gilbert Sagel er liðlega
þritugur að aldri, fæddur i
Bretagne i Frakklandi. Hann hóf
söngferil sinn i veitingahúsum á
vinstri bakkanum i Paris og
starfaði jafnframt með Francois
Villon leikhúshópnum. Siðan hef-
ur hann sungið viða i Frakklandi
og komið fram i sjónvarpi og
útvarpi.
Hingað til landsins kemur hann
á vegum Alliance Francaise úr
nokkra vikna söngferðalagi um
Bandarikin, þar sem hann hefur
fengið mjög góðar undirtektir.
A dagskrá i Norræna húsinu
verða franskir ástarsöngvar (la
chanson d’amour francaise) bæöi
eftir hann sjálfan og ýmsa af
þekktustu ljóða- og lagasmiöum
Frakklands svo sem Georges
Brasséns, Jacques Brel, Serge
Gainsbourg og Maxime
LeForestier. Sagel mun aðeins
halda þessa einu söngskemmtun í
Norræna húsinu. Aðgangur er
ókeypis og öllum heimill.
Reiðhjólaskoðun
í Reykjavík 1978
I byrjun júnimánaðar munu
lögreglan og Umferðarnefnd
Reykjavlkur efna til umferðar-
fræöslu og reiðhjólaskoðunar
fyrir börn á aldrinum 7—14 ára I
skólum borgarinnar.
Skoðunin og fræðslan fara fram
á eftirtöldum stöðum: Fimmtudagur 1. júni Fellaskóli kl. 09.30
Hliöaskóli kl. 11.00
Melaskóli kl. 14.00
Austurbæjarskóli kl. 15.30
Föstudagur 2. júni Vogaskóli kl. 09.30
Langholtsskóli kl. 14.00
Breiðagerðisskóli kl. 15.30
Mánudagur 5. júni
Hólabrekkuskóli kl. 09.30
Alftamýrarskóli kl. 14.00
Laugarnessskóli kl. 15.30
Þriðjudagur 6. júni
Fossvogsskóli kl. 09.30
Hvassaleitisskóli kl. 11 00
Breiðholtsskóli kl. 14.00
Árbæjarskóli kl. 15.30
Börn úr öðrum skólum en hér eru
tilgreindir mæti við þá skóla sem
næstir eru heimilum þeirra.
Þau börn sem hafa reiöhjól sin I
lagi fá viðurkenningarmerki
Umferðarráðs 1978.
GOÐI tilbúinn i ofninn
Um tveggja ára skeið hefur Kjötiðnaðarstöð^ Sambandsins framleitt -
GOÐA-rétti fyrir mötuneyti í handhægum umbúðum sem fjótlegt er að
hita réttina upp i. Hefur framleiðslan notið vaxandi vinsælda og sifellt
bætzt fleiri við sem nota sér þessa þjónustu. ÖIl framleiðsla GODA-
rétta er undir eftirlitii rannsóknarstofu Búvörudeildar, sem annast
geymsluþolseftirlit varanna og hefur eftirlit meö hreinlæti á vinnustað.
Hægt er nú að fá um 29 tilbúna rétti I pakkningum fyrir allt fra éinum til
15 manns. Meöfylgjandi mynd er af tveimur einsmannsbökkum.
Hjörtur L. Jónsson hreppstjóri
á Eyrarbakka er sextugur i dag.
Hjörtur er fæddur 26. mai 1918 að
Kambi i Deildardal en hefur
verið hreppstjóri á Eyrarbakka
um 12 ára skeið.
Hjörtur hefur verið fréttaritari
Timans um fjölda ára og sendir
Timinn honum kveðjur sinar á
þessum timamótum og þakkar
gott samstarf. Hjörtur mun taka
á móti gestum á heimili sinu milli
kl. 17 og 18 i dag.
Ungliðar í Svan:
Safna fyrir utanlandsferð
Kás—Næstkomandi sunnuaag kl.
14—15 mun unglingadeild lúðra-
sveitarinnar Svans halda tónleika
á Lækjartorgi til að vekja athygli
á kökubasar og lukkuhappdrætti,
sem hún stendur fyrir i húsi
Skólarnir á Laugarvatni:
Nánari samvinna
tekin upp
næsta vetur
Unglingadeild lúðrasveitarinnar Svans.
Iðnaðarmannafélagsins 'við
Vonarstræti.
Markmiðið með þessari fjár-
öflun er að safna fé vegna ferðar
deildarinnar til Danmerkur i
sumar, en hún mun þá taka þátt i
alþjóðlegri hátið ungs fólks i
Kaupmannahöfn, „Copenhagen
International Youth Festival
1978”.
Er þetta i fyrsta skipti sem
hópur frá Islandi tekur þátt i móti
sem þessu, en þau eru haldin ann-
að hvert ár.
Unglingarnir hafa æft af kappi i
allan vetur, undir stjórn
Snæbjörns Jónssonar, sem verður
hljómsveitarstjóri i feröinni.
Vegna kosninganna, sem fram-
undan eru, hefur Framsóknar-
flokkurinn efnt til happdrættis. Sú
ráðstöfun var nauðsynleg til að
mæta þeim óhjákvæmilega og
mikla kostnaöi, sem þær hafa i
för með sér.
Miðar verða sendir til umboös-
manna um allt iand, en einnig til
einstaklinga, þar sem sérstakir
umboðsmenn eru ekki og þeim
treyst til aö kaupa miða og fá ná-
granna ogvini til að gera þaö.
Það er flokknum ómetanlega
mikils viröi að geta treyst á
stuöning manna i fjáröflun sem
öðru og margar hendur vinna létt
verk. Aðalatriðiðer að sem flestir
leggi hönd á plóginn. Þaö er lika
staöreynd, að happdrætti flokks-
ins mætir jafnan velvild og skiln-
ingi út fyrir raðir framsóknar-
manna, enda eru kaup á happ-
drættismiðum ekki fyrst og
fremst yfirlýsing um stuðning við
flokkinn, heldur miklu fremur um
skilning á þýðingu frjálsrar og
öháðrar stjórnmálastarfsemi i
landinu.
Aö þessu sinni eru margir
ágætir vinningar i boði, þ.á.m. er
landsspilda fyrir sumarhús i
Grimsnesi, sambyggt trésmiöa-
vélasett, sem samanstendur af
mörgum tækjum, tvö litsjón-
varpstæki, kappsiglingabátur
með tilh. útbúnaði, hljómflutn-
ingstæki, feröavinningar o.fl.
tJtdráttur i happdrættinu fer
fram 16. júni nk. og veröur ekki
frestaö. Menn eru þvi eindregiö
hvattir til að panta sér miða nú
þegar, ef þeir hafa ekki fengið þá
senda og aðrir að senda greiöslu
fyrir þá miða, sem þeir hafa
þegar fengið. Skrifstofa happ-
drættisins, Rauöarárstig 18,
Reykjavik er opin daglega á
sama tima og kosningaskrifstof-
urnar og þar eru miðar seldir.
Þeir, sem fengið hafa giróseðil
með miðun, geta hinsvegar fram-
visað greiðslu i hvaða peninga-
stofnun eða pósthúsi sem næst
- þeim er.
Sextugur i dag
Hjörtur L.
Jónsson
hrepps-
stjóri á
Eyrar
bakka
Eftir nokkrar umræður
fræðsluyfirvalda á Suðurlandi og
aðila i menntamálaráðuneytinu i
vetur um framtið og hlutverk
skólanna með það fyrir augum að
nýta sem bezt aðstæður á staðn-
um, bæði er varðar húsnæði og
kennslukrafta, og fjölga um leið
námsgreinum.
tþessu sambandi má nefna, að
Menntaskólinn og Iþróttaskólinn
munu halda áfram kennslu með
eðlilegum hætti á sinum sviðum,
en fjölgað verður brautum i
Héraðsskólanum. Þar er ætlunin
að bæta við nokkrum námsgrein-
um, ef r.æg þátttaka fæst. Þessar
greinar eru: bóknámsbraut I,
bóknámsbraut II, hússtjórnar-
braut, hússtjórnarnámskeið,
félagsmála- og iþróttabraut og
uppeldisbraut.
Siðan verður, að fenginni
reynslu næsta vetrar, metiö hvort
þessi skipan geti hentað til fram-
búðar og orðið i samræmi við var-
anlega skiptingu framhaldsskóla
á Suðurlandi.