Tíminn - 26.05.1978, Qupperneq 6
6
Föstudagur 26. mai 1978.
Eiríkur Tómasson:
Hraðbraut um Fossvogsdal
SKAÐLEG OG DÝR
FRAMKVÆMD
I aðalskipulagi. Reykjayikur
1975-1995 er gert ráð fyrir þw að
lögðverði hraðbraut um mi|jan
Fossvogsdal — hraðbraut sem
myndi spilla náttúr.ufégurð
dalsins og raska þeirri ró-^em
þar rikir. Þetta er dæmi'jum
ákvörðun sem tekin er þvert
ofan i vilja þeirra ibúa erJhlut
eigaað máli. Slikt er þvi ráiður
ekki einsdæmi hér i Reykjavik
þótt sú ákvörðun að leggja Hrað-
braut um Fossvogsdal taki
flestum fram i þvi efni þar sem
flest, ef ekki allt mælir á móti
henni.
Á að auðvelda umferð
Þá er nauðsynlegt að huga að
þvi hvort ekki sé hægt að greiða
fyrir umferð um Miklubraut. Til
álita kemur að breikka hana
þannig að á henni verði sex ak-
reinar — þrjár i hvora átt. Þá
þarf að skoða hvort ekki er hægt
að byggja umferðarbrýr á
helztu gatnamótunum.
Allt of dýr framkvæmd
Fyrirhuguð lagning Foss-
vogsbrautar yrði án efa dýrt
fyrirtæki. Óviða er jarðvegs-
dýpt meiri en i Fossvogsdal —
fróðir menn hafa tjáð mér að
sums staðar þurfi að grafa sjö
metra tilaðkomast niðurá fast.
Gröftur og fylling myndi þvi
kosta drjúgan skilding, en ekki
er mér kunnugt um að gerð hafi
veriðáætlun um það hvaðfyrir-
tæki þetta myndi kosta.
Náttúrufegurð í hættu
Fossvogsdalurinn er talinn
einn gróðursælasti staður á
landinu. Sk ógræktarfélag
Reykjavikur hefur aðstöðu
fremst i dalnum en þar og i
öskjuhlfo er eitt ákjósanlegasta
útivistarsvæði borgarinnar. Þá
rikir einstök ró og friður á þess-
um slóðum.
Hraðbraut um miðjan dalinn
myndi spilla öllu þessu. Skóg-
radítin yrði ekki nema svipur
hjá sjón, möguleikar til útivist-
ar yrðu minni og gnýr frá stöð-
ugri umferð um brautina hefði i
för með sér veruleg óþægindi
fyrir ibúa Fossvogshverfisins,
einkum þá sem búa neðst i daln-
um. Siðast en ekki sizt er i húfi
einstök náttúrufegurð, semekki
yrði aftur kölluð þótt mönnum
snerist hugur eftir að brautin
hefði verið lögð.
Enginn bilbugur á
meirihlutanum
1 sjónvarpsumræðum i fýrri
viku sagði borgarstjóri að-
spurðuraðekki væri fullákveðið
að leggja Fossvogsbrautina.
Þetta hefur eflaust hljómað
undarlega i eyrum einhverra
þar sem hingað til hefur ekki
virzt neinn bilbugur á borgar-
Eirlkur Tómasson
stjórnarmeirihlutanum i þessu
máli. 1 kosningapésa þeim sem
þeir sjálfstæöismenn hafa dreift
til borgarbúa er Fossvogsbraut-
in mörkuð s vört á hvítu i skipu-
lagskorti i opnunni. A þvi korti
er enginn fyrirvari gerður.
Framsóknarflokkurinn er eini
flokkurinn sem lagzt hefur ein-
dregið gegn lagningu hrað-
brautar um Fossvogsdalinn.
Það ættu þeir sem eru andvigir
hraðbrautinni að hafa hugfast i
kjörklefanum á sunnudaginn
kemur.
Eina röksemdin fyrir þessari
framkvæmd er sú að óhjá-
kvæmilegt sé að greiða f.yrir
umferð um borgina, einkum til
og frá Breiðholti. Það er rétt að
umferð gengur of stirðlega til og
frá Breiðholti. Þann vanda er
hins vegar hægt að leysa á mun
hagkvæmari hátt en með þvi að
leggja fyrirhugaða Fossvogs-
braut. Ráðið er að greiða fyrir
umferð um þær götur sem fyrir
hendi eru, Nýbýlaveg (i Kópa-
vogi), Bústaðaveg, Miklubraut
og Kleppsveg.
Það þarf að breikka bæði Ný-
býlaveg og Bústaöaveg þegar i
stað. Jafnframtþarf að auká ör-
yggi þeirra sem leið eiga yfir
þessar götur, t.d. með þvi að
reisa göngubrýr yfir þær. betta
á einkum viðBústaðaveginn'þar
sem umferðaröryggi er of íitið i
dag eins og mörg dæmi sanna.
Cr Fossvogsdal
BORGARMAL-----------------
Gerður Steinbórsdóttir:
Með hverjum eigið
þið samleið?
,,Við eigum samleið” er vig-
orð Sjálfstæðisflokksins i
borgarstjórnarkosningunum.
Borðar með þessum velþekktu,
hugljúfu orðum úr dægurlaga-
texta eru strengdir yfir götur i
miðborg Reykjavikur. En hvers
vegna skyldu borgarbúar eiga
samleið með Sjálfstæðisflokkn-
um? Er það vegna þess að hér
sé atvinnulif fjölskrúðugra en
annars staðar? Er það vegna
þess að fólk búi hér við meira
félagslegt öryggi en annars
staðar gerist? Eða eiga Reyk-
víkingar og Sjálfstæðisflokkur-
inn samleið bara af gömlum
vana?
Ekki er annaö sýnna en sjáit-
stæðismenn liti á höfuðborgina
sem sina eign, þegar maður sér
borðana i miðbænum. En hvað
gerist ef hagsmunir borgarinn-
ar og Sjálfstæðisflokksins rek-
ast á? Það skyldi ekki vera að
hagsmunir flokksins séu þá
meira metnir. Svo þéttriðið er
yaldanet flokksins að nær allir
embættismenn borgarinnar eru
sjálfstæðismenn. Það er engin
tilviljun að þeir sem játast undir
hina réttu trú fá úthlutað lóðum,
t.d. í Vesturbænum. Haldið þið
að það hafi verið tilviljun að
samþykkt var að hús verzlunar-
innar.sem risa á i nýja miðbæn-
um, þarf að greiða lægstu
gatnagerðargjöld? Var verið að
hugsa um hag Reykvikinga þeg-
ar S ambandinu og Kron var
neitað um lóðir, þótt það hefði i
för með sér lækkun á verði
neyzluvara? Finnst ykkur ekki,
eins og mér, að þessi ákvörðun
beri vott um einsýni og yfir-
gang?
Það voru einkennileg ummæli
borgarstjórans i sjónvarpsum-
ræðum á dögunum, að hann sæi
ekkert athugavert við það að
iðnfyrirtæki flyttu starfsemi
sina til nágrannabyggðanna.
Þetta ersagt á sama tima og at-
vinnulif hefur orðið einhæfara
með hverju ári og Reykjavik
heldur ekki hlut sinum i tekju-
öflun landsmanna. Sýnir þessi
þróun ekki glögglega andvara-
leysi borgarstjórnarmeirihlut-
ans eftir áratugastjórn á mál-
efnum Reykjavikur?
Ég hvet Reykvikinga til að
kynna sér stefnuskrá Fram-
sóknarflokksins i borgarmál-
um. Ég trúi þvi ekki að borgar-
búar gleypi við þeim heimsku-
lega áróðri að Framsóknar-
flokkurinn sé óvinveittur
Reykjavik, sem einn af borgar-
fulltrúum Sjálfstæöisflokksins
lét sér sæma að japla á i sjón-
varpsumræðunum á dögunum.
Er hægt að segja að t.d. sund-
höllin, Þjóbleikhúsið og Háskól-
inn beri vott um fjandskap i
Gerður Steinþórsdóítir
garð Reykjavikur? Fram-
sóknarflokkurinn átti stærstan
þátt i byggingu þessara húsa
allra. Við viljum að Reykjavik
sé miðstöð menningar og fjöl-
þætts atvinnulifs, en viljum
jafnframt nýta gæði landsins.
Þvi aðeins að landið allt sé
byggt getum við kallazt þjóð.
Uppbygging atvinnulifs úti um
land sem hófst með tilkomu
vinstri stjórnarinnar varð til
þess að stöðva hinn þunga
straum fólks til höfuðborgar-
innar og af þvi hafa bæði hún og
landsbyggðin gott.
Góðir Reykvikingar! — Ég
beini máli minu til þeirra sem
setja félagshyggju ofar hömlu-
láusri samkeppni og sérhyggju.
Með hverjum eigið þið samleið?
Hugleiðið það nú fordómalaust,
og látið ekki hræða ykkur með
þeirri gömlu grýlu að Reykjavik
fari i rúst ef ofurvaldi Sjálf-
stæðisflokksins linnir. Ég bendi
ykkur á stefnumál Fram-
sóknarflokksins. Eftir þeim
munu fulltrúar flokksins starfa
á komandi kjörtimabili. Eflum
Framsóknarflokkinn til áhrifa i
málefnum Reykjavikur i
kosningunum á sunnudaginn
kemur.