Tíminn - 26.05.1978, Síða 9
Föstudagur 26. mal 1978.
á víðavangi
Enn ein sönnun
Launajöfnunarstefnan hefur
verið eitt meginmarkmið nú-
verandi rikisstjórnar og
skilur hana alveg frá fyrri
ríkisstjórnum i þessu landi.
Enda þótt það sé mála sannast
að rikisstjórn vinstri aflanna
sem hér sat að völdum undir
forsæti Ólafs Jóhannessonar,
hafi sannarlega unnið að stór-
stigum framförum i landinu
ogkomið ótrúlega mikilli upp-
byggingu i verk á allt of
skömmum valdatima, þá
verður það að segjast eins og
það er.að hún gat ekki beitt sér
fyrir launajöfnun m.a. vegna
afstöðu launþegahreyfingar-
innar.
Það er mjög athyglisvert að
hafa það f huga að samnings-
aðilarnir á vinnumarkaðinum
hafa ekki beitt sér fyrir launa-
jöfnun i samningum sinum. i
hverjum kjarasamningunum
á eftir öðrum hefur útkoman
orðið sú að þeir sem betur
voru stæðir fyrir báru meira
úr býtum en hinir sem minna
höfðu fyrir.
Dómur reynslunnar er ein-
faldlega sá að verkalýðshreyf-
ing og vinnuveitendur hafa
ekki sýnt neina minnstu
launajöfnunarviðleitni I verki
hvaðsvosem liður yfirlýsing-
um.
Þetta hefur leitt til þess að
rikisvaldið hefur tekið til
sinna ráða og beitt sér fyrir
raunhæfum úrbótum f þessu
efni. Og það má segja að slikt
sé ofur eðlilegt. Það á að vera
hlutverk rikisvaldsins m.a. að
hlutast til um slik þróunarmál
þjóðfélagsins og einkum ef
aðrir aðilar reynast ekki færir
um það.
Rangfærslur
Þjóðviljans
Nú þessa dagana rekur
Þjóðviljinn upp það rama-
kvein að rikisstjórnin hafi af
hræðslu sinni gefið út bráða-
birgðalög til hagsbóta fyrir þá
lægst launuðu. Þetta er ein-
faldlega rangt. Þetta er'u ein-
faldlega rangfærslur fram
settar í ódýru áróðursskyni.
Hið rétta er að efnahagslög
rikisstjórnarinnar eru eitt
helzta skrefið sem hingað til
hefur verið stigið i átt til
launajöfnunar á landi hér.
Þessi lög voru sett til þess að
koma i veg fyrir atvinnuleysi
sem einkum myndi skella
á þeini lægst launuðu. Hins
vegar hlaut þetta að leiða til
skerðingar á umsömdum
launahækkunum þeirra sem
meira höfðu að bita og brenna.
Um þetta er ekki deilt og
þegar rikisst jórnin beitir
sér. íyrir enn frekari aðgerðum
í þessu sama skyni og I þess-
um sama anda þá er það enn
frekari sönnun á þeirri stað-
hæfingu að rikisstjórnin lætur
hagsmuni hinna lægst launuðu
og launa jöf nunarstefnuna
hafa forgang.
Jákvætt
framlag
i þessu ljósi er það næsta
furðulegt að þeir sem alltaf
eru að kalla sig „verkalýðs-
sinna” og „vini” fólksins skuli
ekki geta viðurkennt
staðreyndir og fagnað raun-
hæfum aðgerðum til kjarabóta
þeim sem minnst hafa i þjóð-
félaginu.
Bráðabirgðalögin eru já-
kvætt framlag til þess að
tryggja frið og sættir i þjóð-
félaginu. Slikt er auðvitað eitt
af hlutverkum ábyrgs rikis-
valds. Verkalýðshreyfingin
ætti að fagna þessu framlagi
og sérstaklega vegna þess að
forystumenn hennar eru farn-
ir að s já það s jálfir að þeir eru
komnir út á hálan is í vafa-
sömum aðgerðum sinum. For-
ysta verkalýðshreyfingarinn-
ar ætti einfaldlega að viður-
kenna það, blátt áfram, að
bráðabirgðalögin eru enn ein
sönnun þess að láglaunafólkið
á bezta stuðning sinn og skjól i
stefnu og störfum rikis-
stjórnarinnar.
Sjálfshól Þjóðviljans að
þessu tilefni ber engu vitni
öðru en vondri samvizku.
JS
Til sölu
Bedford yfirbyggður flutningabill árg.
1968. Nánari upplýsingar i sima (94)1262,
Patreksfirði.
kosningahátíð
ungs fólks i framsokn
DAGSKRA:
Eiríkur Tómasson
flytur ávarp
Skemmtiatriði
Diskótek
í SNORRABÆ
föstudaginn 26. maj_
Húsið opnar kl. 21.00
Dansað til kl 02.00 „ .
Kosninganefndin
Boðsmiðar fást á hverfaskrifstofunum og
að Rauðarárstíg 18
Skjót viðbrögð
Þaö er hvimleitt aö þurfa aö
biöa lengi meö bilaö rafkerti,
leiöslur eöa tæki.
Eöa ný heimilistæki sem þarf
aö leggia fyrir.
Þess vegna settum viö upp
neytendaþjónustuna - meö
harösnúnu liöi sem bregöur
skjótt viö.
•RAFAFL
Skólavöröustig 19 Reykjavik
Simar 2 17 00 2 80 22
Stjörnulið Bobby Charlton
gegn úrvalsliði K.S.Í.
á Laugardalsvelli, mánudaginn 29. mai kl. 20
*
Forsala við TJ tvegsbankann i dag kl. 13—18. Tryggið ykkur miða i tima
Verð aðgöngumiða: Stúka kr. 1.500.- stæði kr. 1.000.- börn kr. 300. „
Bobby Charlton, Tony Towers, Bobby Moore,
Joe Royle, David Harvey, Mike Doyle, Peter
Lorimer, Terry Hibbitt, Francis Burns, Frank
Worthington og fleiri.
Einstakt tækifæri til að sjá þessa heimsfrægu
knattspyrnumenn leika saman i liði.
Siðast sigraði úrvalsliðið.
Hvernig fer nú?