Tíminn - 26.05.1978, Side 13
Föstudagur 26. mal 1978.
13
Talað við Kristin Ágiist Friðfinnsson
guðfræðinema um baráttuna fyrir
Eirik Tómasson
Vann fyrir Eirik
i prófkjörinu
Mitt i önnum hittum við að
máli Kristin Agúst Friðfinnsson
guðfræðinema. Kristinn er
vaskasti maður, þrjár álnir á
hæð og mikill á velli, og hann er
þekktur i röðum námsmanna,
þvi hann hefur verið i stjórn
stúdentaráðs Háskóla Islands,
hefúr verið fulltrúi stúdenta i
háskólaráði og hann hefur
starfað við stjórn Æskulýðs-
sambands Islands, og mun þó
ekki allt talið.
Viðinntum Kristin eftir starfi
hans i kosningamaskinu Fram-
sóknarflokksins.
Hann hafði þetta að segja.
— Ég skipti mér af þessum
kosningum og vinn fyrst og
fremst vegnaþeirramanna sem
nú eru i' kjöri á lista
Framsóknarflokksins. Þar vil
ég einkum veita Eiriki Tómas-
syni brautargengi, en ég tel
hann mjög hæfan mann, og það
væri mikil synd ef hann næði
ekki kosningu.
Það var fyrst og fremst vegna
hans, sem ég — og reyndar fleiri
stúdentar hófum störf i
kosningabaráttunni.
— Ég vann fyrir Eirik.i próf-
kjörinu i vor, og það reyndist
auðvelt, og núna eru alvöru-
kosningar, ef svo má að orði
komast, og mér virðfet gang-
urinn vera svipaður.
Það er ekkert launungarmál
að o kkar starf er einkum meðal
unga fólksins, þvi við teljum
Eirik vera fulltrúa unga fólksins
i þesssum kosningum. Starf-
semi stjórnmálaflokka er þess
eðlis að þar fær unga fóikið afar
sjaldan að spreyta sig, eldri
menn hafa hreiðrað um sig og
hafa algjöran forgang —- eða
svona var þetta a.m.k., hvort
sem almenn prófkjör eiga eftir
að breyta þessu á komandi
árum.
Baráttan snýst þvi um ungan
frambjóðanda og unga fólkið.
Eldra fólk er lika með sérstakar
skoðanir, sem það heldur
dauðahaldi i og litlu sem engu
verður þokað. Vonir okkar
beinast þvi að þeim yngri.
— Nú eru stúdentar oft taldir
öfgahópur til hægri eða vinstri.
Er mikið af framsóknar-
mönnum við háskólanám?
Samstarf við
félagshyggjufólk
— Þetta litur svona út gagn-
vart almenningi, að stúdentar
séu yfirleitt róttækir eða mjög
hægri sinnaðir. Framsóknar-
menn i Háskólanum hafa ekki
boðið sérstaklega fram i mörg
ár, en hafa stutt róttæku öflin.
Ég tel að mikið sé af félags-
hyggjufólki og framsóknar-
mönnum i Háskólanum, en
auðvitað þyrfti að kynna starf
flokksins miklu betur innan
Háskólans.
Við snúum okkur til þessa
fólks og óskum eftir stuðningi —
og okkur er vel tekið af félag-
shyggjufólki, en það er nóg af
þvi i háskólanum.
Framsóknarm enn hafa
skipað sér við hlið vinstri
manna i Háskólanum og fyrir
bragðið ber ekkert á þeim á
yfirborðinu. Þetta þyrfti að
breytast, þviaðþetta gefur ýkta
mynd af stjórnmálalegri
afstöðu háskólastúdenta.
—Ég held þvi til dæmis fram,
að meirihluti atkvæðanna, sem
vinstrimennfá,séu frá hægfara
Framhald á hls. 19.
Kristinn Ágúst Friðfinnsson guðfræðinemi
Þetta er áhugasamt
fólk, sem vill gera eitthvað nýtt....
Sérstök stemmning fylgir
kosningum — jafnvel núna
þegar allir segja að það sé
dauft. Þjóðarsálin er ekki
barmafuli, kúfurinn fór af I
prófkjörunum, segja sér-
fræðingarnir, og það eyðist sem
af er tekið.
Þrátt fyrir kosningalúa
almennings eftir þrjú eða fjögur
prófkjör, þá er nú samt unnið af
kappi að kosningaundirbúningi,
og menn binda miklar vonir við
þessa vinnu, ekki sizt nú, þegar
allt er undir i tvennum kosn-
ingum.
Við komum á Rauðarárstig 18
og þar var setið við á tveim
hæðum. Menn töluðu i sima,
röðuðu seðlum og merktu inn á
kjörskrár, samvizkusamlega og
af alúð, en enn aðrir voru að
eltast við atkvæði Utaf utan-
kjörstaðakosningunum, en þar
höfðu nú kosið 2000 manns,
nánar til tekið 1978 sálir,sem er
sérkennileg tala árið 1978.
Ikjallara Framsóknarhússins
eru höfuðstöðvar byltingar-
ráðsins. Unga fólkið. Von þessa
lands.Þaðer i mörgu að snúast,
en það væri ekki herkænska að
greina frá þvi, en mest snýst
þetta starf þó um að dreifa
upplýsingaritum, „áróðursbæk-
lingum” eins og þeir heita á
máli annarra flokka, ogfleira er
haft fyrir stafni. Og ef einhver
kvartar um áhugaleysi fyrir
þessar kosningar, þá hefur hinn
sami ekki komið hér, þar sem
svitalyktin blandast ilmi af
nýprentuðum pappir og prent-
svertu, og menn sortéra
íagnaðarerindið i hæfilega
bunka til útburðar inn i
óvissuna.
Kristján Karl Sigurðsson 25 ára
.... unga fólkið styður
Framsóknarflokkinn
— Ég helga mig pólitlkinni
þessa stundina, og ég verð að
segja, ef deyfð er i kosninga-
baráttunni, þá nær hún ekki til
min, það standa allir á haus
þrátt fyrir mikinn fjölda sjálf-
boðaliða og starfsmanna. Það
er mikið verk að undirbúa
kosningar hjá stórum flokki, og
við þetta starfa ég nú, ásamt
hundruðum framsóknarmanna
i Reykjavik.
— Hvernig leggjast
kosningarnar i þig?
—Bara vel. Annars hef ég
ekki mikla reynslu, þvi ég get
varla sagt að ég hafi fyrr tekið
þátt i kosningabaráttu. Menn
taka okkur vel, frambj(Siendum
og flokknum og það er eftir-
tektarvert, að unga fólkið
virðist styðja flokkinn i miklum
mæli að þessu sinni.
Sérstaldega virðist mér það
áberandi að ný öfl hafa komið
inn i myndina með Eiriki
Tómassyni, sem virðist vera
maður unga fólksins i þessum
kosningum.
Prófkjörið virðist lika hafa
einhver áhrif hjá okkur og
hinum prófkjörsflokkunum. Það
hefur komið berlega ljós að þeir
sem styðja frambjóðendur i
prófkjöri vilja halda stuöningi
sinum áfram, þótt þeir séu
annars ekki flokksbundnir.
Menn töldu að þessu yrði nú
öfugt farið, en reynslan sýnir að
nýtt fylgi bætist með nýjum
frambjóðendum: þeir halda
prófkjörsfylginu nær, óskertu.
Það kann að visu að vera að
einhverjir séuóánægðir, en þeir
eru þó fáir.
Þetta er sterkur framboðs-
listi.
Kristján Karl Sigurðsson
Óskar Þorgeirsson:
Við ættum að
fara vel út úr
þessum
kosningum
I hópi unga fólksins hittum við
Öskar Þorgeirsson að máli.
Hann er gamalreyndur
kosningamaður, sem ekki lætur
sig vanta. Viö spurðum um
ástand og horfur:
— Þetta leggst vel i mig. Hér
er rnikið af ungu fólki að vinna,
og það veit á gott. Æskan er
næm á góða hluti og þeir ungu
ráða ferðinni núna.
— Við erum nú að leggja
siðustu hönd á undirbúning
kosninganna hér i borginni, en
Óskar Þorgeirsson
það er mikið verk.
Kosningavinna er fleira en að
halda ræður. Það þarf lika að
skipuleggja kosningastarfið og
vinnuna á kjördag —
uppskeruna fáum viö svo þegar
búið er að telja.
rmn
Svavar
kjósa
17 ára:
Um þaðbil sem við yfirgáfum
kosningastöðina mættum við
ungum manni, Svavari Krist-
inssyni
Hann er ökumaður, ekur út
borginni okkar, sem er hin eina
og sanna bláa bók i þessari
borg.
— Hann kvaðst vera i
Hamrahliðarskólanum, en væri
nú aðeins 17 ára og fengi þvi
ekki að kjósa að þessu sinni.
— Það gengur vel aö aka út
bókinni. Ég er með fullt af
strákum, sem hlaupa inn i húsin
og þetta tekur ekki svo langan
tima.
Svavar Kristinsson
&ii8$