Tíminn - 26.05.1978, Blaðsíða 17
Föstudagur 26. maí 1978.
17
iOOOOQQOQi
Óskar Jakobsson kastaði kringlunni þrisvar yfir 60 m
Óskar með næst bezta
kast á Norðurlöndum
— kastaði kringlunni 61,74 m í gærkvöldi á Laugardalsvellinum
— Ég er að sjálfsögðu mjög
ánægður með að hafa kastað
þrisvar sinnum yfir 60 m, sagði
Óskar Jakobsson, hinn sterki
kastari úr ÍK, sem varð öruggur
sigurvegari i kringlukasti á
Vormóti 1K i gærkvöldi. Óskar,
sem hefur þegar tryggt sér rétt til
að keppa á Evrópumeistaramót-
inu i Prag i Tékkóslóvakiu i
ágúst, kastaði kringlunni 61.74 m,
sem er annar bezti árangur
kringlukastara á Norðurlöndun-
um i ar — aðeins Norðmaðurinn
Valvik hefur kastað lengra —
63.50 m, en Sviinn Gardenclass á
þriðja lengsta kastið — 60.68 m.
Óskar hefur æft mjög vel að
undanförnu, sagðist stefna að þvi
að komast i undanúrsiit á
Evrópumeistaramótinu. — Ég er
enn ekki kominn i keppnisæfingu,
þar sem ég hef æft eingöngu upp á
uppbyggingaræfingum að undan-
förnu. — Ég stefni að þvi að vera
á toppnum tvisvar sinnum i
sumar — fyrst I kastkeppninni
gegn Dönum i Kaupmannahöfn
24. júni og siðan á Evrópumeist-
aramótinu, sagði Óskar, sem
sagðist vera ángæður með að
kasta yfir 58 m i öllum köstum
sinum á öðrum mótum.
Óskar kastaði kringlunni
þrisvar sinnum yfir 60 m — fyrst
61.74 m og siðan 60.20 m, 60.02 m
og fjóðra kastið maldist 59.68 m.
—SOS.
Ingunn og Guðni
frá keppni
— vegna brjóskloss í baki
SOS-Reykjavik. — Ingunn
Einarsóttir, frjálsiþróttakonan
fjöihæfa úr ÍR, inun verða frá
keppni í sumar. — Ég hef
ákveðið að taka mér
algjörlega hvild í sumar, þar
sem ég get ekki farið að keppa
fyrir en i fyrsta lagi i ágúst,
sagði Ingunn, sem meiddist á
æfingu á ítaliu — brjósk iosnaði
i bakinu á henni, en hún hefur
átt við samskonar meiðsli að
striöa.
Þetta er mikið áfall fyrir
Ingunni, sem var búin að æfa
vel i vetur og hún ætlaði sér að
taka þátt i Evrópumeistaramót-
inu i Prag. Guðni Halldórsson,
kúluvarparinn sterki úr KR á
einnig við svipuð meiðsli að
striða. — Ég meiddist á æfingu
nú fyrir stuttu og verð frá
keppni i þetta tvo mánuði, sagði
Guðni.
Erlendur Valdimarsson,
kringlukastarinn snjalli úr ÍR á
einnig við meiðsli að striða og
gat hann ekki tekið þátt i
kringlukastkeppninni á Vormóti
ÍR i gærkvöldi. Erlendur
tognaði á vöðva i brjósti á
æfingu nú i vikunni.
STEFAN HallgrImsson...sem nú keppir fyrir UIA, varð sigurvegari I
400 m hlaupi — hann sést hér t.h. koma I mark á 50.9 sek., en Gunnar
Páll Jóakomsson — við hliðina á honum, varö annar á 51.0 sek. Pétur
Pétursson UIA varö þriðji og Armenningurinn ólafur Óskarsson
(t.v.) varð fjórði.
(Timamynd Róbert)
— kastaði kúlunni 19,45 m á Laugardalsvellinum
i gærkvöldi
Strandamaðurinn sterki Hreinn
Halldórsson, sem hefur átt við
meiðsli að striða að undanförnu,
er greinilega að ná sér á strik.
Hreinn kastaði kúlunni þrisvar
sinnum vel yfir 19 m á Vormóti ÍR
á Laugardalsvellinum i gær-
kvöldi og nálgast hann óðfluga
lágmarkið fyrir Evrópumeistara-
mótið, sem fer fram i Prag i
Tékkósióvakiu — en það er 19.50
m. Hreinn sýndi það I gærkvöldi,
að þess verður ekki langt að biða,
þar til hann fer að kasta aftur
regluiega yfir 20 m.
Hreinn kastaði kúlunni lengst i
fyrsta kasti sinu — 19.45 m, en
siðan kastaði hann 19.26 m og
19.20 m. — Maður er aldrei
ánægður — ef maður er ánægður,
þá getur maður alveg eins hætt
þessu”, sagði Hreinn i gærkvöldi.
Hreinn sagði að hann ætti enn
langt i land að ná sinum fyrri
styrkleika og þegar hann var
spurður hvort það væri ekki stutt i
20 m múrinn, sagði hann að það
færi allt eftir þvi, hvort hann nái
upp tækninni i köstunum. — Það
fer alltaf drjugur timi i að ná
tækninni upp og finpússa kastað-
ferðina, sagði Hreinn. —SOS.
HREINN HALLDÓRSSON... er
að ná sinum fyrri styrkieika. Hér
sést hann kasta kúiunni 19.45 m i
gærkvöldi.
(Timamynd Róbert)
Sigþór
misnotaði
vítaspymu
— og Pór varð
að sætta sig
við jafntefli
á Húsavik
Þór frá Akureyri og Völsungur
gerðu jafntefli (1:1) á
miðvikudagskvöldið á Húsavik,
þar sem félögin mættust i 2.
deildarkeppninni I knattspyrnu.
Sigurður Lárusson færði
Þórsurum óskastart, þegar
hann skoraði gott mark eftir
aðeins 15 sek. Völsungar
jöfnuðu, þegar Sigurbjörn
Viðarson skoraði úr vltaspyrnu.
Þess má geta að Sigþór
Ömarsson, Þór, misnotaði vita-
spyrnu fyrir Akureyrarliðið.
Brautin var 3,75 m of stutt
— í ÍOO m hlaupi karla á Vormóti ÍR ^
Sigurður Sigurðsson hljóp 100 m á
nýju Islandsmeti — 10.1 sek., en
þvi miður fæst metið ekki
staðfest, þar sem meðvindur var
of mikiil. Þetta tilkynnti þulur á
Laugardalsvellinum I gærkvöldi, J
en þar fór fram Vormót ÍR I
frjálsum iþróttum. Eftir stutta
stund tilkynnti þulurinn að mistök
hefðu átt sér stað 1100 m hlaupinu
— það hafi aldrei verið hlaupnír
100 m, þar sem brautin var 3.75 m
of stutt. Þannig að hiaupnir voru
aðeins 96.25 m i 100 m hlaupinu,
sem Armenningurinn Sigurður
Sigurðsson varð sigurvegari I.
FRIÐRIK ÞÓR
óSKARSSON...úr 1R, varð sigur-
vegari í langstökki a vormótinu —
hann stökk 6.63 m, en Helgi
Hauksson, Breiðabliki, varð
annar — 6.45 m.
ELÍAS SVEINSSON...varð
sigurvegari i stangarstökki. Þessi
keppnisglaði KR-ingur stökk 4.10
m.
LARA SEINSDÓTTIR...úr
Armanni varð sigurvegari i 100 m
hlaupi kvenna — hljóp
vegalengdina á 12.4 sek. Kristin
Jónsdóttir (Breiðabliki) varð
önnur — sjónarmun á undan ÍR-
ingnum Þórdisi Gisladóttur, en
þær hlupu á 12.5 sek.
SIGURBORG
GUÐMUNDSDóTTIR...úr
Armanni varð sigurvegari i 400 m
hlaupi — 59.8 sek. Hin stórefni-
lega Helga Halldórsdóttir, 14 ára
stúlka úr KR, sem hljóp nú i
fyrsta skipti 400 m, varð önnur —
61,8, en Selfyssingurinn
Aðalbjörg Hafsteinsdóttir varð
þriðja — 64.2 sek.
ÞÓRDÍS GtSLADÓTTIR. varð
sigurvegari i hástökki, stökk 1.68
m. tris Jónsdóttir, Breiðabliki;
sem er aðeins 15 ára, varð önnur
—1.60 m. Þess má geta að hún gat
ekki tekið þátt i kepppni sl.
sumar, vegna meiðsla.
GUÐRÚN INGÓLFSDÓTTIR
...frá Höfn i Hornarfirði, varð
sigurvegari i kúluvarpi — kastaði
12.06 m.
HREINN
HALLDÓRSSON ...varð sigur-
vegari i kúluvarpi — 19.45 m, en
Óskar Jakobsson varö annar —
17.68 m og nálgast hann nú
óðfluga sitt persónulega met, sem
er 17,75 m.