Tíminn - 08.07.1978, Side 3
Laugardagur 8. júli 1978
3
Hvammstangi:
Áform um að
mjölverksmiðju
reisa
í sumar
— vinnur bæði slátur-
og fiskúrgang
Kás — „Þaö má segja, aö allt sé
vaöandi i byggingarfram-
kvæmdum hér á Hvammstanga
og sumar mjög stórar”, sagöi
Brynjólfur Sveinbergsson,
fréttaritari Timans á Hvamms-
tanga.istuttuspjalli viö okkuri
gærdag.
„Hér er hafin bygging nýs
sláturhúss á vegum kaupfélags-
ins. Þá nálgast óðum, sá dagur
að viðbyggingin við mjólkur-
samlagið verði fokheld, en einn-
ig er sveitarfélagið að reisa
búningsaðstöðu fyrir sundlaug-
ina og fyrirhugaö iþróttahús. Að
þessu viöbættu eru auðvitað fjöl
margir einstaklingar meö
ibúðarhús i byggingu.
Af sjávarsiðunni er það helzt
frásagnarvert, aö hafnar voru
veiðar á djúprækju héðan i vor,
og hafa þær gengiö vel fyrir sig.
Miðin sækja bátarnir norður
fyrir Horn, og þykir aflamagn
lofa góðu, en eftir fyrstu veiði-
ferðina kom annar báturinn
með 16 tonn en hinn með 14 tonn,
auk einhvers af öðrum fiski.
Þá var gerð tilraun hér i vor
með veiðar á skelfisk, og verður
þeim haldið áfram, en þær
jiggja niðri þessa stundina
vegna vélarbilunar I bátnum.”
Unniö að viðbyggingu við Mjólkursamlagiö i Hvammstanga
Ljósmyndir Róbert
Brynjólfur sagði, að vorið
heföi verið fremur kalt, og
spretta þvi §ein á feröinni. Bjóst
hann ekki við að sláttur hæfist
fyrr en upp úr miðjum mánúð-
inum. Mjólkurframleiðsla sagði
hann væri hin sama og á sama
tima i fyrra.
Þegar Brynjólfur var inntur
eftir þvi, hvort einhverjar fram-
kvæmdír væru á döfinni sagði
hann, að meiningin væri að
reisa mjölverksmiöju þar á
Hvammstanga, og uppi væru
áform um að taka hana i notkun
i sumar. Búið væri að kaupa
vélarnar, en húsið yfir þær væri
enn óbyggt. Nýlega hefði verið
úthlutað lóð fyrir starfsemina,
en sá galli væri á gjöf Njarðar,
að hluti hennar væri enn i sjó.
Aftur á móti sagöi Brynjólf-
ur, að mikil fengur væri i að fá
verksmiðju sem / þessa, sem
bæði gæti unniö fisk- og rækju-
úrgang, svo og sláturúrgang og
væri það mikið þrifnaöarmál.”
veiðihornið
Laxá i Kjós
Veiði i Laxá I Kjós hefur
gengið ágætlega það sem af er
þessu sumri. Við ræddum við
Karl Björnsson i veiðihúsinu
Ásgarði i gær og taldist honum
til aö um 450 laxar væru
komnir á land. Karl kvað lax-
inn stærri nú en I fyrra og
veiddist mikið af 6-7 punda
fiski.Það eru útlendingar sem
veiöa i ánni út þennan mánuö
og eru tíu stangir leyfðar i
ánni. Karl sagði aö það hefðu
fengizt þetta 15-20 laxar á dag
og allt á flugu.
Húseyjarkvisl
Að sögn Guömanns Tóbías-
sonar kaupfélagsstjóra i
Varmahlið, þá hefur veiði
gengið ágætlega i Húseyjar-
kvisl, a m.k. ef miðað er við
undanfarin ár. Nú væru um 50
laxar komnir á land og sá
stærsti um 19 pund að þyngd.
Tvær laxastangir eru leyföar i
ánni og tvær silungsstangir,
ensilungsveiöiexekkert hafin
aö ráði. Það er veiðifélag
landeigenda, sem er með ána,
kem skipt er I þrjú svæði. A og
B sem eru laxasvæöi ög einnig
er eitt silungssvæöi. Búiö er aö
selja allar stangir á laxasvæð-
in, en eitthvað er til af leyfum
á silungssvæðin og kosta leyf-
in 1500 krónur.
Góð byrjun i Orma-
lónsá á Sléttu
Ormalónsá á Sléttu var opn-
uð formlega i gær, en áöur
höfðu vegageröarmenn, sem
unnu skammt frá ánni fengið
leyfi til þess að veiöa og þrátt
fyrir slæmt veður og kulda þá
höfðu þeir fengið 21 lax á smá-
tima.Sveinbjörn Vigfússonhjá
Stangveiðifélaginu Flugan á
Akureyri, sem hefur ána á*
leigu, sagði i gær aö þessi góöa
byrjun væri vissulega uppörv-
andi.Áin værifull af laxi og sá
fiskur, semkomið hefur á land
er mjög vænn og sá stærsti 18
pund á þyngd. Alls eru leyfðar
152 stangir i Ormalónsá yfir
■sumarið, en oftast er veitt á
2-3 stangir á dag i júnimánuöi,
en fjölgað upp i fjórar þegar
liða tekur á sumariö. t
Sveinbjörn sagði að Flugan
hefði einnig fyrstu tvö s væöin i
Laxá i Aöaldal fyrir neðan
stiflu á leigu, þ.e. á svæðinu
frá Eyvindarlæk aö Laxár-
virkjun. Veiði þar hófst 10.
júní þ.e., silungsveiöin, en
leyföar eru þrjar laxastangir
og þrjár silungsstangir i ánni.
Sveinbjörn sagöi, aö varia
væp von á laxi svo nokkru
næmi á þessu svæði fyrsta
mánuöinn, en þó eru komnir
5-6 laxar á land. Að sögn
Sveinbjarnar þá hefur áin ver-
ið vatnsmikil að undanförnu
og veður hefur verið slæmt og
hefur það hamlaö veiöum.
Fremur tregt i
tJlfarsá — ennþá
Ragnar Guðmundsson,
veiðivöröur við Úlfarsá sagði
okkur i gær að veiði hefði verið
heldur treg þaö sem af væri og
þó væru nú um 30 laxar komn-
ir á land. Laxinn er fremur
smár eða á milli 3 og 7 pund.
Það er Aburöarverksmiöjan
sem er leigutaki en verzl.
Veiðimaöurinnsérumaö selja
veiðileyfi og aö sögn Ragnars
þá mun eitthvað af leyfum
vera laus i september.
Fnjóská
Veiði hefur gengið vel I
Fnjóská f sumar. Aðallega
heftir verið veittá fyrsta svæði
og hefur veiöin verið þetta 10
laxar á dag. Að sögn Olgeirs
Lútherssonar þá eru leyfðar
tvær stangir á þessu svæði og
hefur laxinn sem veiözt hefur
verið vænn, um tiu pund.
470 laxar úr Laxá i
Aðaldal
Helga Hallgrimsdóttir ráðs-
kona í veiöihúsinu á Laxamýri
tjáöi okkur i gær aö þaö væru
komnir um 470 laxar á land á
þessu sumri. Laxinn er mjög
fallegur, feitur og mun stærri
en i fyrra. Stærsti laxinn
veiddist strax fyrsta daginn og
reyndist hann vera 20 pund.
Nú eru leyföar 12 stangir I
ánni.
Breiðdalsá
Veiöihorninu hafa borizt tvö
bréf frá forráöamönnum
veiöiáa og er annaö þeirra frá
Siguröi Lárussyni, á Gilsá i
Breiðdal, sem hefur verið ötull
við að senda horninu bréf meö
fróðlegum upplýsingum, en
hittbréfið er frá Jóni A. Guö-
mundssyni Bæ Reykhólasveit
og er Veiðihorninu sérstökk
ánægja að birta þessi bréf um
leið og það er undirstrikað að
slik bréf eru alltaf vel þegin.
„Laxveiðisvæðin á vatna-
svæði Breiðdalsár voru opnuð
frá og með 2L júni, enda hefur
laxinn gengið litið á þetta
vatnasvæði fyrr en um eða
eftir 10. júli. Nú brá svo viö að
fyrstu 4 laxarnir veiddust á
svæði 1 og 2 25. júni, en þann
dag keyptu heiinamenn hálfan
dag á hvoru svæði. Siöan var
næst reynt á bændadegi 29.
júni', en þá veiddist einn lax
neðst á svæði 3 og er það al-
gjört einsdæmi aö lax hafi
veiözt á þvi svæði svo snemma
sumars. Þá hefur aldrei fyrr
veiðzt lax I Breiödalsá í júni
mánuöi. 1. júli fengust fjórir
laxar á svæði eitt og tvö og 2.
júlí einn lax á sama svæði.
Það eru þvi komnir 10 laxar á
land á kvöldi 2. júll, allt óvenju
vænir laxar og er meöalþyngd
þeirrarúm8 pund, sem erum
tveim pundum meira en meö-
alþyngd veiddra laxa undan-
farin sumur. Við erum þvi
bjartsýnir um aö laxveiðin
gangi með bezta móti nú, en i
fyrra sumar var metveiði hjá
okkur. Mikil eftirspurn er eftir
leyfum og eru flestir dagar
seldir á fyrsta og öðru svæði
en nokkuð er til af lausum
dögum á svæöi þrjú einkum I
júlí. Silungsveiðin hefur verið
með daufara móti.hér ennþá.
3. júli 1978
Siguröur Lárussoi
Gilsá I Breiöda;
Laxá og Bæjará i
Reykhólasveit
Arnar Laxá og Bæjará i
Reykhólasveit hafa fram aö
þessuverið litt þekktar meðal
stangveiðimanna, en nú í
sumar gefst þeim tækifæri til
þess aö reyna sig þar vestra.
Veiðileyfi veröa seld aö Bæ I
Reykhólasveit, og þar er einn-
ighægt að fá fjTirgreiðslu um
húsnæði. Veiöi hefst á ánum
10. júli og verða leigðar út
tvær stangir á dag.
Jón A. Guðmundsson
Bæ, Reykhólasveit,
A-Baröastrandarsýslu.”
—ESE