Tíminn - 16.08.1978, Blaðsíða 17

Tíminn - 16.08.1978, Blaðsíða 17
Miövikudagur 16. ágúst 1978 17 Grundarfjarðarkirkja áður og eftir að turnsplrunni var komið fyrir. Myndirnar tók Bæring Cecilsson. Turaspím komíð fyrir á Grandarfjarðarkirkju BC — Grundarfirði —Um þessar mundir á Grundarfjarðarkirkja 12ára vigsluafmæli. Miðvikudag- inn 26. júli var ánægjulegum áfanga við smiði siðari byggingarhluta náð, er turnspíru með ljósakrossi var komið fyrir. Einhugur safnaðarsystkina hefur rikt um byggingu þessa allt frá upphafi, og hafa margar góðar gjafir borist henni til styrktar og framgangs. Aðalsmiðir viö kirkj- una eru Páll Harðarson og Pálm- ar Einarsson, en kranamaður við hifingu var Heiöar Skarphéöins- son. Flugsýning í Reykjavík Ákveðið hefur verið aö efna til flugsýningar i Reykjavik 26. ágúst n.k. i tilefni 50 ára afmælis innanlandsflugs hér á landi. Sý ning in m un stand a yf ir f rá kl. 14-18, ef veður leyfir, annars verður reynt á sama tima daginn eftir. Það eru Vélflugfélag Islands og Islenska flugsögufélagið sem gangast fyrir þessari sýningu og meöal dagskráratriða má nefna að sýndar verða flestar einka- flugvélar landsmanna sem eru frá ýmsum timum eða allt frá ár- inu 1934 til 1978. Þá verða einnig til sýnis farþegavélar af ýmSum stærðum og geröum ásamt flug- flotum Landhelgisgæslunnar og Landgræðslunnar. Varnarliðiö mun sýna vélar bæði á jörðu og i loftá og listflug verður sýnt á nýrri listflugvél. Þá er einnig að þvi unnið að fá hingað til lands erlendar flugsveitir og listflug- menn i sambandi við sýninguna. Eins og á fyrri flugsýningum verður fólki gefinn kostur á þvi að fara i útsýnisflug yfir bæinn á meðan sýningunni stendur og verða happdrættisflug dregin Ut á hálftimafresti á meðan á sýning- unni stendur. Tómas Helgason flytur erindi um geðlæknisfræði i Arósum SJ — Háskólinn I Arósum á fimmtiu ára afmæli á þessu ári. Af þvi tilefni efnir háskólinn m.a. til ráöstefnu um sjúkdómana geö- hvörf og þunglyndi, sem stendur næstkomandi mánudag til mið- vikudags. Prófessor Tómas Helgason yfirlæknir á Kleppsspit- ala er einn þeirra, sem flytja fyrirlestra á ráöstefnunni. Hann talar á miðvikudag um faralds- fræöi geðhvarfa og þunglyndis. Fyr ir lestur sinn bygg ir hann m .a. á rannsóknum sem gerðar hafa veriö hér á landi. Halldór Kristjánsson: Til hvers stjórn? Fullorönir menn eiga aö vita til hvers þarf rikisstjórn. Það er vist heimskulegt að vera i vafa um það. Flestir munu lika finna til stjórnleysis á þessum timum. Þvi held ég aö svo sé komiö að mörgum myndi létta ef hér yrði mynduö stjórn, jafnvel þó þaö væri ekki stjórn nema að nafn- inu til. Skipaö gæti ég, væri mér hlýtt. Undanfariö hafa rikisstjórnir átt I striði við stéttarsamtök. Þess ætti ekki aö þurfa. Fjölda- samtök ættu að geta unniö með rikisstjórn og stjórnin meö þeim. Þvi marki veröum við aö ná, þvi að viö viljum ekki gera tilraun með lögregluriki. Við höfum engin efni I herforingja- stjórn. Vandi væntanlegrar stjórnar er sá aö gera stéttarsamtökin ábyrg. Það er einmitt þaö — og það eitt sem liggur til grund- vallar tali Alþýöuflokksmanna um kjarasáttmála. Og það er raunar alveg það sama sem vakir fyrir mönnum þegar þeir Halldór Kristjánsson. eru að tala um aö rikisstjórn sem styðjist viö þá flokka sem forustumenn stéttarfélaganna fylgja muni öörum fremur ráða við vandann. Þaö getur auðvit- að ekki byggzt á öðru en þvi að menn geri aörar og minni kröf- ur þegar þeirra menn eru i stjórn. Hver gæti ástæöan veriö önnur? Viö höfum nú þegar reynslu af þvi aö stjórnarandstaöa gerir yfirboð og þaö gildir jafnt um andstöðu félagsstjórnar og rikisstjórnar. Ég held aö stéttarfélögin verði gerð ábyrg meö þvi aö fá þeim vald til aö ákveða launa- kjör, — eða viðurkenna I oröi og verki að þau hafa þetta vald.Jafnframt veröur aö fela þeim umsjón og eftirlit fyrir- tækja sem hafa megi að dæmi um þaö hvaö atvinnuvegir þurfi og þoli. Þetta er þaö verkefni sem mest kallar að þeirra sem telj- ast mega framtlðarmál. Þetta erleiöin til að grundvalla vinnu- frið, hagsæld og réttlæti I þessu landi. Þaö væri mikil ástæða til aö fagna stjórn sem setti sér þetta mark. En hins vegar er vandséð að viö þurfum stjórn til aö láta hrekjast eins og verið hefur. Aö minnsta kosti ér eðli- legt að viti bornir menn vilji heldur sneiða hjá þvi að bera ábyrgö á slíkri stjórnarnefnu. lesendur segja Vond þjónusta Ég hef orðið fyrir slæmri reynslu, undanfarna daga, af ýmissi þjónustu I bænum. Saganhefstá þvi, að hjón sem búa í sama húsi og ég fóru i feröalag um helgi, og var dóttir þeirra 18 ára aö passa ungbarn sem þau eiga. Ég haföi heyrt móður þeirra tala um það, áður en þau fóru, að það mætti ekki tæjara standa með mjólkina, að hún væri nothæf, enda stimplaöur á fernurnar siðasti söludagur átta dögum eftir að hún er látin i umbúðir. Þar sem heimiliö er mér skylt vildi ég gjarnan eiga eins nýja mjólk og kostur væri á, til að hlaupa undir bagga, ef með þyrfti. Enga mjólk að fá A laugardagsmorgun fór ég þvi aðkaupa mjólk I brauða- og mjólkursölubúö að Háteigsvegi 2, sem hafði verið opin á laugar- dagsmorgnum i júnimánuði, og ég vissi ekki annað en svo væri enn. En þá var, þvi miður, búið að leggja niður þessa iaugar- dagsþjónustu og búðin var ■lokuð. Þar eð ég fékk enga mjólk þarna, fór ég ofan á Managötu 18 og ætlaði að kaupa Tropikana heldur en ekkert. En auðvitað var það ekki til i sjopp- unni, og litið var ég hrifin af þeim varningi sem þar var á boðstólum. M.a. blasti þar við mér klámblaö með myndum af berum kvenmanni I viöbjóðs- legum stellingum. Var ég nú orðin reið, og kvartaði yfir þvi við afgreiöslustúlkuna, að ekkert skyldi fást frambærilegt fyrir börn og unglinga, hvorki til að lesa né leggja sér til munns. Hef ég áður kvartað yfir þvi við sjoppueigendur, aö hafa ekki betra lestrarefni fyrir börn og unglinga, en þar er aö finna, finnst mér sérstök þörf á því, þar sem sjoppur eru i miðjum Ibúöarhverfum. Þá finnst mér ekki siður þörf á að sjoppur hafi á boðstólum eitt og annað, sem getur komið sér vel fyrir hús- mæöur og ekki er skaölegt fyrir böra Þvi miður, er ég hrædd um að sjoppueigendur megi ekki hafa neitt annaö en þetta sem þeir hafa i sjoppum sinum, sem flestum húsmæörum er illa við. Finnst mér það mesta skömm, ef satt er. Þurfti að sækja i sveitina A sunnudagsmorguninn kom þaö i ljós.aö engin mjólk var lengur til handa barninu, og var þá leitaö til min um mjólk, sem ég átti ekki, svo sem fyrr segir. 1 sama mund og ég og telpan sem gætti barnsins, bárum saman bækur okkar um hvernig viö ættum aö leysa þetta mjólkurmál, þrumaði rfkisút- varpiðyfir okkur kennslustund i bruggi, lýsti nákvæmlega þeim tækjum, sem til þess þyrftu og hvað þau kostuðu. Stúlkan, sem gætti barnsins hafði fyrst snúið sér til Mjólkur- samsölunnar, en þar var öll mjólk búin, svo nú var ekki annað fyrir hendi en að hringja I kunningjana. Gerðum viö það, en án árangurs. Veðrið var gott og margir úr bænum. Eftir aö barnið hafði grátið af mjólkur- leysii þr jár klukkustundir tókst okkur loksins að fá mjólk handa þvi ofan frá Korpúlfsstöðum. Hversvegna getum við ekki fengið mjólk um helgar, úr þvi að sjoppur eru opnar á hverju götuhorni? Það eru hvort sem er kælitæki i flestum sjoppum, svo ekki ætti að vera hættara við að mjólkin skemmdist þar en I öðrum biíðum. Óvenjulegir viðskiptahættir a þriðjudaginn, á milli kl. 12 og 13, fékk ég mann til að fara með mér aö kaupa nýtt útvarpstæki. Fyrst fórum viö i búö i Skip- holtinu og var hún lokuö. Ókum við þá niöur á Bergsstaöastræti I aöra viðtækjaverslun, þangað komum viö kl. 13.15. Var sú versiun einnig lokuð og stóöu tvær bálreiðar konur viö dyrnar, þær höfðu ætlað að nota matartimann til aö versla. Viö héldum nú aftur upp i Skipholt og þar keypti ég tækið, var það danskt. Sagði afgreiöslumaður- inn mér I óspurðum fréttum, aö rússnesk útvarpstæki hefðu vondanhljómburö. Þetta fannst mér ókurteisi og ómenning, þar sem ég spuröi ekkert eftir rúss- neskum útvarpstækjum. Finnst mér þetta sérstaklega smekk- laust og óviöeigandi, þegar einmitt um þessar mundir er þess getið i blöðum og útvarpi, að Rússar séuaökaupaaf okkur iðnaöarvarning, svo sem peysur, I stórum stil. Mér sárnaði þetta, þar sem ég hef tvisvar veriö i Rússlandi og ekki séð annaö en sterkar og vand- aðar vörur þar. Seinni hluta sama dags labb- aöi ég niöur á Dagblað, til að greiða fyrir auglýsingu. Inni á afgreiðslunni sátu tvær stúlkur og önnur tuggöi i ákafa, sýndist mér hún veraað borða. Ég bauö góðan dag, og önnur stúlkan tók kveðjuminni, en hin hélt áfram aö tyggja. Spurði ég hana hvort hún væri með tyggigúmmi, og játti hún þvi. Hin stúlkan af- greiddi mig kurteislega, og fór ég svo út. Þegar ég kom út tók ég eftir þvi, að fullt var af rusli fyrir utandyrnar, voru þartóm- ir plastpokar og allskonar bréfadrasl með meiru. Þar sem mér fannst stúlkan alveg eins geta sópað fyrir utan dyrnar, eins og að vera að jóðla tyggi- gúmmi, fóréginni afgreiðsluna aftur og sagöi þeim frá þessu rusli, og benti þeim á, að það þyrfti að sópa þvi burtu..Einnig sagöi ég þeim, að mér þætti vænt um landiö mitt og fólkiö sem þar byggi og starfaði. Þessu tóku þær vel, og brostu til min að skilnaði. Aö lokum þetta: Hversvegna getur vinnandi fólk ekki fengið afgreiðslu á varningi, sem það þarf að kaupa, hvorki i niatar- timanum um hádegið né eftir kl. 18 aö kveldi. Lóa.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.