Tíminn - 31.08.1978, Síða 6
6
Kimmtudagur 31. ágúst 197S
Útgefandi Framsóknarflokkurinn
Krainkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Kitstjórar:
Pórarinn Þórarinsson og Jón Sigurösson. Auglýsinga-
stjóri: Sleingrimur Gislason. Kitstjórnarskrifstofur,
framkvæmdastjÓMi og' auglýsingar Siöumúla 15. Slmi
SG300.
Kvöldslmar blaöamanna: S0563, S0495. Eftir kl. 30.00:
S03S7. Verö I lausasölu kr. 100.00. Askriftargjald kr. 2.000 á
inánuöi.
Klaöaprent h.f.
Ekki
Haraldur Ólafsson skrifar:
Verður Sahel-svæðið
grætt upp á ný?
Þurrkar ógna lífsafkomu
í nokkrum Afríkuríkjum
einu sinni enn
Menn eru orðnir meira en langeygir eftir þvi að
mynduð verði starfhæf rikisstjórn sem taki af festu
á þeim mörgu og brýnu úrlausnarefnum sem biða.
Menn hefðu sannarlega vænst þess að nú siðustu
dagana yrði hljóðið i þingmönnum Alþýðuflokks og
Alþýðubandalags orðið tiltölulega jákvætt, ekki sist
að sæmileg grið hefðu verið sett milli þessara
flokka.
En það virðist vera öðru nær.
Milli þessara flokka fljúga brigsl og dylgjur. Það
er eins og sumum forystumönnum þessara tveggja
ílokka sé ekkert f jær en að vinna saman. Vonandi er
hér þó fyrst og fremst um ýfingar að ræða sem ekki
hafa áhrif á leiðtoga flokkanna.
Það er alveg ljóst að leiðtogar Alþýðuflokks og
Alþýðubandalags verða að hefja sig upp yfir hnútu-
kast lagsbræðra sinna og hjúa. Ella getur aldrei
með neinu móti orðið um heiðarlegt eða farsælt
samstarf að ræða.
En það er önnur furða sem almenningi er boðin nú
siðustu'dagana af hálfu hinna sigursælu tvilemb-
inga i islenskum stjórnmálum. Nú rjúka þeir fram i
fjölmiðlum hver af öðrum, krati og kommi á vixl, og
setja fram alls kyns skilyrði um að ný rikisstjórn
móti sér nýja og markvissa efnahagsstefnu til
frambúðar.
A það verður að minna að þessir pótintátar hafa
þótst vera að vinna að stjórnarmyndun allt frá Al-
þingiskosningunum. Aldrei hafa neinir flokkar
fengið annað eins tækifæri til þess að kanna málin
rækilega og til botns og til þess að koma sér saman
um nýja og hressilega stefnu til úrlausnar.
Nú þegar verið er að ræða i þriðja sinn um sam-
starf þeirra við Framsóknarflokkinn og það er
fimmta tilraunin — hvorki meira né minna — til
þess að koma þessum tvilembingum inn i sama
rikisstjórnardilkinn, þá upphefjast þeir með æsingi
og hjartslætti og heimta nýja efnahagsstefnu!
Um hvað hafa þessir menn verið að tala alla
þennan tima sem þjóðin hefur kostað þá til við-
ræðna um stjórnarmyndun?
Á það skal minnt að allan þennan tima hafa
Framsóknarmenn skorað á þá og eggjað þá lög-
eggjan að móta sér einbeitna efnahagsstefnu. Við-
ræður um stjórnarmyndun hófust meira að segja á
þvi að Framsóknarmenn hétu þessum flokkum
tveimur hlutleysisstuðningi ef þeir vildu láta svo lit-
ið að ganga til verks og frelsa þjóðina.
Þriðja undrið er siðan spenningurinn sem gripið
hefur allmarga i fylkingarbrjósti þessara flokka
sem kalla sig „verkalýðsflokka” af takmörkuðu
litillæti, þegar rætt er um ráðherrastólana. Tvisvar
hefur tilraunum um myndun rikisstjórnar þessara
flokka með Framsóknarmönnum verið aflýst vegna
þess að ekki gat orðið samkomulag um vegtyllur og
ráðherrastóla.
Þvi verður hreint og beint ekki trúað að óreyndu
að nú ætli þeir að byrja i þriðja sinn að kútveltast i
slagsmálum um ráðherrastóla og aðrar vegtyllur.
Nóg hafa þeir boðið kjósendum sinum þegar, þótt
þeir bæti þvi ekki við einu sinni enn.
JS
Kmi á ný vofir hungurvofan
yfir Saheí-svæöinu I Afríku.
Sahel er landræma suiinan Sa-
hara-eyöimerkurinnar, frá
Atlantshafi i Vestri aö Súdan i
austri. A Sahel-svæöinu eru
átta riki. Undanfarin sex ár
hefur úrkoma á svæöinu veriö
i lágntarki, helmingur búpen-
ings rnargra landa hefur falliö
og yfir 100.000 manns hafa dá-
iö vegna fæðuskorts.
Að undanförnu hefur
ástandiö skánað nokkuð, en þó
litur út fyrir, að alvarleg
hungursneyö verði i fjórum
Sahel-landanna i ár vegna
þurrka og uppskerubrests.
Þau eru Grænhöföaeyjar,
Gambia, Senegal og Máretan-'
ia. Keynslan hefur kennt
Afrikuþjóöunum að vera vel á
veröi er uppskerubrestur
verður. Er nú til talsvert af
matvælum, sem unnt er aö
gripa til.
Alþjóölegar hjálparstofnan-
ir hafa lika viðbúnaö vegna
ástandsins. Er þegar búið að
senda 450.000 tonn af matvör-
um til þessara landa á yfir-
standandi ári.
ið meö slikar matar- og lyfja-
sendingar sem þær væru
þeirra eign. Algengt er, aö
matvæli og lyf hafiveriðseld á
svörtum markaöi fyrir of fjár.
Braskararnir eru langoftast
stjórnmálamenn og fjármála-
menn i háúm embættum i rik-
inu.
Samgöngumál eru viðast
hvar í mesta ólestri i Afriku.
Járnbrautir liggja aðeins milli
stærstu borga, vegir eru léleg-
ir, og þegar rignir breytast
þeir i svað. Flugsamgöngur
eruþrátt fyrirallt mikilvægari
en samgöngur á landi, þótt
viða vanti flugvelli. Samgöng-
ur á fljótum eru erfiðleikum
háðar, bæði vegna þess að fæst
fljóta i Afriku eru skipgeng frá
ósum, og ekki siöur hins, að
grynningar og flúðir eru viða i
stórfljótum.
A undanförnum 6 þurrkaár-
um i Afriku hafa mikil land-
flæmi blásið upp. Saharaauðn-
in mikla hefur beinlinis færst
um hundruð kilómetra i átt til
miðbaugs.
Onnur lönd, sem á þessu
svæði eru hafa að undanförnu
þessum löndum undanfarna
áratugi. Minnkandi beit hefur
svo valdiö felli nautpenings.
En þegar nautgripum fækkaði
var jarðvegurinn á bak og
burt, og ekkert strá greri þar,
sem áður voru blómleg
bændabýli.
Afrika er álfa bænda. Land-
búnaöur er undirstaða lifsaf-
komu langflestra. Sé þessum
grundvelli kippt undan fótum
Afrikubúa blasir örbirgð viö.
I fyrra var haldinn I Nairóbi
fundur á vegum Sameinuðu
þjóðanna þar, sem fjallað var
um vandamál þurrks og. upp-
blásturs f Sahel, og viðar um
heim reyndar. Samþykkt var
að verja árlega einum millj-
arði dollara til að græða upp
land og koma i veg fyrir að
eyðimörkin breiðist yfir Sa-
hel-löndin. Afrikuþjóðir,
Noröurálfuriki og Arabarikin
sneru bökum saman i þessu
máli, og þess er að vænta, að
hafist verði handa um upp-
græðslu, en ekki bara hjálpar-
starf. Einungismeð viðtækum
aðgerðum til að vernda gróður
er unnt að bjarga þessusvæði.
Að undanförnu hefur mjög
skort á, aö matvæli og hjálp-
argögn, sem send eru til
Afriku, komi að þeim notum,
sem ætlað er. Veldur þvi
tvennt: annars vegarspilling I
ýmsum löndum, hins vegar
gifurlegir erfiðleikar á að
koma varningi á leiöarenda.
Um fyrra atriöiö er það aö
segja, að viða hafa embættis-
menn og jafnvel háttsettir
stjórnmálamenn beinlinis far-
orðið mjög hart úti vegna
þurrka. Eru það Niger, Mali,
Efra-Volta og Tchad. 1 þeim
er mikið af nautpeningi, og
hefur hann falliö I stórum stil
eins og aö ofan segir. Naut-
gripirnir eru bæði fórnarlömb
og sökudólgar. Beit á þurru
landi býöur upp á uppblástur
nema úrkoma viðhaldi raka
jarðvegsins Ofbeit er ein meg-
inástæðan fyrir þvi, að stór
svæöi hafa orðið að eyðimörk i
En lausn á vandamálum Sahel
er ekki aðeins tengd Afriku.
Sahel er nú i raun tilrauna-
stofa, og rannsóknir, sem þar
verða gerðar og niðurstöður,
sem þar fást, munu koma aö
gagni meðal allra þróunar-
landa og jafnvel breyta viö-
horfum manna til uppgræðslu
um heim allan.
H.Ó.