Tíminn - 31.08.1978, Side 7

Tíminn - 31.08.1978, Side 7
Kimmtudagur :tl. ágúst 1!»7S 7 SAMVINNUÞÆTTIR Um atvinnulýðræði og eignaraðild í samvinnufyrirtækjum Umræður og blaöaskrif um „fámennisstjórn” i Samband- inu hafa færst aö nokkru leyti inn á aðrar brautir. Fjallaö hefir veriö um „atvinnulýö- ræði’’ og „eignaraöild” i sam- vinnurekstri.Þessi umræöa er að ýmsu leyti athyglisverö og fróðlegt að skoða þau sjónar- mið, sem aöallega hefir verið á lofti haldið. Sum þeirra eru all- nystárleg og falla illa að sam- vinnurökum liðinna áratuga. Hér verður bætt við nokkrum orðum og bent á nokkur atriöi, sem ekki má hlaupa yfir eða gleyma þegar mál þessi eru skoðuð. Fámennisstjómir kaupfélaganna og Sambandsins Nú er þess fyrst að geta að 49 kaupfélög standa að Samband- inu og eru þau hinir eiginlegu „eigendur” þess, ef notað er algengt orð. Þetta orð hafa samvinnumenn þó jafnan notað með vissum fyrirvara. Þegar um eignaraðildað kaupfélagi og Sambandinu er að ræða þurfa menn að vita, að eignarréttur- inn er ekki hinn sami og venju- lega tíðkast. „Eignarréttur” fé- lagsmannanna 1 kaupfélaginu og kaupfélaganna I Sambandinu er verulega skertur. Annars vegar er um að ræða „séreign” kaupfélagsins i Sambandinu og hins vegar óskiptanlega sam- eign. Sama gildir um félags- menn og kaupfélag. Kaupfélög- in geta hætt að vera aöilar að Sambandinu og fengið séreign sina útborgaða. Þar er fyrst og fremst um stofnsjóðsinnistæðu þess að ræða. Stofnsjóður Sam- bandsfélaganna er nú rösklega 370 milljónir. Sameignin er hins vegar ekki skiptanleg. Enda þótt „eignarréttur” kaupfélaganna i Sambandiu 'sé að þessu leyti greinilega af- markaður og skertur er umráðaréttur þeirra á Sam- bandinu algjör. Þar sem nú kaupfélögin „eiga” Sambandiöer eölilegt að þau stjórniþvi og ráði. Þaögera þau lika og rétt er að huga nokkuð að þvi, hvernig það gerist. Aðalfundur og kosningar I kaupfélögunum eru rösklega 41 þúsund félagsmenn, sem allir hafa atkvæðisrétt og möguleika til að velja trúnaöarmenn i stjórnir þeirra. Yfirleitt eru það 5 til 9 menn sem skipa stjórn hvers félags og samtals eru stjórnarmenn kaupfélaganna 246. Það er allstór hópur og varla rétt að tala um fémenni. Þessir menn hafa verið kosnir til starfa og félagsmennirnir gera meir en kjósa þessa stjórnarmenn. Þeir kjósa einnig árlega á fundum sinum fulltrúa til að mæta á aöalfundi Sam- bandsins. Þeir rösklega 110 fulltrúar sem aðalfund Sam- bandsins sitja eru þvi vald- ir á einfaldan en lýðræðis- legan hátt af meðlimum kaupfélaganna. Þessir fulltrúar hafa þvi fullt og óskert umboð beint frá félagsmönnum kaup- félaganna til að ráöa stefnu Sambandsins og velja þvi stjórn. Um leið og Sambands- fundarfulltrúi hefir með atkvæði sinu valið stjórn Sam- bandsins, framselur hann að nokkruvald það og trúnaö, sem hann fékk frá félagsmanninum er kaus hann til setu á aöalfundi samtakanna. Vera má að ýmsir telji þetta form galiaö og áhrifavald fé- lagsmanna ekki áþreifanlegt, ef svo má að orði komast. Hins vegar hefir ekki verið bent á annað heillavænlegra og eðli- legra form og slikt framsal réttar og umboð til trúnaöar- manna eins og hér er um að ræða, er eitt af höfuðeinkennum þess lýðræðisforms, sem við bú- um við. Um þaö má nefna ótal hliðstæð dæmi bæði frá hinu pólitiska sviöi og frá öðrum greinum samfélags okkar. Sambandsstjóm Sambandsstjórn skipa 9 aöal- menn og 3 varamenn. Til við- bótar koma svo tveir fulltrúar starfsmanna með málfrelsi og tillögurétti. Sá háttur hefir oft veriö á haföur, á seinustu árum, að kveöja varamenn til fund- anna, enda þótt aðalmenn væru ekki forfallaðir og gefa þeim þannig tækifæri lil að kynnast málum og hafa áhrif á gang þeirra. Það er þvl jafnan lltil 14 manna hópur kjörinna fulltrúa samvinnumanna sem fjallar um og tekur ákvarðanir á þessum vettvangi I umboði fé- lagsmanna. Um það má að sjálfsögðu deila, hvort hér er um „fámennis- stjórn” að ræöa eða ekki. Boriö saman við það sem almennt tiökast um stjórnir fjöldasam- taka, stórfyrirtækja rikisins og fyrirtækja i félags- eða einka- eign, mun fremur ástæða til að tala um „fjölmennisstjórn” i Sambandinu en hið gagnstæða. Atvinnulýöræöi Hvað er atvinnulýöræöi?Svör við þessari spurningu eru marg- vísleg. Þótt nokkrar tilraunir hafi verið gerðar til að gefa orð- inu ákveðna merkingu hefir það ekki tekist svo viöunandi sé. Hvað sem þvi liður, virðist það hins vegar augljóst að flestra dómi eðlilegt að i atvinnulýð- ræöi felistþað, að starfsfólk hafi rétt og möguleika til aö hafa áhrif á ýmsa þætti fyrirtækis þess sem það starfar við. Hvar þessi réttur skal byrja og hvar enda eru skiptar skoðanir um. Alþingi hefir haftþessi mál til meðferðar. Það hefir ekki fund- ið neitt einfalt lausnarráð. Þó hefir verið ákveðið, að settar skuli upp svokallaðar „Sam- starfsnefndir” við nokkrar til- greindar rikisstofnanir og rikis- fyrirtæki. Nefndir þessar eru yfirleitt skipaðar jafnmörgum mönnum tilnefndum af stjórn- um og starfsmönnum. Starfs- hættir þeirra eru nánast I mótun og litil reynsla fengin af þessari nýbreytni. Hvert framhaldið verður skal ósagt látið. Svipaö form I nágrannalöndum okkar hefir skilað misjöfnum árangri. Réttast væri liklega aö segja, misjafnlega litlum árangri. Hér eru samvinnumenn aö gera tilraun með aöra leiö. Þeir telja eölilegt að stéttarfélögin haldi áfram að semja upp kaup og kjör á svipaöan máta og tlök- ast hefir. Þeir vilja hins vegar reyna aö auka lifandi lengsl milli starfsmanna og stjórnenda samvinnufélaga. Samvinnumenn þekkja vel það vandamál, sem hrjáir flest félagsleg samtök, að þegar komið er yfir byrjunarörðug- leika og mál hafa fengið sæmi- lega trausta skipan, þá halda liðsmenn að þeir megi draga af sér þvi hlutirnir gangi af sjálfu sér. Samvinnumenn telja að á þessu sviði þurfi stöðugt að vera á varðbergi. Leiðin til úrbóta, sem nú er veriö að reyna, felst i þvi, að starfsfólk Sambandins og æ fleiri kaupfélaga tilnefnir full- trúa sem sitja stjórnarfundi og fylgjast með öllum málum, sem stjórnirnar taka til meöferðar. Þar geta þeir einnig boriö upp mál, sem snerta velferð starfs- manna og fyrirtækisins. Tilraunir hafa veriö gerðar I Sambandinu meö ýms önnur form, sem i raun geta talist leit aö atvinnulýðræöi, eða leit aö leiö til að auka möguleika starfsfólks til áhrifa. Flestar hafa tilraunir þessar misheppn- ast eða skilaö óverulegum ár- angri. Fyrir nokkrum árum var formlega leitaö eftir skriflegum tillögum starfsmanna um end- urbætur eða nýbreytni. „Tillaga min” var þessi tilraun kölluð. Starfsmannafélag Sambandsins og framkvæmdastjórn þess hafa efnt til umræðu og fræðslu- funda. Þeir hafa nánast sagt misheppnast vegna litilla þátt- töku. Þeir voru jafnvel fámenn- ari en fundir, sem fram- kvæmdastjórarefna til með eig- in deildarstjórum og starfsliöi. Þessi mál horfa nokkuð öðru- vi’si við i hinum smærri kaupfé- lögum og fyrirtækjum sam- vinnumanna þvl þar eru tengsl og samskipti starfsfólks og for- stöðumanna yfirleitt mjög náin. Samvinnumenn telja lifandi áhuga félagsmanna og starfs- manna fyrir málefnum og rekstri félaganna skipta sköp- Framhald á bls. 19. Kristinn Snæland: Kappaksturinn mikli Ekki er laust við að segja megi að það sé ævintýraleg reynsla að aka bil með utan- bæjamúmeri i Reykjavik. Reykviskir ökumenn virðast lita á það sem ómótmælanlega staðreynd, að utanbæjarbil- stjórar séu ákaflega seinir og óvissir i umferöinni. Utan- bæjarbilarnir eru seinir og keyra hægt. Reykviski bilstjór- inn er með þetta á heilanum og afleiðingin er sú, að utanbæjar- billinn lendir alltaf i hálfgerðum kappakstri. Sumir utanbæjarbilstjórar eru vissulega svo vitlausir að reyna aðaka á löglegum hraða, en það er einmitt atriðið sem gerir það að verkum að þelr hljóta þann dóm aö tefja fyrir umferðinni, þeir aka of hægt, og hinn prúði Reykjavikurbilstjóri tryllist, framúr, framúr, svona eru þessir andsk. utanbæjar- menn alltaf fyrir, og Reykvik- ingurinn ekur inn Miklubraut meö sigurbros á vör kominn á 80-90 km hraða en utanbæjar- bíllinn sigur á eftir á 60 km. Nú vill svo til aö sumir utan- bæjarbilar hafa Reykvfkinga undir stýriog þá æsist nú leikur- inn. Utanbæjarbillinn ekur nú á ólöglegum hraða eins og allir hinir, eða t.d. á 80 inn Miklu- brautog nú tekur þó steininn úr. Reykjavikur-bilstjórarnir sjá utanbæjarnúmerið og tryllast, framúr, framúr, enginn reyk- viskur bilstjóri með sjálfsvirö- ingu getur ekið á eftir utan- bæjarbil, þeir aka allir svo hægt og Reykjavikurbiriinn er nú kominn á 100 km hraða og sigur framúr. Vegna þess, að ég er Reykvik- ingur á utanbæjarbil verð ég óviljandi upphafsmaður að æöi- mörgum kappakstrinum. Við umferöarljósin á Miklu- brautinni stansa ég fremstur og biö eftir grænu ljósi, strax og gula ljósið kemur er flautað fyr- ir aftan mig, þvi auðvitað verö- ur að reka utanbæjarbilinn af stað, ég tek af stað með látum og gef druslunni allt sem hún á og æði áfram upp i 80km hraða, en allt kemur fyrir ekki, Reykjavikurbilarnir sigla sigri hrósandi framúr, svona gengur þetta stööugt! Ég djöflast áfram i akstrinum nær alltaf á ólöglegum hraða og nú er ekki annað eftir en að skipta um númer á bilnum, setja á hann Reykjavikurnúmer, þvi það er vist eina ráöiö til þess að ná hraðanum á Miklubrautinni þó niður i 80 km. Þó svo að Reykvikingar kunni alls ekki að aka úti á vegum ættu þeir ekki að þurfa aö hefna þess i umferöinni i Reykjavik.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.