Tíminn - 12.09.1978, Side 5
'H ?.!!. 1 !111.
Þriöjudagur 12. september 1978
5
Laugardaginn 23. sept.
er áformað að haldin verði
hrossakaupstefna á Hellu i
Rangárvallasýslu, og eru
það Hestamannafélagið
Geysir, Rangæingadeild
Hagsmunafélags hrossa-
bænda og Kaupfélag
Rangæinga sem gangast
fyrir kaupstefnunni.
Hrosskaupstefnan verður hald-
in i tamningastöð Geysis á Hellu
og gefst félagsmönnum i fyrr-
greindum félögum kostur á að
koma með hross á kaupstefnuna
til sýningar og sölu. Gerð verður
itarleg skrá yfir þau hross sem
þarna verða til sölu og verða þau
flokkuð og metin til lágmarks-
verðs af sérstakri dómnefnd, Sér-
stök áhersla verður lögð á að
aðeins gallalaus hross verði boðin
til kaups, en sjálf kaupin fara
þannig fram, að gerð verða tilboð
i hrossin, sem síðan verða opnuð
siðar um daginn að viðstöddum
væntanlegum kaupendum og
dómnefnd.
Eigendur þeirra hrossa sem
sýnd verða á kaupstefnunni verða
að koma þeim til og frá kaup-
stefnunni á eigin kostnað.
Ef vel tekst til með þessa kaup-
stefnu er áformað að hún verði
haldin bæði vor og haust fram-
vegis og þá fyrir bæði innlenda og
erlenda kaupendur, en nokkuð
hefur vantað á að skipulag hafi
verið á þessum málum að undan-
förnum.
Framkvæmdanefnd hrossa-
kaupstefnunnar á Heliu er skipuð
eftirtöldum aðilum: Halldór
Gunnarsson Holti, en hann er full-
trúi Rangæingadeildar Hags-
munasamtaka hrossabænda,
Guðni Jóhannsson Hvolsvelli,
fulltrúi Kaupfélags Rangæinga,
og Magnús Finnbogason, Lága-
felli, en hann er fulltrúi Hesta-
mannafélagsins Geysis.
beir sem áhuga hafa á að láta
skrá hross á kaupstefnuna, geta
haft samband við einhvern ofan-
greindra manna fyrir næstu
helgi.
landbúnaðarmál
Sigurður l.indal.
Siguröur Líndal, Lækjarmóti:
„Aökallandi að
bændur fái auknar
útflutn-
ingsbætur”
Sigurður l.indal, Lækjarmóti sambands bænda, sem lialdinn
Vestur llúnavantssýslu tók ekki var á Akureyri og var hann fyrst
illa i að ræða við blaðaniann Tim- að þvi spurður að því hvað
ans á siðasta aðalfundi Stétta- honum þætti um uppbyggingu
Jón Guðmundsson, Oslandi:
,Fagna því að jafn-
rétti hefur náðst”
Jón Guömundsson Óslandi
i Skagafirði/ var annar
tveggja fulltrúa Skaga-
fjarðarsýslu á aðalfundi
Stéttasambands bænda,
sem haldinn var á Akur-
eyri fyrir skömmu. Blaða-
maður Tímans ræddi stutt-
Timann vantar fólk til
blaðburðar i eftirtalin
hverfi:
Suðurlandsbraut
Ægisiða
Snorrabraut
Kjartansgata
Sfmi 86-300
lega við Jón á öðrum degi
aðalfundarins og var hann
fyrst að því spurður hvaða
mál honum finnist vera
merkilegast af þeim sem
fjallað hefur verið um á
f undinum.
— bað eru tvimælalaust fram-
leiðslumálin, en staða þeirra er
nú mjög alvarleg a.m.k. á meðan
við fáum ekki fullt verð fyrir
framleiðslu okkar.
— Hvað finnst þér um tillögur
þær sem sjö manna nefndin hefur
lagt fram til lausnar þessara
mála?
— Mér finnast tillögurnar á
margan hátt góðar, en vitaskuld
ber að hafa það i huga, að þær eru
ekki fullmótaðar ennþá. Annars
finnst mér eðlilegast að kvóta-
kerfi og kjarnfóðursgjaldi verði
beitt samhliða en ef ekki eru tök á
þvi þá verði hvoru um sig beitt
eftir aðstæðum. bá þykir mér að
veita eigi eins litlar undanþágur
frá kvótakerfinu og mögulegt er
til þess að það nái tilætluðum ár-
angri.
— Hvað finnst þér um önnur
mál á þessum fundi?
— Ég vil nú fyrst taka þaö fram
að ég fagna þvi, að loksins hefur
náðst fullt launajafnrétti karla og
kvenna, en það atriði i úrskurði
Yfirdóms frá þvi i desember 1977
að karlmenn, sem vinna við bú-
störf skuli hafa hærra kaup en
kvenmenn, var eitt þeirra sem
hvað erfiðast var að þola.
— Hvað i málum landbúnaðar-
ins finnst þér að þurfi að leggja
sérstaka áherslu á i framtiðinni?
— bað eru að sjálfsögðu fram-
leiðslu- og skipulagsmálin. Varð-
andi niðurgreiðslur vil ég segja
það, að þær þurfa að vera stöð-
ugri, þvi að sveiflur eins og verið
hafa að undanförnu eru mjög
hættulegar gagnvart markaðs-
málunum og þá finnst mér að út-
sölurnar mættu standa yfir i
styttri tima til þess að þær nái til-
gangi sinum. —ESE.
Jón Guðmundsson.
Stéttasambandsins:
— Ég tel að það sé eðlilegt i
meginatriðum, en tel þó, að full-
trúar fleiri búgreina mættu eiga
aðild að þvi. T.d. fulltrúar svina-,
alifugla- og gróðurhúsabænda.
Mér finnst, að þessar búgreinar
ættu einnig skilyrðislaust að fá
fulltrúa á aðalfund Stéttasam-
bands bænda.
— Hvað finnst þér brýnast að ný
rikisstjórn beiti sér fyrir i mál-
efnum bænda?
— Mér finnst mest aðkallandi
að bændur fái þegar á þessu ári
auknar utflutningsbætur, til þess
að fullt verð fáist fyrir fram-
leiðsluna, en siðan komi til aukin
stjórnun á framleiðslunni, þannig
að 10% útflutningsbætur dugi i
framtiðinni. t þessu sambandi er
nauðsynlegt að tekið verði mið af
framkomnum tillögum sjö manna
nefndarinnar og að fóðurbætis-
gjaldi og kvótakerfi verði beitt
samhliða ef mögulegt er, sagði
Sigurður Lindal að lokum.
-ESE.
Sumarfundur Tilraunaráðs landbúnaðarins:
Ný tilrauna- og rannsóknar-
verkefni í landbúnaöi
A sumarfundi tilraunaráðs
laiidbunaðarins var m.a. rædd
starfs- og fjárhagsáætlun stofn-
unarinnar, auk þess sem rætt
var um ný tilrauna- og rann-
sóknarverkefni. Nokkrar tillög-
ur frá undirnefndum ráðsins
voru lagðar fram á fundinum og
þær ræddar. Eftirfarandi tillög-
ur voru samþykktar:
1. Framkvæmd verði rannsókn
á arfgengni á fituprósentu og
eggjahvítuprósent u i mjólk
og erfðafylgninni milli þess-
ara þátta.
2. Rannsakað verði efnainni-
hald islenskrar mjólkur og
teknir til meðferðar eftirtald-
ir þættir: Heildarþurrefni,
eggjahvíta, fita, sykur og
eftir atvikum fleiri þættir.
Rannsókn þessi verði látin ná
til a.m.k. eins árs, en helst
tveggja ára samfellt.
3. Fjármagn verði útvegað til
framhaldsrannsókna á nýt-
ingu sláturúrgangs og þá sér-
staklega á eftirfarandi þætti:
a. Vinnslu á heparini Ur
lungna- og garnash'mi.
b. Vinnslu á hormónum úr
kirtlum.
c. Vinnslu garna til matar-
gerðar.
d. Vinnslu sláturúrgangs í
(þurr)fóður fyrir minka og
annað búfé
e. Notkun á maurasýru til að
auka geymsluþol á úrgangi.
4. Ahersla verði lögð á rann-
sóknir á geymsluþoli græn-
metis og leit að þvi hvaða
þættir ráöa mestu um
geymsluþolið með hliösjón af
þvi, hvernig hægt sé að nýta á
hagkvæman hátt framleiðslu-
toppa sem myndast.