Tíminn - 24.09.1978, Síða 25

Tíminn - 24.09.1978, Síða 25
Sunnudagur 24. september 1978 25 Frímerkj asaf narinn Vanborgun borganir og segir að það sé yfir- leitt ekki gert og engin ástæöa til að eyða tima i það.” Þaö er rétt hjá bréfritara, að þetta hefir verið hin raunveru- lega framkvæmd á undanförn- um árum. Ég hefi t.d. undanfar- in 8 ár eða svo, fengið öll van- borguð bréf beint i pósthólf mitt, án nokkurra athugasemda. Ég hefi hins vegar beðið viðkom- andi póstafgreiðslumenn að af- greiða bréfin samkvæmt þar um gildandi reglum, sem þeir hafa hiklaust gert hverju sinni. Fylgir svo hér með mynd af bréfi, samkvæmt gömlu regl- unni um tvöfalt burðargjald. Vanstimplun Annar er sá hlutur, að pósthús má ekki afhenda viðtakanda bréf með óstimpluðum frimerk- um. Þegar um er að ræða innlend bréf er mál þetta yfir- leitt leyst á þann einfalda hátt, að afhendingarpósthúsið stimplar merkin. En þegar um er að ræða bréf frá útlöndum er aftur meiri vandi á höndum. Þá ber viðkomandi afhendingar- pósthúsi að þristrika merki þau sem óstimpluð eru, og setja jafnframt á bréfið stimpil sinn, svo að sjá megi hvar og hvenær merkin voru strikuð. Ekki hefir verið mikið af þessu gert og eru þvi slik bréf nokkuð eftirsótt. Birt er mynd af einu sliku bréfi, nokkuð nýlegu. SigurðurH. Þorsteinsson. O Menn og málefni Fyrir nokkru skrifaöi ég þátt, þar sem að nokkru var gerð grein fyrir vanborguðum bréf- um. Nokkur bréf hafa mér bor- ist vegna þessa þáttar og öll á eina leið, að fá að lesa reglur þær, sem gilda um meðferð slikra bréfa. Hefi ég nú útvegað þessar reglur og birti þær hér með: 9.0. PÓSTGJÖLDIN. GREIÐSLUSKYLDA. GREIÐSLUAÐFERÐ- IR. 9.1. Greiðsluskylda. 9.1.1. Að þvi undanteknu, er segir i 9.6. Gjaldfrjálsar sendingar hér á eftir, skulu burðargjöld og önnur póstgjöld vera að fullu greidd fyrirfram og bera merki þess að svo sé með frimerkjum, stimplum frimerkingar- véla eða öðrum áprent- unum, t.d. „Burðargjald greitt”. Innrituð blöð og timarit þurfa þó ekki að bera neitt slikt merki um, að burðargjald sé greitt. 9.2. Vanborgaðarog óborgaðar sendingar. 9.2.1. Sé burðargjald vanborgað eða vanti alveg, skal freista þess að ná til sendanda og láta hann borga það, sem á vantar. Reynist það ókleift, skal sendingin send áfram og afhent viötakanda gegn innlausnargjaldi. Sama gildir, ef einhver hefur samið um það sérstak- lega fyrirfram að fá til sin ófrimerktar sending- ar en þá verður sending- in að bera þess merki, t.d. með áletrun „Má láta ófrimerkt i póst”. 9.2.2. Aður en vanborguð send- ing er send af stað, skal póstmaður árita hana eða stimpla, ofan til á miðri framhlið, með bók- stafnum „T” og skrá burðargjaldið sem á vantar sem teljara i broti, þar sem nefnarinn er burðargjald fyrir bréf af fyrsta þyngdarflokki til annarra landa. 9.2.3. Akvörðunarpósts>töðin innheimtir innlausnar- gjaldið af viðtakanda og limir frimerki fyrir þvi á sendinguna og dag- stimplar þau. Innlausn- argjaldið er fundið með þvi að margfalda brotið með tölu, sem er jöfn burðargjaldi fyrir bréf af fyrsta þyngdarflokki til annarra landa, auk þóknunar er sé jöfn ábyrgðargjaldi eins og það er á hverjum tima. Einn bréfritari segir. „Ég kom af fjöllum þegar ég las þáttinn, þvi að póstmaðurinn hérna innheimtir aldrei van- INGVAR HELGASON Vonorlandi v/Sogoveg — Simor 845)0 og 84511 Eigum mjög gott úrval af þessum margviðurkenndu þroskaleikföngum fyrir börn á ýmsum aldri EUer 'oys Kiddicraft \þl ' G/?ow UP ÞROSKALEIKFÖNG legu máli hvernig það mál ræðst m.a. með tilliti til Jan Mayen. Þriðju nefnd sem fjallar um mengunarvarnir og rannsóknir, var ekki skipt i vinnuhópa heldur hélt fundi sjálf enda er hún langlengst á veg komin. I þriðju nefnd hefur verið fjallað um mörg atriði sem geta skipt tsland miklu máli. Þokast í áttina Það mun hafa veriö ætlun for- ystumanna hafréttarröastefn- unnar að gefa út nýjan endur- skoðaðan texta i lok fundarins nú en af þvi varð ekki. Þó er vafalitið að sumir vinnuhóparn- ir náðu verulegum árangri ekki sizt fyrstu nefndar-hóparnir. Formenn þeirra lögöu fram allitarlegar tillögur um breytingar á texta sem vafalitið stefna i samkomulagsátt. Hins vegar er enn ósamkomulag um ýmis veigamikilatriði en leysist þau, getur farið af staö skriða sem knýr fram samkomulag um mörg önnur atriði sem eru að verulegu leyti leyst en menn hafa ekki viljaö ganga formlega frá unz séð væri fyrir hvort helztu deiluatriðin leystust. Ef slik skriða færi af stað, þyrftu strandrikin að vera vel á verði. Textinn er þeim yfirleitt hag- stæður nú en nær allar tillögur um breytingar stefna að þvi að draga úr þvi. I lok fundarins nú var ákveðiö aö halda sex vikna fund i Genf næsta vor (19. marz-30. april) og verður þess freistað þar að ganga frá nýjum texta. Fram aö þeim fundi og á honum verður lögð mikil áherzla á að leysa mál fyrstu nefndar. Horfur i þeim efnum eru nú betri en áður. Ósamkomulagið þar hefur veriö milli iðnaðarveldanna og þróunarrikjanna og hefur ekki siður strandað á Jieim siðar- nefndu. Fleiri og fleiri þróunar- riki virðast nú skilja að þaö sé þeim til hags, að samkomulag náist og þvi vinna þau að mála- miðlun bak viö tjöldin. Þetta var greinilegt nú, þó að sýni- legúr árangur yrði ekki meiri að þessu sinni. Það var spá margra i fundar- lokin nú, að takist aö ná sæmi- legum árangri á fundinum næsta vor, muni ekki þurfa nema einn fund til viðbótar og yrði hann þó sennilega haldinn næsta sumar. Undirritun nýs hafréttarsáttmála gæti þá farið fram í Caracas vorið 1980. Þ.Þ. VERDLAUNAGRIPIR OG FÉLAGSMERKI , Fyrir allar legundir iþrótta. bikar- ar. styttur. verólaunapeningar t— Framleiöum felagsmerki #1 fr /^MagnúsE. BaldvinssonS // Laugaveg. 8 - Reykjavik - Sim. 22804 w///«inm\\\\w Bændur Bændur Tveir ungir menn, sem vanir eru sveitar- störfum, þó aðallega þeim sem unnin eru yfir sumartimann, vilja taka að sér hirð- ingu og starfrækslu á litilli jörð einhvers staðar á landinu næsta sumar. Mætti gjarnan standa i sambandi við að ábú- endur vildu taka sér fri frá störfum i ein- hvern tima. Vegna brennandi áhuga okk- ar á málefninu heitum við þvi að stunda störf okkar af dugnaði og samviskusemi og gera allt okkar besta svo að allir aðilar verði ánægðir að þeim loknum. Þeir bændur sem áhuga hafa á framan- greindu vinsamlega sendið tilboð til aug- lýsingadeildar Timans merkt „SUMAR 79”.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.