Tíminn - 24.09.1978, Síða 27

Tíminn - 24.09.1978, Síða 27
Sunnudagur 24. september 1978 27 Simon Nicol um gitarleikara á þessum tima, en þaö er Richard Thumpson. Sem ihlaupamaöur i Albion Band getur Simon Nicol gitar- leikari leyft sér að vera gagnrýn- inn á hljómsveitina, en að hans mati er lagt of mikið upp úr hinu jíeikræna varðandi þjóðlögin sem hann telur að sé á kostnað hljóm- sveitarinnar sem hljómleika- htjómsveitar. Hann segir: „Mitt álit er það að of miklum tima sé eytt i lista- og menningarsnobbið i London og þar af leiðandi er landsbyggðin látin sitja á hakanum. Þessu verður að breyta. Það eru margir utan London sem aldrei hafa heyrt um okkur getið og það er okkar verkefni að komast i sam- band við það fólk”. Nicol eyðir tima sinum I að leika með Albion og Fairport og trúlega hefur hann verið i þessum bransa lengur en nokkur annar i hljómsveitinni. Frá 16 ára aldri hefur hann ferðst um með Fair- port, og að hans sögn hefur hann aðeins orðið fyrir áhrifum frá ein- „Vandræðin með mig eru þau að ég er ómögulegur „session” leikari”, segir Dave Mattacks trommu/ásláttarleikari Albion Band. „Ég nota hvert tækifæri sem ég get til þess að láta Ijós mitt skina á hljómleikum, en þar nýt ég min. Ég tel það mikla upp- hefð fyrir mig að leika með hljómsveitinni og hreinan heiður að hafa verið með á báðum stóru plötum Albion Band. Að minu viti á Ashley Hutchings fáa sina lika og ég ber takmarkalausa virð- ingu fyrir honum sem hljóm- listarmanni”. Mattacks lék á sinum tima með Fairport Convention, eftir dauða Martin Lamble, og með hljóm- sveitinni lék hann af og til þar til fyrir þrem árum er hann hætti. Eftir það hefur hann leikið sem „session” maöur og meðal þeirra sem hann hefur farið með I Dave Mattacks hljómleikaférðir eru t.d. Andy Fairweather Low og Joan Arma- trading. Jeff Wayne’s - War of the Worlds - ýmsir flytjenaur „Jeff Wayne’s musical version of War of the Worlds” er lygilega merkileg plata þrátt fyrir að um sé að ræða nýjan búning á annars alkunnri sögu (Innrásinni frá Mars). Það er kannski skritnast við þe ssa plötu að öfugt við það sem maöur gæti fyrir fram haldið fær maður hreint engan leiða á henni eftir nokkra snúninga á fóninum. Tónlistin er sér- staklega viðfelldin og um leið „æsandi” þrátt fyrir að alla plötuna i gegn gangi nokkuð svipað stef. Þá skapar rödd Richard Burtons sérstaka stemmningu en hann er sögumaður á plötunni og aldrei langt undan. Auk hans fara með aðalhlutverk: Julie Covington, David Essex, Justin Hayward, Phil Lyn- ott, Jo Partidge og Chris Tompson. Lagið „Forever auturnn" sungið af Justin Hayward, hefur viða slegið i gegn á topp tiu listum þó að platan sé annars ekki fyrir þá sem halda að músik sé bara taktgjöf i dansi. Því má syo bæta við að hingaðkoma plötunn- ar „War of the Worlds” markar mjög liklega upp- haf „space-æðis” hér á landi en þetta æði er búið að vera I tisku i bióhúsum og hefur breiðst út annars staðar i hinum vestræna heimi. —KEJ. Brinsley Schwarz Toughts of... uak „Fifteen Thoughts of Brinsley Schwarz” er hljómplata sem full ástæða er til þess að benda fólki á að kynna sér. Þrátt fyrir að hér sé um gamlar hljóðritanir að ræða, eru þetta bestu Iög Brinsley Schwarz, og enn þann dag i dag eiga þau fullt erindi til fólks. Þegar hljómsveitin leystist upp áriö 1975 hafði hún starfað I rúm niu ár og á þeim tima m.a. hljóðritaö sjö stórar plötur, auk þess sem fjöldi ann- arra hljóöritana liggur eftir þá félaga i hljómsveit- inni, Nick Lowe, Ian Gomm, Brisley Schwarz, Bob Andrews og Billy Rankin. E.t.v. er þaö fyrst nú sem ljós rennur upp fyrir mönnum af hverju hér er mælt svo fjálglega með þessari plötu, en fyrir þá sem enn hafa ekki kveikt á perunni skal það upplýst hér að umræddir hljómlistarmenn eru nú I fararbroddi breskra „New Wave” hljómlistarmanna og þá einkum og sér I lagi Nick Lowe. Hann er nú eins konar æðsti prestur nýbylgjunnar og sólóplata hans „Jesus of Cool” sem kom út fyrir skömmu, h'efur hlotið mjög góðar viötökur. Það er-Lowe sem samið hefur flest laganna á þessari „úrvalsplötu” Brinsley Schwarz, en hún hefur aö geyma fimmtán lög/hugsa'nir og er þaö stórmerkilegt hvað þessi lög eiga mikiö erindi til fólks enn þann dag I dag, en aldur þeirra er á bilinu 3—9 ára. Flest laganna eru I,,rock-blues” stil, en önnur áhrif s.s. „country” og „reggae”, eru auöheyranleg. Astæðan fyrir þessum margbreyti- leik mun vera sú að BS voru I stöðugri þróun allan sinn feril, og komu þeir vfða við. Ekki hlutu þeir almennar vinsældir á sinum tima, enda samkeppni hörð, og trúlega á það sinn þátt I þeirri fjölbreytni sem er að finna á plötunni. Eitt er þaö sem kemur uppi hugann er maður hlýðir á þessi lög, en það er CBS 96000 /Fálkinn ★ ★ ★ ★ - Fifteen 30177 /Fálkinn fullvissan um það að BS hafi á sinum tima veriö langt á undan sinni samtið. Ahrifa þeirra gætir enn þann dag i dag og sem upphafsmenn „Kráarrokks- ins” (Pub-Rock) lögðu þeir grunninn fyrir hljóm- sveitir eins og Stranglers, Graham Parker and the Rumours, Dr. Feelgood, hljómsveit Ian Durys og margar fleiri. Umslagið er tileinkað Mao formanni og eitt er vist og það er það að þessi plata er jafn ómissandi þeim sem áhuga hafa á rótum nýbylgjunnar og rauða kverið var ómissandi fyrir Kinverja. —ESE FIFTEEN THOUGHTS OF BRINSLEY SCHUARZ ★ ★ ★ ★ ★ ★ — Kjprgardi SÍMAR: Auk þess að vera með verzlunina fulla af nýjum húsgögnum á mjög góðu verði og greiðsluskilmálum höfum við i ÚTSÖLU-HORNINU: Létt raðsófasett kr. 45.000.- Ruggustóll kr. 60.000.- Borðstofuskenkur (sem nýr) kr. 75.000.- Svefnsófasett kr. 110.000.- Raðsófasett m/ 2 borðum kr. 110.000.- Borðstofuborð og 4 stólar kr. 75.000.- Sófasett4ra sæta sófi kr. 85.000.- Simasæti kr. 25.000.- Nýkomið hlaðrúm, innskotsborð speglar og bókaskápar Eins og þú sérð — EKKERT VERÐ f Garðbæingar Sundlaugin verður opnuð á ný, mánudaqinn 25. september. Forstöðumaður Til sölu Stálhús á Willy’s jeppa (Mayer), Upplýsingar i sima (91) 2-28-11 og (91) 1- 17-73. ® \ 9 M • J • I • ÞAÐ GERIR ÞÚ EF ÞÚ REYKIR. í TÓBAKSREYK ERU FJÖLMÖRG ÚRGANGS- OG EITUREFNI, SEM SETJAST í LUNGUN OG VALDA HEILSUTJÓNI. SAMSTARFSNEFND UM REYKINGAVARNIR

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.