Tíminn - 08.10.1978, Blaðsíða 27
Sunnudagur 8. október 1978
27
H1j ómplötudómar
Albion Band - Rise up like the sun
Harvest/EMI SHSP 4092/Fálkinn
ÞaB hefur áöur veriö minnst á Albion Band hér i
Nútimanum, þannig aö ferill hljómsveitarinnar
veröur ekki tiundaöur hér aö þessu sinni. Þó skal
þess getiö aö Ashley Hutchings, stofnandi Albion
Band, átti á sinum tima þátt I ab stofna hljómsveit-
irnar Fairport Convention og Steeleye Span. Þá er
rétt að geta þess hér aö flestir liösmanna Albion
Band hafa á einn eða annan hátt veriö viðriönir
fyrrnefndar hljómsveitir.
,,RiseupliketheSun”erönnur hljómplata Albion
Band. A bak viö hana stendur einvalaliö. Fyrir utan
meölimi hljómsveitarinnar, sem eru niu aö tölu,
koma viö sögu listamenn úr samhentustu „fjöl-
skyldu” bresks tónlistarlifs, þ.e. þjóðlagatónlistar.
fjölskyldunni. Nægir þar aö nefna nöfn eins og Andy
Fairweather-Low, Julie Covington, hjónin Richard
og Lindu Thompson, Martin Carthy, Pat Donaldson
og Kate McGarrigle, en þess má geta aö hún syngur
eins og engill i besta lagi plötunnar, „House in the
Country”.
Um tónlistina á „Rise up like the Sun” er þaö aö
segja að hana veröur aö setja i fimm stjörnu flokk.
Ekki færri en 20 hljóöfæri koma viö sögu á plöt-
unni, þ.á.m. sekkjapipur, synthesizer og fjöldinn
allur af fágætum tréblásturshljóöfærum úr safni
Phil Picketts. Og þegar slik hljóöfæri eru fengin
slikum listamönnum og þeim sem Albion Band
skipa.þá kemur aðeins það besta fram.
1 stuttu máli má segja að á plötunni sé aö finna
breska þjóðlagatónlist af bestu og vönduðustu gerö
byggða á gamalli menningararfleifð. Tónlist sem
spannar öll svið þjóðlagatónlistarinnar, allt frá
V__________________________________________________
„folk rokki” af einföldustu gerö upp i þjóösögulegt
jazz-rokk ef svo má að orði komast ekki ósvipaö þvi
sem mátti heyra á meistaraverki Mike Oldfields
„Tubular Bells.” Sem sagt, tónlistin á „Rise up like
the Sun” er þess eðlis aö hún skilur engan eftir
ósnortinn.
— ESE
★ ★ ★ ★ ★
Approved by the Motors er kannski siöasta platan
meö The Motors þrátt fyrir að hún hefur alls staöar
slegiö i gegn enda gerö fyrir vinsældamarkaöinn.
Siöan platan kom út hefur hljómsveitin flosnaö upp
og manni skilst aö aöeins tveir séu eftir i hljóm-
sveitinni. Af þessari plötu Morors hafa tvö lög fariö
alla leiö udd á vinsældalistum. nefnilega Airport og
You beat the hell outta me. önnur lög á plötunni
fylgja þessum fast á eftir hvaö snertir form og inhi-
hald. Sem sagt dágóö skemmtiplata en ekki likleg
til aö geymast á spjöldum sögunnar.
KEJ
Virgin 26090 XOT/Fálkinn
V
★ ★ ★
Commodores - Natural
STML 12087/FáIkinn
A plötunni Natural High leika Commodores popp-
diskó blandaða sóltónlist og útkoman er létt kaffi-
músik sem á köflum að minnsta kosti ris upp úr
meðalmennskunni. Vinsælasta lagiö á plötunni er
örugglega Three Times a Lady, skinandi gott og ró-
legt lag. Lagiö Flying High hefur einnig komist
ofarlega á lista og fleiri lög eru á plötunni sem
heyrst hefur út um borg og bæ, i útvarpi og á diskó-
tekum. Þó verður ekki undan þvi skorast að segja
um þessa plötu eins og flestar aörar eftirlegukindur
sjöunda áratugarins, þaö vantar andagiftina, þaö
vantar kraftinn. Þaö bara hlýtur eitthvaö aö fara aö
gerast.
KEJ
★ ★ ★ +
Tilboð óskast
i eftirtaldar bifreiðar sem skemmst hafa
i umferðaróhöppum.
Lada sport árg. 1978
Volvo 144 árg. 1972
Cortina árg. 1976
V.W. Derby árg. 1978
Vauxhall Viva árg. 1972
V.W. sendi árg. 1972
Toyota MKII árg. 1974
Honda 250 bifhjól árg. 1975
Mazda 818 árg. 1977
og nokkrar fleiri
Bifreiðarnar verða til sýnis að Skemmu-
vegi 26, Kópavogi, mánudaginn 9. okt.
1978.
Tilboðum sé skilað til Samvinnutrygginga,
bifreiðadeild fyrir kl. 17. 10. okt. 1978.
Vélprjónafólk
Aðalfundur Vélprjónasambands íslands
verður haldinn að Hallveigarstöðum v.
Túngötu laugardaginn 14. okt. n.k. kl. 2
e.h.
Stjórnin.
Akranes —
félagsráðgjafi
Félagsmálaráö Akraneskaupstaöar óskar aö ráöa félags-
ráögjafa tii starfa.
Umsóknarfrestur cr til l. nóvember næstkomandi.
Upplýsingar i sima 9:1-1211 eöa 93-1320.
Akranesi 4/10 ’78.
Vélstjóri óskast
Viljum ráða vélstjóra með vélvirkjarétt-
indi. Viðkomandi þarf að starfa sem vél-
stjóri við korngeyma okkar i Sundahöfn.
Reynsla i verkstjórn og góöir stjórnunarhæfileikar nauö-
synlegir.
Umsóknir meö upplýsingum um fyrri störf,aldur og meö-
mæli sendist i pósthólf 853, fyrir 15. okt.
Kornhlaðan h.f. Sundahöfn
Staða skólastjóra
Verslunarskóla
íslands
Staða SKÓLASTJÓRA VERSLUNAR-
SKÓLA ÍSLANDS er laus til umsóknar.
Ráðningartími er frá og með 1. júni 1979.
Ráðgert er, að væntanlegur skólastjóri
kynni sér kennslu i viðskiptafræðum
erlendis fyrir næsta skólaár, er hefst 1.
september 1979. Þá er einnig æskilegt, að
umsækjandi geti annast kennslu i við-
skiptagreinum.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi
Félags menntaskólakennara.
Umsóknir með upplýsingum um aldur,
menntun, og fyrri störf, ásamt greinar-
gerð um ritsmiðar og rannsóknir, skulu
sendar Skólanefnd Verslunarskóla íslands
Laufásvegi 36, Reykjavik fyrir 1.
desember n.k.
Skólanefnd Verslunarskóla íslands.