Tíminn - 20.10.1978, Síða 24
Sýrð eik er
sígild eign
HMftCiÖGil
TRÉSMIÐJAN MEIDUR
SÍÐUMÚLA 30 ■ SÍMI: 86822
Gagnkvæmt
tryggingafé/ag
Skipholti 19, R.
simi 29800, (5 línur)
Verzlið
Jt í sérverzlun með
litasjónvörp
pg hljómtæki
(il iJ. ilil * Ilí!
Föstudagur 20. október 1978 — 233. tölublað —62. árgangur
Sendar fyrir heyrnartæki í lúxustollflokki
„Reiðarslag fyrir börnin”
— segir Birgir Ás Guðmundssoh forstöðumaður
heyrnardeildar Heilsuverndarstöðvarinnar
FI — Já, mér finnst nú hæpið af ráðuneytinu að tolla þessa heyrnar-
tækjasenda eins og um iúxusvöru væri að ræða og hefur dálitið verið
gert til þess að fá ráðuneytið ofan af þessari ákvörðun en ekki tekist.
Þessir sendar eru aðeins i tengslum við heyrnartæki og þvi ómögu-
legt að misnota þá á nokkurn hátt. Hins vegar geta þeir verið nauð-
synlegir fyrir mjög heyrnaskert börn á skólaaldri. Ég hef bréf upp á
það, að Danir hafa litið fram hjá lúxustollinum af mannúðarástæð-
um.
A þessa leið fórust Birgi As
Guömundssyni forstöðumani
heyrnadeildar Heilsuverndar-
stöövarinnar orð i- samtali við
Timann i i gær, en heyrnarlaus
skólabörn hafa orðiö fyrir þvi á-
falli, að sérstakir sendar, svo-
kallaðir TM sendar, sem þeim
eru nauðsynlegir til venjulegrar
skólasetu, hafa veriö settir i
sama tollflokk og lúxusvörur.
Þýðir þaö, aö ekki nokkurt barn
á möguleika á að eignast slikt
tæki.
Fob verö TM-sendanna er
371.700 krónur. Opinber gjöld
eru samkvæmt bréfi fjármála-
ráöuneytisins frá 25. sept. 356
þúsund. Heildarverð er þvi hér
á landi 727.700 krónur.
„Fyrstu þrjú tækin, sem
komu hingaö til lands, voru toll-
uð sem hjálpartæki, sagði Birg-
ir,en málið fór að vandast, þeg-
ar viö pöntuðum tæki fyrir sex
ára barn i Arbæjarskóla, sem er
að hefja skólagöngu sina. Þá
var tækið allt i einu sett i lúxus-
vöruflokk, en slikt hleypir verð-
inu upp um nær helming.”
Birgir sagði, að foreldrar
vildu fá þetta tæki fyrir litil börn
á forskólaaldri til þess að þau
næöu málinu strax. Sendirinn er
einfaldur I notkun, en hann er
staðsettur nálægt munni mæl-
andans og berast boðin I
heyrnartæki barnsins. 1 heilt ár
hefur verið reynt að fá
Tryggingastofnun rikisins til
þess að taka þátt i kostnaðinum
fyrir fórskólabörn en ekki tek-
ist. Tryggingalæknir hefur aftur
á móti tekið vel i að kaupa
nokkur tæki til útlána fyrir for-
skólabörn. Slikt gæti veriö
bráöabirgöalausn, en hvorki
hefur gengiö né rekið með þaö I
ár. Þó hafa þessi mál veriö
endurtekin á dagskrá hjá
tryggingaráði.
Hvaö skólabörnum viðvikur
þá hefur menntamálaráðuneyt-
ið verið til viðtals um aö borga
helming kostnaðar af slikum
sendum miöaö við aö þetta séu
kennslutæki, en skilyröiö er að
þau falli i heyrnartækjaflokk.
Nú, þegar verðið hefur hækkað
um helming, er menntamála-
ráðuneytiö ekki lengur til við-
tals um borgun. „Þetta er
reiðarslag fyrir börnin,” sagði
Birgir As að lokum.
ATA — Klukkan 21:45 á
miðvikudagskvöld kom
upp eldur i húsinu að
Hafnarstræti 98 á Akur-
eyri, en i þvi húsi er
meðal annars Hótel
Akureyri til húsa. Það
tók slökkvilið Akureyrar
tæpan klukkutima að
slökkva eldinn, en
skemmdir urðu miklar.
Það vildi svo vel til aö æfing var
fyrirhuguð hjá slökkviliði Akur-
eyrar og þvi var allt varaliöið til-
tækt á slökkvistööinni, þegar út-
kalliö kom.
Eldurinn kom upp i einni fjög-
urra verslana, sem eru á neðstu
hæð hússins, versluninni Tisku-
bæ. Eldurinn komst upp á aöra
hæð hússins og breiddist þar
nokkuðút, en sem fyrrsegir tókst
fljótlega að slökkva hann.
Tjón varö mikiö i eldinum, bæöi
á hótelinu sjálfu, svo og á versl-
unum fjórum, og munu allar vör-
ur þeirra hafa eyöilagst. Verslan-
irnar eru, auk Tiskubæjar: Raf-
orka, Brauðgerð Kristjáns Jóns-
sonar og Pedró-filmur.
Upptök eldsins uröu með þeim
hætti, aö feðgin voru að lakka
veggi I tiskuversluninni. Annað
þeirra dró upp kveikjara og
kveikti sér i vindlingi. Varö versl-
unin alelda á samri stundu, enda
var loftið mettað eldfimum efn-
um.
Feöginin sluppu ómeidd út
nema hvað maðurinn skarst eitt-
hvaö á höndum, þar sem hann
varö að brjóta rúöu til að komast
út.
í gær var ekki búið að meta
tjónið að fullu, en það mun hafa
orðiö mikið.
Húsgagnavika 1978
Húsgagnavika 1978 hefst í dag í ÁG húsinu Tangarhöfða 8-
12/ og mun hún standa fram til sunnudagsins 29. október.
Timamynd G.E.
örin bendir á Hótel Akureyri.
Mikið tjón á
Hótel Akureyri
vegna elds
Ellert vill víkja en
Þingflokkurinn hlýtur
Nú hafa vandræði þingflokks
Sjáifstæðisflokksins um for-
mannskjörið leystst á farsælan
hátt hvort sem allir viðkomandi
aðilar eru ánægðir með þau
málalok eða ekki, en þingflokk-
urinn hefur enn ekki bitið úr
nálinni hvað varðar óskir 1.
þingmanns Reykvíkinga um
setu i nefndum.
Nú hefur Ellert B. Schram
boðist til aö vikja úr sæti I fjár-
veitinganefnd svo aö Albert
komist þar aö. En málið er ekki
svona einfalt. Ellert getur ekki
ráöstafaö sæti sinu i nefndinni
að
ráða
til samþingmanns sins. Þing-
flokkurinn hlýtur aö ráða. Fari
svo aö Ellert segi sig úr nefn-
dinni verður að kjósa mann i
hans staö og ræður þá meiri-
hluti atkvæöa. Þá er að vita hve
mörgum I þingflokki Sjálf-
stæðisflokksins hefur snúist
hugur siðan fyrst var kosiö i
fjárveitinganefnd?
Sæmileg
loönuveiöi
Kás — Sæmileg loðnuveiði var i
gær. Fram til ki. 17 tilkynntu sex
skip afla til ioðnunefndar, um
2900 lestir. Sólarhringinn á undan
tilkynntu niu skip afia, 5350 lestir.
Hvessa fór á loðnumiðunum
fyrir norðan land upp úr miðnætti
siðasta sólarhring, og gerði það
bátum erfitt fyrir með veiðarnar.