Tíminn - 23.11.1978, Blaðsíða 11

Tíminn - 23.11.1978, Blaðsíða 11
10 MM'HW l Fimmtudagur 23. nóvember 1978 Fimmtudagur 23. nóvember 1978 11 Norskur rithðfundur heldur fyrirlestur i Norræna húsinu A fimmtudagskvöldið kemur mun norski rithöfundurinn Pál Espolin Johnson halda fyrirlestur i Norræna Húsinu , sem hann nefnir „Norge i Nord. Scenerier og portretter”. A laugardag mun hann siðan halda annan fyrorlest- ur um hið mikla skáldverk — Juvikfolke eftir Olav Duun. Johnson sem er fæddur i Suður- Noregi árið 1940 á ættir slnar aö rekja hingað til lands, og segist hann vera kominn af Jóni Jakobs- syni sýslumanni sem bjó á Espi- hóli nálægt Akureyri. Hann er málfræðingur aö mennt og hefur hann sem slikur kennt viö menntaskóla bæði i Tromsö og ósló. Pál Espolin Johnson Fyrirlesturinn á fimmtudag hefst kl. 20.30 og á laugardag hefst fyrirelsturinn kl. 16.30 Fjármálaráðuneytið Eigendur dísilbifreiða Viðurkennd hefur verið ný tegund öku- mæla til ákvörðunar þungaskatts. öku- .mælar þessir eru af gerðinni H I C O. Um- boðsmaður H I C O mælanna er Vélin Suðurlandsbraut 20, Reykjavik. Aður höfðu verið viðurkenndir mælar af gerðinni V.D.O Umboðsmaður þeirra mæla er V.D.O. verkstæðið Suðurlands- braut 16, Reykjavik. Fjármálaráðuneytið, 20. nóvember, 1978. Söluskattur Viðurlög falla á söluskatt fyrir október mánuð 1978, hafi hann ekki verið greiddur i siðasta lagi 27. þ.m. Viðurlög eru 4% af vangreiddum sölu- skatti fyrir hvern byrjaðan virkan dag .eftir eindaga uns þau eru orðin 20%, en siðan eru viðurlögin 3% til viðbótar fyrir hvern byrjaðan mánuð, talið frá og með 16. degi næsta mánaðar eftir eindaga. Keflavík Blaðbera vantar frá 1. desember n.k. i vesturbænum. Upplýsingar hjá umboðsmanni i sima: 92- 1373. ia> Knattspyrnu- ogjólastémning í... Samband ungra framsóknarmanna gengst fyrir hópferð til London dagana 27. nóvember — 3. desember. Arsenal — Liverpool Laugardaginn 2. desember fer fram leikur Arsenal og Liverpool á hinum fræga Highbury-leikvangi. London skrýdd jólabúningi I fyrsta skipti I mörg ár. Tilkynniö þátttöku I sfma 24480 sem fyrst. S.U.F. Menningarráðstefna SUF hefst á laugardag „Listir á líðandi Þátttaka tilkynnist í siðasta lagi á morgun stund” Dagana 25. og 26. gangast fyrir menningar- nóvember n.k. mun SUF ráðstefnu undir nafninu Liður 1 menningarráðstefnu SUF er ferð á sýningu á leikriti Jökuls Jakobssonar, „Sonur skóarans og dóttir bakarans”. „Listir á líðandi stund". A þessari ráðstefnu sem er mjög fjölbreytt/ mun fjöldi þekktra manna úr menn- ingarlífi þjóðarinnar halda erindi og verða til marg- háttaðrar leiðbeiningar þátttakendum. Dagskrá ráðstefnunnar er birt I heild i flokksstarfsdálki blaðsins I dag og eins og þar verður séö verður þarna fjallað um tónlist, málaralist og bókmenntir á liðandi stund, auk þess sem fariö verður I leikhús og á myndlistarsýningu, Hljóðriti i Hafnarfirði heimsóttur og kvikmyndasýning verður i Fjalakettinum. Er þá fátt eitt talið. Umræðuhópar munu starfa, pall- borðsumræður verða um islenska fjölmiðla og hljómplötukynning verður i Óöali á laugardagskvöldið. Blaðiö fann að máli þau Helgu Jónsdóttur, ráöstefnustjóra og Eirik Tómasson, formann SUF, en „Hljóðriti” i Hafnarfirði veröur sóttur heim. þau hafa unnið mikið starf að undirbúningi ráðstefnunnar. Eirikur sagði að ráðstefnan væri hugsuö til þess að kynna væntan- legum þátttakendum stöðu ýmissa listgreina I dag, vekja umræðu um listir og menningarmál innan Framsóknarflokksins. Þær um- ræöur sem þarna væri vonast til að yröu, gætu oröiö góður vegvisir við nýja stefnumótun i þessum málum, sem vel væri við hæfi að Fram- sóknarflokkurinn riöi á vaðið með I samræmi við þá stefnu hans að meta meir manngildi, en auðgildi að hætti sósialiskra og kapitaliskra flokka. Eigi að siöur væri þátttakan ekki bundin við aðild að samtökum f ramsóknarmanna, en hverjum sem vildi frjálst að sækja ráðstefn- una, meðan þátttökutala leyfði, en hún er skorðuð við 40 manns. Enn sögðu þau Eirikur og Helga að hægt væri að skrá þátttakendur til ráðstefnunnar og tóku fram að ekki væru heldur miöað viö sér- stakt aldursmark, heldur meira lagt upp úr að fólk væri ungt i anda. Minntu þau á að þátttöku bæri að tilkynna ekki siðar en á morgun I slmum 24480 eða 86300. Þátttökugjald er kr. 8000.00 en greitt verður fyrir þátttakendum utan af landi á alla lund, greiddur niöur ferðakostnaöur þeirra og uppihald. í þátttökugjaldi er inni- faliö gjald vegna málsverða og þeirra feröa, sem ráðstefnunni tengjast á ýmsa menningarvið- buröi. Greinargerö frá stjórn Skáksambands íslands: Vegna opinberrar umræðu um FIDÍ-þingiö og skákförina til Argenti'nu, vill stjórn S1 taka fram eftirfarandi: 1. Stjórnin fordæmir harðlega þær ærumeiðingar, sem forseti Sl, Ein- ar S. Einarsson, hefur orðiö að þola að ósekju i fjölmiölum. A fundi stjórnar Sí 2. okt. sl. var bókuð sú ósk Friöriks Ólafssonar, aö SI tilnefndi mann til embættis féhiröis FIDE, ef til kæmi. Stungið var þá upp á Einari S. Einarssyni, en hann tók sér frest til að ihuga málið, ræða við fjölskyldu sina og vinnuveitendur. A stjórnarfundi St9. okt. var ein- róma samþykkt meö atkvæðum allra stjórnarmanna og með vit- und Friöriks ólafssonar, aö Einar S. Einarsson yröi féhiröisefni Skáksambands tslands ef Friðrik næði kjöri. Rétt er aö taka fram, aö féhirðisstarfið er ólaunað meö öllu. I lögum FIDE segir svo um slik- ar kosningar: „No person can be electet against the will of his nati- onal federation.” (Lausl. þýtt: Engan má kjósa til embættis innan FIDE gegn vilja skáksambands lands hans.) Stjórn Sí taldi þvl óumdeilanlega frá þessu framboði gengið með samþykki allr aöila. Kom enda ekkert fram um aö annað framboð væri I bigerð, og það framboð er svo óvænt sá dagsins ljós örfáum minútum áður en kjósa skyldi, var algjörlega án vitundar ályktunar- bærrar stjórnar Sl, sem heima sat, hvaö þá forseta Sl, sem staddir voru I Argentinu. Þó var það meö samþykki gjáldkera Sí. Þetta ó- vænta frambðö var á þann veg, að fulltrúi írlands myndi bera fram Glsla Arnason, gjaldkeri St. Þetta framboð samstjórnar- manns, sem staðiö haföi að og greitt atkvæði með samþykkt stjórnar S1 um aðbjóða fram Einar S. Einarsson, var I senn furðulegt ogfáheyrtogforsetar S1 trúðu vart sinum eigin ey.rum er þeir heyröu þetta nefnt. Töldu þeir þetta frek- legttrúnaöarbrotogmeð engu móti hægt að ljá þessu sprengiframboði liö. Forsetar St töldu sig ekki hafa umboð né vilja til að afsala þeim rétti, sem St er helgaöur i lögum FIDE né hvika frá löglega gjöröum samþykktum. Þegarþetta öngþveiti haföi skap- „Einar krafðist ekki féhirðisembættisins” ast og sýnt var aö uppsteitur og hark yrði á fundinum vegna þess- arra tveggja framboöa og viö blasti óeining innan islenzku sendi- nefndarinnar, upphófust deilur milli Högna og hinna erlendu sendimanna Friðriks ólafssonar, fulltrúa frá trlandi og Skotlandi. Einar S. Einarsson átti engan hlut að þeim deilum. Óskaði Högni eftir þvi við hina erlendu talsmenn, aö framboð Gisla Árnasonar yröi dregið til baka.T>eirri ósk höfnuðu þeir aö höfðu samráði við Friðrik Ólafsson. Högni kvaðst þá vilja foröa vand- ræöum, ef hægt væri, og leitaði eftir þriöja manni, sem aðilar gætu sætt sig við til málamiðlunar. AB vörmu spori komu hinir erlendu sendimenn til baka meö nafn Sveins Jónssonar. Forsetar Sí gatu fallizt á þennan frambjóðanda og voru þá dregin til baka framboð Einars S. Einarssonar og Gisla Arnasonar og það staöfest meö skriflegri yfirlýsingu beggja. Varð þannigforðað stórvandræö- um og töldu forsetar SI að með þvi að stinga upp i málamiðlun og fall- ast á hana, hafi þeir haldið uppi sóma Skáksambands tslands. Má þvi öllum vera ljóst, að Einar S. Einansson kraföist hvorki fyrr né siöar féhirðisstarfsins, og eru allar fullyröingár i þá veru raka- lausar og gróflega meiöandi. Óviðkomandi stjórn skáksambandsins 2. För Guðmundar G. Þórarins- sonar til Buenos Aires var undirbú- in og ákveðin algjörlega án vit- undar stjórnar SI og forseta þess, en fyrir milligöngu gjaldkera henn- ar. Sótt var um opinberan fjárstuðn- ing til þeirrar farar I nafni SI og sá stuðningur veittur Sl, svo sem ann- að fé, er rikisstjóður hefúr veitt til stuðnings við frambjóðanda Skák- sambands Islands, Friðrik Ólafs- son. Af þessum ráðstöfunum fréttu stjórnarmenn heima og forsetar I | Argentinu á skotspónum enda þótt gjaldkeri St hefði milligöngu um undirbúning og fjárútvegun til far- arinnar. Þessar starfsaðferöir viröast tæpast samrýmast almennum starfsreglum félagasamtaka og vera brot á trúnaði sem stjórnar- manni er sýndur meö kosningu hans. AB framboði Friöriks ólafssonar hefur stjórn SI unnið sleitulaust I meira en hálft annaö ár og sérstak- lega hafa forsetar Sí þeir' Einar S. Einarsson og Högni Torfason, unnið þar mikið og ó- eigingjarnt starf. Er þvi vandséð aösköpun hafi skipt koma tveggja íslendinga til Buenos Aires um þremur sólarhringum áöur en kosning forseta FIDE skyldi fara fram. Sýnist og, að fjármunum til þeirrar farar hefði getað veriö bet- ur varið. Enginn einkaréttur 3. Mikiö fjaðrafok hefur oröið i ýmsum fjölmiðlum vegna sam- komulags Sí viö Rikisútvarpið og Morgunblaöið um sérstaka frétta- þjónustu frá Buenos Aires. Fjöl- miölar um allan heim sendu frétta- mennsina til Argentinu til aö fylgj- ast með Olympiumótinu og FIDE-þinginu. Fjárvana samtök með mikla verkefnaskrá eins og Skáksam- band Isiands hafa á undanförnum árum oröið aö leita allra fanga til aökosta ferðir stjórnar — og skák- manna, sem veriö hafa aöstoðar- menn islenskra keppenda á ýmsum erlendum mótum. Nú er taliö mikilvægt að fasta- fulltrúi Islands hjá FIDE, Einar S. Einarsson, stæði ekki einn í þvi að annast farrstjórn, setu á þingi og vinna að framboði Friöriks Ólafs- sonar. Var stefot að þvf, aö helzt færu til fylgdarmeöhonum tveir menn, en vegna fjárskorts var samíö við Rikisútvarpiö og Morgunblaðið, að þau greiddu til SI sem svaraöi ferðakostnaöi HögnaTorfasonar aö mestu, gegn sérstakri fréttaþjón- ustu. Rann það fé óskipt til SI, en ekki til Högna Torfasonar, og vann hann störf sin endurgjaldslaust I þágu SI, jafnframt því að vinna að framboði Friðriks Ólafssonar. Slik fréttaþjónusta við fjölmiðla er ekkert nýmæli. Rikisútvarpið og Morgunblaðiðtókuboði SI um slika fréttaþjónustu frá Olympiumótinu I Haifa 1976, en dagblaðið Timinn hafnaði boðinu. 1977 keyptu Visir og Þjóðviljinn fréttabréf á vegum S1 frá skák- mótinu í Bad Lauterberg, þar sem Friðrik ólafsson var meöal kepp- enda, en það mót fór fram á meðan einvigiö Spassky-Hort stóð yfir. Dagblaðið keypti fréttir frá Evrópumeistaramóti unglinga I Austurrlki og einnig frá Norður- landamóti i Finnlandi, og Rikisút- varpið og Morgunblaðið keyptu fréttir frá heimsmeistaramóti 17 ára og yngri í Frakklandi, og þann- ig mætti lengi telja. töllum þessum tilvikum og einn- ig I Buenos Aires, var ekki um neinn „einkarétt” að ræða, allir fjölmiölarnir áttu þess að sjálf- sögðu kost að njóta slfkrar þjónustu með sömu kjörum. Það er liðin tið að fara þurfi bónarveg aö blööunum til að koma inn skákfréttum. Þær eru eftirsótt lesefni, en ástæöulaust að ætla að fjölmiðlar þurfiekkiaö greiða fyrir öflun þeirra eins og annaö efni er þeir flytja. SI kostaði meö ánægju för hins frábæra skákmeistara Helga Ólafssonar til Argentinu, en taldi sig ekki skuldbundið til að kosta för fréttaritara dagblaösins Þjóðvilj- ans án samkomulags við stjórn SI. Skal tekið skýrt fram, aö þeir Helgi Ólafsson, Jón L. Arnason og Mar- geir Pétursson, sem skrifa fasta skákdálka I dagblöö skv. samningi, höfðu fulla heimild til að sinna þeim verkefnum. Mikill sigur Skáksamband Islands hefur notið mikillar velvildar islenskra fjöl- miöla og átt góöa samvinnu við þá, og er þaðeinlægvonstjórnarSI, aö svo verði áfram. 4. Stjórn Skáksambands Islands fagnar af heilum hug kjöri Friðriks ólafssonar stórmeistara til em- bættis forseta FIDE. Þar hefur felensk skákhreyfing og þjóðin öll, en þá ekki slst Friðrik Ólafsson, unniö frækilegan sigur, sem allir mega vera stoltir af. Skáksamband tslands og islensk skákhreyfing árna hinum nýja for- seta allra heilla og velfarnaðar i starfi og heita honum fullum stuðningi með ósk um gæfurlkt samstarf I hinu ábyrgðarmikla og vandasama embætti, er hann hefur nú tekist á hendur. Reykjavik, 20. nóv. 1978. 1 stjórn Skáksambands Islands Þráinn Guðmundsson (sign.) Ingimar Jónsson (sign.) Guðfinnur Kjartansson (sign.) Helgi G. Samúelsson (sign.: Þorsteinn Þorsteinsson (sign.) Högni Torfason (sign.) Einar S. Einarsson (sign.: Tekiðskal fram, aö tveirúr aðal- stjórn sátu ekki fundinn, þeir Ami Björn Jónasson, sem er erlendis, og Gisli Arnason. Tóku vara- stjórnarmenn sæti þeirra. „Mér voru engar segulbandsspólur tiltækar” AM — „Ég vil taka fram að mér voru engar segulbandsspólur til- tækar, þegar ég samdi þetta leik- rit,” sagði Ágúst Guðmundsson, höfundur Sjónvarpsleikritsins „Skólaferð,” en hann átti sam- band við blaðið I gær, vegna þeirra orða Ragnars Arnalds sem upphaflega bjó slfkt gaman til flutnings I Seli MR, að höfundur hlyti að hafa haft sinn þátt til hlið- sjónar. Agúst sagði að hann heföi verið i Selinu, þegar þetta glens var endurtekið, 1964 eða 65, en þá hefði hann verið staddur uppi á lofti i „Selinu” og ekki heyrt af útvarpsefninu nema ræðu for- sætisráðherra. Gæti hann þvi ekki kannast við að hafa samiö út- varpsefniö eftir annarra hug- myndum. Að öðru leyti taldi Agúst að ekki gegndi sérstöku mikilvægi vegna sjónvarps- — segir Ágúst Guömunds- son, höfundur leik- ritsins „Skólaferð” leiksins að rifja upp þessa fyrri atburði. Hann kvaðst sjálfur hafa lagt trúnað á að kjarnorkustrið væri aö skella á, þegar þetta var leikið þarna um árið, en likt og Ragnar Arnalds segir hafa verið árið 1956, var fjarri þvi aö svo langt væri gengiö þá, sem sjón- varpsleikritið lætur vera. Leikrit Agústs hefur vakiö veröskuldaða athygli og ummæli I blööum, og Ólafur Jónsson lætur þess getið i umsögn I Dagblaöinu að með Agúst kunni aö vera fram kominn raunverulegur höfundur islenskra sjónvarpsleikja. HÁÞRÝSTI- VÖKVAKERFI SérhæfÓ þjónusta. Aóstoóum vió val og uppsetningu hvers konar háþrýstibúnaóar. Agúst Guðmundsson hlaut kvikmyndastyrk ársins 1978. Hér réttir Baldvin Tryggvason, varaformaður menntamálaráðs, honum verölaunin. Innlent eða innflutt kex neyslan um 8 klló á mann á ári PARKER HANNIFIN Char-Lynrf im HEI — Talsvert hefur boriö á þvi I fjölmiðlum, að ýmsir aöilar hafa deilt á Sambandiö fyrir að hafa farið út i kexframleiðsiu með stofnun Kexverks miöjunnar Holts. 1 Sambandsfréttum segir, að þegar áætlanir hafi fyrst veriö uppi um stofnun verksmiðjunnar, hefðu tölur ársins 1975 um innflutning og innlenda fram- leiðslu á kexi veriö haföar til viömiöunar. Þaö ár heföi kex- neyslan i landinu numiö um 1800 tonnum og þar af heföu um 650 tonn verið framleidd innanlands, en um 1150 tonn innflutt. Þar sem ársframleiösla Kexverksmiöj- unnar Holts heföi ekki veriö áætl- uö nema um 400 tonn heföi veriö og væri enn taliö, aö starfsemi hennar þrengdi ekki óeðlilega að rekstri annarra innlendra fram- leiðenda, þvert á móti talið að nægilegt rúm væri fyrir fleiri en eina verksmiðju hér á landi tii að keppa við innfluttar kexvörur. Öryggislokar Stjórnlokar Vökvatjakkar = HEÐINN = VÉLAVERZLUN-SIMI: 24260 LAGER-SÉRPANTANIR-ÞUÓNUSTA

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.