Tíminn - 23.11.1978, Blaðsíða 19

Tíminn - 23.11.1978, Blaðsíða 19
Fimmtudagur 23. nóvember 1978 19 11II.!. J. 11 !l ! !l ■' 10 sækja um stöðu forstöðumanns Þróunarstofnunar Kás — A borgarstjórnarfundi s.l. föstudag voru lagöar fram umsóknir þeirra sem sótt hafa um starf forstööumanns Þró- unarstofnunar Reykjavikur- borgar. TIu umsóknir bárust. Þær voru frá: Hrafni Hall- grimssyni, Jóhannesi S. Kjar- val, Bjarka Jóhannessyni, Bjarna Reynarssyni, Trausta Valssyni, Baldvini Baldvins- syni, Haraldi Jóhannssyni, Kristni Ragnarssyni og Lineyju Skúladóttur. Tiunda umsóknin var frá Guörúnu Jónsdóttur, sem iýsir sig reiöubúna tii viö- ræöna um starfiö. Fyrir dyrum standa miklar breytingar á starfsemi Þró- unarstofnunar Reykjavíkur, þvl hún mun væntanlega um næstu áramót veröa uppistaöan I nýrri stofnun, sem hefur meö aö gera aöalskipulag alls Stór-Reykja- vlkursvæöisins. sem Ferðamálaráð hefur látið gera Feröamálaráö tslands hefur nýveriö látiö gera, I landkynn- ingarskyni, 4 ný veggspjöld meö landslagsmyndum frá tslandi. Veggspjöldin hannaði Auglýs- ingastofan hf., en ljósmynd- irnar eru eftir Gunnar Hannes- son, Martin Chillmaid og Sigur- geir Jónasson. Litgreiningar og prentun annaöist Kassagerö Reykjavikur, en veggspjöldin voru gerö i allstóru upplagi. Ferðamálaráð mun dreifa veggspjöldum þessum viða um heim, tjl ferðaskrifstofa og annarra aðila, er halda uppi kynningarstarfsemi, svo og hafa samvinnu við aöra erlenda, og innlenda aðila um dreif- ingu. Sölustofnun lagmetis hefur keypt verulegt magn af veggspjaldi þvl, er sýnir Vest- mannaeyjar og fiskiskipin þar, og mun nota það við kynningu og sölu á framleiðsluvöru sinni erlendis. Fyrirhugað er einnig að Flugleiðir kaupi hluta af upp- laginu til notkunar viö kynn- ingarstarfsemi sina. Nýtt jólakort frá Ásgrímssafni Þessi mynd af Norömanninum Harald Thiis var tekin, þegar hann var hér viö kennslu f svæöa- meöferö fyrir nokkru á vegum samtaka um svæöameöferð Timamynd Róbert Námskeið í svæða- meðferð — sem heilsu- ræktaraðferð Um næstu helgi 25. og 26. þessa mánaöar veröur efnt til nám- skeiös I svæöameðferö á vegum samtaka um svæöameöferð og heilsuvernd, en þessi samtök voru stofnuð fyrr á þessu ári til þess aö vinna aö menntun og fræöslu um þessa heilsuræktar- aöferö. Eftir þvl sem áh'rifamáttur svæöameöferöar hefur komið betur i ljós hefur nauðsyn aðgátar og réttra handbragða oröið ljós- ari og eins hefur fengist skýrari mynd af þvi hvenær svæðameð- ferð á ekki viö. Allir sem áhuga hafa á svvæðameðferö þurfa aö hafa I huga að meöhöndlun sjúkra er starfssviö heilbrigðisstétta og gæta þess að teygja ekki svæöa- meðferð sem heilsuræktaraöferö út fyrir sitt rétta svið. Þeir sem áhuga hafa á nam- skeiðum i svæðameðferö sem heilsurækt eða vilja afla sér upplýsinga um það hverjir sótt hafa námskeið I svæðameðferö hér á landi geta haft samband viö talsmenn samtakanna 1 simum 29045 eöa 38023 Jólakort Asgrimssafns á þessu ári er prentað eftir oliumálverk- inu Hafnarfjöröur I skammdegis- sól.Myndin er máluð 1929 og þyk- ir eitt af öndvegis oliumálverkum Asgrimssafns en Asgrimur Jóns- son málaöi töluvert á þessum slóöum kringum 1930. Kortið er i sömu stærð og hin fyrri listaverkakort safnsins með Islensku dönskum og enskum texta á bakhlið ásamt ljósmynd af listamanninum viö vinnu. Offsetprentsmiðjan Grafik sá um prentun þessa korts og er það I fyrsta sinn sem listaverkakort frá Asgrimssafni er offset- prentað. EirikurSmith listmálari valdi myndina til prentunar, en hann hefur veriö ráðunautur As- grimssafns frá fyrstu tið I sam- bandi viö val á myndum til korta- gerðar. Eins og undanfarin ár hefst sala jólakortanna snemma til hægðarauka fyrir þá sem langt þurfa að sepda jóla- og nýárs- kveðjur, en þessar litlu eftir- prentanir af verkum Asgrims Jónssonar má telja góða land- kynningu. Ennþá eru fáanleg hin ýmsu kort sem safniö hefur látið prenta undanfarin ár. Agóði af kortasölunni er notaöur til viö- halds listaverkum safnsins. Listaverkakortin eru aöeins til sölu I Asgrimssafni, Bergstaða- stræti 74 á opnunardögum og i verslun Rammagerðarinnar i Hafnarstræti 17. Asgrimssafn er oöiö sunnudaga þriöjudaga og fimmtudaga frá kl. 1,30-4. Hafnarfjöröur i skammdegissól. Olfumynd máluö um 1929. "Einmitt liturínn. sem ég hafði hugsað mérr ,,Ég valdi litinn á herbergið mitt sjálfur. Ég valdi litinn eftir nýja Kópal tónalitakortinu. Á Kópal kortinu finnur maður töff liti — alla liti, sem manni dettur í hug. má!ninghf Nýtt Kópal er endingargóð, — þekur svaka vel og þolir stelpur og stráka eins og mig. Nýtt Kópal er fín málning, það er satt, það stendur á litakortinu!" HRAUST SMJÖR

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.