Fréttablaðið - 28.08.2006, Page 4
4 28. ágúst 2006 MÁNUDAGUR
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 25.8.2006
Bandaríkjadalur 69,91 70,25
Sterlingspund 132,16 132,80
Evra 89,26 89,76
Dönsk króna 11,962 12,032
Norsk króna 11,006 11,126
Sænsk króna 9,682 9,738
Japanskt jen 0,5963 0,5997
SDR 103,65 104,27
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
123,3903
Gengisvísitala krónunnar
SKOÐANAKÖNNUN Um 68 prósent
svarenda í nýrri skoðanakönnun
Fréttablaðsins vilja annað stjórn-
arsamstarf en núverandi
stjórnarflokka eftir næstu kosn-
ingar. Tæpur þriðjungur aðspurðra
vill Sjálfstæðisflokk og Fram-
sóknarflokk áfram í ríkisstjórn, en
það er um 19 prósentustigum
minna en samanlagt fylgi þessara
tveggja flokka samkvæmt könnun
blaðsins sem birt var í gær. Þá
sögðust 10,7 prósent myndu kjósa
Framsóknarflokkinn ef boðað yrði
til kosninga nú, en 39.8 prósent
sögðust myndu kjósa Sjálfstæðis-
flokkinn.
Mun fleiri karlar en konur vilja
áframhaldandi samstarf ríkis-
stjórnarflokkanna eftir næstu
kosningar. 37,6 prósent karla sögð-
ust helst vilja slíkt ríkisstjórnar-
samstarf, en 25,3 prósent kvenna.
Þá líst íbúum á landsbyggðinni
betur á áframhaldandi samstarfi
Sjálfstæðisflokks og Framsóknar-
flokks en íbúum höfuðborgar-
svæðisins. 36,0 prósent íbúa á
landsbyggðinni vilja slíkt meiri-
hlutasamstarf, en 30,1 prósent
íbúa á höfuðborgarsvæðinu. Svör
dreifðust aðallega á sex mögu-
leika: meirihlutasamstarf Sjálf-
stæðisflokks og Framsóknar-
flokks; Frjálslynda flokksins,
Samfylkingar og Vinstri grænna;
Sjálfstæðisflokks og Samfylking-
ar; Sjálfstæðisflokks og Vinstri
grænna; Framsóknarflokks, Sam-
fylkingar og Vinstri grænna og
samstarf Samfylkingar og Vinstri
grænna. Þá voru um tíu prósent
sem vildu aðra möguleika í ríkis-
stjórnarsamstarfi. Meðal þeirra
voru nokkrir sem vildu meirihluta-
stjórn eins flokks. Af þessum val-
kostum nefndu flestir áframhald-
andi samstarf núverandi
ríkisstjórnarflokka.
Tæplega 15 prósent vilja að
núverandi stjórnarandstöðuflokk-
ar myndi ríkisstjórn eftir næstu
kosningar, en samanlagt fylgi
þeirra flokka í könnun blaðsins í
gær var 48,9 prósent.
Aðeins fleiri konur en karlar
vilja ríkisstjórn núverandi stjórn-
arandstöðuflokka, eða 18,4 prósent
kvenna og 11,8 prósent karla.
Um 36 prósent svarenda sögð-
ust vilja vinstri stjórn eftir næstu
kosningar, myndaða af bæði Sam-
fylkingu og Vinstri grænum og
mögulega Framsóknarflokki eða
Frjálslynda flokknum. Þar af vildu
tæplega 15 prósent meirihluta-
samstarf með Frjálslynda flokkn-
um. Rúmlega sex prósent vildu
samstarf með Framsóknarflokkn-
um, en 15 prósent vildi ríkisstjórn
sem í væru einungis þessir tveir
flokkar. Mun fleiri konur en karlar
sögðust vilja Samfylkingu og
Vinstri græn í ríkisstjórn, ýmist
þá tvo flokka eða með þriðja
flokknum. 27,7 prósent karla sögð-
ust vilja slíka vinstri stjórn eftir
kosningar, en 46,1 prósent kvenna.
Þá eru mun fleiri á höfuðborg-
arsvæðinu sem vilja vinstri stjórn
eftir næstu kosningar en íbúar á
landsbyggðinni. 39,3 prósent íbúa
á höfðuðborgarsvæðinu sögðust
vilja ríkisstjórn eftir næstu kosn-
ingar sem innihéldi bæði Samfylk-
ingu og Vinstri græn. Þar af vildu
15,8 prósent samstarf við Frjáls-
lynda flokkinn. 5,1 prósent vildi
samstarf við Framsóknarflokkinn
og 18,4 prósent vildu að einungis
Samfylking og Vinstri græn mynd-
uðu stjórn.
29,6 prósent íbúa á landsbyggð-
inni sögðust vilja vinstri stjórn
með samstarfi Samfylkingar og
Vinstri grænna. Þar af vildu 12,8
prósent að Frjálslyndi flokkurinn
væri jafnframt í stjórn, 8,1 pró-
sent vildi einnig hafa Framsóknar-
flokkinn í stjórn en 8,7 prósent
sögðust vilja tveggja flokka stjórn
Samfylkingar og Vinstri grænna.
Tæp 22 prósent svarenda segj-
ast vilja blöndu af hægri og vinstri
flokkum í næstu ríkisstjórn. Þar af
segjast 12,3 prósent vilja ríkis-
stjórnarsamstarf Sjálfstæðis-
flokks og Samfylkingar og 9,2 pró-
sent vilja samstarf
Sjálfstæðisflokks og Vinstri
grænna. Mjög lítill munur er á
afstöðu til þessara kosta eftir kyni
eða búsetu.
Hringt var í 800 kjósendur laug-
ardaginn 26. ágúst og skiptust
svarendur jafnt eftir kyni og hlut-
fallslega eftir kjördæmum. Spurt
var; Eftir næstu kosningar, hvaða
stjórnmálaflokkar vilt þú að myndi
næstu ríkisstjórn? 61,0 prósent
svarenda tók afstöðu til spurning-
arinnar. svanborg@frettabladid.is
68 prósent vilja aðra stjórn
Flestir, eða tæplega 36 prósent, vilja vinstri stjórn eftir næstu kosningar, samkvæmt nýrri könnun Frétta-
blaðsins. Rúm 32 prósent vilja hægri stjórn en rúmlega 22 prósent vilja samstarf hægri og vinstri afla.
HVAÐA STJÓRNMÁLAFLOKKA VILT ÞÚ AÐ MYNDI RÍKISSTJÓRN EFTIR
NÆSTU KOSNINGAR?
Samkvæmt skoðana-
könnun Fréttablaðsins
26. ágúst 2006
32,2%
14,8%
12,3%
9,2%
ANNAÐ
10,5%
15,0%
6,1%
NÆSTA RÍKISSTJÓRN
Hægri stjórn, vinstri stjórn eða blönduð stjórn
Samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins 26. ágúst 2006.
Hægri stjórn (D+B)
Vinstri stjórn (S+V+?)
Blönduð stjórn (D+S eða D+V)
Annað
32,2%
35,9%
21,5%
10,5%
HEILBRIGÐISMÁL Niðurrif á húsnæði
Lýsis við Grandaveg er langt á
veg komið og til stendur að bjóða
út byggingu hjúkrunarheimilis
fyrir aldraða með níutíu rýmum
fyrir Reykvíkinga og Seltirninga.
Jónmundur Guðmarsson, bæj-
arstjóri á Seltjarnaresi, segir að
sóst verði eftir því hjá heilbrigðis-
ráðuneytinu að framkvæmdinni
verði flýtt. „Hugmyndin var sú að
hjúkrunarheimilið yrði tekið í
notkun snemma árs 2009. Við vilj-
um flýta verkinu, ef hægt er,“
segir Jónmundur. Seltjarnarnes-
bær á lóðina og mun fá um þrjátíu
af hjúkrunarrýmunum til sinna
afnota. Telur Jónmundur að það
muni uppfylla framtíðarþörf bæj-
arins fyrir hjúkrunarrými. - sgj
Bæjarstjóri á Seltjarnarnesi:
Vill flýta bygg-
ingu á Lýsisreit
NIÐURRIF LÝSISHÚSSINS Í stað hússins
mun rísa hjúkrunarheimili með níutíu
hjúkrunarrýmum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Sundlaugarpartí Lögregla fékk
tilkynningu um þrjú leytið í fyrrinótt,
að hópur fólks væri að skemmta sér í
Breiðholtssundlaug. Þegar lögregla kom
á vettvang voru um fimmtán manns í
lauginni og flúðu margir þeirra þegar
lögregla mætti. Þrír þeirra hreyfðu sig
aftur á móti hvergi og neituðu að koma
sér upp úr lauginni. Þeir voru að lokum
handteknir og færðir í fangageymslur.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Geimferjuskoti seinkað Allt
benti til þess í gær að áformuðu
geimskoti geimferjunnar Atlantis frá
Kanaveralhöfða á Flórída á morgun
yrði seinkað fram í næstu viku vegna
fellibyljarins Ernesto sem nálgast
strendur Flórída.
BANDARÍKIN
LÖGREGLUMÁL Aðfaranótt sunnu-
dags stöðvaði lögreglan í Reykja-
vík níu ökumenn sem eru grunaðir
um ölvun við akstur. Þar af var
einn fimmtán ára ökumaður sem
lögregla stöðvaði í austurhluta
Reykjavíkur um níuleytið um
morguninn.
Drengurinn stal bifreið frá for-
eldrum sínum og ákvað að fara í
ökuferð eftir að hafa setið að
sumbli. Drengurinn var stöðvaður
af lögreglu við eftirlit og vegna
aldurs var foreldrum hans gert
viðvart til að vera viðstaddir
skýrslutöku.
Lögregla kýs að tjá sig ekki um
viðbrögð foreldranna. - æþe
Fimmtán ára ökumaður:
Tekinn fullur á
bíl foreldranna
SKOÐANAKÖNNUN Greinilegt er að
hópur kjósenda Sjálfstæðisflokks
og Framsóknarflokks vill ekki halda
áfram með ríkisstjórnarsamstarfið.
Þetta les Baldur Þórhallsson stjórn-
málafræðingur úr skoðanakönnun
Fréttablaðsins sem birtist í blaðinu
í dag.
„Það vekur strax athygli að 32,2
prósent vilja stjórnarsamstarf rík-
isstjórnarflokkanna sem er langt
frá því fylgi sem flokkarnir fengu
samanlagt í þessari skoðanakönn-
un,“ segir Baldur sem bætir við að
greinilegt sé að þó nokkur hópur úr
öðrum hvorum flokknum, eða
báðum, vilji leita á önnur mið í
stjórnarsamstarfi.
Baldur segir einnig að veki
athygli að ekki fleiri en 14,8 prósent
skuli nefna stjórnarandstöðuna sem
besta kostinn í ríkisstjórnarsam-
starfi, „Stjórnarandstaðan þarf að
gera mun betur til þess að fella rík-
isstjórnina í kosningunum. Sjálf-
stæðisflokkurinn stendur mjög vel
að vígi,“ segir Baldur og vísar í nið-
urstöður skoðanakönnunarinnar í
gær og það að 53,7 prósent þeirra
sem tóku afstöðu í könnuninni vildu
að Sjálfstæðisflokkurinn kæmi að
ríkisstjórnarsamastarfi.
48,2 prósent þeirra sem tóku
afstöðu vilja að Samfylkingin taki
þátt í ríkisstjórnarsamstarfi. „Þetta
endurspeglar þessar tvær blokkir,
annars vegar hægri blokkina og
vinstri blokkina, sem eru tvær
nokkuð jafnar blokkir sem takast
á,“ segir Baldur Þórhallsson. - at
Kjósendur Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks vilja nýtt stjórnarsamstarf:
Hópur sem vill á önnur mið
BALDUR ÞÓRHALLSSON STJÓRNMÁLA-
FRÆÐINGUR Segir niðurstöður skoðana-
könnunarinnar endurspegla tvær blokkir á
sviði stjórnmálanna.