Fréttablaðið - 28.08.2006, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 28.08.2006, Blaðsíða 21
ER ÞÍN EIGN AUGLÝST HÉR? MEST LESNA FASTEIGNABLAÐ LANDSINS Smáauglýsingasími 550 5000 Auglýsingasími Allt 550 5880 Þú getur pantað smáauglýsingar á visir.is Fasteignasalan Neteign.is hefur til sölu fallegt 160,5 fermetra parhús í lokuðum botnlanga í Laufrima 27 í Grafarvogi. Staðsetning hússins er mjög góð enda fáeina mínútna gangur í alla þjónustu svo sem grunnskóla, leikskóla eða í Spöngina. Forstofa hússins er flísalögð og eru rúm- góðir fataskápar á vinstri hönd. Þaðan er gengið inn í eikarparketlagt og mjög rúm- gott sjónvarpshol með loftglugga. Þrjú her- bergi eru í búðinni, tvö góð barnaherbergi með eikarparketi og annað þeirra með góðum skápum. Hjónaherbergið er rúmgott með góðu skápaplássi. Á gangi er baðher- bergi með hornbaðkari, vönduðum innrétt- ingum og flísum á gólfi. Eikarparket er á rúmgóðri borðstofu en þaðan er útgengt í garð þar sem hellulögð verönd er afgirt. Garðurinn er gróinn með fallegum blóma- beðum og trjám. Eldhúsinnréttingin er afar falleg og nýtískuleg en sama gildir einnig um heimil- istæki sem munu fylgja með í kaupunum svo sem ísskápur og uppþvottavél. Í eldhúsinu er einnig gott gas- og raf- magnshelluborð. Góður borðkrókur í eld- húsi og eru flísar á gólfum þar. Bílskúr er rúmgóður með hita og rafmagni, þar er einnig háaloft með góðu geymslurými. Að auki er sérþvottahús í húsinu. Söluverð þessarar fallegu eignar er fjörutíu og þrjár milljónir króna. Fallegt parhús á rólegum stað Þetta 160 fermetra parhús stendur í lokuðum botnlanga á besta stað í Grafarvogi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK HLJÓÐLÁTT OG ÞRIFALEGT Ryksugukerfi eru að ryðja sér til rúms hér á landi. HÚS 2 GÓÐAN DAG! Í dag er mánudagurinn 28. ágúst, 240. dagur ársins 2006. Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík 5.57 13.29 20.59 Akureyri 5.35 13.14 20.50 Heimild: Almanak Háskólans Bætir leynda galla SÖLUVERND ER NÝ TRYGGING SEM BÆTIR TJÓN SELJANDA VEGNA SKAÐA- BÓTAKRÖFU KAUPANDA EF FASTEIGN REYNIST GÖLLUÐ. Söluvernd er í boði hjá Vátryggingafélagi Íslands en góð reynsla er komin á slíka tryggingu víða erlendis. Rúnar Þór Guðbrands- son, umdæmisstjóri VÍS í Reykjavík, segir fulla þörf á henni hér á landi þar sem fyrirspurnum og málarekstri vegna gallamála fari stöðugt fjölgandi. Söluverndin gildir í fimm ár frá afhendingardegi fasteignarinnar en það er sá tími sem seljandi er ábyrgur vegna leyndra galla, samkvæmt lögum um fasteignakaup. Komi upp galli verður allt ferlið auðveldara ef trygging er fyrir hendi, auk þess sem seljandi og kaupandi losna við erfið og tímafrek samskipti. Tryggingin nær til sérbýlis, íbúða í fjölbýlishúsum, sérhæða og heilsárs sumarhúsa en hins vegar gildir hún ekki um nýbyggingar, atvinnuhúsnæði, ósamþykktar íbúðir og fasteignir sem seldar eru innan fjölskyldna. Söluvernd gerir eignir seljanlegri og eykur öryggið í fasteignaviðskiptum. FASTEIGNASÖLUR 101 Reykjavík 14 Ás 8-10 Árborgir 19 Domus 18 Draumahús 20-22, 31 Eignamiðlun Suðurn. 26 Eignastýring 24 Eignaval 17 Fasteignafélag Austurl. 16 Fyrirtækjasala Íslands 23 Húseign 30 Íslenskir aðalverktakar 33 Lundur 12 Lögmat 6 Lögmenn Suðurlandi 16 Múli 25, 29 Skipa og húsanaust 11 Stórborg 7
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.