Fréttablaðið - 28.08.2006, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 28.08.2006, Blaðsíða 25
MÁNUDAGUR 28. ágúst 2006 5 Klæðning á gömlum húsum Á HEIMASÍÐU BYKO ERU UPPTAL- IN NOKKUR ATRIÐI SEM VERT ER AÐ MUNA ÞEGAR PLÖTUKLÆÐA Á GÖMUL HÚS: Sé húsið byggt í byrjun 8. áratugarins eða fyrr má búast við að einangrunin sé 50 eða 63 mm þykk. Þá er eðlilegt að gera ráð fyrir 50 mm steinull, sem setja þarf yfir vindpappa. Komi alkalískemmd í steypunni í ljós, er gott að einangra vegginn. Með þeim hætti þornar hann fyrir og alkalívirknin stöðvast. Sé timburgrind sett á steinvegg er áríðandi að athuga hald festingarinnar í steininum. Svo er tilvalið að setja tjörupappa milli timburgrindar og steins. Loftræstar, vatns- og gufuþéttar útveggjaklæðningar eru algengastar. Við uppsetningu slíkra klæðninga er áríðandi að loftrás sé hvergi hindruð aftan við þær. Raki í veggnum safnast þannig ekki fyrir aftan við klæðning- una heldur á greiða leið út. Naglahaus falinn Á VEF HÚSASMIÐJUNNAR ER BENT Á HVERNIG GERA MEGI VIÐ SKEMMDIR Á GIFSKLÆDDUM VEGG: 30 mm gifsskrúfur eru skrúfaðar inn um 5 sentímetrum fyrir ofan og neðan naglahausinn. Við það ætti gifsið að dragast aðeins inn án þess að springa. Naglinn er því næst sleginn inn með hamri og dúkknál og naglahausnum sökkt um 15 mm undir yfirborðið. Kíttisspaða er rennt yfir svæðið til að sjá hvort naglahausar og skrúfur standi upp úr yfirborði. Skrúfa þarf skrúfurnar dýpra eða negla naglann lengra inn ef spaðinn rekst í. Sparslið því næst yfir naglann og skrúfurnar og látið þorna. Leikurinn er síðan endurtekinn. Loks er pússað yfir með fínum sandpappír. Verndum viðinn TRÉVERK ER VANDMEÐFARIÐ. Mistök í meðhöndlun viðar geta verið dýrkeypt. Þau algengustu eru að málað sé á rakan við, að gagnvarið efni sé látið standa of lengi úti við áður en viðarvörn er borin á það og loks eru oft notuð viðarvarnarefni með of litlum litarefnum. Allan nýjan við þarf að grunna og nauðsynlegt er að gegn- bleyta sár eftir sögun og nagla til þess að vatn eigi ekki greiða leið þar inn. Af gömlum við þarf að skafa alla lausa málningu og grunna aftur bera bletti. Margir vilja varðveita upprunaleika viðarins og nota því glært viðarvarnar- efni úti við eða láta grunnviðarvörnina duga. Það er í flestum tilfellum ekki gott því glær viðarvörn hleypir geislum sólar í gegnum sig og sólarljósið gerir það að verkum að viðurinn morknar og gránar. Það brýtur líka niður glæru málningarfilmuna og opnar leið fyrir vætu og raka. Ef ekkert er að gert skemmist tréverkið á nokkrum árum. Heimild www.sumarbustadir.is Nauðsynlegt er að nota litað viðarvarn- arefni og bera að minnsta kosti tvær umferðir af því á grunnvarinn við eins fljótt og kostur er. góð ráð } Áprentuð mynstur og útsaumur prýðir púða og töskur Sveinu Bjarkar Jóhannesdóttur. Sveina er textílhönnuður og hefur ýmsar aðferðir á valdi sínu. Hún þrykkir á tau með hefðbundnum hætti og prentar líka myndir á það í heimilisprentaranum. Svo saum- ar hún úr því ýmsa hluti, svo sem púða, gardínur og töskur. Sveina er brautarstjóri textíldeildar við Verkmenntaskólann á Akureyri og býr á Öngulsstöðum í Eyja- fjarðarsveit þar sem hún hefur selt muni sína til þessa. Hún kveðst samt stefna á að semja við verslunina Sirku á Akureyri um að taka af henni vörur en í Sirku fást lífsstílsvörur bæði eftir íslenska og erlenda hönnuði. Sveina kveðst hafa verið eitt ár í Bretlandi að læra útsaum eftir að hún útskrifaðist úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1997. Þar úti var bæði fengist við hefðbundnar aðferðir og aðrar frjálsari, bæði í handsaumi og vélsaumi. „Útsaum- urinn er í tísku núna og þótt hann dali kemur hann alltaf sterkur inn aftur,“ segir hún. Suma púðana skreytir hún með gömlum kross- saumsmyndum. „Það þykir ekkert voða fínt lengur að hafa kross- saumsmyndir uppi á vegg í gler- ramma en þær svínvirka í púðum,“ segir hún. Hún kveðst hafa augun opin þegar hún fer á flóamarkaði og einnig eigi hún góða að sem hafi gaukað að henni myndum. gun@frettabladid.is Útsaumurinn kemur alltaf aftur Púðarnir hennar Sveinu eru að hluta til úr efnum sem hún hefur þrykkt og prentað á sjálf og sumir eru skreyttir krosssaumsmyndum. MYND/HEIDA.IS ECC Skúlagötu 63 – Sími 511 1001 Hreinsar loftið Eyðir lykt Drepur bakteríur Bætt líðan með betra lofti Ný sending komin. Kröftug ryksöfnun. Ryðfrí stálblöð safna á sig ryki og öðrum óhreinindum í stað hefðbundins fílters. Öflugt jónastreymi. Gefur frá sér mínus hlaðnar jónir sem hjálpa til við að eyða bakteríum, ryki, mengun, veirum og frjódufti. Heldur herbergisloftinu hreinu og bætir heilsuna. Bakteríudrepandi útfjólublár lampi. Útfjólubláa ljósið drepur ýmsa sýkla og bakteríur. Áhrifamikil lyktareyðing. Tækið eyðir lykt auðveldlega svo sem reykingalykt, matarlykt og fúkalykt. Ljóshvatasía. Ljóshvati er efni sem sýnir hvötunarviðbrögð þegar ljós skín á það. Þessi sía eyðir lífrænum efnasamböndum eins og köfnunarefnisoxíði, úrgangsgasi, ýmsum bakteríum, vondri lykt o.s.frv. Þrjú skref. HI, MED og LOW stillingar og Turbo stilling fyrir mismunandi aðstæður. (Blá ljós sýna stillingu). Gaumljós. Ljós sýna hvort þrífa þarf fílterinn (stál blöðin) eða hvort tækið þarfnast annars viðhalds. Falleg og hentug hönnun. Tækið er afar vel hannað bæði með útlit og notagildi í huga. Orkusparandi hönnun. Vegna orkusparandi hönnunar notar tækið aðeins 28W á klst.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.