Fréttablaðið - 28.08.2006, Page 21
ER ÞÍN EIGN AUGLÝST HÉR? MEST LESNA FASTEIGNABLAÐ LANDSINS
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
Fasteignasalan Neteign.is hefur til sölu
fallegt 160,5 fermetra parhús í lokuðum
botnlanga í Laufrima 27 í Grafarvogi.
Staðsetning hússins er mjög góð enda fáeina
mínútna gangur í alla þjónustu svo sem
grunnskóla, leikskóla eða í Spöngina.
Forstofa hússins er flísalögð og eru rúm-
góðir fataskápar á vinstri hönd. Þaðan er
gengið inn í eikarparketlagt og mjög rúm-
gott sjónvarpshol með loftglugga. Þrjú her-
bergi eru í búðinni, tvö góð barnaherbergi
með eikarparketi og annað þeirra með
góðum skápum. Hjónaherbergið er rúmgott
með góðu skápaplássi. Á gangi er baðher-
bergi með hornbaðkari, vönduðum innrétt-
ingum og flísum á gólfi. Eikarparket er á
rúmgóðri borðstofu en þaðan er útgengt í
garð þar sem hellulögð verönd er afgirt.
Garðurinn er gróinn með fallegum blóma-
beðum og trjám.
Eldhúsinnréttingin er afar falleg og
nýtískuleg en sama gildir einnig um heimil-
istæki sem munu fylgja með í kaupunum
svo sem ísskápur og uppþvottavél.
Í eldhúsinu er einnig gott gas- og raf-
magnshelluborð. Góður borðkrókur í eld-
húsi og eru flísar á gólfum þar. Bílskúr er
rúmgóður með hita og rafmagni, þar er
einnig háaloft með góðu geymslurými. Að
auki er sérþvottahús í húsinu.
Söluverð þessarar fallegu eignar er
fjörutíu og þrjár milljónir króna.
Fallegt parhús á
rólegum stað
Þetta 160 fermetra parhús stendur í lokuðum botnlanga á besta stað í Grafarvogi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
HLJÓÐLÁTT OG
ÞRIFALEGT
Ryksugukerfi eru að ryðja
sér til rúms hér á
landi.
HÚS 2
GÓÐAN DAG!
Í dag er mánudagurinn
28. ágúst, 240. dagur
ársins 2006.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 5.57 13.29 20.59
Akureyri 5.35 13.14 20.50
Heimild: Almanak Háskólans
Bætir leynda galla
SÖLUVERND ER NÝ
TRYGGING SEM BÆTIR TJÓN
SELJANDA VEGNA SKAÐA-
BÓTAKRÖFU KAUPANDA EF
FASTEIGN REYNIST GÖLLUÐ.
Söluvernd er í boði hjá
Vátryggingafélagi Íslands
en góð reynsla er komin á
slíka tryggingu víða erlendis.
Rúnar Þór Guðbrands-
son, umdæmisstjóri VÍS í
Reykjavík, segir fulla þörf á
henni hér á landi þar sem
fyrirspurnum og málarekstri
vegna gallamála fari stöðugt fjölgandi. Söluverndin gildir í fimm
ár frá afhendingardegi fasteignarinnar en það er sá tími sem
seljandi er ábyrgur vegna leyndra galla, samkvæmt lögum um
fasteignakaup. Komi upp galli verður allt ferlið auðveldara ef
trygging er fyrir hendi, auk þess sem seljandi og kaupandi losna
við erfið og tímafrek samskipti. Tryggingin nær til sérbýlis, íbúða
í fjölbýlishúsum, sérhæða og heilsárs sumarhúsa en hins vegar
gildir hún ekki um nýbyggingar, atvinnuhúsnæði, ósamþykktar
íbúðir og fasteignir sem seldar eru innan fjölskyldna.
Söluvernd gerir eignir seljanlegri og
eykur öryggið í fasteignaviðskiptum.
FASTEIGNASÖLUR
101 Reykjavík 14
Ás 8-10
Árborgir 19
Domus 18
Draumahús 20-22, 31
Eignamiðlun Suðurn. 26
Eignastýring 24
Eignaval 17
Fasteignafélag Austurl. 16
Fyrirtækjasala Íslands 23
Húseign 30
Íslenskir aðalverktakar 33
Lundur 12
Lögmat 6
Lögmenn Suðurlandi 16
Múli 25, 29
Skipa og húsanaust 11
Stórborg 7