Fréttablaðið - 28.08.2006, Síða 6
6 28. ágúst 2006 MÁNUDAGUR
SAMKVÆMT KÖNNUN
ASÍ ER ELÍSABET ALLT
AÐ 29.000 KR.
ÓDÝRARI EN GÖMLU
TRYGGINGAFÉLÖGIN.
Vátryggjandi er Tryggingamiðstöðin hf.
Reiknaðu þitt dæmi á elisabet.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
E
LI
3
38
98
0
8/
20
06
EKKI BORGA MEIRA!
����������������������������������������� ������������
�������������
������������
������������������
����������������������������������������������������������������
������
�������
�����
��
������
�
������
���
KENTUCKY, AP Þota sem var nýlögð
af stað til Atlanta frá Blue Grass-
flugvelli í Lexington í Kentucky,
hrapaði rétt utan við flugbrautina
í gær. Einn úr áhöfn vélarinnar
komst af, mikið slasaður, en allir
aðrir sem í vélinni voru, 49 manns,
fórust.
Eldur kom upp í vélinni er hún
hrapaði, en búkur hennar virtist
heill þegar að var komið. Hún var
í eigu Comair-flugfélagsins og af
gerðinni Bombardier CJR-200 sem
mikið er notuð í ferðum milli
borga í Bandaríkjunum.
„Þeir voru nýkomnir á loft svo
að ég er viss um að vélin var full
af eldsneyti,“ sagði Gary Ginn,
dánardómstjóri Fayette-sýslu sem
Lexington tilheyrir. Hann sagðist
gera ráð fyrir að dánarorsök
flestra sem um borð voru væri að
rekja til eldhafsins.
Þetta er mannskæðasta flug-
slys sem orðið hefur í Bandaríkj-
unum í nærri sex ár.
Talsmaður lögreglu sagði að
verið væri að rannsaka hvort vélin
hefði tekið á loft frá rangri flug-
braut og flugstjórinn fyrst gert
sér grein fyrir því á síðustu stundu
að brautin væri of stutt. Laura
Brown, talsmaður bandarísku
flugöryggisstofnunarinnar FAA,
sagði að engar vísbendingar bentu
til hryðjuverks. - aa
BRUNNU INNI Dánardómstjórinn Gary Ginn
skýrir frá rannsókn slyssins í Lexington í
gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Lögregla rannsakar hvað fór úrskeiðis þegar þota í innanlandsflugi í Bandaríkjunum hrapaði í Kentucky:
Einn komst af en 49 fórust í flugslysi
CRJ-200 Vélin sem hrapaði var af þessari gerð. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VINNUMARKAÐUR Þjóðskráin
afgreiðir um eitthundrað nýjar
kennitölur fyrir erlenda starfs-
menn fyrirtækja á hverjum degi
og hefur samt ekki undan. Sex til
átta vikur tekur að afgreiða
kennitölurnar. Lögum sam-
kvæmt á að gera það á tíu virk-
um dögum.
„Nýju lögin, sem sett voru 1.
maí, halda hvorki vatni né vind-
um. Eftirlit átti að vera með því
hversu margir erlendir starfs-
menn kæmu til landsins en eng-
inn veit hversu margir útlend-
ingarnir eru,“ segir Vilhjálmur
Birgisson, formaður Verkalýðs-
félags Akraness.
Fyrirtæki eiga að skila ráðn-
ingarsamningum við erlenda
starfsmenn til Vinnumálastofn-
unar innan tíu daga frá því starfs-
maðurinn hefur störf en gera
ekki. Fyrirtækin geta ekki held-
ur staðið skil á staðgreiðslu
skatta þegar kennitölu vantar.
Gissur Pétursson, forstjóri
Vinnumálastofnunar, segir nokk-
uð til í gagnrýni verkalýðshreyf-
ingarinnar en unnið sé ötullega
að lausn málsins. Fulltrúar
Vinnumálastofnunar eigi þessa
dagana fundi með starfsmönnum
Þjóðskrárinnar og skattyfir-
valda.
„Í byrjun september eigum
við von á að geta samkeyrt skrár
og kennitölur til að finna út
hverjir fá greidd laun án þess að
vera skráðir. Höfuðmáli skiptir
að vinnuveitendur sem leggja
inn ósk um kennitölu sendi okkur
afrit af ráðningarsamningi en
þeir virðast ekki gera það,“ segir
Gissur.
Hann tekur fram að töf á
afgreiðslu kennitölu gefi vinnu-
veitendum ekki rétt á að bíða
með að senda inn ráðningar-
samning en vinnuveitendur virð-
ist hafa misskilið þetta.
Áhyggjur eru innan verka-
lýðshreyfingarinnar um að svört
atvinnustarfsemi hafi eða muni
aukast vegna ástandsins hjá hinu
opinbera. Gissur segir hægt að
leiða líkur að því að þeir skipti
hundruðum erlendu starfsmenn-
irnir sem hafi verið óskráðir hér
á landi í sumar. „Við höfum þetta
ekki fast í hendi.“
Vinnumálastofnun hefur
heimild til að grípa til dagsekta
sé ekki farið að lögum. Gissur
segir að ekki hafi verið tilefni til
að grípa til þessarar heimildar
en ekki sé útilokað að það verði
gert þegar stofnunin hafi fengið
fullvissu sína um að tilkynning-
arskyldan sé öllum skýr.
ghs@frettabladid.is
GISSUR PÉTURSSONVILHJÁLMUR BIRGIS-
SON
Hundruð erlendra
manna óskráð
Þjóðskráin hefur ekki undan að afgreiða umsóknir um kennitölur fyrir erlenda
starfsmenn. Fyrirtæki geta ekki staðið skil á skatti meðan kennitölu vantar.
Vinnuveitendur skila ekki inn ráðningarsamningi til Vinnumálastofnunar.
BROTALÖM Í TILKYNNINGASKYLDU Grunur leikur á að vinnuveitendur sinni ekki í nógu ríkum mæli þeirri skyldu sinni að tilkynna erlenda
starfsmenn til Vinnumálastofnunar innan tíu daga frá því að þeir hefja störf. Brotalömin er hugsanlega til komin vegna tafa við afgreiðslu
kennitalna.
VINNUMARKAÐUR Skúli Guðmunds-
son, skrifstofustjóri Þjóðskrár,
segir að kennitala sé ekki vanda-
málið hvað erlenda starfsmenn
varðar, vandinn sé sá að vinnu-
veitendur skili ekki inn ráðning-
arsamningum. Kennitalan fáist
og biðtíminn styttist þegar starfs-
menn Þjóðskrár verði allir komn-
ir úr sumarleyfi.
Skrifstofustjóri Þjóðskrár:
Samningar eru vanda-
málið ekki kennitala
KJÖRKASSINN
Ætlar þú í berjamó í haust?
já 46%
nei 54%
SPURNING DAGSINS Í DAG?
Ertu flughrædd/ur?
Segðu þína skoðun á vísir.is
Velti bíl á Sæbraut Tvítugur öku-
maður velti bíl sínum á tíunda tímanum
í gærmorgun á Sæbrautinni til móts við
Kalkofnsveg. Ökumann sakaði ekki en
bíllinn er mikið skemmdur. Hann var
einn í bílnum.
LÖGREGLUFRÉTTIR
BENSÍN Tölvubilun hjá bensínstöð-
um Esso olli því að auglýstur þrett-
án krónu afsláttur á eldsneyti tók
ekki gildi á tilsettum tíma í gær.
Allnokkrir viðskiptavinir olíufé-
lagsins létu í ljós gremju sína þegar
þeir voru rukkaðir um fullt verð
eftir að afsláttur átti að taka gildi.
Magnús Ásgeirsson, innkaupastjóri
eldsneytis hjá Esso, segir atvikið
óheppilegt. Hann vill beina til við-
skiptavina sem keyptu bensín á til-
boðstímabilinu að halda eftir kassa-
kvittun svo að hægt sé að
endurgreiða þeim mismuninn. - æþe
Tölvubilun hjá Esso:
Töf á auglýst-
um afslætti
MEXÍKÓ, AP Frambjóðandi stærsta
vinstriflokksins í Mexíkó, Juan
Sabines, vann kosningar til ríkis-
stjóra í Chiapas í suðurhluta lands-
ins. Hlaut hann samkvæmt opin-
berum úrsitum 6.300 fleiri atkvæði
en aðalkeppinauturinn, Jose Ant-
onio Aguilar, sem var frambjóð-
andi borgaralegu flokkanna.
Úrslitin gátu vart verið naumari
þar sem yfir ellefu hundruð þús-
und atkvæði voru greidd í kosn-
ingunum. Fulltrúar PRI, flokks
Aguilar, sögðust umsvifalaust
munu kæra úrslitin og saka and-
stæðingana um kosningasvik.
Enn er óútkljáð deila um hver
sé réttkjörinn forseti Mexíkó eftir
að frambjóðandi vinstrimanna í
nýlega afstöðnum forsetakosning-
um neitaði að játa sig sigraðan.
Áfrýjunardómstóll hyggst
úrskurða í þeirri deilu í dag. - aa
Kosningadeilurnar í Mexíkó:
Vinstrimaður
vann í Chiapas