Fréttablaðið - 28.08.2006, Síða 62

Fréttablaðið - 28.08.2006, Síða 62
 28. ágúst 2006 MÁNUDAGUR22 timamot@frettabladid.is Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Þegar andlát ber að Síðastliðin 15 ár höfum við feðgar aðstoðað við undirbúning útfara. Alhliða útfararþjónusta Símar: 567 9110, 893 8638 og 897 3020 Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Maðurinn minn, faðir, tengadfaðir og afi, Garðar Pétur Ingjaldsson fyrrverandi iðnkennari, Valagili 11 Akureyri lést föstudaginn 18. ágúst á Fjórðungssjúkrahúsi Akureyrar. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn 30. ágúst kl. 13:30. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hins látna láti Fjórðungssjúkrahús Akureyrar njóta þess. Svava Svavarsdóttir Steindór Helgason Lára Þorvaldsdótir Andri Steindórsson �������������������������������������� ���������������������������� ����� �������� ������ ����� ������������������������ ���������������������������������� ����������� ���������������������������������� �������������������� ������������������ �������������������� ����������� ������������� ������������������ ���������������������� Á þessum degi árið 1963 lýsti blökkumannaleiðtoginn Martin Luther King draumi sínum um betri veröld í sögufrægri ræðu sem hann hélt við minnisvarða Lincolns í Washington. 250.000 manns hlýddu á orð mannrétt- indafrömuðarins en orðin sem hann lét falla við þetta tækifæri eru ódauðleg og bergmála enn um allan heim. „Ég á mér draum,“ sagði séra King. „Ég á mér draum um að börnin mín fjögur muni dag einn búa í landi þar sem þau eru ekki dæmd af litarhætti sínum heldur persónuleika.“ King hét því að baráttan fyrir jafnrétti myndi halda áfram þar til réttlætið myndi sigrast á reglugerðum og kynþáttahatri hvítra manna. King vakti fyrst athygli árið 1955 þegar hann stóð fyrir 382 daga mótmælum gegn kynþáttaaðskiln- aði í strætisvögnum. Þau mótmæli, sem og önnur sem hann stóð fyrir, voru ávallt friðsamleg. King þurfti margoft að þola ýmiss konar hótanir og ofbeldi vegna skoðana sinna. Þar á meðal var gerð sprengjuárás á heimili hans. Tæpu ári eftir að King flutti ræðuna sögufrægu í Washington, eða árið 1964, hlaut hann friðarverðlaun Nóbels. Fjórum árum síðar var King skotinn til bana í borginni Memphis. ÞETTA GERÐIST 28. ÁGÚST Draumur um betri heim MERKISATBURÐIR 1818 Landsbókasafn Íslands er stofnað. Það hét upphaf- lega Íslands Stiftisbókasafn. 1910 Vígslubiskupar eru vígðir í fyrsta sinn á Íslandi. 1967 Tólf manna áhöfn Stíganda frá Ólafsfirði finnst heil á húfi eftir að hafa verið í björgunarbátum á fimmta sólarhring. 1981 Hallgrímur Marinósson lýkur við að bakka hring- veginn til styrktar Þroska- hjálp. Ferðin tók tvær vikur. 1986 Bylgjan hefur útsendingar. Hún var fyrsta útvarps- stöðin í einkaeign eftir að einkaréttur Ríkisútvarpsins var afnuminn. 1996 Skilnaður Karls prins og Díönu prinsessu gengur í gegn. JASON PRIESTLEY FÆDDIST ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1969 „Mér finnst það frábært að við séum komin á það stig að samkymhneigð sé viðurkennd. Ég held að ekkert samfélag hafi átt í jafn miklum erfiðleikum með þetta og Bandaríkin.“ Jason Priestley er ekki síður meðvitaður en Brandon sem hann lék í Beverly Hills 90210. Útvarpsstöðin Bylgjan er tvítug í dag. Undanfarna daga hefur stöðin haldið upp á afmælið með pompi og prakt. Gamlir starfsmenn stöðvarinnar hafa meðal annars hreiðrað um sig fyrir framan hljóðnemann á nýjan leik og í dag mun Páll Þor- steinsson, fyrsti dagskrár- stjóri stöðvarinnar og síðar útvarpsstjóri, slást í þeirra hóp. Páll hóf störf hjá Ríkisút- varpinu árið 1980 og vann á Rás 2 frá stofnun hennar. Árið 1986 gekk hann til liðs við Íslenska útvarpsfélagið og tók þátt í stofnun Bylgj- unnar. „Þetta var skemmtilegur tími og mikið ævintýri. Bylgjan var fyrsta einka- rekna útvarpsstöðin í 50 ár en það gleymist oft í þessu samhengi að sú fyrsta var stofnuð árið 1926 af einka- aðilum,“ segir Páll. Aðspurður segist hann alveg hafa átt von á því að Bylgjan myndi halda velli eins lengi og raun ber vitni. „Það var svo mikil uppsöfn- un búin að vera og mikil eft- irspurn sem var verið að sinna. Það hvarflaði aldrei að mér annað en að þetta yrði langlíft og farsælt,“ segir hann. „Það var langt seilst því margir höfðu van- trú á að það væri hægt að vera með útvarp í einka- rekstri. Okkur var mikið í mun að sýna fram á að við gætum gert það sem RÚV var að gera og jafnvel betur. Dagskráin var nokkuð flók- in fyrst og öllu tjaldað til, bara til að sýna að við gætum þetta líka. Þetta var mikill rekstur strax í upphafi.“ Páll hlakkar mikið til að setjast við hljóðnemann í dag. „Það eru orðin fimmtán ár síðan ég hætti í útvarpi en útvarpið kitlar mig alltaf því þetta er alveg frábær miðill og hann hefur haldið velli þótt nýir miðlar hafi komið til eins og aukið sjón- varp og netið. Útvarpið stendur alltaf fyrir sínu,“ segir Páll, sem er einn af eigendum almannatengsla- fyrirtækisins Inntaks. freyr@frettabladid.is BYLGJAN 20 ÁRA: PÁLL ÞORSTEINSSON FYRSTI DAGSKRÁRSTJÓRINN Mikið ævintýri í útvarpinu PÁLL ÞORSTEINSSON Páll tók þátt í stofnun Bylgjunnar þann 28. ágúst árið 1986. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI AFMÆLI Hjördís Hákonar- dóttir hæstaréttar- dómari er 62 ára. Magnús Þór Sig- mundsson tónlistar- maður er 58 ára. Örlygur Hnefill Jónsson lögmaður og varaþingmaður er 53 ára. Björgólfur Jóhanns- son forstjóri Iceland- ic Group er 51 árs. Hjálmar Hjálmars- son leikari er 43 ára. JARÐARFARIR 13.00 Oddný Sigbjörnsdóttir, Álfheimum 30, Reykjavík, verður jarðsungin frá Lang- holtskirkju. 13.00 Birna Fjóla Valdimars- dóttir, Rauðagerði 35, Reykjavík, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju. 13.00 Magnús Jónsson, Jökul- grunni 6, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Áskirkju. 13.30 Höskuldur Kristjánsson verður jarðsunginn frá Höfðakapellu á Akureyri. 14.00 Guðmundur Adam Ómars- son, Heiðarbraut 9, Sand- gerði, verður jarðsunginn frá safnaðarheimilinu Sandgerði. „Við erum ekki búin að dag- setja það en þetta er á stefnu- skránni hjá okkur,“ svarar Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, þegar hann er inntur eftir því hvort til standi að rífa Dvergshúsið svokallaða við Lækjargötu. Húsið hefur lengi verið þyrn- ir í augum bæjarbúa þar sem það gnæfir yfir öllum þeim gömlu timburhúsum og fal- legu nýbyggingum sem eru í miðbæ bæjarins. „Þetta er eitt mesta skipulagsslys sem orðið hefur í bænum,“ viður- kennir Lúðvík, en húsið var byggt á sjöunda áratugnum og hefur að undanförnu verið notað undir kennslu Flens- borgarskólans sem vígði í gær glænýtt húsnæði og þarf því ekki að notast lengur við húsið. Dvergshúsið er því annar stóri „steypuklumpurinn“, eins og bæjarbúar orða það, sem hverfur á vit feðra sinna því ekki er langt síðan Bæj- arútgerðin hvarf af sjónar- sviðinu þegar byrjað var að rýma fyrir nýrri byggð á Norðurbakkanum. „Þetta eru hús sem hafa þjónað sínum tilgangi,“ segir Lúð- vík en reikna má með að Hafnfirðingar eigi ekki eftir að sakna þessara húsa mikið þegar fram líða stundir. Þó að enn sé ekki búið að ákveða neinn tíma hafa þegar komið fram nokkrar hugmyndir um hvað eigi að rísa í staðinn. Ein- hverjir hafa viljað sjá gamla Dvergshúsið endurreist en öðrum þykir það prýðisgóð hugmynd að tengja notkun á nýju húsi við tónlistarskól- ann sem þarna er í grennd enda hafa margar ungar hljómsveitir haft aðgang að æfingahúsnæði í húsinu. „Þetta er mjög viðkvæmur staður og nálægt mikilli umferðargötu en við viljum helst halda samkeppni um hvað koma skal,“ segir Lúð- vík. -fgg Skipulagsslys fjarlægt í Hafnarfirði LÚÐVÍK GEIRSSON Viðurkennir að Dvergshúsið sé eitt mesta skipu- lagsslys sem hafi orðið í bænum. DVERGSHÚSIÐ Hefur lengi verið þyrnir í augum bæjarbúa þar sem það gnæfir yfir fallegum byggingum í miðbænum.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.