Fréttablaðið - 28.08.2006, Blaðsíða 68
28. ágúst 2006 MÁNUDAGUR28
Eins og flestir vita eiga Sir
Paul McCartney og Heather
Mills í harðvítugum skiln-
aði sem enn sér ekki fyrir
endann á. Af þeim sökum
rótaði Fréttablaðið í mold-
inni og gróf upp nokkra af
eftirminnilegustu skiln-
uðum tónlistarmanna hin
síðari ár.
Eminem og Kim Mathers
Rapparinn Marshall Mathers II,
eða Eminem, kvænt-
ist æskuást sinni Kim
árið 1999 um
svipað leyti og
fyrsta plata hans,
The Slim Shady
LP, fór að
vekja
athygli. Í
júní ári
síðar gekk
Eminem af
göflunum
þegar hann
sá Kim kyssa
annan mann
og lamdi hann
með skamm-
byssu. Ekki
löngu síðar
reyndi Kim
að fremja
sjálfsvíg og í framhaldinu sótti
Eminem um skilnað. Kim svaraði
með því að höfða mál gegn honum
þar sem hún krafðist 700 milljóna
króna í skaðabætur vegna þess til-
finningalega skaða sem hún varð
fyrir þegar lag Eminem, Kim,
varð heimsfrægt. Þar syngur hann
um að myrða hana á grimmilegan
hátt. Í janúar á þessu ári grófu þau
heldur betur óvænt stríðsöxina og
giftust aftur. Sá ráðahagur entist
þó ekki lengi því þau skildu
þremur mánuðum
seinna.
Britney Spears og Jason
Alexander
Britney og æskuástin henn-
ar Jason Alexander giftust
eftir nýársfyllerí í Las Vegas
árið 2004. Eftir tveggja daga
hjónaband óskaði Britney eftir
skilnaði og sagðist ekki hafa verið
með sjálfri sér þegar hún játaðist
Jason. Nokkrum mánuðum síðar
ákvað Jason að tjá sig um atvikið
og sagði Britney hafa beðið sín
eftir að þau höfðu átt nokkrar
sjóðheitar nætur saman. Sagðist
hann hafa fengið borgaðar um
35 milljónir króna
fyrir að vera góður drengur og
skrifa undir skilnaðarpappírana.
Britney er nú gift Kevin Federline
og er ófrísk að öðru barni þeirra.
Michael Jackson og Debbie Rowe
Eftir tuttugu mánaða samband sitt
við Lisu Marie Presley kvæntist
poppkóngurinn fyrrverandi
Michael Jackson hjúkrunarkon-
unni Debbie Rowe árið 1996.
Margir töldu að hjónabandið yrði
ekki langlíft og kom það því fáum
á óvart þegar þau skildu þremur
árum seinna. Jackson fékk for-
ræðið yfir börnum þeirra en í stað-
inn fékk Rowe litlar 350 milljónir
króna í sárabætur. Skrifaði hún
jafnframt undir samning þar sem
henni var strang- lega
bannað að tjá
sig um sam-
band sitt við
Jackson.
Eftir að
Jackson
var
ákærður
fyrir
kyn-
ferðis-
lega
misnotkun gegn ungum dreng
gekk Rowe á lagið og hefur nú
krafist þess að fá forræði barna
sinna á nýjan leik.
Jessica Simpson og Nick Lachey
Eftir að hafa eytt hveitibrauðs-
dögum sínum í raunveruleika-
þætti með þeim sjálfum í aðalhlut-
verki voru margir á því að
hjónabandið Lachey og Simpson
myndi fara út um þúfur. Enginn
átti þó von á því að skilnaðurinn
gengi í gegn svona fljótt. Lachey
var lengi grunaður um að hafa
haldið fram hjá Simpson,
meðal annars með klám-
myndastjörnu, og um leið
og þau hættu saman kast-
aði hann sér í fang bomb-
unnar Cavallari og MTV-
gellunnar Vanessu
Minnillo. Lachey á rétt á
helmingi eigna Simpson
eftir skilnaðinn og sam-
kvæmt nýjustu
fregnum ætlar
hann að sækj-
ast eftir þeim.
Með stríðsöxina á lofti
PAUL OG
HEATHER
Bítillinn
fyrrverandi á
í harðvítugum
skilnaði við
Heather Mills.
KIM MATHERS Fyrrum eiginkona
Eminem var ekki sátt þegar hann
samdi lag um hana.
JACKSON OG DEBBIE Mörgum þótti það
afar undarlegt þegar Michael Jackson
kvæntist Debbie Rowe.
Tom Cruise hefur verið kosinn
mesta karlremban í Hollywood
vegna afskipta sinna af ferli eig-
inkonu sinnar, Katie Holmes.
Holmes var á góðri leið með að
skapa sér stórt nafn í kvikmynda-
borginni með frammistöðu sinni
í Batman Begins þegar hún
kynntist Cruise og síðan þá hefur
lítið til hennar spurst. Holmes
eignaðist sitt fyrsta barn fyrir
skömmu og sér nú um að ala
stúlkuna Suri upp á heimili skötu-
hjúanna.
Nicole Kidman, sem var gift
Cruise í rúman áratug, hefur
sjálf viðurkennt að hafa sett sig í
annað sætið til að ala upp börnin
þeirra tvö, Connor og Isabellu.
Síðan Kidman skildi við leikar-
ann hefur henni gengið allt í hag-
inn í kvikmyndaleik sínum og er
nú meðal virtustu leikkvenna í
Hollywood.
Cruise hlaut nafnbótina á
Ernie-verðlaunahátíðinni en þar
eru útnefndar verstu fréttatil-
kynningar og yfirlýsingar árs-
ins. Cruise hlaut nafnbótina
„Karlremba ársins“ fyrir yfir-
lýsinguna: „Ég er búinn að setja
Holmes á afvikinn stað þar til
fæðingin er yfirstaðin þannig að
enginn getur náð til okkar.“
Tom Cruise er mesta karlremban
KARLREMBA Tom Cruise hefur verið kosinn
mesta karlremban í Hollywood.
FERILLINN Í PÁSU Nicole Kidman hefur viðurkennt að
hafa sett sig í annað sætið á meðan hjónaband hennar
og Cruise stóð yfir.
Angelina Jolie beið útí bíl í klukku-
tíma fyrir utan samkvæmisstað í
Hollywood vegna þess að hún vildi
ekki hitta föður sinn, Jon Voight.
Lengi hefur verið stirt milli þeirra
feðgina og hefur Jolie sakað föður
sinn um að hafa eyðilagt móður
sína með stöðugu framhjáhaldi.
Atvikið átti sér stað fyrir utan
skemmtistað þar sem Scott Caan,
meðleikari Brads Pitt í Ocean‘s 13,
hélt stórt teiti.
Þegar stjörnuparið mætti á
svæðið kom kona aðvífandi að bíl
skötuhjúanna og tilkynnti Jolie að
faðir hennar væri staddur á staðn-
um. Pitt og Jolie keyrðu nokkra
hringi í kringum húsið og að end-
ingu steig Pitt út úr bílnum og
hvarf inn í mannfjöldann. Skömmu
síðar yfirgaf Voight samkvæmið
og Jolie sást lauma sér inn um
bakdyrnar. „Ég hata ekki pabba
minn, ég vil bara ekki sjá mömmu
mína gráta enn einu sinni,“ sagði
Jolie við fjölmiðla fyrir ekki margt
löngu.
Jolie beið í bílnum
JOLIE Vildi ekki hitta pabba sinn í sam-
kvæmi sem haldið var í Hollywood og beið
þess í stað fyrir utan í bíl.
FRÉTTABLAÐIÐ / GETTY IMAGES
Skoski leikarinn Sean Connery til-
kynnti á blaðamannafundi sem
haldinn var vegna kvikmyndahá-
tíðarinnar í Edinborg að hann væri
hættur að leika í Hollywood. Yfir-
lýsingin var nokkuð harkaleg og
ásakaði Connery kvikmyndaiðnað-
inn um að hafa eyðilagt síðustu
mynd hans, The League of Extra-
ordinary Gentlemen.
Connery fékk fyrr um daginn
Bafta-verðlaun Skotlands fyrir
ævilangt starf í þágu kvikmynd-
anna og sendi kvikmyndaiðnaðin-
um í Hollywood tóninn. Sagði hann
kvikmyndaborgina vera keyrða
áfram af græðgi og skorti á fag-
mennsku. „Minn tími er liðinn og
ég dreg mig í hlé vegna slaks geng-
is á síðustu mynd minni. Örvænt-
ing mín er slík að ef ég hætti ekki
núna gæti ég drepið einhvern,“
lýsti Connery yfir. „Ef við tökum
sem dæmi leikstjóra The League,
Stephen Norrington, þá var hann
ungur og fullur eldmóðs. Ég reikn-
aði hins vegar aldrei með því að
hann yrði sendur til hinnar fallegu
borgar Prag með fulla vasa fjár án
þess að vita hvað hann væri að
gera,“ sagði Connery sem fagnar
76 ára afmæli sínu um þessar
mundir. Hann er þekktastur fyrir
túlkun sína á James Bond.
Connery er
hættur
SEAN CONNERY Segir kvikmyndaiðnaðinn í
Hollywood gráðugan og skorta fag-
mennsku. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
Í BRÚÐARKJÓLNUM
Britney Spears hefur
gift sig tvisvar
á frekar
skömm-
um
tíma.
JASON ALEXANDER Jason var aðeins kvæntur
poppprinsessunni Britney Spears í tvo daga.
SIMPSON OG LACHEY
Sætt par en því miður
entist hjónabandið
engan veginn.