Fréttablaðið - 29.09.2006, Side 40

Fréttablaðið - 29.09.2006, Side 40
SIRKUS29.09.06 Það er hálftími liðinn og hann hefur ekki enn látið sjá sig. Skyndilega hringir síminn fyrir aftan barborðið á Dillon. „Það er til þín,“ segir ljóshærð stúlka á barnum og réttir mér tólið. Á enda línunnar heyri ég sjálfan Dr. Mister öskra: „Ég var búinn að fokk- ing gleyma þessu viðtali. Hittu mig niðrá Dubliners eftir tíu.“ Komnir í bæinn „Það var geðveikt gaman á Akur- eyri. Fyrsta mega ferðalagið. Alvöru Road Trip. Fimmtán dópistar saman í rútu, grúppíur og massíf stemning,“ segir Ívar Örn og brosir út í annað. Hann stendur upp og klæðir sig úr bolnum. Segir hlæjandi: „Ég er fokk- ing klóraður eftir stelpurnar. Þær voru brjálaður. Ein þeirra rúnkaði mér bak- sviðs skömmu áður en fíknó mætti með hund og gómaði einn okkar með dóp. Við enduðum svo í brjáluðu eft- irpartýi, duttum herfilega í það og flugum svo beint í bæinn til að spila á styrktartónleikum Forma, illa góðir því.“ Sjálfur er Ívar illa góður á því. Mér hafði tekist að draga hann af Dublin- ers yfir á Hornið þar sem við sitjum í fámennum sal með bjórglas, dikta- fón og öskubakka á borði. Ég spyr Ívar hvernig honum finnist að vera orðinn kynlífstákn, elskaður af öskr- andi unglingsstelpum. „Ég dýrka það að fólk sé að fíla músíkina. Og ég veit að ég er sexý strákur. En mér finnst óþolandi þegar tussurnar rífa í mig,“ segir Ívar en bætir svo við. „Æ, það er samt fynd- ið. Ég fíla það í botn.“ Næsta spurning liggur því beint við. Er Dr. Mister á lausu? Hann hristir hausinn og glottir. „Og hver er sú heppna?“ spyr ég, „stúlka í Reykjavík?“ „Nei,“ segir Ívar og horfir í augu mér. „Það er kókið.“ Strákur úr Hafnarfirði Miðað við útlitið á Ívari virðist það vera sönn ást. Óhóflegt líferni, ofbeldi og dóp er sú ímynd sem fylg- ir rokkhundunum Dr. Mister og Mist- er handsome. Færri vita þó að bak við grímuna er Ívar Örn einfaldlega venjulegur strákur úr Hafnarfirði. „Ég er fæddur og uppalinn í Firðin- um. Var bully í skóla og lagði krakka í einelti. Átti nokkur fórnarlömb sem ég hef beðið afsökunar í dag. Svona var maður bara. Ég vissi samt alltaf að ég yrði rokkstjarna. Mamma fór einusinni til miðils með myndir af mér og systkin- um mínum. Miðillinn benti á myndina af mér og sagði: „Þessi á eftir að vinna á sviði.“ Nú hef ég staðið fyrir framan þúsundir manns í New York og Laug- ardalshöllinni og spilað úti um allt.“ Spádómurinn hefur ræst. Nýjasta plata Dr. Mister og Mister handsome selst í bílförmum. En tónlistin verður ekki til úr engu. Ívar var sextán ára gamall þegar hann flutti til New York til hálfbróður síns og kynntist raftón- listinni. Hann seldi stef í auglýsingar og græddi milljónir. „Pabbi yfirgaf okkur þegar ég var sjö, átta ára gamall. Mamma kynntist öðrum manni, stjúpa, sem hefur verið mjög góður við okkur. Ég hef samt aldrei kallað hann pabba. Svo hitti ég reyndar alvöru pabba minn fyrr í kvöld. Hann var að koma frá Flórída til að fara í aðgerð hérna heima. Hef ekki séð hann í mörg ár. Það var fokkíng brilljant. Ég var ein- lægur og sagði honum frá mínu lífi. Hann sagðist fíla músíkina en ekki lífernið.“ Dópdíler á Njálsgötunni „Hvernig varð hljómsveitin til?“ segir Ívar og fær sér stórann sopa af bjórnum. Spyr mig hvort ég eigi sígarettu og blót- ar í sand og ösku þegar ég segist hættur. Stendur upp og hleypur út í búð. Tíu mínút- um síðar kemur hann aftur inn, skælbrosandi með nýjan pakka af Marlboro Lights. „Þetta byrjaði þegar ég leigði íbúð á Njálsgötunni. Var að selja kók, spítt og...“ Ívar þagnar og heldur svo áfram. „Ég var bara að fokking dópa og díla með endalaust partý í gangi. Eitt kvöldið kveikti ég á tölvunni. Var búinn að gera Kókalóga bítið. Guðni situr við hliðina á mér og við höfðum verið að gera grín að lagi með Kim Larsen, De smukke unge mennesker. Ég rétti Guðni mækinn og segi: „Segðu eitthvað“ Og hann kemur skyndilega með setninguna: „Kóka- lóga dancing like a Maniac,“ sem hljómar eins og viðlagið hjá Kim Larsen. Þannig varð Dr. Mister til. Ívar segist hafa ætlað að hafa karakter- inn skáldaðan. Ímyndaða per- sónu eins og Sil- víu Nótt. „En á endanum dropp- aði ég því. Raun- veruleikinn er miklu skemmti- legri en eitthvað djöfulsins leikrit.“ Stoltur faðir Einkalíf Ívars hefur verið mikið í umræðunni. Hann er orðaður við flottustu píur bæj- arins. Fáir vita að fyrir fjórum mán- uðum fæddist annað barn Ívars sem heitir í höfuðið á honum: Ívar Örn Ívarsson. „Ég á tvö börn og er viðbjóðslega stoltur af þeim. Þó ég hafi ekki verið faðir number one,“ segir Ívar þegar ég spyr hverju hann sé mest stoltur af í lífinu. „Ég var líka rosalega stoltur þegar platan kom út og seldist upp,“ bætir Ívar við og fer að hlæja. „Svo var ég 17 ára gamall í New York og nældi mér í ótrúlega fallega píu sem var tíu árum eldri en ég og var með henni í hálft ár. Báðar barnsmæður mínar eru líka frábærar og ég er stoltur yfir að þær hafi viljað eignast barn með mér. Og svo er ég stoltur af sjálfum mér að lifa af músíkinni. Ég er hættur að díla og krimmast en þó ég sé dópisti get ég borgað mínar dópskuldir sjálfur.“ Vill ekki hætta En langar Ívar ekki til að breyta um líferni. Skömmu fyrir menningarnótt fór Ívar á Vog en sú vist entist ekki lengi. „Ég var þarna í sex daga,“ segir Ívar. „Það er ekkert grín að halda svona skrokki gangandi. Þegar ég kom inn svaf ég í þrjá sólarhringa. Vaknaði bara til að fá mat og libríum. Svo var ég þrjá daga á fundum en á sjötta degi lenti ég í slagsmálum og var hent út. Ég vil taka það fram að ég byrjaði ekki þó ég hafi látið fyrsta höggið fjúka.“ Ég horfi í augu Ívars og spyr hvort hann langi raunverulega til að hætta? Ívar hugsar sig lengi um en svarar hreinskilnislega að lokum: „Nei. Þetta er lífið í kringum bandið. Það fylgir þessu veisla og geðveiki. Ég fíla þetta í botn og ætla að halda þessu partýi gangandi þar til ég dey.“ Ég horfi á eftir Ívari Erni rölta út í myrkrið og vona að hann muni sigr- ast á eigin djöflum, áður en þeir yfir- buga hann. SÍMON BIRGISSON RÆDDI VIÐ ÍVAR ÖRN ANNAN HELMING HLJÓMSVEITARINNAR DR.MISTER & MISTER HANDSOME UM ROKKLÍFERNIÐ, GRÚPPÍURNAR OG FRÆGÐINA viðtalið Pabbi minn yfirgaf mig „Ég á tvö börn og er við- bjóðslega stoltur af þeim, þó ég hafi ekki verið faðir number one.“ „Raunveruleikinn er miklu skemmti- legri en eitthvað djöfulsins leikrit.“ 8 S irk us m yn d: H ei ða

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.