Fréttablaðið - 29.09.2006, Qupperneq 60
29. september 2006 FÖSTUDAGUR28
timamot@frettabladid.is
MERKISATBURÐIR
1567 Húgenottar reyna að
ræna Karli IX Frakklands-
konungi í trúarbragða-
stríðunum.
1906 Landssími Íslands tekur
til starfa við hátíðlega
athöfn.
1938 Adolf Hitler, Benito Muss-
olini, Édouard Daladier
og Neville Chamberlain
undirrita München-sam-
komulagið.
1974 Auður Eir Vilhjálmsdóttir
tekur prestvígslu, fyrst
íslenskra kvenna.
1978 Jóhannes Páll I páfi deyr
eftir aðeins 33 daga í
embætti.
1988 Bandaríkjamenn
skjóta fyrstu mönnuðu
geimferjunni á loft eftir
Challenger-slysið hálfu
þriðja ári fyrr.
HORATIO NELSON (1758-1805)
FÆDDIST Á ÞESSUM DEGI
Þegar í óefni er komið þarf
að grípa til örþrifaráða.
Nelson flotaforingi var helsta hetja
Breta í Napóleonsstríðunum.
Á þessum degi árið 1997 staðfestu breskir vísinda-
menn að þeim hefði tekist að sýna fram á tengsl
milli heilasjúkdóma í mönn-
um og kúm. Þá sögðu þeir
líklegt að 21 einstaklingur í
Bretlandi, sem hafði fengið
nýtt afbrigði af Creutzfeldt-
Jakob heilasjúkdómnum,
hefði líklega veikst eftir að
hafa borðað nautakjöt sýkt af
kúariðu.
Vísindamennirnir töldu sig
einnig geta sýnt fram á að
líkurnar á því að sýkjast
af Creutzfeldt-Jakob yltu
að einhverju leyti á erfðasamsetningu fólks. Um
38 prósent landsmanna í Bretlandi voru með
erfðasamsetningu sem gerði þá líklegri til að fá
sjúkdóminn.
Kúariða greindist fyrst í Bretlandi árið 1986 og áratug
síðar vöknuðu grunsemdir um tengsl veikinnar og
Creutzfeldt-Jakob sjúkdóms-
ins. Evrópusambandið lét
setja útflutningsbann á breskt
nautakjöt í kjölfarið. Árið
1998 leiddi opinber rannsókn
í ljós 3.253 tilfelli af kúariðu
og að átján hefðu látist úr
Creutzfeldt-Jakob eftir að hafa
borðað sýkt kjöt.
Kúariða hefur hingað til ekki
valdið nærri eins miklum
búsifjum og til dæmis gin- og
klaufaveiki, en hefur engu
að síður vakið athygli og ótta meðal manna vegna
smithættunnar og hinna hræðulegu afleiðinga sem
hún hefur í för með sér. Kúariða og Creutzfeldt-Jakob
valda heilarýrnun sem leiðir að lokum til dauða.
ÞETTA GERÐIST: 29. SEPTEMBER 1997
Tengsl kúariðu og Creutzfeldt-Jakob
Útvarpsþátturinn Víðsjá á Rás eitt
fagnar tíu ára afmæli sunnudaginn
1. október. Guðni Tómasson og Hauk-
ur Ingvarsson, umsjónarmenn þátt-
arins, taka hins vegar forskot á sæl-
una í dag með sérstakri
afmælisútgáfu.
„Við gleðjumst með okkar hætti,“
segir Guðni. „Það verða sjálfsagt ekki
miklar flugeldasýningar enda væri
það ekki í anda þáttarins, en við
ætlum að fá til okkar góða gesti og
líta yfir farinn veg. Við höfðum hugs-
að okkur að taka sérstaklega fyrir fár
í íslensku samfélagi, upphlaup og
hneyksli. Þegar maður lítur yfir svið-
ið skjóta einkennilegir hlutir reglu-
lega upp kollinum sem þjóðin virðist
fá æði fyrir. Nýjasta dæmið er auð-
vitað Magni Ásgeirsson.“ Auk þess að
fá spaka menn og konur til að rýna í
þjóðarsálina stíga nokkrir af fremstu
djassleikurum landsins á svið og
flytja íslensk lög í nýjum búningi.
Ævar Kjartansson og og Halldóra
Friðjónsdóttir ýttu Víðsjá úr vör á
sínum tíma í þeim tilgangi að fylgjast
með menningarlífinu á Íslandi. „Mér
skilst að þau hafi gert með sér sam-
komulag, eins konar stefnuskrá þátt-
arins, um að fylgjast með menningar-
lífinu vel fram á 21. öld,“ segir Guðni.
Mannabreytingar hafa orðið í áranna
rás. Undanfarin ár hefur Eiríkur Guð-
mundsson haft umsjón með þættinum
en hann tók sér hlé frá störfum til að
sinna skriftum og lagði stjórntaum-
ana í hendur Guðna og Hauks. „Við
höldum boltanum rúllandi en margt
gott fólk hleypur undir bagga,“ segir
Guðni og telur gott að nota tíu ára
afmælið til að fara í smá naflaskoðun.
„Ég held að flestir séu sammála um
að hófleg íhaldssemi virki best á Rás
eitt, þannig að það verða engar
kúvendingar. En við stöldrum ábyggi-
lega við þessi tímamót og skoðum
hvort það er eitthvað sem við viljum
breyta.“
Víðsjá er að öllu jöfnu á dagskrá
alla virka daga milli klukkan 17 og 18.
Afmælisútgáfan verður hins vegar í
lengri kantinum og hefst klukkan
16.13 en Guðni minnir á að þættina má
líka nálgast á heimasíðu Ríkisútvarps-
ins í tólf daga á eftir útsendingu.
bergsteinn@frettabladid.is
ÚTVARPSÞÁTTURINN VÍÐSJÁ: FAGNAR TÍU ÁRA AFMÆLI
Fár, upphlaup og hneyksli
GUÐNI TÓMASSON, ÆVAR KJARTANSSON OG HAUKUR INGVARSSON. Ævar ýtti þættinum úr vör ásamt Halldóru Friðjónsdóttur fyrir áratug en
Haukur og Guðni halda boltanum rúllandi í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/PÁLL
Ástkær sonur okkar, fóstursonur, bróðir,
mágur og frændi,
Kristján Þórðarson
varð bráðkvaddur á heimili sínu laugardaginn
23. september. Jarðarför auglýst síðar.
Aðalheiður Kristjánsdóttir Vigfús Árnason
Þórður Rafn Guðjónsson Jónína Björnsdóttir
Guðjón Þórðarson Jensína Helga Finnbjarnardóttir
Ingvar H. Þórðarson
Elísa Vigfúsdóttir Guðmundur Þorleifsson
Sigrún Óladóttir Hafsteinn Stefánsson
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, systir og mágkona,
Inga Björk Halldórsdóttir
Fellaskjóli, Grundarfirði,
verður jarðsungin frá Borgarneskirkju laugardaginn
30. september kl. 14.00.
Anna Dóra Markúsdóttir Jón Bjarni Þorvarðarson
Benjamín Markússon Anna María Hedman
Kristín Markúsdóttir
barnabörn
Jenný Halldórsdóttir Guðmundur Finnsson
Ása Helga Halldórsdóttir Ingvi Árnason
Sigurbjörg Halldórsdóttir
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, dóttir,
systir, mágkona og amma,
Sigrún Magnúsdóttir
Meistaravöllum 9, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Langholtskirkju þriðjudaginn
3. október kl. 13.00.
Harpa Jónsdóttir
Andrea Jónsdóttir Marinó Njálsson
Magnús Gunnlaugsson Ólöf Steinunn Einarsdóttir
Gunnlaugur Magnússon Valdís Sveinbjörnsdóttir
Helgi Grétar Magnússon Nadezda Klimenko
Svanhvít Magnúsdóttir
Ægir Magnússon Anna Bragadóttir
Katrín, Freyja og Nói Jón
Eiginmaður minn og faðir okkar
Dr. Jakob Sigurðsson
Hraunteigi 28 Reykjavík
er látinn.
Katrín Sívertsen
Hildur Jakobsdóttir Deakin
Björg Jakobsdóttir
Jón Örn Jakobsson
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Kristjana Margrét Sigurðardóttir
Granaskjóli 12, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Neskirkju mánudaginn
2. október kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hennar
er bent á Parkinsonsamtökin.
Guðmundur Pétursson Þórunn Kristjánsdóttir
Ingibjörg Pétursdóttir Einar Gylfi Jónsson
Sigurður Pétursson Hansína Hrönn Jóhannesdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengda-
faðir og afi,
Henning Þorvaldsson
húsasmíðameistari, Hamrabyggð 14,
Hafnarfirði,
andaðist á heimili sínu sunnudaginn 24. september.
Útför fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju, mánudaginn
2. október kl. 13:00. Þeim sem vilja minnast hans er vin-
samlegast bent á heimahlynningu Krabbameinsfélagsins
s: 540 1900.
J. Steinunn Alfreðsdóttir
Jóna Júlía Henningsdóttir Adólf Adólfsson
Henning Henningsson Ása Karin Hólm
Þorvaldur Jón Henningsson
Henný Jóna, Vigfús, Arnar Hólm, Lovísa Björt og
Hilmar Smári.