Fréttablaðið - 29.09.2006, Qupperneq 64
29. september 2006 FÖSTUDAGUR32
menning@frettabladid.is
! Kl. 21.00Leiksýningin Mávur verður flutt
í galleríinu Populus Tremula á
Akureyri. Verkið, sem byggir á
smásögu Halldórs Laxness, Jón í
Brauðhúsum, er samið og flutt af
Kötlu Aðalsteinsdóttur og Rögnu
Gestsdóttur. Hljóðmaður er Ingimar
Björn Davíðsson. Húsið verður opn-
að kl. 20.30, aðgangur er ókeypis.
> Ekki missa af ...
föstudagskvöldi með djasstríó-
inu Jagodinzinski sem leikur í
Þjóðleikhúskjallaranum í tilefni
af Pólskum menningardögum.
Þeir félagar eru þekktir fyrir að
djassa upp sjálfan Chopin.
laugardegi í Listasafni Reykja-
víkur. Í Hafnarhúsi fremja
listakonurnar Ingibjörg Magna-
dóttir og Kristín Eiríksdóttir
óborganlegan gjörning með
utanaðkomandi aðstoð.
sunnudegi í Norræna húsinu
þar sem rússnesku tónlistar-
mennirnir Alexander Dimitriev
og Vitaliy Dimitriev frá Péturs-
borg leika listir sínar á dragspilið
kl. 16.
Listasafn Íslands mun sýna
liðlega sjötíu listaverk
franskra expressjónista,
þar á meðal verk eftir Henri
Matisse og Auguste Renoir,
í tengslum við menningar-
hátíð sem Frakkar halda á
Íslandi.
Sýningin „Un Regard Fauve“ ferð-
ast hingað frá Musée des Beaux-
Arts listasafninu í Bordeaux í
Frakklandi og verður opnuð um
miðjan desember en hún mun
standa fram í febrúarmánuð.
Franski expressjónisminn, fau-
visminn, var afdrifaríkur tími
innan málaralistarinnar og náði
stefnan hámarki sínu í kringum
1905. Málverkið var skilgreint að
nýju en öll túlkun viðfangsefnis-
ins og róttæk litameðferð ein-
kenndist í grundvallaratriðum af
þörf málarans til að nota litinn
sem tjáningarleið fyrir tilfinning-
ar og skoðanir. Sýningin endur-
speglar markvissa söfnun Lista-
safnsins í Bordeaux á málverkum
fauvistanna, og má rekja í henni
upphaf og þróun uppreisnar litar-
ins við lok 19. aldar og í byrjun 20.
aldar.
Ólafur Kvaran, forstöðumaður
Listasafns Íslands, segist eiga
vona á góðri aðsókn á sýninguna
enda sé það ávallt viðburður þegar
verk hinna miklu meistara lista-
heimsins séu sýnd hér á landi.
,,Þetta verður í fyrsta sinn sem
fauvisminn eða franski expressj-
ónisminn verður sýndur eða kynnt-
ur sérstaklega hér á landi. Þessir
listamenn eru auðvitað vel þekktir
og vinsælir en það er dálítið annað
að sjá verk þeirra hér eða í heim-
kynnum þeirra erlendis,“ segir
hann og áréttar að mikilvægt sé að
skoða sýningu sem sýninguna í víð-
ara samhengi. ,,Þessi sýning varp-
ar ákveðnu ljósi á alþjóðleg tengsl
íslenskra listamanna við strauma
og stefnur erlendis. Kynslóð
íslenskra myndlistarmanna á
millistríðsárunum tengdist þess-
um listamönnum talsvert og því
munum við til dæmis verða með
sérsýningu á verkum Jóns Stefáns-
sonar, en hann var eini íslenski
nemandi Henri Matisse.“
Undanfarin ár hefur Listasafn
Íslands unnið markvisst að því að
byggja upp alþjóðleg tengsl við
erlend söfn og því hafa stórar sýn-
ingar á meistaraverkum ratað
hingað til lands, til dæmis sýning á
franskri 19. aldar myndlist. Fjöl-
margir aðilar koma að skipulagn-
ingu þessa listviðburðar, þar á
meðal menntamálaráðuneytið og
franska sendiráðið en sýningin
þjófstartar menningarhátíð sem
haldin verður á þeirra vegum eftir
áramót. -khh
Málverk Matisse og Renoir á Íslandi
VERK HENRIS MATISSE Frönsku expressj-
ónistarnir til sýnis á Íslandi í fyrsta sinn.
Látbragðsleikarinn Iren-
eusz Krosny brúar öll
landamæri tungumála
í list sinni, en hann er
nú staddur hér á landi í
tilefni af Pólskum menn-
ingardögum og sýnir þrjár
sýningar í Þjóðleikhús-
inu.
Krosny hefur haft hina
orðlausu list að aðalstarfi
síðan 1992, þegar hann
stofnaði eins manns leik-
hópinn One Mime Theatre.
Hann hefur getið sér gott
orð víða um Evrópu fyrir
sýningar sínar og hlotið
fjölda verðlauna.
Frumleiki Krosnys nær
bæði til viðfangsefna
hans og tækni en hann
hefur um árabil þróað
sinn persónulega stíl
sem gefur að sögn til
kynna að látbragðið sé
leikur einn, sem þó er
ekki raunin enda um
mikla nákvæmnislist að
ræða.
Krosny kitlar hláturtaug-
ar gesta Þjóðleikhússins
kl. 20 í kvöld en hinar
tvær sýningarnar verða á
sama tíma, laugardags-
og sunnudagskvöld.
Frekari upplýsingar um
dagskrá Pólsku menn-
ingardaganna má finna
á heimasíðunni, www.
polska.is.
Svartklætt séní frá Póllandi
Nú eru síðustu forvöð að skoða
verk Valgerðar Briem á sýning-
unni „AND-LIT“ í Gerðarsafni,
sem hefur vakið mikla athygli og
umtal að undanförnu. Valgerður
var einn áhrifamesti teiknikennari
þjóðarinnar og skildi eftir sig safn
merkilegra teikninga sem voru þó
sjaldan sýndar opinberlega meðan
hún var á lífi. Hefur Valgerður
verið kölluð huldukona í íslenskri
myndlist og er löngu tímabært að
hún fái þann sess í íslenskri lista-
sögu sem henni ber. Sýningunni
lýkur sunnudaginn 1. október.
Dóttir Valgerðar Briem, Val-
gerður Bergsdóttir, býður upp á
leiðsögn um verk móður sinnar
um helgina og eru listunnendur
hvattir til að láta þessa merki-
legu sýningu ekki fram hjá sér
fara. Valgerður Bergsdóttir fjallar
einnig um eigin verk, sem sýnd
eru á neðri hæð safnsins en sýning
hennar hefur yfirskriftina „Teikn
og hnit“.
Gerðarsafn er opið frá 11-17
en Valgerður Bergsdóttir verður
með leiðsögn kl. 15, laugardag og
sunnudag. -khh
Mæðgur í Gerðarsafni
VALGERÐUR BERGSDÓTTIR Sýningu á verkum mæðgnanna Valgerðar Briem og dóttur
hennar Bergsdóttur er að ljúka í Gerðarsafni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
LEIKLIST ÁN ORÐA Í ÞJÓÐLEIKHÚSINU Krosny heim-
sækir Ísland í tilefni af Pólskum menningardögum.
ÓLAFUR KVARAN, FRAMKVÆMDASTJÓRI LISTASAFNS ÍSLANDS Segir mikilvægt að
skoða sýninguna í samhengi við íslenska listasögu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Gestir Þjóðminjasafnsins geta sett
sig í spæjarastellingarnar því á
morgun verða opnaðar tvær for-
vitnilegar sýningar sem virkja
athyglisgáfurnar ekki síður en
minnið. Í Myndasalnum verður
sýningin „Ókunn sjónarhorn“ en
þar gefur að líta myndir í eigu
Þjóðminjasafnsins af óþekktum
stöðum, húsum og fólki sem gestir
eru vinsamlegast beðnir um að
bera kennsl á ef mögulegt er.
Á hverju ári berst Þjóðminja-
safni Íslands fjöldi ljósmynda til
varðveislu en mjög misjafnt er hve
vel og nákvæmlega myndirnar eru
skráðar og þótt allar myndir hafi
ákveðið gildi í sjálfu sér eykst það
og margfaldast við að þekkja það
sem myndin sýnir. Þjóðminjasafn-
ið hefur áður brugðið á það ráð
með góðum árangri að sýna óþekkt-
ar myndir og leita eftir liðsinni
safngesta við að þekkja og greina
myndefnið og hefur það spurst vel
fyrir.
Á sýningunni verða tæplega
150 ljósmyndir víða að af landinu
sem þarf að greina, flestar teknar
á tímabilinu 1930-1950. Skráningar-
blöð liggja frammi við sýninguna.
Hjálp frá gestum Þjóðminjasafns-
ins getur gefið þessum myndum
nýtt líf og gert þær að mikilsverð-
ari heimildum um fortíðina.
Samtímis verður opnuð sýning
á ljósmyndum Gunnlaugs P.
Kristinssonar á Veggnum fyrir
framan Myndasal Þjóðminjasafns-
ins. Gunnlaugur var virkur áhuga-
ljósmyndari á Akureyri upp úr
miðri 20. öld. Hann tók myndir af
samfélaginu sem hann lifði og
starfaði í, umhverfinu, viðburðun-
um og hversdagsleikanum heima
og heiman. Gunnlaugur veitti sam-
tímamönnum sínum hlutdeild í
þessum myndum með því að birta
þær í bæjarblöðum en hann var
auk þess fréttaritari sjónvarpsins
á Akureyri um fjórtán ára skeið og
birtust þá svarthvítar myndir hans
í fréttum.
Sýningin Myndir úr lífi mínu
kemur frá Minjasafninu á Akur-
eyri en þar er ljósmyndasafn
Gunnlaugs P. Kristinssonar varð-
veitt.
Sýningarnar verða opnaðar kl.
16 á morgun en þær standa til 26.
nóvember.
Að greina fortíðina
HVER ER ÞESSI SIPPANDI KONA?
Þjóðminjasafnið leitar til gesta sinna og
leitar liðsinnis við að bera kennsl á fólk,
byggingar og staðhætti.