Fréttablaðið - 29.09.2006, Qupperneq 78
29. september 2006 FÖSTUDAGUR46
HRÓSIÐ …
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5 FRÉTTIR AF FÓLKI
Auður Jónsdóttir rithöfundur
stendur í ströngu þessa dagana. Ný
skáldsaga lítur brátt dagsins ljós
og ber heitið Tryggðapantur. Þetta
er fyrsta skáldsaga Auðar síðan
Fólkið í kjallaranum kom fyrir
tveimur árum en svo vill til að hún
kemur einmitt út í danskri þýðingu
í dag. Og eins og það sé ekki nóg að
bisast í jólabókaflóðinu á Íslandi
og fylgja eftir útgáfu í Danmörku,
ætlar Auður að flytja til Barcelona
í nóvember. „Ég hugsa að ég haldi
bara áfram að vinna þar og læri
kannski smá spænsku í leiðinni,“
segir Auður, sem hefur búið í Kaup-
mannahöfn undanfarin ár. „Ég von-
ast þó til að geta komið heim fyrir
jólin, hitta fjölskylduna og fylgja
nýju bókinni eitthvað eftir.“
Stutt er síðan Auður rak smiðs-
höggið á Tryggðapant. Að sögn er
hér á ferð áleitin nútímasaga sem
tekur á brýnum og umdeildum
samfélagsmálum líðandi stundar.
Hún fjallar um ríka konu sem upp-
götvar að arfurinn er á þrotum og
grípur til óvenjulegra ráða til þess
að afla fjár. Fólkið í kjallaranum,
hlaut mikið lof þegar hún kom út
árið 2004 og fékk Auður meðal ann-
ars Íslensku bókmenntaverðlaun-
in fyrir. Sem fyrr er það Edda sem
gefur bækur Auðar út. -bs
Auður flytur til Barcelona
AUÐUR JÓNSDÓTTIR Rak smiðshöggið á nýja skáldsögu fyrir skömmu og hyggur nú
á búferlaflutninga. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Eins og Fréttablaðið hefur þegar
greint frá ætlar Ólafur Jóhann-
esson að gera kvikmynd eftir
bók Þorvalds Þorsteinssonar, Við
fótskör meistarans. Þegar hefur
verið staðfest að Eggert Þorleifs-
son muni leika aðalhlutverkið í
myndinni og á heimasíðu kvik-
myndafyrirtækis Ólafs, Poppoli, má
sjá að fleiri hafa bæst í hópinn því
Hjálmar Hjálmarsson og Jóhann
G. Jóhannsson, betur
þekktur sem Bárður úr
Stundinni okkar, eru
orðaðir við hlutverk í
myndinni auk Péturs
Jóhanns Sigfússon-
ar úr Strákunum,
en áætlað er
að myndin fari í
tökur á næsta ári.
Brúðuþátturinn Búbbarnir hefur
valdið stjórnendum Stöðvar 2
miklum vonbrigðum samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins. Upp-
haflega var gert ráð fyrir að þeir
yrðu aðaltromp stöðvarinnar á
laugardögum en það herbragð
virðist ekki hafa heppnast. Þættirnir
hafa nú verið færðir yfir á fimmtu-
dagskvöld, á undan Hemma Gunn
og leika jafnframt stórt hlutverk í
morgunsjónvarpi stöðvarinnar en
þeir þykja ekki hafa náð að fanga
eldri áhorfendahópinn að skjánum.
Samkvæmt heim-
ildum blaðsins
er ekki líklegt að
farið verði í fram-
hald af Búbb-
unum enda
virðist Stöð 2
ætla einbeita
sér að
framleiðslu
leikins efnis
í framtíðinni.
Nafnið X-Factor hefur eitthvað farið
fyrir brjóstið á fólkið í landinu.
Sagan segir að sumir hverjir haldi
að þau Páll Óskar, Ellý í Q4Y og
Einar Bárðarson ætli að bjóða
upp á köngulóarát og sporðdreka-
bardaga að hætti annars þáttar að
nafni Fear Factor. Þetta er því miður
alls kostar ekki rétt
þótt óneitanlega
hefði verið gaman
að sjá þrenning-
una hvetja lands-
menn til að éta alls
kyns viðbjóð ásamt
öðrum hættum. -fgg
LÁRÉTT
2 réttur 6 ryk 8 rangl 9 loka 11 tveir
eins 12 ofreyna 14 yndis 16 skóli 17 fát
18 for 20 slá 21 tryggur.
LÓÐRÉTT
1 kvenflík 3 rykkorn 4 greindur 5
upphrópun 7 málglaður 10 taug 13
útdeildi 15 lítill 16 flík 19 óreiða.
LAUSN
... fær Sunna Dögg Ásgeirsdótt-
ir sem sigraði í fatahönnunar-
keppni Hagkaups og selur nú
hönnun sína í versluninni.
Vasa
línan
Fer vel í veski
Útvarpsmaðurinn góð-
kunni Sigurður G. Tóm-
asson mun hefja upp
raust sína á Útvarpi
Sögu á mánudaginn
eftir nokkra fjarveru.
Endurkoma Sigurðar
er ekki síst
athygli verð
fyrir þær
sakir að
hann yfir-
gaf Sögu á
sínum
tíma í fússi
ásamt félögum sínum og meðeig-
endum Hallgrími Thorsteinssyni
og Ingva Hrafni Jónssyni þegar
þeim sinnaðist við fjórða eigand-
ann, Arnþrúði Karlsdótt-
ur, sem hefur verið ein-
valdur á Sögu síðan.
„Það er nú dálítið
síðan við náðum
sáttum í þessu máli
og mér finnst
allt í lagi að
prófa þetta
enda finnst
mér gaman í
útvarpi“
segir Sigurð-
ur sem telur
sér óhætt að
ráða sig í vinnu
hjá Arnþrúði og verður í loftinu
alla virka daga á milli klukkan 9
og 11 á morgnana.
Litlar líkur eru á
því að þeir Hall-
grímur og Ingvi
Hrafn muni
fylgja Sigurði á
fornar slóðir enda hvorgur á
förum frá 365 miðlum.
„Nei, mér hefur ekki boðist sá
faðmur eins og Bubba og ég held
ekki að mig myndi langa að hvíla í
honum,“ segir Ingvi Hrafn
aðspurður um hvort hann sé á leið-
inni í faðm Arnþrúðar á Sögu líkt
og Sigurður G. Tómasson.
Hann segist hafa vitað til þess
að Arnþrúður hafi hringt í Sigurð
og boðið honum að koma á nýjan
leik. Og fagnar því í sjálfu sér. En
sjálfur er hann ekki á leiðinni.
„Það er verið að ýta Hrafnaþingi
inn í Ísland í dag. Við Sigmundur
[Ernir Rúnarsson] erum að brjóta
heilann um það, hvor í sínu lagi,
nú um helgina hvaða flöt við finn-
um á því.“ -þþ/jbg
Sigurður G. snýr aftur á Sögu
INGVI HRAFN
JÓNSSON
Ætlar ekki að
fylgja í kjölfar
Sigurðar G.
ARNÞRÚÐUR
KARLS-
DÓTTIR OG
SIGURÐUR
G. TÓMAS-
SON Hafa
lagt gamlar
væringar til
hliðar og Sig-
urður telur sér
óhætt að ráða
sig í vinnu hjá
Arnþrúði.
LÁRÉTT: 2 ragú, 6 im, 8 ráf, 9 lás, 11
ff, 12 sliga, 14 unaðs, 16 fg, 17 fum, 18
aur, 20 rá, 21 trúr.
LÓÐRÉTT: 1 pils, 3 ar, 4 gáfaður, 5 úff,
7 málugur, 10 sin, 13 gaf, 15 smár, 16
fat, 19 rú.
AUGL†SINGASÍMI
550 5000
Sögurnar,
tölurnar,
fólki›.
FYLGIR FRÉTTABLA‹INU
ALLA MI‹VIKUDAGA
Breska dagblaðið The Guardian
hefur keypt birtingarréttinn á
örmyndasögum Hugleiks Dags-
sonar og meinfyndnar teikningar
hans munu byrja að birtast á síðum
blaðsins strax í næsta mánuði. Þar
fyrir utan hefur bókaútgefandinn
HarperCollins keypt útgáfuréttinn
á myndasögubókinni Forðist okkur
í Bandaríkjunum og sömu sögu er
að segja af Gyldendahl í Noregi.
Það er því óhætt að segja að
skammt sé stórra högga milli hjá
Hugleiki en Penguin útgáfurisinn
tryggði sér útgáfurétt bókarinnar
í Bretlandi ekki alls fyrir löngu og
hún kemur á markað þar í landi í
nóvember.
„Þessi nýjustu tíðindi hafa bara
verið að gerast á síðustu fjórum
eða fimm dögum,“ segir Egill Örn
Jóhannsson, útgefandi Hugleiks
hjá JPV. „Við þetta allt bætist svo
að tímaritið Bookseller, sem er
nokkurs konar biblía, fagtímarit
bóksala og útgefenda, segir að
Forðist okkur sé myndasaga árs-
ins.
Egill segir að sig hafi ekki órað
fyrir því að frægðin myndi banka
svona hressilega upp á hjá Hug-
leiki þegar hann tók hann upp á
sína arma fyrir nokkrum mánuð-
um. „Þetta er auðvitað með alger-
um ólíkindum ef maður hugsar út í
þetta. Það er ekki ár síðan hann
var sjálfur að hefta saman og líma
bækurnar sínar og selja á förnum
vegi. Nú er búið að selja hann til
Penguin, HarperCollins, Gyld-
endahl og Guardian. Þá er búið að
setja upp leikverk byggt á sögum
hans og hann er að semja áramóta-
skaupið og söngleik fyrir Þjóðleik-
húsið. Þetta er eiginlega algerlega
út í hött en sýnir bara hvað hann er
ofboðslega ferskur.“
Hugleikur sjálfur er alltaf jafn
rólegur og kippir sér ekki upp við
þessi tíðindi og kann engar skýr-
ingar á viðbrögðunum sem verk
hans hafa fengið. „Ég veit ekki
hvað ég á að segja annað en að það
er voðalega gleðilegt að þetta skuli
vera að gerast en ég kann enga
útskýringu á þessu.“
Hugleikur staðfestir að sögur
hans hafi vakið mikla hrifningu
hjá The Guardian og segir að á
tímabili hafi staðið til að senda
blaðamann til Íslands til þess að
taka við hann viðtal. „Þeir róuðust
svo eitthvað aðeins og þetta verð-
ur gert í gegnum síma.“
Hugleikur segist aðspurður
ekki telja sig vera að taka niður
fyrir sig með því að skrifa efni
fyrir áramótaskaup Sjónvarpsins
nú þegar heimfrægðin kveður
dyra. „Maður getur ekki sagt nei
við skaupinu enda er þetta senni-
lega eitthvað sem gerist bara einu
sinni og þetta er nú ekki beint
gúrkuárið,“ segir hann og fullyrðir
að það sé enginn skortur á
uppákomum sem hægt sé að gant-
ast með í lok ársins.
thorarinn@frettabladid.is
HUGLEIKUR DAGSSON: FORÐIST OKKUR SÖGÐ MYNDASAGA ÁRSINS
Verður fastur liður í
bresku stórblaði
HUGLEIKUR DAGSSON Myndasögubókin Avoid us kemur út í Bretlandi i nóvember. „Ég hef ekki enn séð krónu af þessu en peningarnir
eru á leiðinni,“ segir hann og tekur velgengninni með stakri ró.