Fréttablaðið - 29.09.2006, Page 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Á þriðjudaginn var stór forsíðu-frétt um að FL group ætlaði að
selja Icelandair og koma því á
markað. Þetta var ein aðalfréttin í
fjölmiðlum þann daginn. Þegar ég
las þessa frétt hugsaði ég hvað
þetta kæmi mér lítið við. Mun ég
einhverntímann hafa áhuga á að
kaupa Icelandair? Mun ég ein-
hverntímann hafa efni á því?
FRÓÐUR maður sagði mér að ef
allir hlutabréfaeigendur landsins
væru teknir saman mætti telja þá
um tuttugu prósent landsmanna.
Þar af eru sennilega ekki nema um
fimm prósent sem fylgjast með
markaðnum dag frá degi og eru
„virkir“ kaupendur.
ÞETTA segir mér að þessi tiltekna
frétt um FL group hafi vakið áhuga
um fimm til tíu prósenta lands-
manna. Ekkert athugavert við það
svosem, ef um t.d. viðskiptablað
væri að ræða, en þegar tekið er til-
lit til þess að þetta var ein aðal-
fréttin í öllum stærstu fjölmiðlum
landsins þá fer maður að hugsa.
FRÉTTIR af hlutabréfakaupum
örfárra einstaklinga tröllríða fjöl-
miðlum landsins. Þetta eru tísku-
fréttir sem segja hinum vinnandi,
skuldsetta almenningi í landinu
nákvæmlega ekki neitt. Í þrosk-
aðri samfélögum fjalla fjölmiðlar
um það sem skiptir almenning
máli. Þeir láta ekki stjórnast af
fréttatilkynningum frá kaupsýslu-
mönnum, ríkisstjórn eða stjórnar-
andstöðu. Í þroskaðri samfélögum
er það á endanum almenningur
sem ræður hvað fjallað er um í
fjölmiðlum.
HÉR erum við svo stutt á veg
komin að bara fyrir viku síðan
höfðu menn loksins vit á því að
loka sjónvarpsstöð sem búin var
sérstaklega til svo fréttamenn
gætu leikið sér í fréttamannaleik
allan sólahringinn. Þar voru hund-
leiðinlegar fréttir sagðar fyrir, að
því er virtist, fréttamennina eina
því almenningur hafnaði stöðinni
með því að horfa ekki á hana.
EN stóru fjölmiðlarnir komast
ennþá upp með að flytja fréttir
sem tala ekki við almenning. Sam-
kvæmt könnunum treysta Íslend-
ingar best fréttaflutningi Mogg-
ans og RÚV.
HVERNIG ætli standi á því? Er
það kannski vegna þess að íslensk-
ur almenningur gagnrýnir ekki
þekktar stærðir í samfélaginu?
Við viljum ekki rugga bátnum.
Þess vegna geta stórir fjölmiðlar
boðið okkur allt í krafti stærðar
sinnar. Við spörkum bara í þá
litlu.
Fréttir
�����������������������
����������
BESTI VINURINNEINN LÉTTUR, ÍSKALDUR
Í DAG ER
FÖSTUDAGUR!
Laugavegi 172 • Reykjavík • s ími 590 5700 • www.kia. is
Haustpakki
Sjálfskiptur Picanto á 20.953 kr. á mánuði, engin útborgun*
KIA Picanto er lipur, fallegur, nútímalegur og
sparneytinn smábíll með skynsamlegri rýmisnýtingu.
Sjálfskiptur Picanto býðst nú með veglegum
haustpakka sem inniheldur m.a. sumardekk á álfelgum
og vetrardekk á stálfelgum á aðeins 1.385.000 kr.
Picanto er einnig fáanlegur beinskiptur á frábæru
verði, aðeins 1.198.000 kr.
*M.v. 100% fjármögnun í bílasamningi til 84 mánaða
í erlendri mynt frá Sjóvá Fjármögnun.
KIA er sá bílaframleiðandi sem er í
mestum vexti í heiminum í dag. Það er
ekkert skrítið þegar hægt er að bjóða
þessi gæði á svona verði.
KIA umboðið á Ís landi er í e igu Heklu hf .
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
7
3
0
6
��������������
�������
����������
����
������������
����������
��� �