Tíminn - 07.01.1979, Blaðsíða 6

Tíminn - 07.01.1979, Blaðsíða 6
6 Sunnudagur 7. janúar 1979 (Jtgefandi Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson og Jón Sigurósson. Augiýsinga- stjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmdastjórn og auglýsingar Siöumdla 15. Simi 86300. — Kvöldsimar blaöamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00: 86387. Verö i lausasölu kr. 125.00. Askriftargjald kr. 2.500.00 á mánuöi. Blaöaprent Er þetta gelgjuskeið? Ekki er fráleitt að hugsa sér að dómur framtiðar- innar um stjórnmálaárin sem hafa verið að liða nú undan farið verði sá að hér hafi gengið yfir nokkurs konar gelgjuskeið. Það er óþarft að lýsa einstökum þáttum þeirrar upplausnar og þess fárs sem geisað hefur i fjölmiðlum — og nú á siðustu mánuðum i söl- um Alþingis, til þess að finna þessu stað. Dæmin eru hvarvetna. Þá er þvi heldur ekki að neita að gelgjuskeið er i eðli sinu þáttur á þroskabraut. Vera má að sumum kunni að þykja þessi nafngift bera vitni óeðlilegri bjartsýni fyrir þá sök en þó verður þvi ekki trúað fyrr en fullreynt er að ekkert gott muni hljótast af þeim pólitiska fellibyl sem gengið hefur yfir. Áður hefur verið á það bent i forystugreinum TÍMANS, að það er eins og öllum dyrum hafi verið hrundið upp á gátt. 1 sjáifu sér er þetta gott og var timabært. Með þessu eru fyrst sköpuð skilyrði til aðhalds og eftirlits þess af hálfu almennings sem er undirstaða raunverulegs lýðræðis. Það er önnur saga hvernig baráttumönnum hins nýja siðar hefur tekist sjálfum að varast öll „vitin” i áhrifastöðum, ákvörðunum og stöðuveitingum eða annarri fyrirgreiðslu — þegar þeir loks fengu að- stöðu til valda. Þegar þetta gelgjuskeið sem svo má kalla er hug- leitt fer ekki hjá þvi að menn taki eftir þvi að nú eru að ganga yfir einhver djúptækustu kynslóðaskil sem orðið hafa i seinni tima sögu þjóðarinnar. Ef til vill liggja þessi kynslóðaskil að einhverju eða jafn- vel miklu leyti að baki þvi sem hefur verið að ger- ast. Fram á siðustu ár hefur islenskum þjóðmálum verið stjórnað af kynslóð, sem óx úr grasi og mótaðist áður en hin mikla þjóðlifsbylting sem varð fyrir miðja öldina, reið yfir. Þessi kynslóð hefur átt fjölmarga ákaflega mikilhæfa og sterka forystu- menn og hún skilar stórkostlegum arfi. Sjálf tók hún við af annarri kynslóð ekki siðri, aldamótamönnun- um. Þeir sem nú eru að búast til að taka við taumun- um eru flestir af allt annarri gerð og mótaðir við gerólikar aðstæður. í stað sveitamenningar er kom- inn hagvöxtur, i stað kreppu verðbólga og velmegun i stað einangrunar, herstöð og flugsamgöngur, i stað íslendingasagna tæknifræði, i stað ferskeytlu kvik- myndir,i stað ungmennafélaga útvarp og sjónvarp, i stað byggðarlagsins húsnæðismálastjórnarlán og i stað stórfjölskyldunnar er kominn lifeyrissióður. Þessi dæmu eru ef til vill eitthvað ýkt, en ættu þó að gefa hugmynd um hversu gertæk breytingin hefur orðið. Það má vera að einhverjum þyki hin nýja „lýðveldiskynslóð” standa hinni eldri að baki um flesta hluti. Verður vist varla um slikt sakast, en fjórðungi bregður til fósturs — og hitt mun fara að ætterninu. Má þvi segja að nokkuð seint sé fyrir hina eldri að fara nú að býsnast, eða hvenær vita menn eldri kynslóð vikja af sviðinu án hneykslunar á þeim sem við taka? Sé það rétt, að nú séu að ganga yfir einhver ger- tækustu kynslóðaskil i siðari tima sögu þjóðarinnar, er þess fyllilega að vænta að enn muni eitthvað fjúka um stund áður en gelgjuskeiðinu lýkur. Hitt verður þá ekki heldur dregið i efa: hverra framtiðin er. JS Eru Mondale, Vance og Rosalynn áhrifamest? ur óliklegur til aö rasa um ráö fram. Þriöja sæti á skránni skipar eiginkona Carters, Rosalynn Carter. Carter viröist ræöa itar- lega viö hana um öli helztu vandamál, sem hann glimir viö. Sperling hefur þaö eftir mörg- um starfsmönnum Hvita húss- ins, aöhún hafi mjög mikU áhrif á forsetann. Sé þetta rétt, er Rosalynn Carter sennilega áhrifamesta kona I heimi um þessar mundir. i fjóröa sæti er Hamilton Jordan, sem lengi hefur veriö einn helzti ráöunautur Carters og fylgt honum eftir óslitiö frá þvi aö hann sótti eftir aö veröa kjörinn rikisstjóri i Georgiu. Carter treystir Jordan til hinna óliklegustu verka og viröist hafa óbilandi trú á hyggindum hans og hoUustu viö sig. Fimmta sætiö skipar Jody PoweU blaöafulltrúi Carters. Hann hefur veriö álika lengi i þjónustu Carters og Jordan og Carter viröist treysta honum ótakmarkaö sem öruggum tals- SAGAN greinir þess mörg dæmi, aö valdamenn þeir, sem hafa haft mest áhrif á gang hennar, hafi ekki veriö einir um aö móta þau afskipti, sem þeir hafa haft. Ofthafa þeir fariöeft- ir ráöum s amverkamanna sinna og nánustu vandamanna eöa a.m.k. leitaö álits þeirra og tekiö þaö meira og minna tU greina. Þessvegna gera margir fréttaskýrendur sér far um aö afla upplýsinga um hverjir séu helztu samverkamenn og ráöu- nautar þeirra manna, sem nú þykja valdamestir i heiminum. Carter forseti hefúr ekki oröiö útundan hjá fréttaskýrendum aö þessuleyti, ogmá alltaf ööru hvoru lesa i ameriskum blööum greinareftir þekkta fréttaskýr- endur, sem hafa tekiö sér á hendur aö afla sér upplýsinga um samstarfsmenn hans og viö- horf hans tU þeirra. Bersýnilegt er aö fjölmiölar sækjast eftir sliku efni. Meöal þeirra fréttaskýrenda, sem nýlega hafa reynt aö afla sér upplýsinga um samverka- menn Carters, er Godfrey Sperling, sem er fastráöinn blaöamaöur hjá The Christian Science Monitor og hefur um áraskeiö haft þaö verkefni aö fylgjast meö forsetum Banda- rUcjanna, starfsháttum þeirra og viöhorfum og afstööu al- menningstil þeirra. Hann birti nýlega i blaöi sinu skrá um þá menn, sem hann taldi liklegasta tU aö hafa áhrif á skoöanir Carters. Alyktanir þessar dró hann m.a. af þvi, hve mikil samskipti Carter heföi viö þessa mennog hveofthann virtist leita ráöa þeirra. Þar sem Sperling er talinn i hópi áreiöanlegustu fréttaskýrenda, þykir ekki úr vegi aö greina hér frá þessari rööun hans. MONDALE varaforseti skip- arfyrsta sætiöálista Sperlings. Carter viröist hafa náin samráö viö hann bæöi um utanrikismál og innanrikismál. Sé þetta rétt, mun Mondale vera sá varafor- seti Bandarikjanna, sem haft hefur einna mest áhrif eöa aö- stööu til áhrifa, þvi aö oftast hefur ekki veriö nema formlegt samband milli forsetans og varaforsetans. Annar á skránni hjá Sperling er Cyrus Vance utanr&isráö- herra. Carter viröist hafa náin samráö viö hann um öll helztu alþjóöamál og lætur þetta sam- band ekki rofna, þótt Vance sé i feröalögum erlendis. Sam- kvæmt þvi viröist Carter hafa mikiö álit á dómgreind Vance’s og treysta þvi, aö hann sé maö- Mondale. Carter aö dansa viö Rosalynn á dansskemmtun, sem þau héidu þingmönnum og konum þeirra fyrir jólin. manni sinum. Vegna starfcins þarf PoweU aö hafa mikil sam- skipti viö forsetannogveröur þá ekki komizt hjá þvi, aö þeir þurfi aö bera ráö sin saman um þaö, hvernig túlka beri marg- vislegustu málefni. öhjákvæmi- legt er, aö Powell hafi beint og óbeint mikil áhrif á þann hátt. I sjötta sæti raöar Sperling Harold Brown varnarmálaráö- herra.Carter viröist bera mikiö traust tU hans. Hann er sá ráö- herrann, sem Carter ræöir oft- ast viö, næst á eftir Vance. MÖRGUM mun koma á óvart, aö Zbigniew Brzezinski kemur ekki fyrr en I sjöunda sæti, þar sem hann er sérstakur ráöu- nautur forsetans I öryggis- og alþjóöamálum. Um skeiö voru taldar horfur á, aö hann myndi þoka Vance til hhöar, likt og Kissinger þokaöi Rogers til hliö- ar I Uö Nixons. Þótt Carter meti Brzezinski vafalaust mikils, viröist hann viö nánari kynni treysta Vance enn betur. 1 áttunda sæti er Frank Moore, sem sér un tengsUn milU forsetans og þingsins og Carter þarf þvi aö ræöa viö oft á dag. I niunda sæti er Gerald Rafshoon, sem hlaut þaö starf, þegar vin- sældir Carters fórudvinandi, aö sjá um samskipti hans viö fjöl- miöla og leiöbeina honum á þvi sviöi. Rafshoonviröisthafa orö- iö aUvel ágengt og eiga vaxandi traust Carters. 1 tiunda sæti er Stuart Eisenstat, sem er ráöu- nautur Carters varöandi þau lagafrumvörp, sem hann sendir þinginu. Þegar þessum tiu mönnum sleppir, vú-öist rööunin oröin vandasamari, og erfitt er aö gera upp á miUi einstakra manna. I hópi þeirra eru Michael Blumenthal fjármála- ráöherra og fjármálaráö- gjafarnir Charles L. Schultze, Alfred E. Kahn og Robert S. Strauss. Þá ræöir Carter oft viö Stansfield Turner, yfirmann CLA, Griffin Bell dómsmálaráö- herra, Joseph A. Califano heU- brigöis- og menntamálaráö- herra og James R. Schlesinger orkumálaráöherra. Þ.Þ. Erlent yfirlit Hverjir hafa mest áhrif á Carter?

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.