Tíminn - 06.04.1979, Síða 3
Föstudagur 6. april 1979.
3
Skuldir ríkissjóös viö Seölabankann:
Stefnt að betri stöðu um næstu
áramót
en var þegar núverandi stjóm
tók viö, segir fjármálaráðherra
HEI — „Varðandi skuldaaukningu rikissjóðs víð
Seðlabankann ber að hafa i huga, að hún stafar af
þvi ástandi, sem var tii staðar við viðskilnað
fyrrverandi fjármálaráðherra, þannig að rikis-
sjóður varð að fá verulegt lán til að komast yfir
erfiðleikana,sem þá blöstu við vegna atvinnu-
leysis og annars.
Þá varð eins og aílir vita að
gripa til ráðstafana sem voru
mjög dýrar”, svaraði
Steingrimur Hermannsson —
sem nú gegnir embætti
fjármálaráðherra i fjarveru
Tómasar Arnasonar — er
Timinn bar undir hann ummæli
Matthiasar A. Mathiesen um
stórfellda skuldaaukningu rikis-
sjóðs.
„Rikisstjórnin hefur aftur á
móti sett sér það takmark, að
gera þetta upp á 16 mánuðum.
Þ.e. frá þvi hún tók við 1. sept.
s.l. til næstu áramóta.
Markvisst er stefnt að þvi að
greiða skuldirnar á þeim tima,
þannig að skuldastaðan við
Seðlabankann verði orðin betri
um næstu áramót, en þegar
núverandi rikisstjórn tók við.
— Benda likur til að það muni
takast?
— Já afkoma rikissjóðs þrjá
fyrstu mánuði ársins bendir til
að þetta geti staðist, enda er
meiningin að halda mjög ákveð-
ið á fjármálum rikisins og
samkvæmt fjárlögum er gert
ráð fyrir að greiða þessa skuld
við Seðlabankann verulega
niður.
Mótmælum vinnubrögðum
stjórnvalda harðlega”
Frá binei Sambands lsl. bankamanna.
BANKAMENN SJÁ FRAM A 6%
LAUNASKERÐIN6U
AM — í dag lýkur að
Hótel Loftleiðum þingi
Sambands isl. banka-
manna, en það hófst i
gær. Þingið er haldið
annað hvert ár í mars
eða april og sækja það
nú 65 fulltrúar viðsvegar
að af landinu. Samband
islenskra bankamanna
er stofnað 1935 og er
þetta 31. þing þess.
Kosning stjórnar fer
fram i dag, en i gær
ræddum við við þá Sólon
Sigurðsson, fráfarandi
formann, sem gegnt hef-
ur starfi sl. 4 ár og
Gunnar Eydal,
framkvæmdastjóra
sambandsins, og
spurðum hver helstu
verkefnin væru að þessu
sinni.
Þeir Sólon og Gunnar sögðu að
mörgum málum þingsins hefði
verið unnið að i nefndum, sem
skila mundu áliti i dag, en þau
mál sem mest hefðu verið rædd I
ESE — Á stjórnarfundi
Sjómannafélags
Reykjavikur sem hald-
inn var á miðvikudag,
var samþykkt að
mótmæla harðlega þeim
aðferðum sem viðhafðar
voru við gerð reglugerð-
ar um takmarkanir á
þorskveiðum, sem
sjávarútvegsráðuneytið
gaf út 26. mars s.l.
I ályktun stjórnarfundarins
segir m.a., að engir úr röðum
launþega hér á landi nema fiski-
menn, þurfi að búa við það að
ráðherra ákveði einhliða
tekjumöguleika þeirra með þeim
hætti sem gert var með reglugerð
þessari. Þetta sé gert án nokkurs
samráðs við samtök sjómanna,
um leið og mismunum sé gerð á
milli þeirra sem veiðar stunda
með ákveðnum veiðarfærum og
milli landssvæða. Það virðist
vera, að ráðamenn séu sammála
um að beri megi fyrir borð hags-
muni reykviskra sjómanna og út-
gerðar.
1 lok ályktunarinnar segir:
Reykviskir sjómenn standa við
hoið þeirra starfsbræðra sinna
sem telja friðunaraðgerðir nauð-
synlegar til viðhalds og aukning-
ar hrygningarstofnum þorskins.
En þeim þykja kaldar slikar
kuldakveðjur frá stjórnvöldum
sem koma fram i einhliða ákvörð-
un þeirra og vara alvarlega við
slium vinnubrögðum við frekari
ákvöröun takmarkana á loðnu-
veiðum, um leiö og stjórn félags-
ins lýsir undrun sinni á þvi ósam-
ræmi sem fram kemur I yfir-
lýsingum fiskifræðinga um veiði-
þol loönunnar.
gær væru hið svonefnda opnunar-
timamál, sem ætti sér rætur i þvi
að stjórnir bankanna hefðu
einhliða og án nokkurs umtals-
verðs samráðs við starfsfólk,
ákveðið að hafa opið til kl. 16 á
daginn, frá 1. september i haust.
Auk þessa hefði greiðsla 3% að
sjálfsögðu verið mikið rædd.
Bankamenn sömdu til 27 mánaða
1977 og vegna hins langa samn-
ingatima var þeiin heitið auk 3%
1. april, 3% hækkun hinn 1. júli,
sem nú væri ljóst að ekki stæði til
að greiða heldur. Bankamenn
fengu að visu greidda 3% hækk-
unina við siðustu mánaðamót, en
munu liklega verða sviptir henni
við næstu kaupgreiðslu, svo
launaskerðing þeirra kemur til
með að nema 6%.
Um 6% að semja
Þá sögðu þeir Sólon, að rætt
hefði veriðum þann möguleika að
fara að dæmi BSRB og semja um
einhver réttindi i stað launa-
skerðingarinnar, en þá væri á það
að lita að hvað samningsrétt
bankamanna snerti, þá væri hann
þegar verulega rýmri en BSRB,
auk þess sem þeir hefðu um 6% að
semja, en ekki 3%, eins og þeir.
Þeir gagnrýndu og ýmis um-
mæli ráðherra i blöðum að
undanförnu og einkum þau orð
forsætisráðherra, að þótt BHM og
BSRB gætu samið um réttindi
fyrir launaskerðinguna, gegndi
öðru máli með bankamenn, sem
ekki hefðu samið um neitt.
Minntu þeir á að samningar
bankamanna, sem gilda til 1.
október i haust, hefðu einmitt
verið hinir fyrstu, sem gerðir
voru samkvæmt lögum um kjara-
mál starfsmanna rikisbankanna,
sem forsætisráðherra, sem þá
var bankamálaráöherra, hefði
staðið að.
Aukið atvinnulýðræði
Þingið fjallað einnig um at-
vinnulýðræði innan bankanna en
Island er nú eina landið á
Norðurlöndum að Finnlandi frá-
töldu, sem ekki fær starfsmönn-
um banka fulltrúa i stjórn þess.
Væri sérstök ástæða til að leggja
áherslu á þessi mál nú, þegar von
væri á nýjum lögum um
viðskiptabanka rikisins. Sögðu
þeir Gunnar og Sólon að kröfum
bankafólks i þessa átt t.d. um
áheyrnarfulltrúa hefði ekki verið
ineinu sinnt til þessa, en kváðust
vona að sú ríkisstjórn sem nú sit-
ur og telst hafa hagsmuni launa-
fólks i fyrirrúmi, verði til að
koma þessu máli áleiðis.
Þeir minntu að endingu á, að
þeirri uppbyggingu Sambands isl.
bankamanna, sem unnið hefði
verið að fram yfir siðasta þing
þess, væri nú lokið og starfaði það
þvi á traustri undirstöðu sem
stéttarfélag.
Viðtæk tengsl hafa skapast á
undanförnum árum milli
samtaka bankamanna á
Norðurlöndunum og eru fjórir
bankamenn þaðan gestir þingsins
að þessu sinni.
ESE — óðum styttist i hina árlegu bilasýningu Kvartmiluklúbbsins en hún verður haldin um páskana og
af þvi tilefni birtum við hér mynd af Bjarna Bjarnasyni og bil hans Camaro 427 c.c., en Bjarni var að
spyrna á kvartmilubrautinni viö Straumsvik i gær er Timamenn bar þar aðgaröi. Timamynd Tryggvi
........ ......
Morðið á
Hverfisgötu:
Yfirheyrsl-
ur yfir sam-
býliskonunni
hafa skýrt málið
mikið
GP — Miklar yfirheyrslur
hafa nú staöið yfir hjá
rannsóknarlögreglu rikisins
vegna morömálsins að
H verfisgötu 34. Þráinn
Kristjánsson sem játaö hefur
morðið á Svavari Sigurðssyni
var úrskurðaður i tveggja
mánaða gæsluvarðhald, og
auk þess var sambýliskona
Svavars sett i allt að 30 daga
gæsluvarðhald, þar sem taliö
var að hún ætti cinhvern þátt I
moröinu.
Nú hefur hún verið
yfirheyrð aftur, og hefur
framburður hennar skýrt
máliö mikið. Nokkuð ljóst
þykir, að hennar þáttur i
verknaðinum sjálfum sé eng-
inn, og hefur hún alveg stað-
fastlega neitað sakargiftum
um það að eiga einhvern þátt i
verknaðinum yfir höfuð. Þetta
kom l'ram i samtali við Þóri
Oddson vararannsóknar-
lögreglustjóra og sagði hann
að þeir hefðu tilhneigingu til
þess að telja framburð kon-
unnar réttan en þyrftu þó að
sannprófa framburð hennar
með samlestri á skýrslum og
fleira.
-
31. þing Sambands ísl. bankamanna lýkur i dag
— segir I ályktun
stjórnar
Sjómannafélags
Reykjavíkur um
takmarkanirnar á
þorskveiöunum