Tíminn - 06.04.1979, Síða 20
Sýrð eik er
sígild eign
iGQCiH
TRÉSMIDJAN MEIDUR
SÍÐUMÚLA 30 • SÍMI: 86822
Gagnkvæmt
tryggingafé/ag
sími 29800, (5 línur)
Verzlið
sérverzlun með
litasjónvörp
og hljómtæki
Föstudagur 6. apríl 1979
Verð á spærlingi
ákveðið í gær
til bræðslu
ESE — Á fundi
yfirnefndar Verðlags-
ráðs sjávarútvegsins i
gær var ákveðið að
iágmarksverð á
spærlingi til bræðslu,
frá byrjun vertíðar til
31. júli n.k. skuli vera
kr. 9.30 hvert kiló.
Verðiö er miðað við 3% fitu-
innihald og 19% fitufrítt þurr-
efni. Þá breytist verðið um 1.05
kr. til hækkunar fyrir hvert 1%
sem fituinnihald hækkar frá
viðmiðun og hlutfallslega fyrir
hvert 0.1%. Verðið er miðaö við
að seljendur skili spærlingi á
flutningstæki við hlið veiöiskips
eða í löndunartæki verksmiðju.
Ekki er heimilt að nota aðra
dælu en þurrdælu, eöa blanda
vatni eða sjó i hráefni við lönd-
un.
Verðið er uppsegjanlegt frá
og meö 7. mai og siðar með viku
fyrirvara. Þessi ákvörðun var
tekin af oddamanni og fulltrú-
um kaupenda gegn atkvæðum
fulltrúa seljanda á fundi yfir-
nefndarinnar i gær.
Fulltrúar kaupenda létu bóka
svofellda greinargerð með
atkvæði sfnu: „Með samþykki
sinu á spærlingsverði til
bræðslu, vilja fulltrúar kaup-
enda gera sitt ýtrasta til að
stuðla að veiðum á þessum
bræðslufiski. Ljóst er að
verksmiðjurnar fá aðeins
uppborinn breytilegan kostnað
við vinnsluna ásamt hálfum
viðhaldskostnaði en ekkert fyrir
fyrningum og stofnfjárvöxtum.
Slikar vinnslutekjur eru algjör-
lega óviðunandi fyrir verk-
smiðjurnar nema i mjög stuttan
tima”.
Fulltrúar seljenda létu bóka
svofellda greinargerð með
atkvæði sinu: „Við undirritaðir
fulltrúar útgerðar- og sjómanna
i yfirnefnd Verðlagsráös um
spærlingsverð viljum taka fram
eftirfarandi: Verð það sem nú
hefur verið ákveðið af odda-
manni og fulltrúum verksmiðj-
anna og sem er 7% lægra en
verð þaö sem gilti á sama tima I
fyrra,er að mati okkar allt of
lágt til að viðunandi sé fyri
afkomu útgerðar og sjómanna.”
| ARNEYKE50:
Með slasaöan mann
til Akraness
GP — í gær kom
báturinn Arney frá
Keflavik með
slasaðan mann til
Akf-aness.
Hafði dreki slegist i bak
mannsins svo að ekki þótti
annab fært en að koma mann-
inum á næsta sjúkrahús. Sam-
kvæmt upplýsingum Andrésar
Magnússonar læknis á sjúkra-
húsinu á Akranesi mun
maðurinn hafa fengiö töluvert
högg t bakið en hann var
óbrotinn. Sagði Magnús að lfk-
lega fengi maðurinn að fara af
sjúkrahúsinu mjög fljótlega.
Fulltrúafundur Landsamtaka KlUDDanna uruggur aksiur noist i Reykjavik i gær. Meðal þeirra er
fluttu ávörp voru herra Sigurbjörn Einarsson, biskup, og Steingrimur Hermannsson, dómsmáiaráð-
herra. Fiutt voru erindi um umferðarmál og kosið var i nefndir. t gærkvöldi var silfurbill Samvinnu-
trygginga afhentur I 7. sinn. 1 dag er fundarstörfum haldið áfram og lýkur fundinum i kvöld. Myndin er
tekin er Jóhannes Bergsveinsson, yfirlæknir, flutti erindi um lyfjanotkun og bifreiðaakstur. Tfmamynd
Róbert.
„Vil koma fram sjónar-
miðum Reykvflonga
HEI — „Mér þykir það
leitt að til blaðaskrifa
þurfi að koma um jafn
einfalt mál og það er að
kalla inn varamann á
Alþingi”, sagði Jón
Aðalsteinn Jónasson i
samtali við Timann i
gær.
„Það var ljóst, að Þórarinn
Þórarinsson ætlaöi til útlanda á
þriðjudagsmorgni og að Guð-
mundur G. Þórarinsson var
staddur á Kanarieyjum. Þvi var
ekki um annan varamann aö
ræöa en Sverri Bergmann, næsta
mann á lista.
Þá furðar mig á yfirlýsingu
Halldórs E. Sigurðssonar, að ekki
sé venja aö kalla inn þingmenn
fyrir svo stuttan tima, þegar á
sama tima eru kallaðir inn 5 aðrir
varamenn. Ég tek þvi ekki mark
á þessum orðum Halldórs.
Einnig undrar mig, að Halldór
E. Sigurösson, sem fyrrv. póst- og
simamálaráðherra, virðist ekki
— hvort sem það
verður skilið
eða misskilið”,
segir Jón
Aðalsteinn
Jónasson
kunna betritök á simaþjónustu en
svo,aðhannskulihalda þvifram,
að ekki hafi tekist að ná i hann.
Millilandaþjónusta simans hér er
með þvi besta sem þekkist, svo
Halldór hefði örugglega getað
fengið til sin simtal hvar sem
hann var staddur og á hvaöa tima
sem var.
Það er þvi furðulegur hlutur aö
þurfa aö leita til Flugleiða til að
koma boðum til varaþingmanns
okkar, ekki sist þar sem Halldór
vissi, að okkur var kunnugt um
heimilisfang Guðmundar á
Kanarieyjum og jafnframt, aö ég
hef telex og gat þvi náð til hans
sjálfur.
Þá virðist Halldór heldur ekki
átta sig á, að til er þjónusta sem
heitir simskeyti, og eðlilegra —
jafnvel nauðsynlegt — heföi verið
að fá svar Guömundar með
skeyti, en simtali manna á milli.
Það er leitt að þetta mál kom
upp, en hjá þvi varö ekki komist
þ.e. Visir hefur eflaust fengið
sinar upplýsingar um þær leiðir
sem Halldór notaði til þess að ná
til Guðmundar.
— „Þetta er bara einn þáttur-
inn i stjórn landsbyggðarinnar á
flokknum”, var haft eftir þér i
Visi?
— Já ég vil koma fram sjónar-
miðum okkar Reykvikinga, hvort
sem það verður skilið eða mis-
skilið. Við hér teljum að
kjördæmiö eigi alltaf að vera set-
ið þingmanni og hljótum aö eiga
þar sama rétt og landsbyggöin.
Enda á það að vera einfalt mái,
að forseti Alþingis úrskurði hvort
þingmaður er rétt kjörinn og eigi
að fara inn á Alþingi eða ekki. Um
það hefur formaður þingflokksins
ekkert að segja.
9 skákmenn úr Búnaöarbankanum:
Ætla að slá íslandsmetið
Skrifstofustjóri Alþingis:
Þarf góðan undirbún-
ingstíma
— eigi að kalla inn varamann
sem ekki hefur kjörbréf
I maraþonskák
ESE — t dag klukkan 18 setjast
nlu skákmenn úr Taflfélagi
Búnaðarbanka tslands að tafli I
húsakynnum bankans við
Austurstræti og hafa þeir I
hyggju að slá nýsett tslandsmet
I maraþonskák sem er 24
klukkustundir.
Teflt verður i aðalsal bankans
Austurstrætismegin úti viö
gluggann þannig að góð aðstaða
verður fyrir þá sem áhuga hafa
á aö fylgjast með mettilrauninni
og hinni hörðu keppni en skák-
mennirnir búast við þvi að sitja
að tafli til klukkan 19 eöa 20 á
laugardag.
Aö sögn Stefáns Þormar hjá
Búnaöarbankanum sem er einn
þeirra sem þátt tekur i þolraun-
inni veröur komið fyrir sjón-
varpi i glugga bankans til þess
að koma enn frekar til móts viö
áhorfendur, en Stefán sagöist
búast við þvi að þeir myndu
tefla um eitt þúsund hraðskákir
meðan á mettilrauninni stæöi.
Mjög mikill skákáhugi er i
Búnaðarbankanum og sagði
Stefán að á milli 15 og 20 manns
æfðu reglulega hjá taflfélagi
bankans en félagiö hefur á und-
anförnum árum unnið skák-
keppni stofnana fjórum sinnum
eða oftar en nokkurt annað
félag. Tvivegis hafa skákmenn
úr bankanum fariö til Noregs til
keppni og reglulega hafa verið
farnar feröir til keppni úti á
landi, þannig að óhætt er að
segja að taflfélag bankans hefur
haldið uppi öflugu félagsstarfi á
undanförnum árum.
Þeir sem taka þátt I mettil-
rauninni eru Jón Kristinsson
fyrrverandi Islandsmeistari i
skák, Bragi Kristjánsson, Leif-
ur Jósteinsson, Stefán Þormar,
Guðjón Jóhannsson, Kristinn
Bjarnason, Björn Sigurðsson,
Karl Jensson og Arni Þ.
Kristjánsson.
HEI — ,,Það er farið eft-
ir kosningalögum.
Meginreglan er sú, að
eftir kosningar eru gefin
út kjörbréf til jafn
margra varamanna og
aðalmenn eru af hverj-
um lista.
Varamenn taka siðan sæti eftir
röð, þannig að ekki er hægt að
ganga fram hjá neinum, nema að
fyrir liggi sönnun um hans for-
föll”, svaraði Friöjón Sigurðsson,
skrifstofustjóri Alþingis spurn-
ingu Timans, um það eftir hverju
væri farið um aö kalla ínn vara-
menn til þings.
— Þarf sönnun að koma frá
varamanni sjálfum?
— Til þess að hindra að gengið
séfram hjá mönnum, er aöalregl-
an sú, að yfirlýsingar er krafist —
ekki frá flokksstjóninni — heldur
frá manninum sjálfum, þar sem
hann tilkynnir sin forföll. Væri
hins vegar um alvarleg veikindi
að ræða, getur læknisvottorö
komið i staðinn.
— Hefur þingflokkur einhver
úrslitaáhrif i svona máli?
— Það gengur þannig fyrir sig,
að fyrst verður að leggja öll gögn
fyrir skrifstofu Alþingis. Sé farið
lengra en til fyrsta varamanns,
sem þá hefur ekkert kjörbréf,
verður að senda gögnin til
yfirkjörstjórnar og hún að meta
þau gild áður en hún gefur út
kjörbréf. Það fer siðan til
kjörbréfanefndar og að lokum til
úrskurðar Alþingis.
Þess vegna ef um það er aö
ræða að ganga fram hjá fyrsta
varamanni þá verður fyrirfram
að ætla til þess góðan undirbún-
instima, eigi það aö komast i
framkvæmd. En i þvi tilfelli, sem
ég geri ráð fyrir aö veriö sé aö
leita upplýsinga út af, þá komu
aldrei fullnægjandi upplýsingar
um forföll fyrsta varamanns
Framsóknarflokksins i Reykja-
vik.