Fréttablaðið - 21.11.2006, Page 10
10 21. nóvember 2006 ÞRIÐJUDAGUR
SKÓLAMÁL Fimm manna starfshóp-
ur á vegum menntamálaráðuneyt-
isins undirbýr nú sameiningu
Kennaraháskóla Íslands og
Háskóla Íslands.
Í nefndinni sitja tveir fulltrúar
hvors skóla og einn úr ráðuneytinu.
Steingrímur Sigurgeirsson, aðstoð-
armaður menntamálaráðherra,
segir fyrirhugaða sameiningu skýr-
ast á næstu dögum en gat að öðru
leyti ekki tjáð sig um ferlið.
Nýlega var haldinn kynningar-
fundur fyrir starfsfólk og fulltrúa
nemenda við KHÍ og segir Ólafur
Proppé, rektor skólans, að hugur
fólks til sameiningarinnar sé
almennt jákvæður og flestir til-
búnir til að vinna áfram að sam-
einingarferlinu.
„Nýlega kom út skýrsla þar
sem farið er yfir kortlagningu fyr-
irhugaðrar sameiningar en þar
kom fram að athuga þurfi sérstak-
lega stjórnskipan, fjármál og stoð-
þjónustu ef af sameiningu verður.
Það er ekki einfalt að sameina
tvær svo stórar stofnanir sem
þessir skólar eru en við höldum
ferlinu ótrauðir áfram.“
Ólafur segir fyrirhugaða dag-
setningu sameiningarinnar 1. júlí
2008 en hún sé þó háð ákvörðun
þingsins.
Ólafur segir að einhvers konar
endurskipulagning verði á deild-
um innan HÍ við sameininguna og
hugsanlegt að stofnaður verði
Heilbrigðisvísindaskóli en sú
hugmynd sé enn á teikniborðinu.
- hs
Athuga þarf stjórnskipan, fjármál og stoðþjónustu við sameiningu HÍ og KHÍ:
Deildir HÍ endurskipulagðar
Ólafur ProPPé Hugur starfsfólks og
nemenda KHÍ til sameiningarinnar er
almennt jákvæður.
StJÓRnMÁL Ákvörðun Valdimars L. Friðrikssonar,
sem settist á þing fyrir Samfylkinguna á síðasta ári
en sagði sig úr flokknum á sunnudag, hefur vakið
athygli en er fjarri því að vera einsdæmi. Á síðustu
tólf árum hafa sex þingmenn sagt sig úr þingflokk-
um og setið áfram á Alþingi utan flokka.
Kristján Pálsson sagði sig úr Sjálfstæðisflokkn-
um árið 2003 og sat utan flokka á þingi til loka
kjörtímabilsins.
Kristinn H. Gunnarsson starfaði stuttlega utan
þingflokka veturinn 1998. Hann sagði sig úr
þingflokki Alþýðubandalagsins um miðjan
október og gekk í Framsóknarflokkinn í desem-
ber.
Kristín Ástgeirsdóttir og Kristín Halldórsdóttir
störfuðu báðar utan flokka um skeið, kjörtímabilið
1995-1999. Þær voru áður í Kvennalistanum.
Jóhanna Sigurðardóttir sagði sig úr Alþýðu-
flokknum og starfaði utan flokka frá september
1994 til loka kjörtímabilsins vorið 1995.
Þegar Jóhanna tók ákvörðun sína voru, samkvæmt
upplýsingum frá Alþingi, tuttugu ár liðin síðan
þingmaður hafði síðast starfað utan flokka. Mörg
eldri dæmi er að finna um þetta í þingsögunni. - bþs
Mörg fordæmi eru þess að þingmenn segi sig úr þingflokkum en starfi áfram:
Sex utan flokka á tólf árum
Valdimar l. friðriksson kristján Pálsson
kristinn H. Gunnarsson
kristín HalldÓrsdÓttir
jÓHanna siGurðardÓttirkristín ástGeirsdÓttir