Fréttablaðið - 21.11.2006, Síða 25
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
fasteignir heimili heilsa hús börn nám ferðir matur bílar tíska atvinna brúðkaup tilboð o.fl.
Heimild: Almanak Háskólans
góðan dag!
í dag er þriðjudagurinn
21. nóvember, 325. dagur
ársins 2006.
sólarupprás hádegi sólarlag
reykjavík 10.15 13.14 16.12
akureyri 10.17 12.58 15.39
veturinn er genginn í garð og
það er fátt betra en leika sér
úti í snjónum eða geysast um
á skíðum eða sleða í hressandi
vetrarloftinu. Opið er í Hlíðarfjalli
á Akureyri og þess vegna tilvalið
fyrir gesti og heimamenna að
skella sér í fjallið með fjölskyld-
unni. www.hlidarfjall.is
ávextir eru stórkostlegir á veturn-
ar. Þeir eru stútfullir af vítamínum
sem við þurfum í skammdeginu
og gott að narta í þá milli mála í
staðinn fyrir sætindi þegar vetr-
arþreytan sækir að. Ávaxtabíllinn
dreifir ávöxtum til heimila og fyr-
irtækja sem er tilvalið í staðinn
fyrir sætabrauðið í kaffitímanum.
www.avaxtabillinn.is
streita og álag hrjáir marga nú
rétt fyrir próf og jól. Arctic Root
eða burnirót er náttúruleg lækn-
ingajurt sem eykur einbeitingu og
úthald á náttúrulegan hátt. Fæst í
heilsuhúsinu www.heilsa.is
Það sem af er ári hafa átta
greinst með HIV-smit hér á landi,
fimm karlar og þrjár konur. Einn
hefur látist á árinu af völdum
alnæmis.
allt hitt
heilsa
Ríkarður S. Ríkarðsson forstöðumaður á upplýsinga-
tæknisviði Landsbankans stundar líkamsrækt og
sund til að halda sér í formi.
„Þetta er lítið í samanburði við það sem áður var,“ segir
Ríkarður sem er enginn nýgræðingur í íþróttum og á glæst-
an sundferil að baki.
Ríkarður fór að æfa sund 10 til 11 ára með sundfélagi
Helsingborgar, þar sem fjölskylda hans bjó í nokkur ár.
„Foreldrar mínir voru hvattir til að senda mig í sundið þar
sem ég þótti sýna góða takta og svo heppilega vildi til að ég
lenti hjá þjálfara, sem æfði síðar sænska landsliðið.“
Ríkarði voru kennd sundtökin á þessum tíma og var orð-
inn bráðefnilegur sundmaður þegar fjölskyldan flutti til
Íslands árið 1992. „Ég tók mér að vísu ársfrí frá sundinu
þegar hér var komið við sögu til að æfa skíði og fótbolta,“
segir hann en þess utan hafði Ríkarður einnig reynt fyrir
sér í tennis og skák.
„Sumarið 1993 vaknaði áhuginn á ný, ég fór að einbeita
mér aftur að sundinu og lagði aðrar íþróttagreinar til hlið-
ar,“ heldur Ríkarður áfram. „Ég æfði með Ægi og var aftur
svo lánsamur að lenda hjá afbragðsgóðum þjálfara, sem
átti eftir að þjálfa landslið Finna.“ Á ferlinum setti Ríkarð-
ur mörg Íslandsmet, varð methafi og tvöfaldur meistari á
Smáþjóðaleikunum árið 1997 og tók þátt í Ólympíuleikun-
um árið 2000. Er þá fátt upptalið.
„Nú hef ég hætt sundi á afreksstigi og tek þátt í einstaka
mótum,“ segir Ríkarður. „Varð reyndar Norðurlandameist-
ari á garpamótinu í október, þannig að ég er nú ekki dauður
úr öllum æðum,“ segir hann og hlær.
roald@frettabladid.is
Glæstur
sundferill
Ríkarður hefur starfað töluvert fyrir Sundsamband Íslands og vill hvetja sem flesta til að kynna sér þessa
íþrótt. FRéttAblAðIð/RóSA JóHAnnSdóttIR
bAggAlútuR gEFuR út dISk tIl StyRktAR unICEF
geisladiskur baggalúts, með laginu brostu, er kominn út og fæst
í verslunum Skífunnar, bt og Hagkaupa. Þeir félagar í baggalúti
sömdu lagið sérstaklega fyrir unICEF í tilefni af degi rauða nefsins
sem haldinn verður í fyrsta skipti hér á landi föstudaginn 1. desem-
ber.
geisladiskurinn kostar 1.000 krónur og rennur allur ágóði sölunnar
til verkefna barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna sem miða að því að
hjálpa bágstöddum börnum um allan heim.
Ýmsir þekktir einstaklingar ljáðu laginu rödd sína. Þar má heyra í
fegurðardrottningunni unni birnu, rokkurunum Magna og bubba,
stjórnmálamönnunum Siv Friðleifs og Steingrími J. Sigfússyni,
íþróttaálfinum Magnúsi Scheving, útvarpsstjóranum Páli Magnús-
syni, viðskiptamógúlnum Hannesi Smárasyni og biskupi Íslands,
karli Sigurbjörnssyni.
brostu í dag
Villimey á
Vestfjörðum
Aðalbjörg Þorsteinsdóttir býr til
smyrsl, salva og áburð úr jurtum
sem hún tínir í náttúrunni
heilsa 4
Heilsubætandi
límband
Á síðustu árum hefur svokall-
að kinesio taping rutt sér til
rúms í heimi sjúkraþjálfunar
heilsa 2