Fréttablaðið - 21.11.2006, Side 42
21. nóvember 2006 ÞRIÐJUDAGUR26
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og
útfarir í smáletursdálkinn hér að ofan má senda á
netfangið timamot@frettabladid.is.
merkisatburðir
1878 Edison kynnir nýjustu
uppfinningu sína,
grammófóninn.
1916 Austurríski keisarinn Franz
Josef andast.
1975 Gunnar Gunnarsson skáld
andast 86 ára að aldri.
1987 Stórstjörnurnar Bruce
Willis og Demi Moore
ganga í það heilaga.
1990 Söngvarinn Mick Jagger
kvænist sýningarstúlkunni
Jerry Hall.
1993 Endurvarp hófst frá nokkr-
um erlendum sjónvarps-
stöðvum á Íslandi undir
heitinu Fjölvarp.
Björk Guðmundsdóttir
tónlistarkona er 41 árs í dag
Ég ákvað einhvern tíma að í stað þess að gera
marga litla hluti myndi ég frekar gera eitthvað
eitt stórt og fylgja því eftir. Alveg frá trýninu á
skepnunni og út í hala. Eða allavega reyna það.
Legsteinar
Kynningarafsláttur af
völdum tegundum
Fjölbreytt úrval
Hagstæð verð
Stuttur afgreiðslufrestur
Hárgreiðslustofan Loft Salon, fyrsta
flaggskip fyrirtækisins Redken í Evr-
ópu, opnaði þann 14. október síðastlið-
inn í Kaupmannahöfn við Pilestræde
12c í Gallery K, spölkorn frá Strikinu.
Hefur stofan fengið mjög góðar við-
tökur í Danmörku og hafa fjölmiðlar á
borð við Berlingske Tidene, Metro og
Nyhedsavisen gefið henni fína dóma.
„Þessi stofa er á fallegum stað og í
fallegri byggingu. Hérna er byggt á
milli tveggja húsa og þetta er mjög
„modern“ og mikill arkitektúr,“ segir
Elsa Haraldsdóttir, kennd við Salon
VEH, sem er einn af þremur eigendum
stofunnar. Hinir tveir eru Hreiðar Árni
Magnússon, annar eigenda Salon
Reykjavík í Glæsibæ, og Jóhann Tómas
Sigurðsson.
Auk þess að opna nýja hárgreiðslu-
stofu í Kaupmannahöfn fagnaði Elsa
einnig 40 ára afmæli Salon VEH og
Hárs ehf. í mikilli veislu sem var hald-
in í Húsi verslunarinnar síðastliðinn
laugardag. Þar var hártíska þeirra
fjögurra áratuga sem starfsemi fyrir-
tækjanna spannar sýnd og klæddust
fyrirsætur fatnaði frá Egggerti feld-
skera.
Á hárgreiðslustofunni í Kaupmanna-
höfn má segja að verið sé að sameina
andrúmsloft boutique-hótels, vín- og
kaffibars og hárgreiðslustofu. Hug-
myndin er að þetta sé staður þar sem
fólk getur hist og látið sér líða vel í
afslöppuðu andrúmslofti og notið veit-
inga meðan það fær alla þjónustu sem
tengist hári þess.
„Þetta er í raun fyrsta stofan með
þessum blæ hér í Kaupmannahöfn,“
segir Elsa, sem tekur fram að sams
konar hárgreiðslustofur séu reknar í
New York. „Við höfum sameinað við-
skiptaferli hérna, bæði fyrir starfs-
fólkið, hvernig það getur unnið sig
upp og orðið meðeigendur, og rekstr-
arkerfið sem er af bandarískri fyrir-
mynd. Það er háalvarlegt mál sem
býr að baki þessu rekstrarlega, sem
er eitthvað sem hárgreiðslufólk hefur
í gegnum tíðina oft látið sitja á hak-
anum. Ég var sjálf kannski í því ferli
í gamla daga þegar ég vildi vinna við
þetta af því að ég hafði gaman af hár-
greiðslu. Í þessu tilfelli byggjum við
þetta fyrst og fremst út frá rekstrin-
um og því að umgjörðin og vellíðan
viðskiptavina hafi forgang,“ segir
hún.
Elsa hefur átt gott samstarf við
Redken í gegnum tíðina, enda verið
umboðsaðili fyrir vörur fyrirtækisins
undanfarin tuttugu ár. „Ég þekki Red-
ken-fyrirtækið og þá aðila sem eru í
Kaupmannahöfn. Það kom aldrei til
greina annað en að vinna með Redken,“
segir hún. Þrátt fyrir alla þá þjónustu
sem er í boði hjá Loft Salon segir Elsa
að verðið sé viðráðanlegt. „Þetta á ekki
að vera dýr stofa en heldur ekki ódýr,“
segir hún. Er verðið frá 550 dönskum
krónum, eða 6600 krónum, og fer það
síðan stígandi eftir því hver sér um
klippinguna.
freyr@frettabladid.is
ElSA HArAlDSDóttir: Fagnar 40 ára aFmæli og opnun
Góð umgjörð og vellíðan
ElsA hArAldsdóttir Elsa í 40 ára afmælisteiti Salon VEH og Hárs ehf. sem var haldið um síðustu helgi. FréttABlAðið/DAnÍEl
Á þessum degi árið 1783 urðu Frakkarnir Jean
François Pilâtre de rozier eðlisfræðingur og
François laurent markgreifi fyrstu mennirnir til að
fljúga í loftbelg. Flugferðin varði í um hálftíma en
þeir félagar flugu sem lá leið tæpa níu kílómetra
leið yfir París.
lofbelgurinn var úr smiðju Montgolfier-bræðranna
sem voru bæði pappírsframleiðendur og upp-
finningamenn. Þeir hönnuðu fyrsta loftbelginn og
sýndu hann í júní 1783 og prófuðu sig áfram með
því að senda ýmiss konar dýr upp í háaloft, þar á
meðal hana, önd og kind. Þess má geta að dýrin
komust klakklaust frá tilraunafluginu.
Pilatre de rozier hafði í október prófað að fljúga í
loftbelgnum en aðeins stutta leið og var belgur-
inn tjóðraður við jörðina. Fyrsta loftbelgsferðin í
ótjóðruðum loftbelg var því farin síðla í nóvember
en mikill fjöldi fólks fylgdist með á þessum ævin-
týralegu tímamótum
þEttA gErðist: 21. nóVEMBEr 1783
Tveir Frakkar og loftbelgur
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, sonur og afi,
Sigurður Már Gestsson
Kirkjustétt 7a, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag, þriðjudag
21. nóv. kl. 13.00.
Anna Karelsdóttir
Gestur Már Sigurðsson Harpa Þorleifsdóttir
Guðný Sigurðardóttir
Maríanna Sigurðardóttir Tómas Bentsson
Rut Ingimarsdóttir
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi, sonur, tengdasonur,
bróðir, mágur og frændi,
Kjartan Árnason
Kópavogsbraut 99,
lést mánudaginn 13. nóvember. Útför hans fer fram frá
Digraneskirkju miðvikudaginn 22. nóvember kl. 13.00.
Edda Ólafsdóttir
Marta Kjartansdóttir
María Erla Kjartansdóttir
Ólafur Sverrir Kjartansson Soffía Adolfsdóttir
Saga Guðrún Ólafsdóttir
Árni Björgvinsson Sigrún Stefánsdóttir
Drífa Garðarsdóttir
Helga Aðalbjörg Árnadóttir Finnur Frímann
Árni Þór Finnsson
Guðrún Finnsdóttir
Kristjana Finnsdóttir
Innilegustu þakkir til þeirra sem sýndu
okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát
og útför mannsins míns, föður, fósturföður,
tengdaföður og afa,
Hjörleifs Ingólfssonar
frá Vöglum í Vatnsdal, sjúkraflutninga-
og slökkviliðsmanns, Tjarnargötu 25a,
Keflavík.
Sérstakar þakkir eru til læknanna Gests Þorgeirssonar,
Kristins Guðmundssonar, Sigurðar Böðvarssonar,
Sigurðar Þórs Sigurðssonar og Guðjóns Karlssonar
og samstarfsfólks þeirra fyrir einstaka umönnun.
Einnig færum við einlægar þakkir til Heimahjúkrunar í
Reykjanesbæ fyrir ómetanlegan stuðning og hlýhug.
Sigrún Bryndís Gunnarsdóttir
Halldór Hagalín Hjörleifsson
Arna Björk Hjörleifsdóttir Högni Sturluson
Ingvi Þór Hjörleifsson Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir
Árni Jakob Hjörleifsson Geirþrúður Ósk Geirsdóttir
Gunnar Brynjólfur Sigurðsson Ólöf Haraldsdóttir
Sara Björg Pétursdóttir
Ingunn Guðmundsdóttir Larsson
og barnabörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Anna Finnbogadóttir
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn
22. nóvember kl. 13.00.
Finnbogi Á. Guðmarsson og Metta Kwanthong
Erna Guðmarsdóttir og Steinþór Sigurðsson
Örn Guðmarsson og Jóhanna Vilhjálmsdóttir
Elín Ágústsdóttir og José Ramos
börn, barnabörn og barnabarnabarn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
Sigurbjörn Þorleifsson
Maríubaugi 123, 113 Reykjavík,
lést föstudaginn 17. nóvember.
Hulda Fríða Ingadóttir
Þorleifur Sigurbjörnsson
Magna Huld Sigurbjörnsdóttir
Ingi Guðmundsson
Jón Ó. Guðmundsson
tengdabörn og barnabörn.