Fréttablaðið - 21.11.2006, Síða 58
42 21. nóvember 2006 ÞRIÐJUDAGUR
hAnDboltI HK komst seint og um
síðir norður til Akureyrar þar
sem liðið mætti Akureyrarliðinu
og biðin á flugvellinum skilaði
sínu því HK sigraði í leiknum á
sunnudag, 22-20.
„Þetta eru frábær úrslit enda
mjög erfitt að koma hingað
norður í þá stemningu sem er
hérna,“ sagði Gunnar Magnússon,
þjálfari HK, eftir leikinn. „Fyrst
og fremst var vörnin frábær með
Sigurgeir Árna fremstan í flokki
og Petja fyrir aftan hana var líka
magnaður.“
Sævar Árnason, þjálfari
Akureyrar, var að vonum ekki
jafn sáttur. „Við vorum engan
veginn nógu góðir, það voru alltof
margir menn sem spiluðu undir
getu til að við ættum möguleika.
Við fengum enga markvörslu í
gang og þegar svona margir
leikmenn spila illa vinnur maður
ekki svona hörkuleiki, svo einfalt
er það,“ sagði Sævar.
-hþh
HK sigraði lið Akureyrar:
Verðskuldað
hjá HK
migliusStýrði sínu liði til sigurs á
Akureyri.
FótboltI Það verður væntanlega
blóðug barátta á Celtic Park í kvöld
þegar skosku meistararnir í Celtic
taka á móti Manchester United.
Celtic þarf sárlega á sigri að halda
en United nægir jafntefli til að
komast áfram. Argentínumaður-
inn Gabriel Heinze, varnarmaður
Man. Utd, er nokkuð bjartsýnn.
„Ég er bjartsýnn á að við kom-
umst áfram. Ef við stýrum hraðan-
um í leiknum þá munum við vinna.
Engin spurning. Við munum ekki
spila upp á jafntefli heldur ætlum
við okkur öll stigin í þessum leik.
Ég tel að United sé sterkara lið en
þetta verður gríðarlega hörð bar-
átta. Þetta verður ekta breskur
slagur sem er ekki ólíkur argent-
ínskum leikjum. Aðeins fyrir karl-
menn,“ sagði Heinze.
Sir Alex Ferguson, stjóri Man.
Utd, hefur játað að hann sé einnig
að hugsa um stórleikinn gegn Chel-
sea um næstu helgi og því er ekki
ólíklegt að hann hvíli einhverja
lykilmenn. Wayne Rooney, sem
skoraði tvö mörk um helgina, seg-
ist vera klár í slaginn og vill ólmur
taka þátt í leiknum á Celtic Park.
Arsenal mætir stigalausu liði
Hamburg SV á heimavelli og má
alls ekki misstíga sig enda spenn-
an í riðlinum mikil. Robin Van
Persie er meiddur á ökkla og tæpt
hvort hann geti spilað.
„Þetta lítur ekki vel út og ég
geri ekki ráð fyrir því að hann
spili,“ sagði Arsene Wenger, stjóri
Arsenal, við breska fjölmiðla.
Það er sannkallaður stórleikur
á Santiago Bernabeau í kvöld
þegar hið stórskemmtilega lið
Lyon heimsækir Real Madrid í
uppgjöri toppliðanna í E-riðli.
Vinni Lyon leikinn og seinasta leik-
inn verður það aðeins í fimmta
sinn sem lið sigrar alla leiki sína í
riðlakeppni meistaradeildarinnar
en það hefur ekki gerst síðan 2003.
Real getur með sigri náð að standa
jafnfætis Lyon og komist í barátt-
una um toppsætið. -hbg
Það verður væntanlega slegist á Celtic Park í kvöld í leik Man. Utd og Celtic:
Aðeins fyrir karlmenn
harkaÞað verður ekkert gefið eftir á Celtic Park í kvöld er heimamenn mæta Man.
Utd. fréttAblAðið/getty iMAgeS
Leikir kvöldsins:
E-RIÐIll:
reAl MAdrid - lyon
SteAUA búkAreSt - dynAMo kiev
StAÐAn:
lyon 4 4 0 0 9-0 12
reAl MAdrid 4 3 0 1 10-4 9
s.búkarest 4 1 0 3 5-9 3
d. kiev 4 0 0 4 2-13 0
F-RIÐIll:
CeltiC - MAn. Utd
benfiCA - fC kAUPMAnnAhöfn
StAÐAn:
man.utd 4 3 0 1 7-3 9
CeltiC 4 2 0 2 6-6 6
benfica 4 1 1 2 3-4 4
fCk 4 1 1 2 1-4 4
G-RIÐIll:
CSkA MoSkvA - Porto
ArSenAl - hAMbUrg Sv
StAÐAn:
cskamoskva4 2 2 0 2-0 8
ArSenAl 4 2 1 1 4-2 7
porto 4 2 1 1 7-4 7
hSv 4 0 0 4 3-10 0
h-RIÐIll:
lille - AnderleCht
Aek AÞenA - AC MilAn
StAÐAn:
acmilan 4 3 1 0 8-1 10
lille 4 1 2 1 4-3 5
aekaþena 4 1 1 2 3-7 4
AnderleCht 4 0 2 2 3-7 2
REYKJAVÍK:
Kringlan
Bankastræti 5
Faxafen 12
GARÐABÆR:
Miðhraun 11
AKUREYRI:
Glerárgata 32
www.66north.is
66°Norður
óskar Birgi Leifi
Hafþórssyni til
hamingju með
keppnisréttinn
á Evrópsku
mótaröðinni
í golfi.
Golffatnaður 66°Norður fæst
í Miðhrauni, Faxafeni og á Akureyri.
FótboltI Bandaríska undrabarnið
Freddy Ady mætti á æfingu hjá
unglingaliði Manchester United í
gær en hann mun æfa hjá enska
félaginu næstu tvær vikurnar og
fékk til þess leyfi frá félagi sínu,
DC United.
Adu er einn umtalaðasti knatt-
spyrnumaður seinni tíma og hefur
verið undir smásjá flestra stærstu
liða heims frá unga aldri. Adu, sem
er 17 ára, var aðeins 16 ára þegar
hann lék með bandaríska landslið-
inu en hann er fæddur í Gana.
Chelsea var um tíma talið lík-
legast til að kaupa Adu en sagt er
að ensku meistararnir hafi hætt
við og séu ekki lengur á eftir
stráknum. Sir Alex Ferguson,
stjóri Manchester United, fer ekki
leynt með áhuga sinn á stráknum.
„Ég held að við gætum vel haft
áhuga á honum. Hann er ungur en
við höfum fylgst með honum í tals-
verðan tíma. Við reyndum að fá
hann á sínum tíma en þá samdi
hann við DC United,“ sagði Fergie.
-hbg
Freddy Adu loksins kominn til Englands:
Adu æfir með Man. United
aduímanchesterfreddy Adu, til hægri, sést hér á æfingu hjá Manchester United í
gær. fréttAblAðið/getty iMAgeS
akureyri-hk 20-22
Mörk Akureyrar (skot): Andri Snær Stefáns-
son 6 (10), goran gusic 5 (9/4), Alex kuz-
minski 4 (11), hörður fannar Sigþórsson 2 (4)
Magnús Stefánsson 1 (8), rúnar Sigtryggsson
0 (1), Aigars Agzdins 0 (2), Ásbjörn friðriksson
0 (7).
Varin skot: hreiðar levý guðmundsson 8,
Sveinbjörn Pétursson 4
hraðaupphlaup: 2 (Andri Snær 2)
Fiskuð víti: 4 (Andri Snær, Magnús, Ásbjörn,
Þorvaldur)
Utan vallar: 4 mínútur
Mörk hK (skot): valdimar Þórsson 8 (13),
Árni björn Þórarinsson 4 (6), Augustas Strazdas
3 (4), ragnar hjaltestedt 2 (3), brendan
Þorvaldsson 2 (3), Ólafur bjarki ragnarsson 1
(1), tomas eitutis 1 (3), gunnar Steinn Jónsson
1 (4), Sigurgeir Árni Ægisson 0 (1).
Varin skot: egidjus Petckevicius 22
hraðaupphlaup: 1 (Árni björn)
Fiskuð víti: 2 (tomas, ragnar)
Utan vallar: 10 mínútur
úrslitleikjaígær
Iceland Express deild karla
SnÆfell-tindAStÓll 108-85
StAÐA EFStU lIÐA
kr 8 7 1 717-608 14
SnÆfell 8 7 1 641-575 14
skallagr. 8 6 2 709-643 12
grindAvík 8 6 2 709-614 12
keflavík 7 5 2 654-568 10
nJArðvík 7 5 2 654-568 10
tindastóll 8 2 6 685-729 4
hAUkAr 8 2 6 655-747 4
ír 8 2 6 608-674 4
fJölnir 8 2 6 669-725 4
þórþorl. 8 2 6 637-729 4
hAMAr/Self. 8 1 7 550-649 2
KöRFUboltI Haukar töpuðu í gær
sínum öðrum leik í Evrópukeppni
kvenna í körfubolta í gær er liðið
mætti Montpellier í Frakklandi.
Úrslit leiksins urðu 110-59,
heimaliðinu í vil.
Ljóst er að Haukar mættu
gríðarlegu sterku liði í gær sem
gaf aldrei eftir. Staðan í hálfleik
var 53-24 en þriðji leikhluti var
sá besti hjá Haukunum en í
honum skoraði liðið 26 stig, meira
en í öllum fyrri hálfleiknum.
Montpellier er skipað hávöxn-
um og fljótum leikmönnum sem
nýttu sér þessa kosti óspart. Þá
lék sömuleiðis með liðinu nýr
bandarískur leikmaður sem var
að leika sinn fyrsta leik í Evrópu-
keppni og skoraði 21 stig.
Ýmislegt jákvætt var þó við
leik Haukanna. Stigahæst var
Helena Sverrisdóttir með 31 stig
sem er það mesta sem leikmaður
Hauka hefur skorað í Evrópu-
keppninni. Þar sem Haukar eru
fyrsta og eina liðið sem hefur
tekið þátt í keppninni gildir metið
um öll íslensk félög.
Sigrún Ámundadóttir átti einn-
ig frábæran leik og skoraði tíu
stig. Munaði það miklu að Ifeoma
Okokwo skoraði ekki nema fimm
stig í leiknum en hún hefur átt
við meiðsli að stríða sem virðast
hrjá hana nokkuð.
Hvorki Pálína Gunnlaugsdótt-
ir né Hanna Hálfdánardóttir gátu
ferðast með liðinu vegna anna í
námi.
Haukar halda í dag til Parma á
Ítalíu þar sem liðið á leik á morg-
un. -esá
Stig Hauka: Helena Sverrisdóttir
31 (5 frák., 5 stolnir), Sigrún
Ámundadóttir 10 (5 frák., 4
stoðs.), Unnur Tara Jónsdóttir 9
(5 frák., 3 stoðs., 3 stolnir) Ifeoma
Okokwo 5, Kristrún Sigurjóns-
dóttir 3.
Haukar kepptu í Evrópukeppni kvenna í körfubolta í gær:
Helena setti stigamet í Frakklandi
KöRFUboltI ÍR réð í gær Jón
Arnar Ingvarsson sem þjálfara
meistaraflokks karla í körfubolta.
Tekur hann við starfi Bárðar
Eyþórssonar. -esá
Körfuboltalið ÍR:
Jón Arnar ráðinn