Fréttablaðið - 21.11.2006, Side 63
21. nóvember 2006 ÞRIÐJUDAGUR46
Hrósið …
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
veistu svarið
Svör við spurningum á bls. 8
1 Mýrin
2 Valdimar Leó Friðriksson
3 Að meðaltali um 5000 bílar
LÁrÉtt
2 langar 6 komast 8 mánuður 9 struns 11
tveir eins 12 rými 14 í vafa 16 skóli 17 hola
18 for 20 guð 21 litlaus.
LóðrÉtt
1 betl 3 ryk 4 úrræðis 5 tugur 7 árviss 10
þukl 13 arr 15 stagl 16 starfsgrein 19 slá.
LausN
LÁrÉtt: 2 vilt, 6 ná, 8 maí, 9 ark, 11 uu,
12 pláss, 14 efins, 16 fg, 17 gat, 18 aur, 20
ra, 21 grár.
LóðrÉtt: 1 snap, 3 im, 4 lausnar, 5 tíu, 7
árlegur, 10 káf, 13 sig, 15 stag, 16 fag, 19
rá.
Magnús Scheving, nýkrýndur
heiðursverðlaunahafi Edd-
unnar, er staddur í Bret-
landi þar sem hann verður í
dag viðstaddur vígslu nýs
íþróttahúss sem verður
nefnt í höfuðið á Íþróttaálf-
inum úr Latabæ.
Ber það heitið
Sportacus Sports
Hall, en Sportacus er
enska heitið á
Íþróttaálfinum
sem Magnús
hefur leikið svo
eftirminnilega.
Íþróttahúsið er stað-
sett við grunnskóla í
London, skammt frá
þjóðarleikvangi
Breta, Wembley. „Krakkarnir
í skólanum máttu
ráða hvað íþrótta-
húsið myndi heita
og þeir völdu
Sportacus í höf-
uðið á Íþrótta-
álfinum,“ segir
Kjartan Kjartans-
son, talsmaður
Latabæjar.
Auk þess að taka
þátt í vígslu
íþróttahússins mun Magnús fara
í fjölda viðtala við breska fjöl-
miðla. Á meðal þeirra eru dag-
blöðin Independent, Sunday Mir-
ror, Financial Times, Sunday
Magazine, Sunday Express og
breska útgáfan af Hollywood
Reporter. Einnig mun hann fara í
tvö sjónvarpsviðtöl, þar á meðal
í spjallþátt Pauls O´Grady á
Channel 4. Að auki mun hann
fara í útvarpsviðtal hjá Breska
ríkisútvarpinu, BBC.
„Latabæ gengur mjög vel í
Bretlandi og mjög mikil eftir-
spurn hefur verið eftir að fá
Magnús í heimsókn. Við ákváð-
um að nota þessa þrjá daga til að
anna eftirspurninni,“ segir Kjart-
an.
Íþróttahús nefnt í höfuðið á Íþróttaálfinum
viNsæLL Á meðaL barNa Íþróttaálfur-
inn hefur alla tíð verið vinsæll á meðal
barna. Nú hefur heilt íþróttahús verið
nefnt í höfuðið á honum.
Latibær Sjónvarps-
þættirnir um Latabæ
hafa slegið í gegn úti um
allan heim, þar á meðal í
Bretlandi.
Reggíhljómsveitin The Wailer
heldur tónleika á Nasa, annað
hvort núna í desember eða í febrú-
ar á næsta ári. Forsvarsmenn
útvarpsstöðvarinnar Flass 104,5
eru við það að landa samningum
um tónleikana.
Hljóm-
sveitin er
fræg
fyrir að
hafa spil-
að með
reggí-kóng-
inum Bob
Marley.
Hafa plötur þeirra selst í yfir 250
milljónum eintaka um heim allan.
„Þetta var hugmynd starfsmanna
hérna og þetta kviknaði út frá
því,“ segir Ómar Vilhelmsson,
framkvæmdastjóri útvarpsstöðv-
arinnar Flass 104,5 sem stendur á
bak við tónleikana. „Við ákváðum
þetta eftir að það var búið að
athuga hljómgrunninn fyrir þessu
hjá fólki sem er í kringum okkur.“
Að sögn Ómars gætu tónleikarnir
orðið fleiri en einir. Munu nokkrar
íslenskar sveitir jafnframt sjá um
upphitun.
Hljómsveitin The Wailers starf-
aði með Marley frá árinu 1974 þar
til hann lést 1981. Síðan þá hefur
hún gefið út fjórar plötur og kom
sú síðasta út árið 1995. Sveitin er
núna á sinni fyrstu tónleikaferð í
ellefu ár og er í þetta sinn skipuð
upprunalegum meðlimum. Á tón-
leikum er The Wailers dugleg við
að spila lög eftir Bob Marley. Má
þar nefna I Shot the Sheriff, Get
Up Stand Up, No Woman No Cry
og Buffalo Soldier. -fb
The Wailers til Íslands á næstunni
tHe waiLers Hljómsveitin The Wailers er á leiðinni hingað til lands í desember eða
í febrúar.
bob marLey
Reggíkóngur-
inn söng með
The Wailers á
sínum tíma.
„Þetta var bara leiður misskilning-
ur,“ segir Sverrir Rafnsson, eig-
andi Rex, þegar hann er spurður
hvort stjörnuritstjóranum Jeffer-
son Hack og kærustu hans, ofurfyr-
irsætunni Anouk, hafi ekki verið
hleypt inn í eftirpartí hjá Sykurmol-
unum eftir velheppnaða endurkomu
sveitarinnar á föstudagskvöldinu.
„Stúlkan sem var með gestalistann
skrapp aðeins frá og þegar þessi
umræddi maður kom ásamt kær-
ustu sinni könnuðust dyraverðirnir
ekkert við hann þegar hann vildi
komast fram fyrir röðina,“ heldur
Sverrir áfram og bætir því við að
röðin hafi verið ansi löng þetta
kvöld. „Þegar honum var meinuð
innganga lét þessi maður og stúlkan
sig bara hverfa,“ útskýrir Sverrir
en brottför ritstjórans vakti hörð
viðbrögð hjá vinum hans sem sátu í
hlýjunni á skemmtistaðnum.
Jefferson Hack er einhver virt-
asta tískulögga heims í dag og stofn-
aði meðal annars hið virta tímarit
Dazed & Confused sem þykir leggja
línurnar fyrir það sem koma skal í
tísku, lífsstíl og jaðarmenningu.
Hack komst á forsíður allra helstu
slúðurblaða heimsins fyrir fjórum
árum síðan þegar hann og fyrrum
kærasta hans, ofurfyrirsætan Kate
Moss, eignuðust saman dótturina
Lilly Grace en Moss hefur verið
töluvert í fréttum að undanförnu
vegna fíkniefnamisferlis og sam-
bands síns við dóphausinn Pete
Doherty.
Hack er mikill Íslandsvinur og
er góðvinur Bjarkar Guðmundsdótt-
ur, söngkonu Sykurmolanna. Hann
hefur heimsótt landið oft og mörg-
um sinnum og eignast hér mikið af
kunningjum. Hann var hingað kom-
inn sérstaklega vegna tónleika Syk-
urmolanna og eftir að hafa verið
vísað burt frá Rex hélt hann rakleið-
is upp á hótelherbergi og fór heim
um morguninn. Samkvæmt heimild-
um Fréttablaðsins gerði Hack sér
dagamun á föstudeginum fyrir tón-
leikana og kíkti meðal annars í
hátískuverslunina Liborius og
hreifst mjög af því fataúrvali sem í
boði var. Verður hins vegar forvitni-
legt að sjá hvort þessari Íslandsferð
og heldur snautlegri viðkomu á
skemmtistaðnum Rex verði gerð
einhver skil í tímariti Hacks.
- fgg/áp
JeFFeRSoN HAck: Komst eKKi inn í eftirpartí syKurmolanna
Barnsföður Kate Moss
ekki hleypt inn á Rex
ritstjóriNN og fyrirsætaN Jefferson Hack og kærustu hans Anouk var vísað frá
Rex fyrir leiðan misskilning.
móðiriN og dóttiriN ofurfyrirsætan
kate Moss með barn sitt og Hacks, Lilly
Grace.
Sitt sýnist auðvitað hverjum um
verðlaunaafhendingar eins og
edduna. einhverjum fannst það
skjóta skökku við að laugardags-
þáttur Jóns Ólafssonar skyldi vera
tilnefndur fyrir skemmtiþátt ársins
þegar aðeins tveir þættir með tón-
listarmanninum geðþekka höfðu
verið sýndir á RÚV. Var haft á orði
að Jón væri orðinn það sjó-
aður í sjónvarpi að hann
þyrfti einungis tvo fyrir
eina tilnefningu.
og verðlaun-
in hreppti
kappinn að
sjálfsögðu.
Miðasalan á jólatónleikana
Frostroses: european Divas hefur
gengið vonum framar. Um er að
ræða gríðarlega stóran viðburð þar
sem margar af fremstu söngkonum
evrópu koma fram ásamt heið-
ursgestinum Petulu
Clark. Tónleikarnir,
sem verða í
Laugardalshöll
laugardaginn 5.
desember, verða
með glæsilegasta
móti en samkvæmt
heimildum Frétta-
blaðsins verður
sviðið eins og
jökull með
stjörnubjart-
an himin allt
í kring.
Strangar kröfur voru um klæðaburð
gesta í útgáfuteiti Senu sem haldið
var í Listasafni Reykjavíkur á laugar-
dag. Svart og hvítt var skilyrði enda
sveif andi James Bond yfir vötnum.
engum var hleypt inn sem ekki var
í svörtu og hvítu og rokkstjarnan
magni fékk að kenna á þessu því
strangir dyraverðir vörnuðu honum
inngöngu þar sem hann var í galla-
buxum. engu tauti var við verðina
komið og Magni mátti hverfa af
vettvangi. Hann birtist
svo aftur skömmu síðar,
kominn í svartar buxur
og fékk þá að
ganga óáreittur í
salinn. - fgg/þþ
frÉttir af fóLki
...fá þau Kristján Kristjánsson
og Þórunn Kjartansdóttir fyrir
að taka vel á móti þeim öku-
mönnum sem keyra í gegnum
Hvalfjarðargöngin.
39.900 kr.
Skelltu þér á leik Fulham og Reading á
Craven Cottage, laugardaginn 25.
nóvember og sjáðu Heiðar Helguson takast
á við þá Ívar Ingimarsson og Brynjar Björn
Gunnarsson. Gist er á þriggja stjörnu hóteli,
miðsvæðis í London í tvær nætur og er
innifalið í verði flug, gisting, morgunverður og
auðvitað miði á leikinn.
FULHAM–
READING
Verð:
PAKKAFERÐIR
VIÐ ALLRA HÆFI
Nánar á www.expressferdir.is eða í síma 5 900 100
24.–26. nóv.
59.900 kr.
Trier er elsta borg Þýskalands og þar er nóg
um að vera á aðventunni. Borgin er böðuð
ljósum og skreytingum og allt iðar þar af
mannlífi. Tilvalið er að klára jólainnkaupin á
skemmtilegum jólamörkuðum í ekta þýskri
hátíðarstemningu. Gist verður á þriggja stjörnu
hóteli í hjarta borgarinnar. Innifalið í verði er
flug, gisting í þrjár nætur, morgunverður, rúta
og spennandi skoðunarferðir.
AÐVENTUFERÐ
TIL TRIER
8.–11. des.
Verð: