Fréttablaðið - 03.12.2006, Blaðsíða 82
46 3. desember 2006 SUNNUDAGUR
HANDbolti Valur komst á topp
DHL-deildar karla á nýjan leik í
gær þegar liðið vann frekar
áreynslulausan sigur á Fylki, 28-
23. Valur tók forystuna snemma í
leiknum og gekk liðið hreinlega
frá leiknum í fyrri hálfleik.
Fylkir reyndi að klóra í
bakkann í síðari hálfleik en komst
aldrei mjög nálægt heimamönn-
um og sigurinn því ekki í hættu.
Pálmar átti stórbrotinn leik í
markinu, Markús var fínn í
sókninni og Ingvar mjög drjúgur.
Fátt var um fína drætti hjá Fylki
þar sem Eymar Kruger var allt í
öllu en hinir gátu sama sem ekki
neitt fyrir utan Hlyn Morthens
sem varði ágætlega á köflum. - hbg
valur-fylkir 28-23 (17-10)
Mörk Vals (skot): Markús Máni Michaelsson 9/3
(13/4), ingvar Árnason 4 (4), Hjalti Pálmason 4
(4), Ernir Hrafn arnarsson 4 (8), fannar friðgeirs-
son 2 (3), Elvar friðriksson 2 (4), arnór Gunnars-
son 1 (3), Sigurður Eggertsson 1 (4), Davíð Hösk-
uldsson 1 (1).
Varin skot: Pálmar Pétursson 27/1.
Hraðaupphlaup: 8 (ingvar 2, Ernir 2, Markús, fan-
nar, Davíð, arnór).
Fiskuð víti: 4 (ingvar 3, Elvar).
Utan vallar: 10 mínútur.
Mörk Fylkis (skot): Eymar kruger 8 (17), Tom-
islav Bros 4 (8), Ívar Grétarsson 4/3 (6/4),
Ásbjörn Stefánsson 2 (6), arnar Þór Sæþórsson 2
(5), Brynjar Þór Hreinsson 1 (1), Þórir Júlíusson 1
(3), Haukur Sigurvinsson 1 (5).
Varin skot: Hlynur Morthens 13/1, Sölvi Thorar-
ensen 2.
Hraðaupphlaup: 3 (Ásbjörn, Bros, arnar).
Fiskuð víti: 4 (Þórir, arnar, Guðmundur, Bros).
Utan vallar: 6 mínútur.
Valur lagði Fylki, 28-23:
Valur á toppinn
markús máni Átti fínan leik í gær.
fréTTaBlaðið/valli
Fótbolti Manchester United bætti
við forskot sitt í ensku úrvals-
deildinni í gær með því að næla í
þrjú stig á Riverside í fjörugum
leik. Louis Saha kom United yfir
með marki úr umdeildri víta-
spyrnu. James Morrisson jafnaði
um miðjan síðari hálfleik en Darr-
en Fletcher kom United aftur yfir
tveim mínútum síðar og það
reyndist vera sigurmark leiksins.
Gærdagurinn í enska boltanum
byrjaði fjörlega þegar Lundúna-
liðin Arsenal og Tottenham mætt-
ust á Emirates-vellinum. Sá leikur
varð aldrei eins spennandi og
vonir stóðu til því Arsenal vann
öruggan 3-0 sigur á erkifjendun-
um.
„Þessi sigur skipti gríðarlega
miklu máli fyrir okkur því við
máttum ekki við því að tapa fleiri
stigum,“ sagði Brasilíumaðurinn
sem skoraði tvö mörk úr vítum og
bar einnig fyrirliðabandið í fjar-
veru Thierry Henry sem er meidd-
ur.
Adebayor fagnaði marki sínu í
leiknum með því að hlaupa til
Henry en hann hafði lofað honum
að skora mark í leiknum.
Eyðimerkurgöngu Liverpool á
útivelli lauk loksins í gær þegar
liðið lagði Wigan, 0-4, en öll mörk-
in komu í fyrri hálfleik. Þetta var
fyrsti sigur Liverpool á útivelli í
vetur. Craig Bellamy skoraði tvö
mörk, hefði getað nælt í þrennuna
en sýndi mikla óeigingirni er hann
gaf boltann á Dirk Kuyt sem skor-
aði þess í stað.
„Craig þurfti að sýna mörgu
fólki að hann væri enn góður leik-
maður. Við gætum hreinlega verið
að fá nýjan leikmann með hann í
slíku formi,“ sagði Rafa Benitez,
stjóri Liverpool, en Bellamy var
sýknaður af ákæru um árás fyrr í
vikunni og virtist vera mikið létt í
leiknum í gær.
henry@frettabladid.is
Man. Utd hreint óstöðvandi
Man. Utd vann enn einn leikinn í ensku deildinni í gær. Að þessu sinni á útivelli
gegn Boro, 1-2. Liverpool á útivelli og Spurs átti aldrei möguleika gegn Arsenal.
aldrei snerting united komst yfir með marki úr umdeildu víti þar sem aldrei var komið við ronaldo. fréTTaBlaðið/afP
Enska úrvalsdeildin
arSENal - TOTTENHaM HOTSPur 3-0
1-0 Emmanuel adebayor (20.), 2-0 Gilberto Silva
(42.), 3-0 Gilberto Silva (72.).
BlaCkBurN rOvErS - fulHaM 2-0
1-0 S. Nonda (6.), 2-0 Benni McCarthy (24.).
MiDDlESBrOuGH - MaN. uNiTED 1-2
0-1 louis Saha (19.), 1-1 James Morrison (66.), 1-2
Darren fletcher (68.).
POrTSMOuTH - aSTON villa 2-2
0-1 Gareth Barry (37.), 1-1 Matthew Taylor (52.),
2-1 Matthew Taylor (80.), 2-2 Juan angel (82.).
rEaDiNG - BOlTON WaNDErErS 1-0
1-0 kevin Doyle (33.).
SHEffiElD uNiTED - CHarlTON aTHlETiC 2-1
0-1 andy reid (17.), 1-1 Chris Morgan (64.), 2-1
keith Gillespie (88.).
WiGaN aTHlETiC - livErPOOl 0-4
0-1 Craig Bellamy (9.), 0-2 Craig Bellamy (26.), 0-3
Dirk kuyt (40.)
StAðAN:
man. United 16 13 2 1 35-8 41
CHElSEa 15 11 2 2 25-8 35
arsenal 15 7 4 4 25-12 25
POrTSMOuTH 16 7 4 5 21-14 25
liverpool 16 7 4 5 19-15 25
rEaDiNG 15 8 1 6 17-18 25
aston villa 16 5 9 2 19-15 24
BOlTON 16 7 3 6 15-15 24
everton 15 5 6 4 18-15 21
fulHaM 16 5 5 6 16-23 20
man. City 15 5 4 6 13-17 19
TOTTENHaM 15 5 4 6 13-19 19
Wigan 14 5 3 6 17-20 18
BlaCkBurN 14 4 4 6 13-17 16
middles. 15 4 4 7 12-19 16
SHEff. uNiTED 16 4 4 8 11-20 16
West Ham 14 4 2 8 10-16 14
NEWCaSTlE 14 3 4 7 9-15 13
Watford 14 1 6 7 10-20 9
CHarlTON 15 2 3 10 11-23 9
úrslit gærdagsins
kátir Bellamy og kuyt fóru á kostum
með liverpool í gær. fréTTaBlaðið/afP