Fréttablaðið - 17.01.2007, Blaðsíða 2
Stefnir þú ótrauður á hundrað
lítra, Sigurður?
Ríkissaksóknari hefur
vísað máli Byrgisins, sem Ríkis-
endurskoðun mælti fyrir að yrði
skoðað af ríkissaksóknara, til
efnahagsbrotadeildar Ríkislög-
reglustjóra. Þetta staðfesti Helgi
Magnús Gunnarsson, saksóknari í
efnahagsbrotadeild hjá Ríkislög-
reglustjóra, í gær.
Eins og greint
var frá í fjöl-
miðlum í gær
gerði Ríkis-
endurskoðun
athugasemdir
við fjármál með-
ferðarheimilis-
ins Byrgisins á
árunum 2005 og
2006. Í skýrsl-
unni kemur
meðal annars
fram að ekki hafi
verið gerð grein
fyrir því hvern-
ig rúmlega 45
milljónum króna hafi verið ráð-
stafað.
Bókhald Byrgisins er í skýrsl-
unni sagt í molum og fjárreiður
Byrgisins augljóslega samofnar
einkaneyslu starfsmanna, að
mestu leyti Guðmundar Jónsson-
ar, sem nýlega hætti störfum sem
forstöðumaður Byrgisins.
Meðal annars voru 122 þúsund
krónur millifærðar af söfnunar-
reikningi, sem stofnaður var eftir
að fyrrverandi skjólstæðingur
Byrgisins, Haukur Freyr Ágústs-
son, lést vegna ofneyslu fíkniefna,
yfir á persónulegan reikning Guð-
mundar Jónssonar.
Starfsmenn Ríkisendurskoðun-
ar hafa þegar fundað með starfs-
mönnum félagsmálaráðuneytisins
vegna málefna Byrgisins með það
að markmiði að taka starfslag og
verkferla til endurskoðunar, svo
fjármálamisferli af því tagi sem
upp hefur komist um endurtaki
sig ekki.
Vistmennirnir í Byrginu, sem
voru sex þegar tekin var ákvörð-
un um að leggja starfsemina
niður eftir að skýrsla Ríkisendur-
skoðunar kom fram, hefur verið
boðið að fara á Hlaðgerðarkot.
Það er sjúkrastofnun sem býður
upp á stífa meðferð fyrir langt
leidda fíkniefnaneytendur en
Samhjálp og velferðarsvið
Reykjavíkurborgar munu vinna í
sameiningu að því að taka við
verkefnum sem Byrgið var með.
Heiðar Guðnason, forstöðu-
maður Samhjálpar, segir enn
óljóst hvort Samhjálp geti tekið
við öllum þeim vistmönnum sem
hafa verið í Byrginu.
Á ríkisstjórnarfundi í gær voru
málefni langt leiddra vímuefna-
neytenda tekin til umfjöllunar að
tillögu Björns Bjarnasonar dóms-
málaráðherra. Skipaður hefur
verið starfshópur, undir forystu
Stefáns Eiríkssonar lögreglustjóra
höfuðborgarsvæðisins, til þess að
fjalla um málefni langt leiddra
vímuefnaneytenda á víðum grunni.
Í hópnum eru einnig fulltrúar frá
heilbrigðis- og tryggingarmála-
ráðuneyti og félagsmálaráðuneyt-
inu.
Ríkislögreglustjóri
með mál Byrgisins
Saksóknari efnahagsbrota hjá embætti Ríkislögreglustjóra hefur fengið málefni
Byrgisins til rannsóknar. Unnið er að eflingu á innra eftirliti í félagsmálaráðu-
neytinu til þess að tryggja að sambærileg staða komi ekki upp aftur.
Árni Magnússon, sem var félagsmálaráð-
herra í október 2003 er samkomulag var undirritað
til staðfestingar um áframhaldandi greiðslur ríkis-
ins til Byrgisins, segir það hafa komið til umræðu að
taka málefni Byrgisins til skoðunar skömmu áður
en hann hætti sem félagsmálaráðherra í fyrra. „Eins
og þetta rifjast upp fyrir mér var um að ræða sam-
komulag sem ég undirritaði nokkrum mánuðum
eftir að ég varð ráðherra. Ég minnist þess að það
hafi í nokkur skipti verið ýtt við forsvarsmönnum
Byrgisins þar sem við ætluðumst til þess að sam-
komulagið yrði undirritað fyrir þeirra hönd en það
var aldrei gert.“
Árni segir augljóst að eftirlitslausar greiðslur
ríkisins til starfsemi af því tagi sem fram fór í Byrg-
inu bjóði hættunni heim ef ekki eru til staðar sérstak-
ir þjónustusamningar þar sem verksvið eru skýrlega
skilgreind. „Á þeim tíma sem ég var að hætta sem
ráðherra vorum við búin að ræða um nauðsyn þess að
skoða málefni Byrgisins rækilega. Sá lærdómur sem
ég held að menn þurfi að draga af þessari athugun
Ríkisendurskoðunar er að hættan er mest á svona
atvikum þegar ekki er um sérstaka þjónustusamn-
inga að ræða, því að ef ekki eru fyrir hendi þjónustu-
samningar byggir samkomulagið fyrst og fremst á
trausti. Því miður er hættan sú að traustið sé misnot-
að, eins og sést á skýrslu Ríkisendurskoðunar um
málið.“
Veiðar í Elliðaám verða takmarkaðar enn frekar
næsta sumar. Orkuveita Reykjavíkur og Stangaveiði-
félag Reykjavíkur hafa ákveðið í sameiningu að grípa
til þeirra ráðstafana til þess að fjölga þeim löxum sem
eftir verða í ánum til hrygningar. Þetta kemur fram í
tilkynningu frá Orkuveitunni og Stangaveiðifélaginu.
Nýlega greindist nýrnaveikismit í klaklaxi úr Ell-
iðaánum og var hrognum undan þeim fiskum eytt.
Nýrnaveiki er landlægur sjúkdómur í laxfiski á Íslandi,
en í haust hefur greinst smit í óvenjumörgum ám.
Þetta veldur því að ekki verður hægt að sleppa
gönguseiðum í Elliðaárnar vorið 2008, en undanfarin
ár hefur slíkum seiðum verið sleppt til að styrkja laxa-
stofn ánna. Því verður hámarksfjöldi veiddra laxa
hvern hálfan dag næsta sumar þrír laxar, en ekki fjórir
eins og áður. Einnig kemur til greina að draga enn frek-
ar úr veiðum í Elliðaánum árið 2008 til þess að styrkja
hrygningarstofninn í ánni.
Að sögn Guðna Guðbergssonar, fiskifræðings hjá
Veiðimálastofnun, er nýrnaveikin almennt ekki svo
hættuleg, hún finnst í náttúrunni í lágri tíðni. Hins
vegar getur hún gert usla í eldisstöðvum og menn
reyna sem best þeir geta að verja þær fyrir smiti.
Veiðar takmarkaðar enn frekar
Tuttugu og sex ára
karlmaður var úrskurðaður í
gæsluvarðhald í gær, grunaður um
kynferðisbrot gagnvart fjórum
stúlkum á aldrinum fimm til tólf
ára. Gæsluvarðhaldið gildir til 26.
janúar.
Meint brot áttu sér stað í
Vogahverfinu í Reykjavík síðdegis
á mánudag. Maðurinn var
handtekinn um kvöldmatarleytið
samdægurs eftir að lögregla hafði
fengið greinargóða lýsingu á bíl
hans. Hann var yfirheyrður í gær.
Kynferðisafbrotadeild lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu
rannsakar málið.
Úrskurðaður í
gæsluvarðhald
Íslenskir embættis-
menn áttu í gær fundi í Lundúnum
með breskum embættismönnum
um samstarf þjóðanna um
öryggismál á Norður-Atlantshafi
og fleira, að því er segir í tilkynn-
ingu frá utanrík-
isráðuneytinu. Í
íslensku viðræðu-
nefndinni voru
fulltrúar frá
forsætisráðuneyt-
inu, utanríkis-
ráðuneytinu og
dómsmálaráðu-
neytinu. „Rætt
var um atriði er
varða sameigin-
lega hagsmuni og
hvernig mætti
hugsanlega auka
samstarf Íslands
og Bretlands.
Ákveðið var að skoða frekar
hagnýta valkosti til samstarfs og
er annar fundur ráðgerður á
Íslandi,“ segir utanríkisráðuneytið
um niðurstöðu fundarins.
Ræddu sam-
starf við Breta
Þriggja bíla árekstur
varð á Garðvegi í Sandgerði um
þrjúleytið í gær. Þrír voru fluttir
á Heilsugæslustöð Suðurnesja, en
meiðsli þeirra voru talin minni-
háttar.
Veginum var lokað um tíma á
meðan bílarnir voru fjarlægðir.
Þeir voru allir mikið skemmdir
eftir áreksturinn.
Að sögn lögreglu atvikaðist
slysið þannig að tveir bílar sem
komu hvor úr sinni áttinni skullu
hvor á öðrum. Mikil hálka var á
veginum sem varð til þess að
þriðji bíllinn sem kom aðvífandi
lenti á hinum tveimur.
Árekstur þriggja
bíla í Sandgerði
Umræður um frumvarp
menntamálaráðherra um Ríkis-
útvarpið ohf. héldu áfram í gær.
Málið var rætt í rúma tíu tíma
á mánudag og hófst þingfundur
klukkan 10.30 í gærmorgun.
Umræðurnar stóðu enn þegar
Fréttablaðið fór í prentun og voru
þá fjölmargir á mælendaskrá.
Þingmenn hafa ótakmarkaðan
ræðutíma í þriðju þingumræðu en
auk hefðbundinna ræða hafa
þingmenn lýst skoðunum sínum á
málinu og meðferð þess undir
liðunum athugasemdir við störf
þingsins og um fundarstjórn
forseta.
Önnur mál hafa ekki verið sett
á dagskrá Alþingis.
Fjölmargir enn
á mælendaskrá
Ung kona hefur lagt
fram kæru á hendur Guðmundi
Jónssyni, fyrrverandi forstöðu-
manni Byrgisins. Kæruefnið er
kynferðisleg misbeiting og að á
þann veg hafi
hann misnotað
aðstöðu sína sem
forstöðumaður
meðan hún var
skjólstæðingur
Byrgisins. Konan
lagði fram gögn
með kærunni.
Þetta er önnur
konan sem leggur
fram kæru á
hendur Guðmundi. Hin fyrri kærði
hann til lögreglu í desember eftir
umfjöllun Kompáss um málefni
Byrgisins. Hún sakar hann einnig
um kynferðislega misbeitingu.
Hún lagði fram gögn með kærunni,
þar á meðal myndbönd.
Guðmundur verður boðaður í
skýrslutöku hjá sýslumanns-
embættinu í þessari viku.
Skýrsla verður
tekin í vikunni