Fréttablaðið - 17.01.2007, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 17.01.2007, Blaðsíða 4
Ekkert blað? 550 5600 Fyrst þú ert að lesa þetta þá hefurðu fengið Fréttablaðið. En til vonar og vara skaltu klippa þetta símanúmer út og hringja ef blaðið berst ekki. - mest lesið Efni sem unnið er hér á landi úr þorskinnyflum drap 99 prósent af fuglaflensuveirum af H5N1-stofninum á fimm mínút- um í rannsókn sem unnin var í Lundúnum nýlega. Efnið heitir pensím og er ens- ími sem finnst í meltingarfærum þorsks, en það hefur hingað til verið notað í smyrsl sem vinnur gegn húðmeinum. Nú vonast íslenskir framleiðendur þess til þess að hægt sé að þróa lyf úr pensími gegn ýmsum kvillum. Fyrirtækið Ensímtækni ehf. hefur þróað ensímið. Jón Bragi Bjarnason, próf- essor í lífefna- fræði við Háskóla Íslands og stjórnarfor- maður Ensím- tækni, segir að tilraunirnar á H5N1-veirunni hafi farið fram síðasta haust, en niðurstöðum skilað nýlega. „Það er mjög spennandi að hafa fundið efni sem drepur fuglaflensu- veiruna, menn óttast að hún muni breytast yfir í mannaflensuveiru, og þá munum við hafa einhverja vörn sem líklega mun gagnast,“ segir Jón Bragi. „Þetta mun efla okkur í þeirri trú okkar að þetta sé mikilvægt til lyfjagerðar, og að við verðum að afla fjár til lyfjaþróunar,“ segir Jón Bragi. Hann vinnur nú að því að safna hlutafé til að standa straum af klínískum rannsóknum á pensími. Reikna má með að fyrirtækið þurfi að safna 20-30 milljónum dala í hlutafé til þess að slíkar rannsóknir geti farið fram. Lyf gegn fuglaflensu er þó ekki nóg, heldur segir Jón Bragi að nú þurfi einnig að rannsaka vísbend- ingar um það að pensím hafi einn- ig áhrif á hefðbundna flensu, sem herjar gjarnan á Íslendinga á þessum árstíma, og áhrif pensímsins á kvef lofi líka góðu. Því þurfi að framkvæma læknisfræðilegar rannsóknir til að meta áhrif pensíms á inflúensu, kvef, barnaexem og gigt, auk fuglaflensunnar, í skynsamlegri röð. Jón Bragi segir að um tvö ár geti tekið að framkvæma þær rannsóknir og vinna úr þeim áður en lyf komi á markað. Í gær kynnti Jón Bragi nýja snyrtivörulínu í London, sem einn- ig er unnin úr þorskensími, undir merkinu DrBRAGI. Um er að ræða næringar- og yngingargel, húð- hreinsivörur og fleiri vörutegund- ir. Kynningin fór fram á fjölmenn- um blaðamannafundi, þar sem meðal annars voru fulltrúar snyrti- vöru- og tískutímarita. Opnuð var sérstök kynningarsíða, en snyrti- vörurnar munu koma á markað 1. mars. Fyrirtækið Pure Icelandic sér um markaðssetningu erlendis. Þorskaensím drepur flestar H5N1-veirur Íslenskt þorskaensím drap 99 prósent af fuglaflensuveirum í nýlegri rannsókn. Unnið er að því að safna hlutafé til að hægt sé að leggja í læknisfræðilegar rannsóknir. Ensímið er talið geta orðið að lyfi gegn flensu, kvefi og barnaexemi. Rúmlega tvítug kona var í gær ákærð fyrir Héraðsdómi Austurlands fyrir tvær alvarlegar lík- amsárásir. Þær áttu sér stað á Fáskrúðsfirði um júlínótt á síðasta ári. Konunni er gefið að sök að hafa slegið aðra konu á svipuðu reki í höfuð og líkama með vínflösku úr gleri, tekið hana hálstaki, rifið í hár hennar og lagt læri yfir andlit hennar. Afleiðingarnar urðu þær að fórnarlambið hlaut roða, bólgu og blóðrisa fleiður framan á hálsi, fleiður yfir vinstra handarbak og rispusár á vinstri baugfingri. Þá er árásarkonunni gefið að sök að hafa sömu nótt slegið tvítugan pilt högg í höfuðið með bjór- flösku, sem brotnaði með þeim afleiðingum að hann hlaut sár á hvirfilinn. Í gær var einnig þingfest fyrir Héraðsdómi ákæra á mann vegna sérlega hættulegrar líkamsárásar á veitingastaðnum Cafe Kósý á Reyðarfirði í september. Manninum er gefið að sök að hafa kastað bjórglasi í andlit annars manns þannig að sá síðar- nefndi hlaut langan skurð vinstra megin í andlit sem náði frá nefi niður á kinn. Sá sem fyrir árásinni varð krefst skaðabóta upp á rúmlega hálfa milljón króna. Sergei Ivanov, varnarmálaráðherra Rússlands, staðfesti í gær að Rússar hefðu nú þegar afhent Írönum loftvarna- flaugar af gerðinni Tor-M1. Hann sagði ekki hve margar flaugarnar væru, en starfsmenn ráðuneytisins höfðu áður upplýst að Rússar hefðu samið við Írana um sölu á 29 loftvarnavopnum og mundu Íranar greiða fyrir 700 milljónir dala. Bandarísk stjórnvöld hafa gagnrýnt þetta, enda hafa þau hvatt öll ríki heims til þess að hætta allri vopnasölu til Írans. Ísraelsk stjórnvöld hafa sömuleið- is gagnrýnt harðlega sölu á vopnabúnaði til Írans. Rússar afhenda Írönum vopn Hans-Gert Pöttering, kristilegur demókrati frá Þýskalandi, var í gær kjörinn eftirmaður spænska sósíalistans Joseps Borrell á forsetastól Evrópuþingsins. Pöttering, sem var áður formaður stærsta þingflokksins á Evrópuþinginu, Evrópska þjóðarflokksins, náði kjöri strax í fyrstu umferð atkvæðagreiðsl- unnar meðal þingfulltrúanna 785. Í þakkarræðu sinni sagðist Pöttering myndu vinna að einingu Evrópu þar sem allar þjóðir álfunnar, stórar sem smáar, hefðu sitt fram að færa. Pöttering tekur við af Borrell Tuttugu og fjórar þjóðir sem stunda fiskveiðar í Miðjarð- arhafinu hafa heitið því að taka höndum saman við aðgerðir gegn rýrnun á fiskstofni samkvæmt tilkynningu frá Matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna. Þjóðirnar samþykktu að deila upplýsingum um fiskveiðiflota sína til að auðvelda eftirlit en heildstæðar upplýsingar um veiðar á svæðinu hafa ekki legið fyrir. Einnig sammæltust þjóðirn- ar um að nota sérstaka gerð neta við botnvörpuveiðar sem hleypa ungum fiski í gegn. Aðgerðir til að reisa við stofn Maður var handtekinn á Hong Kong-flugvelli nýlega fyrir tilraun til að smygla tösku með lif- andi dýrum, þar á meðal krókódíl og 46 skjaldbökum. Hugðist maðurinn, sem kom frá Taílandi, selja dýrin á meginlandi Kína, þar sem þau eru eftirsótt í matseld og lækningar. Leyfi þarf frá stjórnvöldum Hong Kong fyrir innflutningi skrið- dýra, fugla og spendýra, að því er greint er frá á fréttavef BBC. Þar sem sum dýrin eru í útrýmingar- hættu er ólíklegt að hann hefði feng- ið slíkt leyfi. Hlaut maðurinn sex mánaða skil- orðsbundinn fangelsisdóm fyrir ólöglegan dýrainnflutning. Með krókódíl í farangrinum Eftirlit með styrkjum til aðila utan ríkiskerfisins verður til umræðu á sameiginlegum fundi fjárlaga- og félagsmála- nefnda Alþingis með ríkisendur- skoðanda í fyrramálið. Birkir Jón Jónsson, formaður fjárlaganefndar, segir tilefnið skýrslu Ríkisendurskoðunar um Byrgið. „Við viljum draga lærdóm af þessu máli,“ segir hann og tekur fram að í engu sé efast um heilindi þeirra fjöl- mörgu sem vinni óeigingjarnt starf í þágu þjóðfélagsins og njóti til þess opinberra styrkja. Fara eigi yfir verklagið og ræða hvort því þurfi að breyta. Farið yfir eftirlit með styrkjum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.