Fréttablaðið - 17.01.2007, Síða 10

Fréttablaðið - 17.01.2007, Síða 10
Pandabjörninn Chu- ang Chuang er orðinn það feitur að pandabirnan Lin Hui vill ekki lengur stunda kynlíf með honum, að sögn talsmanna Chiang Mai dýragarðsins í Taílandi. Chuang Chuang, sem vegur 150 kíló, á meðan Lin Hui er aðeins 115 kíló, fær nú aðeins bambuslauf að borða meðan hann er að ná af sér aukakílóunum. Er þetta nýjasta ráðið í oft undarleg- um tilraunum dýragarðsins til að fá pandabirnina til að makast. Birnirnir voru gefnir saman í plat hjónavígslu og síðar var til- kynnt að þeir yrðu aðskildir til að reyna að kveikja rómantík. Jafnvel hefur verið rætt um að framleiða pönduklám, myndbönd af öðrum pöndum að makast, til að koma Chuang Chuang og Lin Hui í rétta skapið. Íslendingar eru meðal fárra tæknivæddra þjóða sem ekki hafa komið sér upp þjóðar- tæknisafni. Að mati undirbúnings- nefndar tækniminjasafns er afar aðkallandi að byggja upp slíkt safn, bæði í menningarlegum skilningi og ekki síður sem menntastofnun. Staða mála í dag varðandi þennan hluta þjóðararfs- ins er þjóðinni til niðurlægingar að mati nefndar sem kynnti áfangaskýrslu um Tæknisafn Íslands í menningarmiðstöðinni Þjórsárveri nýlega. Undirbúningur að stofnun tækniminjasafns var í höndum Atvinnu- og ferðamálanefndar Flóahrepps að frumkvæði áhuga- fólks þar í sveit. Valdimar Össurarson var verkefnisstjóri og er einn helsti hvatamaður að stofn- un tæknisafns hér á landi. Hann segir að hugmynd nefndarinnar sé ekki minjasafn í hefðbundnum skilningi þess orðs heldur fræðslu- stofnun eins og búið er að byggja um alla Evrópu. „Þetta byggist upp af vísindastofu sem er leiktækja- salur þar sem krakkarnir fá áhuga með upplifun og leik, tækniþróun- arsýningu þar sem haldið er utan um þetta sérstaka í okkar tækni- menningu og síðan tæknisöguna og hvernig tæknin er. Reynt verð- ur að gera tæknina skiljanlega og segja söguna um leið.“ Rúnar Þorvaldsson, formaður Félags raungreinakennara, segir að upplifunarsafn á Íslandi verði án efa mikil lyftistöng fyrir raun- greinakennslu í landinu. „Á svona safni taka nemendur þátt í verk- efnum í tengslum við ólík þemu sem kennarar vinna svo áfram með nemendum sínum. Þetta er upplif- un sem unnið er úr frekar þegar komið er inn í skólastofurnar.“ Valdimar minnir á umræðu um náttúruminjasafn og bendir á að söfnin séu svo eðlislík að vel komi til greina að vista þau á sama stað. „Rekstrarlega er það hagkvæmt og bæði söfnin munu þjónusta skólana við raungreinakennslu. Það á að vista söfnin saman og gera regluverkið það sama í leið- inni og fella söfnin helst undir sömu lög.“ Verkfræðistofa Sigurðar Thor- oddsen vann kostnaðaráætlun fyrir nefndina. Búist er við að 1.200 fermetra safnahús með öllum nauðsynlegum búnaði til starfseminnar kosti um 300 millj- ónir króna. Rekstrarkostnaður er 40 milljónir á ári miðað við starfs- mannafjölda eins og tíðkast í söfn- um á Norðurlöndum. Rekstrarlega er það hag- kvæmt og bæði söfnin eru að þjónusta skólanna við raungreinakennslu. Mikil þörf á tækni- minjasafni á Íslandi Ísland er eitt fárra tæknivæddra ríkja án þjóðartæknisafns. Slíkt safn hefur mikið gildi sem menntastofnun og auðveldar árangursríkra raungreinakennslu. Kostnaður við byggingu safnahúss og búnaðar er um 300 milljónir króna. Þeir sem nýta sér þjón- ustu hraðflutningafyrirtækja til að flytja inn litlar sendingar, sem kosta innan við 2.000 krónur í innkaupum erlendis, þurfa að greiða jafnaðar- gjald í stað þess að fá vöruna tollafgreidda á hefðbundinn hátt. Atli Freyr Einarsson, sölu- og markaðsstjóri hraðflutningafyrir- tækisins DHL, segir að viðskipta- vinir hafi ítrekað kvartað vegna þessa, en gjaldið hefur verið við lýði í tæpan áratug. Ítrekað hafi verið bent á hversu óheppilegt sé að leggja slíkt gjald á litlar sendingar, en ekkert hafi breyst. Gjaldið hækk- aði raunar úr 570 krónum i 750 krónur með breytingum á reglu- gerð á síðasta ári. Tryggvi Valdimarsson, upplýs- ingafulltrúi hjá Tollstjóranum í Reykjavík, segir að gjaldið sé aðeins innheimt af sendingum hraðflutn- ingsfyrirtækja, aðrar reglur gildi um Íslandspóst. Hann segir að vissulega geti jafnaðargjaldið komið vel eða illa út, þeir sem flytji inn bók myndu venjulega greiða 14 prósenta virðisaukaskatt, eða tæpar 280 krónur af bók sem kostar um 2.000 krónur. Þeir sem hins vegar flytji inn bílavarahlut sem kosti undir 2.000 krónum komi betur út því gjöld á varahlutinn séu um 1.000 krónur. Fawaz Mohammed Damra, fyrrverandi bænaformað- ur í Ohio í Bandaríkjunum, hefur verið hnepptur í fangelsi í Ísrael. Hann hafði leitað hælis í 72 lönd- um en alls staðar verið hafnað og neyddist því til að halda til fæð- ingarlands síns, Palestínu, eftir að hafa verið sviptur ríkisborg- ararétti í Bandaríkjunum. Damra er 46 ára og hafði búið í Bandaríkjunum í áratug, alið þar upp þrjú börn sín ásamt banda- rískri eiginkonu sinni, en var sviptur ríkisborgararétti árið 2004 þegar í ljós kom að hann hafði árið 1991 hvatt til vopnaðrar baráttu gegn Ísrael. Situr nú í ísra- elsku fangelsi Pandan orðin of feit fyrir kynlíf Katrín Fjeldsted, læknir og varaþingmað- ur Sjálfstæðis- flokksins, tók sæti Guðlaugs Þórs Þórðarsonar á Alþingi í gær. Sem kunnugt er slasaðist Guðlaug- ur illa er eldur læstist í skyrtu hans skömmu fyrir jól. Hann er kominn heim af spítala en þarf að taka því rólega í fyrstu. Katrín Fjeldsted var þingmaður á síðasta kjörtíma- bili og hefur tekið sæti sem varaþingmaður fyrr á þessu kjörtímabili. Katrín tekur sæti Guðlaugs Pyntingaklefar hafa fundist í búðum tamílatígra á Srí Lanka sem talið er að hafi verið notaðir til að refsa liðhlaupum og uppljóstrurum, þar á meðal konum, að sögn varnarmálaráðuneytis landsins. Klefarnir fundust í síðustu viku þegar stjórnarherinn náði stjórn á fjórum stöðvum og sjö búðum uppreisnarmanna. Í byrjun þessa árs hóf stjórnarher landsins herferð sem miðar að því að uppræta búðir tamílatígra í Ampara-héraði í austurhluta Srí Lanka. Tamílatígrar hafa í tuttugu ár barist fyrir sjálfstæðu heimalandi fyrir hina 3,1 milljón tamíla sem býr á Srí Lanka. Tígrarnir með pyntingaklefa Verð til bænda fyrir nautgripakjöt hefur verið að mjakast hægt og rólega upp á við að sögn Baldurs Benjamínssonar, framkvæmdastjóra Landssam- bands kúabænda. Kjötið hefur hækkað úr 300 krónum á kílóið á helstu flokkum af ungnautakjöti þegar það var lægst upp í 440 krónur kílóið nú. Breyting hefur orðið á verði á kýrkjöti. Verðið á því var komið niður í um hundrað krónur kílóið, „sem er ekki neitt, algjört smánar- verð,“ segir Baldur, og upp í um 300 krónur á algengustu flokkum á kílóið. „Verðið fór niður úr öllu velsæmi þegar hvíta kjötið kom í mestu magni inn á markaðinn 2003 og verðið var pínt niður.“ Verð til bænda hefur hækkað Fjögur vinnuslys voru tilkynnt lögreglu á mánudag. Tvítugur piltur varð undir hlera um borð í togara við Holtabakka. Skömmu síðar skarst karlmaður á höfði við vinnu sína á lyftara í Grafarvogi. Síðdegis brenndist síðan karlmaður á fertugsaldri þegar hann tók sér hlé frá því að gera við bensínleka í bifreið til að fá sér sígarettu. Þegar maðurinn hugðist slökkva í sígarettunni mynduðust bensíngufur sem orsökuðu sprengingu. Hann brenndist töluvert í andliti og á höndum. Að endingu slasaðist maður á sjötugsaldri á hendi þegar hann klemmdist við uppsetningu á kælitæki. Fékk sér reyk í bensínviðgerð
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.