Fréttablaðið - 17.01.2007, Side 13
Viðræður milli sauðfjárbænda og ríkis-
ins um nýjan sauðfjársamning hafa nú staðið yfir í nokk-
urn tíma, en núgildandi samningur rennur út um næstu
áramót. Lítið fréttist af gangi viðræðna, en heimildir
tengdar samningamönnum herma að ríkið vilji ekki
gera nýjan samning nema útflutningsskyldan verði
felld niður.
Björn Elíson, framkvæmdastjóri Landssambands
sauðfjárbænda, segir að ágætur gangur sé í viðræðun-
um, sem hófust síðasta sumar. Trúnaður ríki þó um það
sem fram fari í viðræðunum. Aðspurður vildi hann
ekki staðfesta að ríkið krefðist þess að útflutnings-
skyldan yrði afnumin, en heimildarmenn Fréttablaðs-
ins hafa staðfest það.
Í útflutningsskyldu felst að bændur skuldbinda sig
til að flytja ákveðið magn af lambakjöti úr landi á ári
hverju. Um 700 tonn voru seld úr landi árið 2006. Björn
segir bændur almennt ánægða með útflutningsskyld-
una, það magn sem hægt sé að selja hér á landi sé tak-
markað.
Björn segir að best væri að skrifa undir nýjan
samning sem fyrst, og vonandi verði hægt að skrifa
undir fyrir alþingiskosningar í vor til að nýir menn
þurfi ekki að seta sig inn í málið verði breytingar á
stjórnarsamstarfi.
Oddný Sturludóttir
Samfylkingunni
hefur tekið sæti
sem aðalmaður
í borgarstjórn
Reykjavíkur.
Leysir hún Stef-
án Jón Hafstein
af hólmi en
hann er á leið
til starfa í
Namibíu.
Oddný tekur
jafnframt sæti Stefáns Jóns í
menntaráði og menningar- og
ferðamálaráði og hverfur úr
skipulagsráði og velferðarráði.
Setjast Stefán Benediktsson og
Stefán Jóhann Stefánsson í þau
sæti.
Dagur B. Eggertsson tekur
sæti Stefáns Jóns í stjórn
Orkuveitu Reykjavíkur en
hverfur um leið úr stjórn
Faxaflóahafna. Sæti hans þar
tekur Steinunn Valdís Óskars-
dóttir.
Oddný tekur
sæti Stefáns
Slagsmál brutust út á
tennismóti í Ástralíu á milli
króatískra og serbneskra
stuðningsmanna nýlega.
Stuðningsmennirnir voru í
tveimur hópum og hrópuðu þeir
vígorð og móðganir til andstæð-
inganna á meðan á leikum stóð.
Sló síðan í brýnu með hópunum
og tóku þeir að slást með spörk-
um og fánastöngum, sem notaðar
voru sem barefli. Lögregla og
öryggisverðir komu 150 manns út
af svæðinu eftir átökin sem voru
fordæmd víða.
Engin umtalsverð meiðsl urðu
á fólki að sögn lögreglu og enginn
var handtekinn.
Börðust með
fánastöngum
Dr. Ágúst Einarsson
var settur í embætti rektors við
Háskólann á Bifröst við hátíðlega
athöfn í Hriflu, hátíðarsal
skólans, á mánudaginn að
viðstöddu margmenni úr háskóla-
þorpinu sem og nýskipaðri stjórn
skólans.
Ágúst stundaði nám í rekstrar-
hagfræði við Háskólann í
Hamborg og í Kiel í Þýskalandi
og varði síðar doktorsritgerð sína
við Háskólann í Hamborg árið
1978.
Ágúst hefur starfað sem
prófessor við Háskóla Íslands frá
árinu 1990. Hann hefur reynslu af
stjórnun í atvinnulífinu sem og
stjórnmálum og sat meðal annars
á Alþingi Íslendinga á árunum
1978-79 og 1995-99.
Tekinn við sem
rektor á Bifröst
Tuttugu og tveir nýir
ökukennarar voru brautskráðir
við hátíðlega athöfn frá Kennara-
háskóla Íslands hinn 9. desember
síðastliðinn. Flestir ökukennar-
anna eru búsettir á suðvestur-
horninu, en nokkrir þeirra á
Norðurlandi.
Símenntunarstofnun KHÍ
hefur haft með höndum menntun
ökukennara frá árinu 1993 og
hafa nú alls útskrifast 124
ökukennarar frá skólanum.
Námið telst nú 30 einingar á
háskólastigi, sem samsvarar einu
námsári, og krafist er stúdents-
prófs eða sambærilegrar
menntunar.
22 útskrifuðust
í desember
2.790.000kr.
Saab 9-3 Linear 1.8 i, beinskiptur
Ertu ekki örugglega í þotuliðinu?
Framleiðendur hinna virtu Saab bifreiða eiga að baki áratugalanga sögu sem flugvélaframleiðendur. Saab
9-3 hefur fengið fjölda verðlauna fyrir frábæra aksturseiginleika og öryggi. Sannkölluð evrópsk gæði,
skemmtileg hönnun, öflug vél og ríkulegur staðalbúnaður er það sem gerir Saab 9-3 að afburða bíl.
Nú bjóðum við þér eina af þotunum í Saab bílaflotanum, 9-3 Linear, á frábæru verði.
Komdu og reynsluaktu, finndu muninn!