Fréttablaðið - 17.01.2007, Page 15

Fréttablaðið - 17.01.2007, Page 15
Gylfi Arnbjörnsson, fram- kvæmdastjóri Alþýðusambandsins, segir að verðbólgubreytingin komi á óvart, almennt hafi menn átt von á því að allt yrði með kyrrari kjörum hvað verðbólgu varðar í verðbólgu- mælingunni nú í janúar. Þó að fasteignaverð hafi lækkað hafi annað hækkað, til dæmis gjaldskrár sveitarfélaga. Gylfi telur að hækkanir á matvöru hafi verið óþægilega miklar síðustu daga þó að þar hafi árviss tilboð í aðdraganda jóla haft áhrif. Ekki sé launung á því að fókusinn verði áfram á matarverði. „Það er dapurlegt að hækkanir á opinberri þjón- ustu ýti við verð- bólgu við þær aðstæður í hag- kerfinu að þörf er á aðhaldi. Það er mjög mikið áhyggjuefni og stendur upp úr,“ segir hann. Halldór Hall- dórsson, formað- ur Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir sveitarfélögin hafa neyðst til að hækka gjaldskrár sínar til að koma til móts við launahækkanir frá því í haust. „Launaþátturinn er svo ríkjandi í rekstri sveitarfélaga að hann ræður miklu um tekju- þörfina. Taka þarf saman heildaráhrifin af gjaldskrárbreytingunum, ég held að þau séu minni en fólk gerir ráð fyrir,“ segir hann. „Þörf er á því að laga tekjuskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Sveitarfélögin urðu að gera breytingar á gjaldskrám til að reksturinn plumaði sig.“ Hátt í 35.000 borgarar féllu í Írak árið 2006 samkvæmt tölum Sameinuðu þjóðanna sem Gianni Magazzeni, mannréttinda- fulltrúi SÞ í Írak, kynnti í gær. Er þetta næstum þrisvar sinnum hærra hlutfall en írösk stjórnvöld lýstu yfir nýlega. Tæplega 36.700 borgarar særðust á sama tímabili. Þessar nýjustu tölur SÞ byggja á upplýsingum frá heilbrigðisráðu- neyti Íraks, líkhúsum, sjúkrahús- um og öðrum stofnunum að sögn Magazzenis. Hann varaði við því að ofbeldi í Írak gæti aukist og að lokum farið úr böndunum ef betri árangur næðist ekki í að halda uppi lögum og reglu. 35.000 borgarar féllu í Írak 2006 Þorsteinn Birgisson rekstrartæknifræðingur hefur tekið við nýju starfi á Framkvæmdasviði Reykjavíkurborgar sem tæknilegur rekstrarstjóri þjónustumiðstöðvar á Stórhöfða. Þetta kemur fram á vef Reykjavíkurborgar. Í þjónustumiðstöð starfa um 35 manns í nokkrum deildum sem sinna umferðarmerkingum, umferðarljósum, snjóruðningi, hálkueyðingu og fleiri þáttum sem tilheyra verksviði skrifstofu gatna- og eignaumsýslu. Þorsteinn er tekinn við Finnair fær að halda launum flugliða frá Asíu leyndum. Það er ákvörðun finnsks dómstóls. Megn óánægja er hjá stéttarfélagi flugliðanna, SLSY, að sögn finnska dagblaðsins Hufvudstadsbladet. FL Group er stærsti hluthafinn í Finnair á móti finnskra ríkinu. Mauri Koskenniemi, formaður stéttarfélagsins SLSY, telur ákvörðun dómstólsins verða til þess að hvaða fyrirtæki sem er í Finnlandi geti ráðið starfsmenn frá Asíu og haldið kjörum þeirra leyndum. SLSY hefur lengi talið flugliðana á mun lægri launum en finnskir flugliðar og barist fyrir leiðréttingu. Launaleynd hjá flugliðum

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.