Fréttablaðið - 17.01.2007, Page 18

Fréttablaðið - 17.01.2007, Page 18
fréttir og fróðleikur Ljúka undirbúningi 2008 Norðmenn upplifðu martröðina Flott föt, gjafavörur og búsáhöld Opið 10 -18 í Fellsmúla 28 (gamla World Class húsið) Ótrúlegt verð! 250 – 500 – 750 – 1.000 1.250 – 1.500 – 1.750 – 2.000 Samskipti menntamála- og fjármálaráðuneytis á síð- asta ári við Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, um málefni Ríkisútvarpsins fóru fram með níu bréfum. Rætt var öðru fremur um ríkis- styrkjareglur, lagatæknileg atriði og álitaefni sem ESA hefur enn ekki gefið endan- legt álit sitt á. Amund Utne, yfirmaður sam- keppnissviðs ESA, gerir það að umtalsefni í bréfi til íslenskra yfirvalda 30. janúar í fyrra hvaða ríkisstyrkjareglna og samkeppn- islaga taka beri tillit þegar hluta- félagavæðing RÚV gengur í gegn. Í bréfum í apríl, júní og nóvem- ber í fyrra er áfram fjallað um lagatæknileg álitaefni sem ESA bendir á að geti komið upp verði hlutafélagavæðing RÚV að veru- leika. Öðru fremur má segja að álita- efnin, sem fjallað er um í bréfa- skriftum ESA og menntamála- og fjármálaráðuneytis, tengist tveim- ur grundvallarspurningum. 1. Stangast einhverjar greinar laga um RÚV ohf. á við alþjóðlegar reglur ESA? 2. Er hugsanlegt að frumvarp um hlutafélagavæðingu RÚV feli í sér samkeppnislega mismunun og brjóti þannig í bága við samkeppnislög? Sigurður Kári Kristjánsson, for- maður menntamálanefndar sem þegar hefur afgreitt frumvarp um RÚV ohf. út úr nefndinni, greindi frá því í Fréttablaðinu föstudag- inn 12. janúar að hann teldi efnis- atriði ESA-gagnanna ekki bæta neinu við þá miklu umræðu sem málefni tengd hlutafélagavæð- ingu RÚV hefðu þegar fengið. Þessu hafa fulltrúar stjórnarand- stöðunnar mótmælt en forseti Alþingis, Sólveig Pétursdóttir, féllst ekki á kröfu þingflokksfor- manna stjórnarandstöðuflokkanna um að gefa fulltrúum í mennta- málanefnd rúm til þess að rann- saka gögnin og meta efnisatriði þeirra. Eins og greint hefur verið frá í Fréttablaðinu telur Samkeppnis- eftirlitið frumvarpið um RÚV ohf. fela í sér samkeppnislega mis- munum. Byggist sú niðurstaða öðru fremur á því að RÚV verður heimilt að starfa á markaði fyrir auglýsingar og kostun, á sama tíma og það hefur tekjur af skatt- fé. Sú breyting hefur verið gerð á frumvarpinu, frá fyrri stigum, að samanlagðar tekjur RÚV ohf. af kostun geta ekki verið hærri en sem nemur hlutfalli tekna af kost- un í samanlögðum tekjum RÚV af auglýsingum og kostun á síðasta ári. Því hefur síðan verið mótmælt að samkeppnislög geti náð til mál- efna RÚV þar sem almenn lög, eins og um RÚV ohf., standi fram- ar samkeppnislögum. Á þeim for- sendum telja þeir sem mæla fyrir frumvarpinu tómt mál að tala um að frumvarpið stangist á við sam- keppnislög. Þessu eru ekki allir sammála. Grundvallarröksemdin að baki þeirra skoðun að samkeppnislög geti ekki talist léttvægari en almenn lög felst öðru fremur í því að samkeppnislög ná til, eðli þeirra samkvæmt, allra þeirra sem starfa á markaði. Þess vegna geti almenn lög ekki veitt skjól gagnvart laga- legu umhverfi markaðarins sem verður, öðru fremur, að ná til alla þátttakenda á markaði. Kjarninn í þessari skoðun er því sá, að almenn lög eru ekki til þess fallin að veita skjól fyrir samkeppnislögum sé þátttaka félags ótvíræð á frjálsum markaði þar sem samkeppnislög eru einu leikreglurnar sem hægt er að styðjast við. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra mótmælti því harðlega að gögnum um sam- skipti ESA við íslensk stjórnvöld hefði verið leynt þegar málið var rætt á Alþingi á þriðjudag. „Þetta er fyrirsláttur til að reyna að tefja málið og ég spyr hvort þetta sé lýðræðislegt,“ sagði Þorgerður Katrín er hún svaraði ásökunum stjórnarandstæðinga um að hún hefði leynt gögnum fyrir Alþingi. Fréttablaðið óskaði eftir öllum gögnum um samskipti ESA við íslensk stjórnvöld 12. desember í fyrra. Fallist var á að afhenda hluta gagnanna, það er sömu gögn og höfðu verið til umfjöllunar í menntamálanefnd. Sú niðurstaða, að veita blaðinu aðeins aðgang að hluta gagnanna, hefur verið kærð til úrskurðarnefndar um upplýs- ingamál. Gögnin hafa þó borist blaðinu þar sem þau hafa verið gerð opinber eftir að fulltrúar í menntamálanefnd fóru fram á að fá gögnin sem Fréttablaðinu hafði verið neitað um. Úrskurðarnefnd- in á þó enn eftir að skera úr um það hvort réttlætanlegt hafi verið að neita blaðinu um gögnin sem nú hafa verið gerð opinber. Hvort greinar laga um RÚV ohf. fela í sér brot á alþjóðlegum reglum ESA, eða brot á samkeppn- islögum, er enn deiluefni þótt lög- fræðingar menntamála- og fjár- málaráðuneytisins hafi gefið grænt ljós á frumvarpið eins og það er nú. Þótt líklegt sé að frumvarpið um RÚV ohf. verði að lögum sem taka gildi 1. apríl á þessu ári er lík- legt að lögin verði ekki til þess að fallin að kæfa niður álitaefnin sem ESA á enn eftir að skila lokasvari sínu um en frumvarpið hefur þegar verið samþykkt út úr nefnd. Álitaefni enn fyrir hendi

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.