Fréttablaðið - 17.01.2007, Page 22

Fréttablaðið - 17.01.2007, Page 22
Einn af hápunktum ársins 2006 var án efa frumsýning Tesla Roadster. Tesla Roadster er hreinræktaður sportbíll. Hann kemst upp í hundr- að kílómetra hraða á um fjórum sekúndum, hámarkshraðinn er 210 kílómetrar á klukkustund, og hann er hlaðinn hátæknibúnaði. Vélin í honum er hins vegar nær hljóðlaus af þeirri einföldu ástæðu að hún er knúin af raf- magni. Tesla Roadster er raf- magnsbíll sem kemst um 400 km á einni hleðslu og það án þess að líta út eins og sápukúla á hjólum. Roadsterinn endurnýjaði áhuga bílaheimsins á rafmagns- bílum og sýndi að þeir eru ekki dautt hugtak sem tilheyrir fortíð- inni, heldur raunhæfur möguleiki í framtíðinni. Bíllinn kostar um 7 milljónir og er til í afar takmörk- uðu upplagi. Hver er hins vegar ekki til í að borga 7 milljónir til að geta keyrt um með hreina sam- visku? Rafdrifinn sportbíll Út frá fjárhagslegu sjónarmiði er mun ódýrara að treysta á almenningssamgöngur en eiga og reka bíl. Munurinn getur hlaupið á hundruðum þúsunda. Bílar eru ekki ódýr tæki, hvorki að kaupa né reka. Á vef FÍB eru útreikningar yfir hvað kostar að reka bíla, þriggja til fimm ára, á verðbilinu 1,4 milljónir til 2,6 milljónir. Útreikningarnir byggj- ast á kostnaði vegna notkunar, trygginga, skatta og skoðana, bíla- stæða og þrifa, og verðrýrnunar. Eðlilega er um mat að ræða á upp- hæðum og er sá fyrirvari settur að bíleigendur geti verið heppnir með bíla sína eða óheppnir (hvað varðar bilanir, verðsveiflur og annað slíkt). Á síðasta ári kostaði um 655.000 að reka fimm ára gamlan bíl, að verðmæti 1,4 milljónir króna, sem ekinn var 15.000 kílómetra á árinu. Þetta er ódýrasti kosturinn sem boðið er upp á í útreikningum FÍB. Sambærilegur þriggja ára bíll sem ekinn er 30.000 kílómetra á árinu kostar um 895.000 krónur í rekstri. Til samanburðar kostar rekstur þriggja ára bíls, að verð- mæti 2,6 milljónir króna, sem ekinn er 30.000 kílómetra á árinu tæpar 1,3 milljónir. Ef farið er með almennings- samgöngum er kostnaðurinn öllu minni. Sé gert ráð fyrir kaupum á rauðu korti (þriggja mánaða korti í Strætó bs), tuttugu leigubílaferð- um á mánuði og fjórum helgum þar sem bílaleigubíll er leigður er kostnaðurinn 434.000 krónur. Munurinn á ódýrasta kostinum á vef FÍB og almenningssam- göngum er því um 300.000 krón- ur. Munurinn á almenningssam- göngum og 2,6 milljóna króna bíl er um 900.000 krónur. Þetta er gríðarlegur munur enda margt hægt að gera við 900.000 krónur. Fjárhagslega er ljóst að það margborgar sig að kjósa almenn- ingssamgöngur fram yfir einka- bílinn. Það er þó kostur sem ekki hentar öllum vegna atvinnu, búsetu eða lífsstíls. Einkabíll veit- ir ákveðið frelsi og fyrir suma eru þeir áhugamál og ástríða sem ómögulegt er að losna við hafi hún náð fótfestu. Hversu dýr er bíllinn? • SUMARDEKK • HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA • HEILSÁRSDEKK • RAFGEYMAÞJÓNUSTA • OLÍS SMURSTÖÐ • BREMSUKLOSSAR • BÓN OG ÞVOTTUR • PÚSTÞJÓNUSTA ALLT Á EINUM STAÐ SMUR- BÓN OG DEKKJAÞJÓNUSTAN SÆTÚNI 4, SÍMI 562 6066 Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR BIFREIÐAVERKSTÆÐI ÞAR SEM ALLT SNÝST UM FÓTBOLTA! NÝTT Á GR AS.IS Leikir Skemmtun NÚ FÆRÐU GRAS.IS FÉTTIR Í SÍMANN! FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR www.visir.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.