Fréttablaðið - 17.01.2007, Page 28
Vetrarvefur námsgagnastofn-
unar er nýr vefur með fróðleik
fyrir miðstig og yngsta stig
grunnskólanna um snjó og
vetrarárstíðina.
„Snjórinn hefur verið óvenjumikill
í ár og þess vegna gaman að geta
boðið upp á vefinn einmitt núna,“
segir Jón Guðmundsson sem hefur
yfirumsjón með vef Námsgagna-
stofnunar Í dagsins önn, þar sem
vetrarvefinn er að finna.
Vefurinn tekur fyrir þætti sem
snúa að snjónum. Hvernig hann
verður til, árstíðaskipti í heimin-
um og íslensk orð yfir snjó og
veðrið. „Ég fékk sérfræðiaðstoð
meðal annars frá Veðurstofu
Íslands, enda veðurfræðin flókin
og mikilvægt að gera hana aðgengi-
lega fyrir börnin. Þeim er kennt að
mæla hita og aðeins að lesa í veð-
urspá til að vekja áhuga þeirra á
íslenska vetrarveðrinu,“ segir Jón
sem jafnframt segir vefinn hafa
fengið mjög góð viðbrögð.
Á vetrarvefnum eru orð sem
notuð eru yfir snjó útskýrð. En
þrátt fyrir að hafa fengið merk-
ingu orðanna frá íslensku orða-
bókinni fékk hann mikil og
skemmtileg viðbrögð. „Almenn-
ingur hefur miklar skoðanir á
orðum um snjó. Hvernig þau eru
notuð og hvað þau þýða. Sem dæmi
má nefna orðið drífa sem þýðir
snjókoma samkvæmt íslensku
orðabókinni en er í hugum margra
snjókoma við mismunandi aðstæð-
ur. Þetta fer líka eftir landshlutum
og það er virkilega gaman að fólk
skuli taka við sér,“ segir Jón.
Vefurinn Í dagsins önn leitast
við að taka fyrir efni líðandi stund-
ar fyrir börn og kennara og má
nefna upplýsingar fyrir börn um
kosningar með vorinu, vef um
Darwin ásamt kortavef þar sem
þróun landakorta af Íslandi verð-
ur kynnt í máli og myndum.
Nánari upplýsingar er að finna
á vef Námsgagnastofnunar. Á for-
síðunni er smellt á Í dagsins önn
og þar undir er meðal annars að
finna Vetrarvefinn. www.nams.is
Veturinn hefur frá
mörgu að segja
Ertu í útrás?
Ertu á leið til útlanda?