Fréttablaðið - 17.01.2007, Qupperneq 36
MARKAÐURINN 17. JANÚAR 2007 MIÐVIKUDAGUR8
NÝJASTA TÆKNI OG VÍSINDI
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson
skrifar
Fornleifafræðingar á vegum Bolognaháskóla á
Ítalíu eru þess fullvissir um að þeim hafi tekist
að draga upp raunsanna tölvugerða mynd af
ítalska stórskáldinu Durante Degli Alighieri,
sem þekktastur er í daglegu tali innan heimsbók-
menntanna sem Dante. Fjöldi málverka er til af
skáldinu. Kosturinn við tölvugerðu myndina er
sá að hún sýnir mun fríðari mann en þá sem sést
á málverkunum, að nefinu undanskildu.
Það er hins vegar fjarri að Dante hafi verið
með fríðustu mönnum, eins og tölvugerða mynd-
in sýnir, að sögn sérfræðinganna sem studdust
við höfuðkúpu Dantes, sem mæld var hátt og
lágt þegar gröf skáldsins var opnuð á þriðja
áratug síðustu aldar. Reyndar vantaði kjálkann,
en tölva var notuð til að reikna út stærð hans og
lögun.
Við mótun andlitsfalls Dantes var stuðst við
nýjustu tækni í réttarmeinafræðum. Farið var
eftir fræðunum í flestu en hrukkur kringum
augu og munn eru byggðar á líkum. Niðurstaðan
er sú, að stórskáld Ítala hafi verið meðalmaður í
útliti en með fremur einkennilega lagað nef.
Dante lést árið 1321, skömmu eftir að meist-
araverk hans, Hinn guðdómlegi gleðileikur, kom
út. Hvorki fleiri né færri en þrjátíu svokallaðar
hel- eða dauðagrímur voru gerðar af andliti hans
að honum gengnum. Á þeim er nef hans beint.
Tölvugerða myndin af skáldinu sýnir hins vegar
að nefið hefur verið bogið og kræklótt, líkt og
það hafi einhvern tíma fengið slæmt högg, að
því er prófessor Giorgio Gruppioni, einn þeirra
sem stóðu að rannsókninni, sagði í samtali við
breska ríkisútvarpið. Að hans sögn bendir flest
til að málarar, sem máluðu myndir af skáldinu
hafi gert það löngu eftir dauða hans og lagað
nefið til eftir hentugleika. Þá eru nokkrar dauða-
grímur enn til sem Gruppioni telur að hafi verið
gerðar eftir hans dag en þær sýna sömuleiðis að
nef hans hafi verið fremur beint, ólíkt því sem
fornleifafræðingarnir telja í dag.
Var stórskáld Ítala með arnarnef?
Tölvugerðar myndir af Dante sýna að hann var ólíkur því sem málverk
af honum gefa til kynna.
Það horfir ekki vænlega fyrir
fyrsta iPhone-síma bandaríska
tölvurisans Apple, sem kynnti
þessa nýju gerð farsíma á ráð-
stefnu sinni í San Francisco
á þriðjudag fyrir rúmri viku.
Bandaríska tölvufyrirtækið Cisco
hefur kært Apple á þeim forsend-
um að fyrirtækið eigi nafnið og
hafi stolið vörumerkinu.
Stjórn Cisco virðist full
alvara með kærunni þótt
Apple hafi vísaði kærunni á
bug og sagt hana fáránlega,
enda hafi nafnið iPhone
lengi verið notað yfir net-
síma. Stjórn Cisco bendir
hins vegar á að það hafi
átt réttinn að vöru-
merkinu iPhone lengi
og hafi fyrirtækið
átt í samningavið-
ræðum við Apple
um notkun nafnsins
síðastliðin fimm ár.
Vörumerkið komst
í eigu Cisco árið 2000
þegar það keypti
tæknifyrirtæk-
ið Infogear
Technology. Það fyrirtæki hafði
hins vegar tryggt sér vörumerk-
ið fjórum árum fyrr, árið 1996.
Stjórn Apple mun fyrst hafa komið
að máli við stjórn Cisco um kaup á
nafninu iPhone árið 2001.
Talsmenn vörumerkjaskráninga
og einkaleyfisskrifstofa vestanhafs
segja að málsvörn Apple muni að
öllum lík-
i n d u m
byggj -
ast á
þ v í
a ð
fyrirtækinu takist
að sanna að þótt iPhone
hafi verið þekkt lengi og
skráð vörumerki sé Apple
fyrst fyrirtækja til að nota nafn-
ið á farsíma. - jab
Apple kært fyrir nafnastuld
Maður nokkur í Ontario í Kanada
hefur höfðað mál á hendur banda-
ríska tölvuframleiðandanum
Dell. Maðurinn, sem á Inspiron-
fartölvu, segir fyrirtækið hafa
vísvitandi selt fartölvur sem áttu
á hættu að ofhitna með þeim
afleiðingum að móðurborð nokk-
urra fartölva af allt að fimm
gerðum Inspiron-tölva skemmd-
ust.
Í málshöfðuninni kemur fram
að Dell hefði átt að vita af gallan-
um en leitt hann hjá sér. Gallinn
kom upp í fartölvunum skömmu
eftir að ársábyrgð þeirra rann
út, að því er fram kemur í máls-
höfðuninni.
Dell innkallaði rúmlega fjórar
milljónir rafhlaðna í fartölvum
fyrirtækisins í fyrra vegna galla
í þeim sem varð til þess að þær
ofhitnuðu og gat orðið til þess
að eldur kviknaði í tölvunum.
Ekki er hins vegar talið að eldur
hafi komið upp í fartölvum Dell
vegna ofhitnunarinnar nú.
Japanski framleiðandinn Sony
framleiddi rafhlöðurnar sem
fylgdu fjölda fartölva frá þekkt-
um framleiðendum og varð fyrir-
tækið að innkalla um tíu milljónir
rafhlaðna um allan heim vegna
þessa. Fyrirtækið varð fyrir mikl-
um skakkaföllum vegna þessa
og varð að skera hagnaðartölur
sínar niður um helming vegna
innköllunarinnar. - jab
Segir Dell vísvitandi hafa
selt gallaðar fartölvur
Fornleifafræðingar frá
Bandaríkjunum og Rússlandi hafa
fundið elstu vísbendingar um
veru manna í Evrópu í Rússlandi.
Mannvistarleifarnar, sem eru frá
steinöld og talið er að séu um 45
þúsund ára gamlar, fundust við
bæinn Kostenki um fjögur hundr-
uð kílómetrum suður af Moskvu.
Undrun sætir hversu austarlega í
álfunni mannvistarleifarnar fund-
ust.
Á meðal þess sem fannst voru
útskorin fílabein og gildrur, sem
virðast hafa verið notaðar til að
fanga lítil dýr á borð við héra og
kanínur.
Fundurinn þykir sýna að
fyrstu íbúar Evrópu hafi komið
frá Afríku fyrir um 42 þúsund
til 45 þúsund árum, sem er um
fimm þúsund árum fyrr en fram
til þessa hefur verið talið.
Ekki liggur fyrir um ástæðu
þess að frummennirnir yfirgáfu
Afríku og fóru til kaldari staðar þar
sem loftið var þurrara en suðurfrá.
Líkur virðast benda til að mennirn-
ir sem fóru austur eftir hafi ekki
verið af ætt Neanderdalsmanna,
sem dreifðu úr sér í Evrópu um
svipað leyti. Megi því gera ráð
fyrir að Neanderdalsmenn hafi
verið í minnihluta eða alls ekki
þar sem nú er Rússland og því hafi
þessi tiltekni hópur frummanna
ákveðið að byggja sér dvalarstað
þar þrátt fyrir að hafa ekki verið
búnir til dvalar í köldu landi. - jab
Fyrstu Rússarnir komnir í leitirnar?
Margir velta því fyrir sér hvern-
ig Sony muni reiða af í baráttu
leikjatölvuframleiðendanna
þriggja á árinu. Flestir eru þó
sammála um að Sony hafi lotið í
lægra haldi fyrir Nintendo, sem
sló óvænt í gegn með nýrri leikja-
tölvu undir lok síðasta árs.
Nýjasta leikjatölva Sony,
PlayStation 3, kom á markað í
Japan í nóvember á síðasta ári,
rúmum hálfum mánuði áður en
Wii-tölvan frá Nintendo leit dags-
ins ljós. Sala Sony í Japan er hins
vegar talsvert undir væntingum.
Fyrirtækið áætlaði að selja allt
að einnni milljón leikjatölva frá
útgáfudegi, 11. nóvember, til árs-
loka. Reyndin er hins vegar sú
að salan nemur tæplega 467.000
leikjatölvum.
Nintendo hefur á sama tíma
farið langt fram úr Sony og selt
um tvöfalt fleiri leikjatölvur frá
byrjun desember, þegar leikja-
tölvan kom út í Japan, til loka
síðasta árs.
Microsoft rekur svo lestina á
leikjatölvumarkaðnum þrátt fyrir
að hafa náð umtalsverðu forskoti
með því að setja Xbox 360-leikja-
tölvuna á markað í desember í
hitteðfyrra. Fyrirtækið hefur
fram til þessa selt tæpar 300.000
leikjatölvur og ljóst að það hefur
ekki náð að nýta sprettinn eins
vel og vonir stóðu til. - jab
Nintendo sigurvegari