Fréttablaðið - 17.01.2007, Side 42
2
Skattaumhverfið getur reynst flók-
ið í augum ungs fólks og því hefur
Ríkisskattstjóri brugðist við með því
að setja upp sérstakan skólavef á
vefsíðu embættisins rsk.is. Á skóla-
vefnum er fróðleikur um skattamál
ætlaður nemendum í efstu bekkj-
um grunnskóla. Þar er spurningum
svarað eins og: Hvað eru skattar?
Hvernig er staðgreiðsla reiknuð?
Til hvers er skattkort? og hvernig
telur maður fram á netinu? Skatta-
umhverfið vefst þó fyrir fleirum en
ungu fólki og getur vefurinn því
nýst öllum, enda eru þar útskýrðir
hlutir eins og barnabætur og
vaxtabætur. Útskýringar eru
einfaldar og á síðunni er að
finna reiknivél þar sem hægt
er að reikna út hversu mik-
inn skatt þarf að greiða af
tekjum og hversu mikið af
laununum fer í viðbótar-
lífeyrissparnað og fleira.
Ungt fólk frætt um skattinn
Á vefsíðunni rsk.is er svæði sem kallast skólavefurinn þar sem tekjuskattur, vaxtabætur
og fleira er útskýrt á einfaldan máta.
{ fjármál heimilanna }
Inn um lúguna streyma nú alls
kyns uppgjör og yfirlit frá bönkum
og vinnuveitendum. Það er erfitt að
vita hvað skiptir máli og hverju má
henda. Í augum Matthíasar Björns-
sonar, ráðgjafa hjá Debet, er málið
hins vegar mjög einfalt. „Það er um
að gera að halda öllu til haga og
ekki henda neinu,“ segir Matthías.
„Þetta er reyndar orðið mun betra
núna, auðveldara að nálgast upp-
lýsingar á rafrænu formi og mikið
af þeim kemur sjálfkrafa inn í
skattaskýrsluna.“
Villur í framtölum vegna ónógra
gagna og klaufaskaps eru ekki óal-
gengar og sérstaklega þegar kemur
að lánum. „Lán koma sjálfkrafa
inn séu þau frá Íbúðalánasjóði og
Glitnir bauð upp á það sem valkost
í fyrra. Ég veit ekki hvað bankarnir
munu gera nú í ár en það er yfir-
leitt hægt að sjá slíka hluti í heima-
bankanum,“ segir Matthías. „Fólk
gleymir oft að taka öll lán fram
en það er mikilvægt að gera þeim
góð skil bæði vegna þess að það er
skylda og vegna þess að vaxtabæt-
ur kunna að skerðast gleymi fólk
sér.“
Matthías segir að framtal skatta
sé stöðugt að verða einfaldara mál
en þá komi á móti að fólk sé stöðugt
að gera flóknari hluti í fjármálum.
„Lánin eru flóknari og fólk sýsl-
ar með hlutabréf og annað,“ segir
Matthías. „Þar koma einnig inn í
húsbyggingar og arfur og annað
sem getur flækt framtalið.“
Fyrir þá sem sjá fram á flókin
framtöl mælir Matthías með aðstoð
fagmanna, hvort sem það sé hjá
Debet eða öðrum. „Við tökum þá
við öllum skjölum sem viðskipta-
vinir hafa undir höndum og gerum
framtalið í umboði þeirra,“ segir
Matthías. „Ef einhver skjöl vantar
reddum við þeim svo fólk þurfi ekki
að hafa óþarfa áhyggjur og sé á síð-
ustu stundu með skil.“ - tg
Algengt að fólk gleymi láni
Það verður stöðugt einfaldara að skila skattaskýrslu en fjármál fólks verða að sama
skapi stöðugt flóknari.
Sennilega hefur auglýsingaherferð
Glitnis um aukin sparnað senni-
lega farið framhjá fáum. Eigðu
afganginn er ný sparnaðarleið
sem bankinn auglýsir og er ætlað
að auðvelda fólki að spara. Hún
virkar þannig að maður skráir sig í
þjónustuna annaðhvort í netbank-
anum, á vefsíðunni, með símtali í
þjónustuverið eða í næsta útibúi.
Við skráningu velur maður um að
láta hækka allar debetkortafærslur
upp í næstu 100, 500 eða 1.000 kr.
og þann sparnaðarreikning sem á
að leggja afganginn inn á. Reikn-
ingurinn sem lagt er inn á er því
skilyrði háður að vera reikningur
hjá Glitni, en þarf ekki að vera í
eigu debetkortshafans. Þannig
getur fólk stutt við bakið á góð-
gerðarsamtökum eða lagt afgang-
inn inn á sparireikning barnanna.
Við noktun á kortinu hækkar
greiðslan sjálfkrafa upp í þá upp-
hæð sem valin var við skráningu.
„Viðbrögðin við þessu hafa verið
svakalega góð,“ segir Finnur Bogi
Hannesson hjá markaðsdeild Glitn-
is. „Við erum sífellt að finna leiðir
til að auðvelda viðskiptavininum
að leggja fyrir og líta á sparnað
sem eðlileg útgjöld.“
Eigðu afganginn
Glitnir býður viðskiptavinum sínum nýja leið til að spara.
Þegar greitt er af svokölluðu jafngreiðsluláni greiðir lántakandi sömu
upphæð til lánveitanda hverju sinni. Samsetning greiðslunnar á milli
vaxta og afborgana breytist hins vegar. Í fyrstu vega vaxtagreiðslur
þungt og afborganir lítið en smám saman, eftir því sem líður á láns-
tímann og höfuðstóll lánsins minnkar, dregur úr vægi vaxtagreiðslna
en vægi afborgana vex.
Lán með jöfnum afborgunum er hins vegar þannig að greitt er mest
í upphafi, þegar vaxtagreiðslur eru háar, en minnst undir lokin þegar
höfuðstóllinn er orðinn lítill og vaxtagreiðslur lágar. Afborgunin er sú
sama hverju sinni en vextirnir sem greiddir eru fara lækkandi.
Heimild: Vísindavefurinn
Jafngreiðslulán
Svo virðist sem best sé að fólk hugi
að starfslokum sem fyrst, til að starfs-
lokasjóðurinn sé feitur og góður
þegar að þeim kemur. Þeir sem eru
í fastri vinnu taka kannski viðbót-
arlífeyrissparnað og/eða leggja fasta
upphæð til hliðar mánaðarlega.
Þeir sem vinna sjálfstætt eða sem
verktakar og eru kannski ekki með
jafn reglulegar tekjur sinna þessu oft
ekki sem skyldi. Líður þó að starfs-
lokum hjá öllum og er þá mikilvægt
að eiga einhverja peninga til að lifa
á. Verktakar og aðrir þeir sem starfa
sjálfstætt ættu þó að huga að því
að spara með reglulegum sparnaði.
Til dæmis er hægt að ákveða að
tuttugu prósent af tekjunum sé lögð
inn á sparnaðarreikning og sé það
óháð hvenær tekjurnar berast. Best
er að líta á sparnaðinn sem hluta
af útgjöldum, sé það erfitt að koma
því við að byrja að spara. Kaupþing
er einn þeirra banka sem bjóða upp
á ráðgjöf og þjónustu fyrir þá sem
huga að starfslokum.
Starfslok undirbúin
Erlendis tíðkast það að fólk búi sig undir starfslokin
snemma á ævinni og byrja að leggja fyrir. Sá hugsunar-
háttur er nýr af nálinni á Íslandi og eru bankarnir aðeins
byrjaðir að taka við sér.