Fréttablaðið - 17.01.2007, Síða 51
MARKAÐURINN 15MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 2007
S K O Ð U N
Áður en stöður eru auglýstar
er ráðlegt að skoða nánar hver
þörfin er á nýjum starfsmanni.
Ráðlegt er að greina starfið
og skoða hvort möguleiki sé
að skipta starfinu niður á aðra
starfsmenn eða hvort hægt sé að
fá starfsmenn í hlutastarf til að
sinna starfinu. Greining tryggir
að ráðning nýs starfsmanns sé
vel ígrunduð og byggð á sannri
þörf fyrir starfsmann.
Vinsælt er að nota dagblaðs-
auglýsingar þegar leita á að
starfsmönnum, en einnig hafa
auglýsingar verið birtar í kvik-
myndahúsum, fagtímaritum,
á heimasíðum fyrirtækja og í
útvarpi, allt eftir markhópum
sem verið er að höfða til.
Auglýsingar ættu að innihalda
þætti sem hvetja viðeigandi
umsækjendur til að sækja um.
Þær ættu einnig að bægja frá
þeim umsækjendum sem ekki
hafa rétta hæfni í starfið með
því að tilgreina réttar hæfnis- og
námskröfur.
Í íslenskum lögum um jafna
stöðu og jafnan rétt kvenna
og karla segir í 13. grein:
„Atvinnurekendur skulu sérstak-
lega vinna að því að jafna stöðu
kynjanna innan fyrirtækis síns
eða stofnunar og stuðla að því
að störf flokkist ekki í sérstök
kvenna- og karlastörf.“ Einnig
segir í 24. grein um auglýsingar:
„Óheimilt er að auglýsa eða birta
auglýsingu um laust starf þar
sem gefið er í skyn að fremur sé
óskað starfsmanns af öðru kyn-
inu en hinu.“
Starfsauglýsingar ættu að
innihalda jákvæða en nákvæma
lýsingu á starfinu. Nauðsynlegt
er að tilgreina hvernig mann-
eskju er verið að leita eftir, s.s.
með því að tilgreina hæfniskröf-
ur og námskröfur. Titill starfsins
þarf að vera lýsandi og í stað
þess að auglýsa eftir „sérfræð-
ingi á málstöð“ þegar leitað er
að aðila sem er hæfur í þýsku er
hægt að auglýsa eftir „sérfræð-
ingi í þýsku“. Þannig skapast
meiri möguleikar á að fá réttu
umsækjendurna. Auglýsingin
ætti einnig að innihalda stutta
málsgrein um fyrirtækið sem
lýsir því, gildum þess og stefnu
og tilgreina þarf aðila sem hægt
er að hafa samband við varð-
andi starfið. Þá ætti heimilis-
fang fyrirtækis, netfang, fax og
símanúmer að fylgja með í aug-
lýsingu.
Mikilvægt er að hafa í huga
að ráðningarferli er dýrt ferli og
þess vegna þarf að fulltryggja
að upplýsingar í auglýsingum
séu nákvæmar. Þannig skapast
meiri möguleikar á að fá réttu
umsækjendurna.
Sif Sigfúsdóttir,
MA í mann-
auðsstjórnun.
Innihald
atvinnu-
auglýsinga
S T A R F S M A N N A M Á L
Ég er hinn kátasti þessa dagana
enda gengur mér að venju allt
í hag. Hlutabréfin hafa hækkað
vel frá áramótum og löngu búið
að þéna til baka það sem fór í
flugeldana.
Flugeldasýning hagkerfis-
ins heldur áfram. Bæði er ríkið
slappt í hagstjórn og þá ekki
síður sveitarfélögin, en þar er
mallað á yfirdrættinum enda-
laust. Svo munu rísa álver úti
um allar koppagrundir og sjá
til þess að þenslan verði alveg
botnlaus. Maður verður í vaxta-
veislu hjá Seðlabankanum alveg
til 2011 ef að líkum lætur. Þá
verð ég reyndar orðinn svo ríkur
að það verður alveg hætt að
skipta máli hvar ég fjárfesti.
Lágir vextir af dreifðu eigna-
safni munu sjá mér fyrir lífeyri
sem dugar fyrir nauðþurftum
míns hófstillta lífsstíls. Sá hóf-
stillti lífsstíll er reyndar þannig
að ég lifi betra lífi en Loðvík
14. á sínum tíma, reyndar með
færri þjóna. Þjónustan er hins
vegar úti um allt og ég þarf
ekki að hafa sömu áhyggjur af
starfsmannahaldi og kallinn. Það
veit líka enginn hver ég er svo
það dregur úr líkum á að maður
verði afhausaður.
Eina áhyggjuefnið núna
er hvernig krónan á eftir að
haga sér. Eins og róni kemur
óorði á vín, þá kemur krónan
óorði á markaðinn hér heima.
Krónan var algjör bjargvættur
í þenslunni núna. Það að hafa
haft krónu undanfarin ár er
eins og að vera á sterum. Maður
blæs út og verður vöðvastælt-
ur ef maður æfir. Þannig hefur
efnahagslífið verið. Sterk króna
hefur verið nýtt til erlendra
fjárfestinga og ódýrt erlent
lánsfé stutt við útrásina. Sterar
eru ekki án aukaverkana. Fyrst
verður maður rámur, geðstirð-
ur með sístöðu sem er reynd-
ar ekki alslæmt. Síðan taka við
alvarlegri aukaverkanir. Maður
verður ljótur og bólugrafinn og
eistun rýrna. Þá tekur pattstaða
við a sístöðunni.
Það er ekki gott ástand og
langt því frá eftirsóknarvert.
Galdurinn er að hætta leik þá
hæst hann stendur og þá nýtur
maður ávaxtanna af vextinum og
sleppur við verstu aukaverkan-
irnar. Menn þurfa því að fara að
hugsa út fyrir það tímabil þegar
stærstu stóriðjufjárfestingarnar
eru að baki. Skynsamlegast er
náttúrlega að borða hollt fæði,
reyna hæfilega á sig og vera
í toppformi á öllum sviðum.
Maður verður ekki eins hrikalegt
vöðvabúnt fyrir vikið, en miklu
þægilegri í umgengni og líður
svo miklu betur og endist miklu
betur. Það er nefnilega betra að
vera heilbrigður en stór.
Spákaupmaðurinn á horninu
S P Á K A U P M A Ð U R I N N
Krónan
er steri