Fréttablaðið - 17.01.2007, Page 56
MARKAÐURINN
Hilmar Veigar Pétursson,
framkvæmdastjóri tölvuleikja-
fyrirtækisins CCP, lét langþráðan
draum rætast þegar hann sýndi
myndskot úr fjölþátttökuleiknum
EVE-Online á bíótjaldi í einum
af hliðarsölum Háskólabíós á
opnum fyrirlestri um fyrirtækið
á vegum Viðskipta- og hagfræði-
skorar Háskóla Íslands í síðustu
viku. Hilmar ræddi um forsögu
CCP allt frá því að hugmynd-
in kom upp á yfirborðið undir
lok síðustu aldar, framgang og
uppgang þess og öll þau auka-
verkefni sem starfsmenn CCP
þurftu að taka sér á hendur til
að láta enda ná saman. Hilmar
segir að ef ekkert annað upplýs-
ingatæknifyrirtæki líti dagsins
ljós á næstu árum hér á landi
muni CCP standa fyrir helmingi
af öllum tekjum Íslands í útflutn-
ingi í upplýsingatækni árið 2011.
Hilmar tæpti á sögu CCP
þegar sú hugmynd kom upp að
búa til tölvuleik í þrívídd sem
mörg þúsund manns gætu spilað
í rauntíma og keypt í áskrift á
netinu. CCP var svo stofnað í
kringum leikinn um mitt ár 1997.
Á meðan unnið var að hugmynd-
inni unnu starfsmenn fyrirtækis-
ins að ýmsum verkefnum, þróuðu
meðal annars útlit Latabæjar og
bjuggu til borðspilið Hættuspil,
svo eitthvað sé nefnt, til að
tryggja fjárhagslegar stoðir CCP.
„Það hljómar kannski furðulega
að gera fjölskylduborðspil þegar
maður ætlar að gera tölvuleik.
Þeir sem hafa spilað Hættuspilið
og EVE-Online átta sig kannski á
því að það er ákveðinn sameig-
inlegur þráður í gegnum báðar
þessar vörur,“ benti Hilmar á
og bætti við að leikirnir gengju
báðir út á að fólk spilaði hvert við
annað fremur en tölvuna sjálfa
líkt og í einmenningsleikjum.
TÖLVUFYRIRTÆKI MEÐ TÓMA
VASA
Velheppnað útboð viku eftir
að netbólan sprakk vestanhafs
árið 2000 gerði CCP kleift að
gera helminginn af EVE-Online
en leit að frekara fjármagni til
að tryggja rekstur til þriggja
ára var erfiðari. Fyrirtækinu
tókst engu að síður að safna
fjármagni til tveggja og hálfs
árs. Enn harðnaði í ári eftir
því sem á leið og undir lok árs
2002 voru peningarnir á þrot-
um. „Við áttum enga peninga
og rákum fyrirtækið án þess
að greiða laun í þrjá mánuði.
Það voru 30 manns í vinnu hjá
okkur þá sem eyddu tímanum
fyrir hádegi í að redda sínum
eigin fjármálum en tímanum
eftir hádegi til að búa til tölvu-
leikinn,“ sagði Hilmar.
Sama ár landaði CCP útgáfu-
samningi við bandaríska útgáfu-
fyrirtækið Simon & Schuster.
Það gerði CCP kleift að ljúka
leiknum, sem leit dagsins ljós í
maí 2003, að vísu hálfkláraður, að
sögn Hilmars. Bandaríska fyrir-
tækið ákvað síðan öllum að óvör-
um að hætta útgáfu tölvuleikja og
varð CCP að gera hvað það gat til
að ná útgáfusamningnum til sín
á ný. Hilmar benti á að það hefði
verið strembið, ekki síst vegna
þess að Simon & Schuster væri
rekið af strangtrúuðum gyðing-
um sem væru þekktir fyrir að
hafa náð góðum samningum í
fjögur þúsund ár og væru ekki
vanir því að tapa í viðskiptum.
CCP tókst áætlunarverk sitt og
fór inn í árið 2004 með alla virðis-
keðjuna fyrir tölvuleikinn á eigin
hendi.
CCP ÞREFALDAST Á RÚMU ÁRI
Samfara þessu hóf CCP að bjóða
netverjum leikinn í beinni sölu
á netinu en það merkir að við-
skiptavinurinn sinnir öllum við-
skiptum sínum varðandi EVE-
Online á vefsíðu leiksins. „Síðan
við byrjuðum á þessu hefur leik-
urinn um það bil tvöfaldast á
hverju ári fram til dagsins í dag,“
benti Hilmar á og bar vöxtinn
saman við útflutning á hugbún-
aði og tölvuþjónustu frá Íslandi á
stöplariti sem Seðlabanki Íslands
hafði tekið saman fram til ársins
2005. Að ósk Hilmars var CCP
skilið frá öðrum fyrirtækjum og
gat hann með því móti fram-
reiknað hlut CCP samanborið við
önnur upplýsingafyrirtæki allt
fram til 2011.
Hluti upplýsinganna var skáld-
aður, að sögn Hilmars, miðað
við áætlaðan vöxt í greininni en
aðrir byggðust á framtíðarvexti
CCP. Hlutur CCP í útflutningi á
íslenskum hugbúnaði nam miðað
við þetta 16 prósentum fyrir
tveimur árum en 28 prósentum
miðað við við vöxt í tekjum CCP
og vöxt greinarinnar almennt í
fyrra. „Ef einhver fer ekki að
standa sig í upplýsingatækni og
álbræðslu verður tölvuleikur-
inn EVE-Online helmingurinn af
öllum útflutningi í upplýsinga-
tækni árið 2011,“ sagði Hilmar
og benti á að flestir þættir CCP
hefðu tvö- til þrefaldast á síðast-
liðnum fjórtán mánuðum. Sama
máli gegndi um starfsmanna-
fjöldann, sem hefði þrefaldast,
en um 700 manns vinna fyrir
CCP um allan heim. „Þetta er í
raun gjörbreytt fyrirtæki,“ sagði
Hilmar.
Hilmar tíundaði að fjöldi
erlendra starfsmanna fyrirtækis-
ins hefði flutt hingað til lands sér-
staklega til að vinna við leikinn.
Um sprenglært starfsfólk væri
að ræða enda krefðist leikurinn
mikillar sérþekkingar, ekki síst
á sviði stærðfræði, eðlisfræði og
tölvunarfræði, sem skiljanlega
væri stór þáttur í leiknum.
VERÐBÓLGA Í TÖLVULEIK ER
HÆTTULEG
Hagfræði er einn af veigamestu
þáttunum í EVE-Online og sagði
Hilmar að hagkerfi leiksins væri
sem líkast því sem gerðist í raun-
veruleikanum. CCP heldur utan
um hagkerfi leiksins og þjónar
eins konar hlutverki Seðlabanka,
sem dælir fjármagni inn í hann
þegar við á. „Við sturtum pen-
ingum inn í hagkerfið, eiginlega
tilviljanakennt, og reynum svo
einhvern veginn að ná þeim inn
aftur með því að selja fólki eitt-
hvað, innheimta skatta, gjöld og
fleira,“ segir hann og bætti við
að stjórnendurnir frystu eignir
þeirra sem gerðust brotlegir við
reglur samfélagsins.
Stjórnendur CCP vilja ekki
sjá verðbólgu í leiknum, að sögn
Hilmars, sem sendi sneið til raun-
heimsins í máli sínu. „Verðbólga í
leik sem þessum er mjög alvarlegt
mál. Ef þú byrjar leikinn og getur
strax keypt stærsta geimskipið af
því það eru svo miklir peningar
í umferð er búið að klippa þrjá
mánuði af æviskeiði notanda,“
sagði Hilmar en innbyggt ferli
er í leiknum sem fylgir þróun
spilarans í netsamfélaginu. „Ef
of miklir peningar eru í umferð
kaupir fólk sér einbýlishús á
hundrað prósent láni. Eðlilegasta
ferlið væri að byrja fyrst í blokk,
fara síðan í raðhús, parhús og
að lokum í einbýlishús,“ sagði
Hilmar og benti á nauðsyn þess
að varna því að spilarar í EVE-
Online yrðu eins og Íslendingar,
sem yrðu ölvaðir af öllum pen-
ingunum sem fengjust allt í einu
ókeypis í samfélaginu.
17. JANÚAR 2007 MIÐVIKUDAGUR20
H É Ð A N O G Þ A Ð A N
„Mig hefur langað til að spila þetta í bíói“
Framkvæmdastjóri CCP spilaði í fyrsta sinn myndskot úr fjölþátttökuleiknum EVE-Online á bíótjaldi í
síðustu viku. Verðbólga í hagkerfi tölvuleiksins er hættulegt fyrirbæri, að hans sögn. Jón Aðalsteinn
Bergsveinsson hitti Hilmar Veigar Pétursson í Háskólabíói á dögunum.
„Við sturtum peningum inn í hagkerfið, eiginlega tilviljanakennt, og reynum
svo einhvern veginn að ná þeim inn aftur með því að selja fólki eitthvað, inn-
heimta skatta, gjöld og fleira.“